Morgunblaðið - 28.02.1985, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1985
ÚTVARP/SJÓNVARP
Kjaramál
Ingvi Hrafn hellti ákaft í bolla
þeirra fimmmenninga úr röðum
launamanna, sem mættir voru í
sjónvarpseldhúsið á þriðjudags-
kveldið að ræða kjaramálin. Ekki
veitti af að væta kverkarnar, því
allt var fólk þetta óvant því að sitja
í skini fjölmiðlanna og ekki með
stöðluð svör á reiðum höndum,
einsog hinir svokölluðu fulltrúar
hagsmunaaðila.
Samt eiga svona umræður einsog
fóru fram þarna við kaffiborðið hjá
honum Ingva Hrafni sér stað dag
hvern á hinum ýmsu vinnustöðum
þessa lands. Er býsna gagnlegt að
heyra á skjánum sjónarmið hinna
ólíku atvinnustétta, það vill nú oft
verða svo að á vinnustaðnum kynn-
ist maður bara eigin kjörum eilítið
betur. Þannig tel ég ólíklegt að
skrifstofumaðurinn setji sig inní
kjör kaffikonunnar og öfugt, svo
dæmi sé tekið.
Kjör hins al-
menna manns
Ég tel að Ingva Hrafni hafi tek-
ist bara bærilega í þessum þætti að
fiska uppúr fimmmenningunum,
þau kjör er þeir búa við af hálfu
atvinnurekenda. Að vísu var erfitt
að átta sig á kjörum bóndans í
hópnum enda getur hann ekki
beint talist launþegi. En mikið brá
mér þegar Maren Jakobsdóttir af-
greiðslumaður í Hagkaup upplýsti
að hún hefði 16 þúsund krónur
fyrir fulla dagvinnu. Kona þessi er
einstæð móðir með þrjú börn á
framfæri!
Ég gæti ekki rétt manneskju slík
laun fyrir fulla dagvinnu. Én því
miður virðist enn hér furðu lífs-
seigur sá „Nýlendukapítalismi"
sem byggist á því að greiða starfs-
mönnum sem allra lægst laun.
Þessi tegund kapítalisma á bara
því miður ekki lengur rétt á sér í
hátækniheimi. Hann hefur nátt-
úrulega aldrei átt rétt á sér, en
byggði þó upp ríkidæmi Bretlands
á meðan það var heimsveldi, Portú-
gals sömuleiðis og jafnvel Dana-
veldis. En hvar standa þessi lönd í
dag? Nú njóta þau ekki ávaxtanna
af hinu ódýra vinnuafli nýlendanna
og nánast fríu hráefni, þá kemur í
ljós að veldi þeirra var byggt á
brauðfótum. Hinir ánauðugu krefj-
ast nefnilega á endanum frelsis,
hinir láglaunuðu mannsæmandi
launa fyrir eðlilegan vinnudag.
Ný-kapítalisminn
En nú er bjartara framundan í
hinum vestræna heimi, því óðum
ryður „Ný-kapítalisminn“ hinum
úrelta „Nýlendukapítalisma" úr
vegi. Nú blómstra þau fyrirtæki er
byggja framsókn sína í seinn á
tæknivæðingu, vöruþróun,
hámarksafköstum og góðum launum
tryggra og hæfra starfsmanna. Nægir
í þessu sambandi að nefna tvö af
framsæknustu stórfyrirtækjum
Evrópu, annars vegar Volvo sem er
þekkt fyrir góðan aðbúnað
starfsmanná og ágæt laun, og hins
vegar Olivetti, sem greiðir ekki
bara starfsmönnum einhver hæstu
laun í Evrópu, heldur sér þeim
fyrir frírri læknisþjónustu, börn-
um þeirra fyrir leikskólaplássi og
svo framvegis. í krafti aukinnar
menntunar og upplýsingar krefst
hinn almenni launþegi betri launa
og bættrar aðbúðar á vinnustað.
Þau fyrirtæki sem ekki geta á
næstu árum og áratugum komið til
móts við þessar kröfur hins nýja
tíma, eiga raunar engan tilveru-
rétt, því þau hafa gefist upp við að
bæta stöðu sína með aukinni tækni,
hagræðingu, vöruþróun og há-
marksafköstum. Þau eiga raunar
ekki heima í „upplýsingasamfélagi"
okkar að mínu mati, en geta nátt-
úrulega flutt starfsemi sína til
þriðja heimsins, í staðinn gætu
komið hingað útibú fyrirmyndar-
fyrirtækja á borð við Volvo og Oliv-
etti.
Ólafur M.
Jóhannesson.
„Sendi-
herrann“
„ L íka fyrir
fullorðna“
Leikrit eftir Slavomir Mrozek
í kvöld kl. 22.35
í kvöld kl. 20.00
20
00 verður flutt í
— útvarpinu leik-
ritið „Sendiherrann" eftir
pólska rithöfundinn Slav-
omir Mrozek. Þýðingu og
útvarpshandrit gerði Jón
Viðar Jónsson og er hann
einnig leikstjóri.
Leikritið fer fram í
sendiráði ótiltekins vest-
ræns ríkis í ótilteknu al-
ræðisríki. Sendiherrann,
aðalpersóna leiksins, hef-
ur nýlega tekið við stöðu
sinni þar og er enn ekki
orðinn vanur framandi
aðstæðum. Sendifulltrúi
rfkisstjórnarinnar kemur
til fundar við sendiherr-
ann og reynist hafa með-
ferðis harla óvenjulega
gjöf. Þá gerist það að
ókunnur maður smyglar
sér með óvæntum hætti
inn i sendiráðið og biður
um hæli sem pólitískur
flóttamaður. Sendiherr-
ann stendur nú frammi
fyrir vanda, sem hann
hefur aldrei kynnst áður
og knýr hann að lokum til
að endurmeta öll lífsvið-
horf sín.
í frétt frá leiklistar-
deild Ríkisútvarpsins seg-
ir að Slavomir Mrozek sé
frægasta leikskáld Pól-
verja nú og hafi um árabil
búið í Frakklandi. Eitt
þekktasta verk hans er
Tangó, sem Leikfélag
Reykjavíkur flutti árið
1966 en af öðrum leikrit-
um hans sem flutt hafa
verið hér á landi má nefna
Á rúmsjó og Vatzlav, sem
leikfélag Menntaskólans
við Hamrahlíð sýndi fyrir
nokkrum árum.
Mrozek er jafnan talinn
meðal fulltrúa absúrd-
leikhússins, en verk hans
búa þó oft yfir sterkri
pólitískri ádeilu á
stjórnarhætti í heima-
landi hans, að því er segir
í frétt leiklistardeildar-
innar.
Leikendur í Sendiherr-
anum eru: Róbert Arn-
finnsson, Harald G. Har-
alds, Erlingur Gíslason,
Kristbjörg Kjeld, Rúrik
Haraldsson og Sigurjóna
Sverrisdóttir. Tæknimenn
eru Friðrik Stefánsson og
Runólfur Þorláksson og er
leikritið tekið upp og flutt
í stereo sem er nýjung við
flutning útvarpsleikrita.
Jón Viðar Jónsson gerði
þýðingu og útvarpshandrit
og leikstýrir jafnframt.
35 les Kristín
— Bjarnadóttir
leikari þýðingu sína á
þrem stuttum sögum eftir
Marianne Larsen. Allar
fjalla þær um unglinga.
Fyrsta sagan nefnist
Sunnudagsbarnið og segir
frá 15 ára dreng sem verð-
ur faðir. Það reynist hon-
um erfitt að horfast í
augu við þá staðreynd.
Önnur sagan heitir Kakó-
mjólk og kex og fjallar um
leikfélaga sem taka tal
saman. Sámtal þeirra
endurspeglar afstöðu
þeirra til fullorðna fólks-
ins og lífsins almennt.
Þriðja og síðasta sagan
nefnist Dauði þjófs og
fjallar um unglingsstelpu
og móður hennar.
Marianne Larsen er
dönsk og er aðallega
Pétur Jónasson leikur
21
■■ Pétur Jónasson
35 gítarleikari
— leikur í útvarpi
Milan, Gaspar Sanz og Is-
aac Albéniz.
Pétur lærði hjá Eyþóri
Þorlákssyni í Tónlistar-
skóla Garðabæjar og lauk
þaðan einleikaraprófi á
gítar árið 1977. Þá dvald-
ist hann í tvö ár við fram-
haldsnám 1 Mexíkó og
lauk þaðan prófi árið
1980. Sumarið 1983 fór
Pétur í tónleikaferð um
Pétur Jónasson
Kristín Bjarnadóttir les þrjár
stuttar sögur.
þekkt sem ljóðskáld. Þó
gaf hún út smásagnasafn
1982 og úr því eru sögurn-
ar þrjár. Kristín Bjarna-
dóttir hefur töluvert feng-
ist við þýðingar ljóða og
smásagna fyrir útvarpið.
á gítar
Norðurlöndin á vegum
Norðurlandaráðs og
haustið 1984 hlaut hann
styrk úr Sonning-sjóðnum
og hélt þá til Spánar, þar
sem hann dvelur nú við
gítarleik.
Pétur hefur haldið tón-
leika víðsvegar erlendis
og hér heima hefur hann
m.a. leikið með Sinfóníu-
hljómsveit íslands, ís-
lensku hljómsveitinni og
Kammersveitinni. Síðast
hélt hann tónleika á ís-
landsvikunni í Bretlandi í
nóvember á síðasta ári.
ÚTVARP
FIMMTUDAGUR
28. febrúar
7.00 Veðurfregnir. Fréttlr.
Bæn.
Á virkum degi. 7.25 Leikfimi.
7.55 Daglegt mál. Endurt.
þáttur Sigurðar G. Tómas-
sonar frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15
Veðurfregnir.
Morgunorö: — Valdls Magn-
úsdóttir talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Plpuhattur galdrakarlsins"
eftir Tove Jansson. Ragn-
heiður Gyða Jónsdóttir les
þýðingu Steinunnar Briem
(11).
9JM Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.). Tónleikar.
11.00 „Ég man þá tfö.“ Lög frá
liðnum árum. Umsjón: Her-
mann Ragnar Stefánsson.
11.30 „Sagt hefur það verið."
Hjálmar Arnason og Magnús
Gíslason sjá um þátt af Suð-
urnesjum.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
13J0 Barnagaman. Umsjón:
Sigrún Jóna Kristjánsdóttir.
13.30 Tónleikar.
14.00 „Blessuð skepnan" eftir
James Herriot. Bryndls Vlg-
lundsdóttir les þýöingu slna
(16).
14.30 A frlvaktinni. Þóra Mart-
einsdóttir kynnir óskalög sjó-
manna.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Siðdegistónleikar. Tónlist
eftir Georg Friedrich Hándel.
a. „Járnsmiðurinn söngvlsi."
David Sanger leikur á semb-
al.
b. „Tilbrigði fyrir hörpu."
Marisa Robles leikur.
c. „Svlta" I g-moll“. Lugiano
Sgrizzi leikur á sembal.
d. Sónata I c-moll. Frantisék
Hanták og Viktorie Svihili-
19.15 A döfinni
Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson.
Kynnir Birna Hrólfsdóttir.
19.25 Krakkarnir I hverfinu
11. Katrln heldur jafnvæg-
inu.
Kanadiskur myndaflokkur I
þrettán þáttum, um atvik i Iffi
nokkurra borgarbarna.
Þýðandi Kristrún Þórðar-
dóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Kastljós
kova leika á óbó og sembal.
e. Kammertló I G-dúr. Ars
Redivia-hljóðfæraflokkurinn
leikur.
17.10 Slðdegisútvarp
Tilkynningar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.55 Daglegt mál. Siguröur G.
Tómasson flytur þáttinn.
20.00 Leikrit: „Sendiherrann"
eftir Slavomir Mrozek. Þýð-
ing og útvarpshandrit: Jón
Viðar Jónsson. Leikstjóri:
Jón Viðar Jónsson. Leikend-
ur: Róbert Arnfinnsson, Har-
ald G. Haraldsson, Krist-
björg Kjeld, Erlingur Glsla-
Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður Helgi E.
Helgason.
21.15 Skonrokk
Umsjónarmenn Haraldur
Þorsteinsson og Tómas
Bjarnason.
2145 Válynd veður
Bresk heimildamynd um
veðurofsa: flóð, fellibylji og
þrumuveður og hvernig
maðurinn stenst sllkar ham-
farir.
Þýðandi Jón O. Edwald.
22.45 Frumskógur stórborgar-
innar
son, Rúrik Haraldsson og
Sigurjóna Sverrisdóttir.
21.35 Gltarleikur ( útvarpssal.
Pétur Jónasson leikur tónlist
eftir Luis Milan, Gaspar Sanz
og Isaac Albéniz.
22.00 Lestur Passlusálma (22).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 „Llka fyrir fullorðna."
Þrjár stuttar sögur eftir Mari-
anne Larsen. Kristln Bjarna-
dóttir les þýðingu slna.
23.00 Múslkvaka. Umsjón:
Oddur Björnsson.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
(Asphalt Jungle) s/h.
Bandarisk blómynd frá
1950.
Leikstjóri John Huston.
Aðalhlutverk: Sterling Hayd-
en, Sam Jaffe, Louis Cal-
hern og Marilyn Monroe.
Roskinn glæpamaður er ekki
fyrr laus úr fangelsi en hann
byrjar að vinna að miklu
skartgriparáni og hefur lög-
fræðing I fjárkröggum að
bakhjarli.
Þýðandi Baldur Hólmgeirs-
son.
66.20 Fréttir I dagskrárlok.
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Kristján Sigur-
jónsson og Sigurður Sverr-
isson.
14.00—15.00 Dægurflugur
Stjórnandi: Leópold Sveins-
son.
15.00—16.00 Otroðnar slóðir
Kristileg popptónlist.
Stjórnendur: Andri Már Ing-
ólfsson og Halldór Lárusson.
16.00—17.00 Jazzþáttur
Stjórnandi: Vernharður Linn-
et.
17.00—18.00 Gullöldin
Lög frá 7. áratugnum.
Stjórnandi: Þorgeir Ast-
valdsson.
20.00—21.00 Vinsældalisti
hlustenda rásar 2
10 vinsælustu lögin leikin.
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
21.00—22.00 Nú má ég!
Gestir I stúdlói velja Iðgin
ásamt léttu spjalli.
Stjórnandi: Ragnheiður Dav-
Iðsdóttir.
22.00—23.00 Rökkurtónar
Stjórnandi: Svavar Gests.
23.00—24.00 Söngleikir.
Stjórnandi: Jón Ólafsson.
SJÓNVARP
FÖSTUDAGUR
1. mars