Morgunblaðið - 28.02.1985, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1985
9
'mtMiijmsad-œm
■ i i • i i • ri < i
I J I I L • I I I H4 I
ávöxtun áárí
(þú tvöfaldar höfuðstól
þinn á 5,6 árum)
umfram verðtryggingu.
Útgefandinn er eitt
sterkasta fyrirtæki landsins.
Láttu sérfraeðinga
Kaupþings annast
fjárvörslu
þína, þeir hafa
upplýsingar og auk
þess yndi af
nárfestingum
Spariskírteini ríkissjóds:sokigwigi mtM vi» 8.6% vextl umfr. verfttr. pr. 100 kr.
1. FLOKKUR
2. FLOKKUR
Útg. Sölugengi pr.lOOkr 8,6% vextir gilda til Sölugengi pr 100 kr. 8,6% vextir gilda til
1971 19.191,98 15.09.'85 _ _
1972 17.318,62 25.01.'85 13.868,17 15.09’85.
1973 10.206,22 15.09. 87 9.684,00 25.01 '88
1974 6.214,33 15.09/88 . -
1975 4986,70 V 3.762,65 2)
1976 3.584,19 3) 2.816,67 2)
1977 2.628,89 4) 2.122,53 10.09.'85
1978 1 782,39 4) 1.355,97 10.09.'85
1979 1,178,59 5) 878,85 15.09.'85
1980 791,82 15.04/85 601.61 25.10. '86
1981 510,96 25.01.’86 370,47 15.10 '86
1982 367,75 01.03 85 267,62 01.10.'85
1983 203,68 01.03.86 129.20 01.11 '86
1984 125,49 01.02.87 119,98 10.09.'87
1) lnnlv. Sedlabankans 10.01'85.
2) Innlv. Sedlabankans 25.01. '85.
3) Imlv. Sediabankané 10.03. '85.
4) Innlv. Sediabankans 25.03. '85.
5) Innlv. Sediabankans 25.02. '85.
Hæsta og lægsta ávöxtun hjá verðbréfadeild Kaupþings hf
Vikumarl 1.2.-22.2.1965
Verðtryggð veðskuldabréf
Hæsta%
18%
La8gsta%
16%
Meðalávöxtun%
17,06%
ÁVÖXTUNARFÉLAGIÐ
FYRSTIVERÐBRÉFASJÓÐURINN Á ÍSLANDI
'J/SÚ
Aðeins almenn mál-1 efni rædd við KGB - sagði Arne Treholt í varnarræðu sinni í gær
A ÖÐBUM éegi réttarhaldaaaa yAr Arae TrabaM. aaa aakatar «r aæ mm- hvort þaö væn akki rétt, aA hann !
Trekak ag svaraéi haaa aaa aa 6knMB ekki ea rfUrlaktarvort þéttí hve oft hsldið. aö ef hann garöi atrax I haaa har rít adaaWeyaL hreint fyrir sinum dyrum fengi 1
Trehoit talaöi fyrir máli sínu of 1 fundi meö Sovétmönnum. Hefftu hann að fara haim. ■vsrsði spurningum sakaóknarans 1 þeir aöeins verift 68
Þjóðviljinn og Treholt
Lesendur Þjóðviljans hafa ekki fengið neitt aö vita um þaö, aö réttarhöldin yfir Arne
Treholt eru byrjuö í Osló. Kannski finnst þeim Þjóöviljamönnum duga aö menn haldi sig
viö fréttir ríkisfjölmiðlanna af málinu. Fréttastofa hijóövarps sló því föstu á þriöjudags-
kvöldiö aö Treholt heföi slegiö vopnin úr höndum ákæruvaldsins. í Staksteinum í dag er
litiö til Þjóöviljans, NT og „nýfrjálshyggjunnar“ og ríkisfjölmiölanna og hverfafunda borg-
arstjórans í Reykjavík.
Friðarfrum-
kvæði
Ef marka má lýsingar
Arne Treholt á samtölum
hans við sovéska KGB-
menn, þá ber art skilja at-
ferli hans þannig, að hann
hafi verið að stuðla að
heimsfriði. I>etta sérkenni-
lega friðarfrumkvæði hefur
að vísu ekki borið mikinn
árangur ef marka má þá
áherslu sem ýmsir vinstri-
sinnar á Vesturlöndum
leggja enn á það að treysta
þurfi friðinn. Arne Treholt
segir einfaldlega að með
því að sýna Sovétmönnum
vináttu, skilning og
kannski svolítið af skjölum
haTi hann lagt sitt af mörk-
um til hinnar einu og
sönnu friðarbaráttu.
Þetta eru merkilegar
skoðanir sem kannski
fleiri menn hafa, sem þurfa
eftir á að reyna að afsaka
það sem í augum annarra
eni njósnir og svik við eig-
in þjóð. Vonandi á Arne
Treholt eftir að skýra frá
þvi, hvaöa áhrif þessi starf-
semi sin hefur haft á gang
heimsmála, hvaða óhæfu-
verk Sovétmanna hún hef-
ur til dæmis stöðvað.
Eins og kunnugt er, hafa
alþýðubandalagsmenn og
Þjóðviljinn jafnan sýnt
sérkennilegu fnimkvæði í
þágu friðar mikinn áhuga.
Í>e8s vegna vekur sérstaka
athygli, að Þjóðviljinn hef-
ur ekki séð ástæðu til að
segja eina einustu frétt af
rétLarhöidunum yfir Arne
Treholt. I>eir sem þurfa að
lcsa Þjóðviljann daglega
vegna starfa síns vita, að
þar eni ekki birtar erlend-
ar fréttir. Á hinn bóginn
eru áhugamenn á blaðinu
um erlend málefni vanir að
setjast niður af og til og
skrifa um eitthvað sem
þeim finnst markvert í út-
löndum. I>eim hefur greini-
lega ekki enn þótt neitt
merkilegt koma fram í Tre-
holt-réttarhöldunum.
Kannski hafa þeir ekki
séð, hvernig danska
vinstrablaðið „Informa-
tion“ tekur á málinu og því
ekki ennþá fengið línuna
eða kynnst hinum rétta
tóni?
NT og ný-
frjálshyggjan
Þegar framsóknarmenn
ákváðu að kasta hinu sí-
gilda nafni „Tíminn“ fyrir
róða á málgagni sínu og
taka þess í stað stafina
„NT“ í blaðhausinn, var
sagt frá því á fyrsta degi,
að NT væri málgagn
„frjálshyggju“. I>etta var
leiðrétt snarlega, enda átti
að standa þar orðið „fé-
lagshyggja". í Ijós hefur
komið, að starfsmenn NT
vita fátt verra á jörðu hér
en frálshyggjuna og þá
menn sem þeir telja boða
hana eða fylgja henni í
framkvæmd.
Fyrir lesendur NT hlýtur
þessi andúð á frjálshyggj-
unni á síðum blaðsins að
vera orðin næsta hvimleið.
enda nálgast hún þrá-
hyggju. Andófið gegn
frjálshyggjunni er síður en
svo bundið við ofstopa-
kennd stjórnmálaskrif
blaðsins, það teygir sig um
blaðið allt og setur nú
einkum svip á þær síður
blaðsins sem ætlaðar eru
erlendum fréttum.
I>eir sem skrifa á þessar
síður fyrir NT hafa tekið
sér fyrir hendur að bæta
áróðri inn í fréttaskeyti frá
Reuter-fréttastofunni í
London, gegn þeim stjórn-
málamönnum sem þeim
eru ekki að skapi. Þar eru
þau Ronald Reagan og
Margaret Thatcher ofar-
lega á blaði eins og við var
að búast.
Til marks um „fréttir"
af þessu tagi má nefna að í
laugardagsblaði NT tóku
menn sig til og bættu eftir-
farandi klausu inn í frétt
frá Reuter um fjölgun
glæpa í Bandaríkjunum og
vandræði í fangelsismál-
um: „Þannig helst í hendur
öfgafulhir niðurskurður
nýfrjálshyggju Reagans á
útgjöldum til félagsmála og
aukning glæpa. Nýlega
hert refsilöggjöf mun enn
auka vandann."
Og í annarri „frétt“ tók
NT að sér að vernda Arth-
ur Scargill, hinn öfgafulla
forystumann breskra
námumanna, og gerði það
m.a. með þessum hætti:
„Óhagkvæmni námanna
er mjög umdeild og eru
námamenn ekki aðeins að
vernda störf sín heldur
einnig að gæta hagsmuna
byggðalaga. Thatcher beitir
hins vegar stjórn námanna
fyrir sig til að brjóta á bak
aftur kolaverkfallið sem er
prófsteinn á það hvort ný-
frjálshyggjustefna Thatch-
ers sem margir telja öfga-
stefnu tekst að mölbrjóta
breska verkalýðshreyf-
ingu.“
Undir þessum „fréttum"
NT stendur „Reuter o.fl.“.
Þögn ríkis-
fjölmiöla
Davíð Oddsson, borgar-
stjóri í Reykjavík, hefur
efnt til sjö hverfafunda
með Reykvíkingum, skýrt
frá stefnu og störfum borg-
arstjórnar og svarað fyrir-
spurnum um hin margvís-
legustu mál. Athygli vekur,
að ríkisfjölmiðlarnir hafa
ekki séð ástæðu til að
segja frá þessum fundum
eða hvað þar hefur komið
fram. Er þetta eðlilegt
fréttamat?
Borgarstjóri sagði á
hverfafundi lýsandi sögu
um áhugaleysi rfkisQöl-
miðlanna á framkvæmdun-
um í Grafarvogi sem hafa
verið þær mestu í landinu
undanfarin misseri. Ríkis-
sjónvarpið fékk ekki áhuga
á því sem þar var að gerast
fyrr en bakki féll á ræsis-
skurði fyrir neðan nýja
hverfið. I>á var borgarstjóri
kallaður til að svara til
saka. Aldrei var sagt frá
öðrum framkvæmdum á
þessum slóðum þegar þær
voru að hefjast.
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTAR-
STÖÐINNI
OG Á KASTRUP-
FLUGVELLI
j/Vuglýsinga- !
síminn er22480j
TSlH.amatka2utLnn
SAAB 99 GL 1982
Sanseraöur blár, ekinn 30 þús. km. Útvarp,
snjódekk, sumardekk, grjótgrind Verö 350
þús.
Isuzu Trooper 1982
Diesel ekinn 56 þús. Verö 650 þús.
Suzuki Fox 1982
Ekinn 53 þús. Verö 270 þús.
Mazda 626 LX 4ra dyra 1983
Ekinn 30 þús. Verö 395 þús.
Honda Civic 5 dyra 1982
Ekinn 25 þús. Verö 270 þús.
Þekkt torfærutröl!
Toyota Hiiux 1980
Rauóur. Allar nánari uppL hjá Bilamarkaön-
UHMC
Toyota Tercel 1984
Brúnsans., ekinn 20 þús. Útvarp. Verð 470
þús.
Subaru Station 4x4 1981
H+L, ekinn 39 þús. Verð 310 þús.
Mitsubishi Cordia 1983
Ekinn 17 þús. Verð 330 þús.
Mazda 323 G.T. 1981
Ekinn 45 þús. Verö 260 þús.
Datsun King-Cab 1984
Ekinn 15 þús. Verö 510 þús.
M.Bens 300 diesol 1984
Ðlár, ekinn 79 þús. km. Beinskiptur, ekinn
79 þús. km. Snjódekk. Verö 870 þús.
Honda Civic 1983
Silturgrár. ekinn 18 þús. Verö 320 þús.
Subaru Station 4x4 1983
Grér, ekinn 12 þús km. Snjédekk. sumar-
dekk. Verö 440 þús.