Morgunblaðið - 28.02.1985, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 28.02.1985, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBROAR 1985 Staða rannsókna- og þró- unarstarfsemi á íslandi eftir Vilhjálm Lúðvíksson Inngangur í áramótaræðu sinni nýlega lýsti forsætisráðherra þeim tíma- mótum, sem íslendingar lifa nú og þeim djúpstæðu breytingum, sem eru að verða á högum lands- manna. Inntakið í þeim boðskap er að lokið sé því sögulega skeiði, sem staðið hefur í nokkra áratugi — tímabilinu þegar íslendingar komu upp einhverju fullkomnasta velmegunarþjóðfélagi heims, þar sem ævilíkur manna eru lengstar meðal þjóða, lífskjör með því besta sem þekkist og jöfnuður og réttlæti fremur í hávegum höfð en í flestum öðrum löndum. Þetta merkilega velsældarríki hefur fyrst og fremst verið byggt á þeim efnahagslega grunni, sem lifandi auðiindir lands og sjávar mynda. Nú bregður hins vegar svo við að ekki er lengur að vænta aukins afla úr sjó, né markaða fyrir aukna búvöruframleiðslu og er sýnt að leita verður nýrra leiða til að viðhalda hagvexti og þjóðfé- lagsframförum. Þetta töldu reyndar ýmsir sýnt fyrir um 10—15 árum og átti Rannsókna- starfseminnar að benda á leiðir og greiða götu þeirra breytinga, sem fylgja nýjum tíma. Það er því við hæfi að velta því fyrir sér á þess- um ársfundi Rannsóknaráðs hvernig rannsóknastarfsemin sé í stakk búin að gegna þessu hlut- verki á komandi árum, og hvernig megi auka framlag hennar til ný- sköpunar. Er það í senn efni þessa erindis og viðfangsefni fundarins. Tímamót - Ný viðhorf Þau tímamót sem við nú lifum skapa okkur margan vanda, en búa okkur líka tækifæri Fyrir utan stöðnun í vexti hefðbundinna at- vinnuvega og þann efnahags- vanda, sem af því leiðir nú, má einnig nefna önnur mikilvæg at- riði: 1. Samkeppni í alþjóðaviðskiptum fer nú harðnandi, bæði á mörk- uðum fyrir hefðbundnar út- flutningsvörur okkar, og fyrir aðrar vöru og þjónustu, sem við hugsanlega hefðum áhuga á að flytja út. 2. Ný og háþróuð tækni ryður sér til rúms á mörgum sviðum og gerbreytir framleiðsluvörum og framleiðsluaðferðum og þar með samkeppnisforsendum ein- stakra framleiðslugreina. 3. Hugsanlega verður erfiðara en ráð ríkisins m.a. sinn þátt í að benda á þá hættu, sem framundan væri og nauðsyn þess að breyta um stefnu í málefnum atvinnuveg- anna. Þá vildu fæstir hagsmuna- aðilar og stjórnmálamenn trúa bláu skýrslu Rannsóknaráðs um takmarkanir á auðlindum sjávar, þar sem færð voru rök að því að fiskiskipafloti landsmanna væri orðinn of stór og fjárfesting í nýj- um skipum myndi ekki skila arði. Að vísu frestaði útfærsla fisk- veiðilögsögunnar árið 1975 nokkuð þeim áhrifum, sem spáð var í skýrslunni og færði landsmönnum hagvöxt um skeið. En nú verður ekki lengur undan vikist. Miklar og oft harðar umræður hafa staðið um nauðsyn og eðli þessara stefnubreytinga síðastlið- inn áratug, m.a. um það hvort offjárfesting væri í sjávarútvegi, hvort offramleiðsla í landbúnaði væri varanleg, um hlut iðnþróun- ar og þá ekki síst þátt orkufrekrar stóriðju, o.s.frv. Hagsmunir og sjónarmið hefðbundinna og nýrra atvinnugreina hafa gjarnan tekist á. Má vera að umræða þessi hafi orðið til að búa þjóðina andlega undir þær breytingar, sem fram- undan eru. Orð forsætisráðherra í nýársávarpi má þannig túlka sem innsigli á uppgjör, sem orðið er með þjóðinni og um leið hvatningu til að takast á við vandamál og nýta tækifæri nýs tíma. Nú er það hlutverk rannsókna- Vilhjálmur Lúðvíksson 2. Þessi nýja kynslóð sérmenntaðs fólks hefur verið að taka við mannaforráðum í mörgum mik- ilvægum fyrirtækjum og stofn- unum í landinu. Þekkingarstig- ið fer hækkandi og nýjar stjórnunaraðferðir og ný tækni er tekin í noktun. Þáttur rann- sókna og vöruþróunar verður æ mikilvægari í nýsköpun og þar með samkeppnishæfni atvinnu- veganna. Nýjar forsendur skap- ast þannig til framfara þrátt fyrir þrengri ytri skilyrði. 3. Skilningur virðist vaxa milli færni og sveigjanleiki til að taka breytingum, svo og vilji til að hagnýta ný tækifæri sem breytingum fylgja eru lykilatriði í samkeppnishæfni við núver- andi aðstæður. • Á hverjum tíma eru það ákveð- in kjarnasvió tækniþekkingar (core technologies), sem skipta mestu í nýsköpun og eru gegn- umgangandi fyrir framfarir á flestum sviðum efnahagslífs. Samkeppnishæfni hverrar þjóðar ræðst af því hversu vel hún getur tileinkað sér og hag- nýtt þessi kjarnasvið tækni- þekkingar og beitt þeim við sín- ar aðstæður til nýsköpunar. Allar þjóðir sem ætla sér að standa í fremstu röð verða að kunna skila á kjarnatækni hvers tíma. Tilkoma nýrra kjarnasviða veldur gjarnan víð- tækum byltingum á fram- leiðsluháttum og þar með á grunngerð og samkeppnisstöðu þjóðfélaga eða efnahagsheilda. Á sama vettvangi hefur einnig verið kannað hvernig auka megi framlag vísinda og tækniþekk- ingar til efnahagsvaxtar á kom- andi árum. Er meginniðurstaðan sú að árangur sé háður eftirfar- andi aðstæðum: 1. Markaðsaðstæðum, þ.e. stærð Mynd2 Uppruni fjármagns til rannsókna og þróunarstarfsemi í nokkrum löndum OECD, 1981 ^ Atvinnufyrirtæki I I Hið opinbera I I Aðrir Heimild: Science and Technology Data Rapid Results, RDE/3, OECD bls. 6,9 og 12 áður var talið að ná þeim vexti í orkufrekum iðnaði, sem ís- lendingar hafa stefnt að hin síðari ár. 4. Á næstu 15 árum koma um 30 þús. manns inn á vinnumarkað- inn hérlendis og jafnframt er líklegt að breytingar á skipu- lagi veiða og vinnslu geti leitt til fækkunar á stöfum í sjávar- útvegi og fiskiðnaði. Á móti þessum aðstæðum koma ýmsir þættir okkur til hjálpar: 1. Mestu máli skiptir að fjöldi af velmenntuðu ungu fólki hefur lokið skólagöngu eftir tímabil síðustu 15 ár, þar sem stórauk- in áhersla var lögð á fram- haldsmenntun og æðri mennt- un. Margt af þessu fólk hefur reynt sig við störf erlendis og er þar af leiðandi léttara að vinna á alþjóðlegum forsendum en mörgum þeim sem eldri eru. Það er e.t.v. gætt meiri sam- keppnisanda en gengur og ger- ist um það fólk sem sprottið er upp úr hinum hefðbundnu at- vinnugreinum. Það sýnir m.a. gróskan í útgáfustarfsemi og fjölmiðlun, kvikmyndagerð, veitingahúsarekstri, starfsemi skipa- og flugfélaga, fjármála- starfsemi o.fl., sem komin er til á síðustu árum. Þannig höfum við eignast hæfa starfskrafta til mun fjölbreyttari starfa en áður. — Mannauður okkar hef- ur vaxið. aðila vinnumarkaðarins á nauðsyn samvinnu við lausn að- steðjandi vandamála. Hérlend launþegasamtök eru t.d. já- kvæðari fyrir breytingum, sem ný tækni hefur í för með sér en gerist víða erlendis. I þessu samhengi má geta þess að verið er að ljúka við athugun á vegum vísindanefndar OECD á því hvaða þættir ráði samkeppnis- hæfni einstakra þjóðfélaga, hver sé þáttur vísinda og tækni og hvaða önnur atriði komi til. Meg- inniðurstaða þessarar athugunar er eftirfarandi: • Samkeppnisstaða landa ræðst ekki nema að hluta af verði hinna hefðbundnu framleiðslu- þátta (fjámagns, vinnuafls, auð- linda, o.s.frv.) og kostnaðarstigi (gengi). • Samkeppnishæfni ræðst a.m.k. eins mikið af getu til nýsköpunar er miðar að því að ná ávinningi á markaði. Nýsköpun er árang- ur tæknilegs og markaðslegs átaks undir hæfri stjórn. • Þáttur samverkunar, innbyrðis viðskipta, samkeppni, sam- vinnu, hvatningar, upplýs- ingastreymis, skipti á reynslu o.s.frv. milli aðila innan þjóð- félagsins (fyrirtækja, stofnana, stjórnvalda, aðila vinnumark- aðar, o.s.frv.), hefur mun meiri áhrif en áður var talið. • Hinn mannlegi þáttur — auð- lindir sem felast í þekkingu og markaðar, sem fyrirtæki eiga aðgang að og samsvörun þeirr- ar vöru eða þjónustu, sem boðið er upp á við þarfir markaðar- ins. 2. Menntastigi þjóðarinnar og eðli menntunar og möguleikum menntakerfisins að búa fólk undir hraðfara breytingar, m.a. með því að gera ráð fyrir sí- menntun eða endurmenntun einstaklingsins á lífsskeiði hans. 3. Fjármögnunarleiðum, þ.e. að fjármagn til áhættufjárfest- Tafla 1 Mannafli og fjármagn til R&Þ rekenda um innleiðslu nýrrar tækniþekkingar og réttláta dreifingu afraksturs af fram- leiðniaukningu og um varnir gegn neikvæðum áhrifum tæknibreytinga á stöðu ein- stakra starfsmanna. 5. Afstöðu ríkisvaldsins til þess að greiða götu nýrrar tækni með því að: • Sjá til þess að menntakerfið taki tillit til aðstæðna á tímum hátækni. • Sjá til að fjármagn til nýj- unga sé til reiðu. • Búa atvinnuvegunum starfs- skilyrði er greiða fyrir breyt- ingum. í þessum niðurstöðum er hinn mannlegi þáttur undirstrikaður; bæði þáttur menntunar og færni, þáttur sveigjanleika og vilja til breytinga og þáttur markvissrar stjórnunar, bæði á vettvangi ríkis- valds og á vettvangi atvinnulífs- ins. Freistandi er að álykta að ís- lendingar geti átt góða möguleika þess að verða samkeppnisfærir og halda áfram á braut velmegunar, ef þeir bera gæfu til að hagnýta sér þann mannauð, sem upp hefur vaxið, en einblína ekki á náðar- gjafir af náttúruauðlindum lands- ins, þótt góðar séu. Helstu einkenni íslenska rannsóknakerfisins í þessu ljósi skulum við nú líta á helstu einkenni rannsóknastarf- seminnar hér á landi, m.a. í al- þjóðlegum samanburði. { ársskýrslu Rannsóknaráðs 1982—1983, sem liggur frammi á þessum fundi, er m.a. að finna yf- irlit um það fé og vinnuafl, sem lagt var í rannsóknir á íslandi ár- ið 1981. Eins og sést af töflu 1, sem hér fylgir, voru þá unnin 743 árs- verk í rannsóknum og þróunar- starfsemi, sem er 129 ársverkum eða 21% fleiri en tveimur árum áður. Einnig kemur fram að frá árinu 1971 hefur orðið þreföldun á starfsliði mældu í ársverkum. Staðreyndin er sú að við eigum nú orðið hæfa starfskrafta á mörgum sviðum vísinda. Miklu minni aukning hefur orð- ið á fé til rannsókna á sama tíma, en árið 1981 var 160 m.kr. varið til rannsókna- og þróunarstarfsemi, sem eru um 0,78% af vergri þjóð- arframleiðslu það ár. Þetta hlut- fall var 0,76% árið 1979, en 0,46 árið 1971. Við nánari athugun á þessum tölum og með því að bera okkur saman við önnur lönd kemur í ljós að við skerum okkur úr að tvennu leyti: 1. Heildarfjárframlag til rann- sókna- og þróunarstarfsemi er enn mun lægra hér en hjá öðr- um þjóðum, sem við gjarnan berum okkur saman við (sjá mynd 1). Á hinn bóginn er hlutfallslega svipaður fjöldi ársverka unninn við rannsóknir eins og í nágrannalöndunum. Hér er það því fjárskortur sem er fyrst og fremst áberandi. 2. Hið opinbera fjármagnar mun stærri hluta af rannsóknastarf- seminni og atvinnulífið mun minni hluta af henni en al- mennt gerist meðal annarra OECD-landa (sjá mynd 2), en þar er hlutur atvinnulífsins gjarnan jafnmikill og ríkisins. MANNAFLI Ársverk % heildar- FJARMAGN M.kr. % þjóðartekna 1971 241,0 mtnn*n» 0,28 2,5 0,46 1973 314,4 0,35 4,9 0,51 1975 509,1 0,54 17,9 0,93 1977 564,2 0,58 (14,4)* 25,9 (0,77)* 0,68 1979 613,9 0,61 64,3 0,76 1981 743,0 0,74 160,0 0,78 fjárTestinga í nýju hafrannaóknaakipi, o.fl. í grófum dráttum er það hlutur ingar sé til reiðu og þar er talið nauðsynlegt að til komi samspil opinbers fjármagns og einka- fjármagns, en megináhersla lögð á að stýring á notkun fjár- magnsins byggist á raunhæf- um, tæknilegum, viðskipta- legum og markaðslegum for- sendum. 4. Samvinnu launþega og atvinnu- atvinnulífsins sem á vantar til þess að við verjum sambærilegu fé og starfsliði til rannsókna- og þróunarstarfsemi og nágranna- löndin. Ef atvinnulífið á íslandi legði álíka mikið og ríkið í rann- sóknir hér á landi, væri hlutfallið af þjóðartekjum 1,22% á árinu 19871, sem er svipað og gert er í Danmörku, Noregi og Finniandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.