Morgunblaðið - 28.02.1985, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 28.02.1985, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1985 7 Sex embættis- menn og tveir frá Heklu RANGHERMT var í blaðinu í gær, að tíu embættismenn hefðu þá um morguninn haldið til Þýskalands í boði Heklu hf. til að skoða bílaverksmiðjur Volkswag- en. Hið rétta er, að embættis- mennirnir voru sex — tveir frá dómsmálaráðuneytinu, þrír frá lögreglunni í Reykjavík og einn frá Rannsóknarlögreglu ríkisins — og auk þeirra fóru í ferðina tveir fulltrúar frá Heklu hf. í Reykjavík. í hópnum er enginn fulltrúi Innkaupastofnunar ríkis- ins. Beðist er velvirðingar á þess- um mistökum. Sauðárkrókur: Uppsagnir í frystihúsunum Saudárkróki, 27. febrúar. TOGARAR Útgerðarfélags Skagfirð- inga eru að sjálfsögðu bundnir hér við bryggju vegna sjómannaverk- fallsins. Vinna er enn í frystihúsun- um tveim, en hráefni þrýtur á fimmtudag eða lostudag. Starfsfólki frystihúsanna hefur verið sagt upp kauptryggingu frá næstkomandi föstudegi og má gera ráð fyrir að þá fari 80 til 90 manns á atvinnuleysisskrá. Jón Karlsson, formaður verkamanna- félagsins Fram, sagði að atvinnu- ástand í vetur hefði verið áþekkt og undanfarin ár. Mætti segja, að um 50 til 60 manns hefði verið við- varandi á atvinnuleysisskrá og miðaði hann þá við félagssvæði Fram, sem nær yfir Sauðárkrók og Skagafjarðarsýslu utan Hofs- óss. Væri fiskverkunarfólk hér ekki meðtalið. Allra vonir standa til, að sjó- mannaverkfallið leysist sem fyrst, en þó svo færi liði nokkur tími þar til vinna hefst aftur í frystihúsun- um því nokkurn tíma tekur, að búa skipin til veiða og veiðiferðin er varla skemmri en 8 til 10 dagar. - Kári Leikarar í „Draumsónötu" eftir August Strindberg, sem Menntaskólinn við Sund sýnir. Nemendur Menntaskólans við Sund sýna: „Draumsónötua eftir August Strindberg Leiklistarfélag Menntaskólans við Sund, hefur æft „Draumsónötu“ eftir August Strindberg undanfarna leikstjóri er Hlín Agnarsdóttir. „Draumsónatan", er eitt af þeim leikritum Strindbergs, sem kennd hafa verið við „draum- leiki", en það voru leikrit gjörólík fyrri leikritum hans bæði að upp- byggingu og innihaldi," sagði Hlín. „I verkinu brýtur höfundur- inn hefðbundið leikgerðarform og hefur hann verið langt á undan sinni samtíð í þeim efnum, en leikritið er skrifað 1907. Megin einkenni verksins eru fjarstæðu- kenndar persónur. Húsmóðirin er til dæmis múmía inni í skáp og eldabuskan nærist á krafti frá öðru heimilisfólki. Það má því segja að Strindberg hafi rutt brautina fyrir ýmsa nútímahöf- unda, sem kenndir eru við fárán- manuðu. Þyðandi er Einar Bragi, en leikaleikhús." Ýmsir hafa gagnrýnt okkur fyrir að leggja á áhugafólk og byrjendur svona erfitt verkefni eins og leikrit eftir Strindberg er, en eftir að hafa lesið fjöldann all- an af verkum komum við okkur saman um að reyna við Strind- berg,“ sagði Hlín. „Ég er líka sjálf þeirrar skoðunar að það sé mik- ilvægt að kynna ungu fólki sí- gilda höfunda, en ekki bara ein- hvern. Með þessu móti finna þau að gerðar eru kröfur til þeirra, auk þess sem margar spurningar vakna um lífið og tilveruna sem þau vilja fá svör við.“ Leikarar eru um tuttugu í leik- ritinu auk þess sem félagar úr Leikarar æfa persónugerð fyrir sýningu. Frá vinstri Svanhildur Gunn- arsdóttir, Elín Sigurgeirsdóttir og Björn Jónsson. skólakór MS syngja undir stjórn Þóru Fríðu Sæmundsdóttur. Ljósamenn eru Egill Árnason og Helgi Arnalds. Leikmynd og bún- ingahönnun sáu félagar í Talíu, leiklistarfélag MS, um. Yfirum- sjón með verkinu hefur Helgi Arnalds. Tónlistin er eftir Egil Gunnarsson, félaga í Talíu, en Linda Hængsdóttir leikur undir á píanó. „Draumsónatan", verður frum- sýnd fimmtudaginn 28. febrúar og verður sýnd öll kvöld fram til 10. mars, að undanskildum laug- ardeginum 2. marz, þá féllur sýn- ing niður. Sýnt er í húsnæði Menntaskólans við Sund, í gamla Vogaskólanum, gengið inn frá Ferjuvogi. Úrvalsfcröir tll Mallorca hafa veriö geysilega vinsælar á undanförnum árum. Mallorca er líka stórkostlegur staöur þar sem allir finna dægradvöl og fólagsskap viö sitt hæfi. Úrval leggur alla áherslu á aö bjóöa aöeins bestu gistiaöstööu, ekki síst meö þarfir Imrnafólks í huga. Á Alcudia ströndinni bjóöum viö gistingu á Ciudad Rlanca. sem hlotiö hefur frábærar viötökur farþega Úrvals og hinu glænýja Alcudia Park. Á stuöströndinni Magaluf bjóöum viö hiö sívinsæla Royal Magaluf. Sérstakar fjölskylduferöir: Frítt fyrir 1 barn aö 16 ára aldri í 4ra manna fjölskyldum ogstærri, brottfarir 3/4, 17/4, 8/5, téékT'fuppselt). 2/10. Scrstakar feröir fyrir roskna og ráösetta: 8/5, 2/10. Páskaferö: 2 vikur. brotlför 3/4. Athugiö fjölskyldutllboðlð. Almennar brottfarir: 17/4, 8/5, 29/5, 19/6,JM~(uppsell). 31/7, 21/8, 11/9, 2/10. Verö frá kr. 26.500,- Mallorca er sannkölluö fjölskyldui)aradís. FERÐASKRIFSTOFAN ÚRVAL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.