Morgunblaðið - 28.02.1985, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1985
29
TREHOLT-RÉTTARHÖLDIN
AP/Simamynd
Arne Treholt í réttarsal í gærmorgun.
Treholt um tengslin við KGB-manninn Titov:
Vildi auka skiln-
ing og bæta
samskiptin
í)sl«, 27. febrúar. Rrí Jmn Krik Laure, fréttarilara Mbl.
ARNE Treholt hélt áfram varnar-
ræðu sinni í morgun og dvaldist
mest við þann tíma, sem hann var
ráðherraritari og aðstoðarmaður
Jens Evensens, þáverandi hafrétt-
arráðherra og nú dómara við Al-
þjóðadómstólinn i Haag. Gerði
hann það til að sýna fram á, hve
nauðsynlegt það hefði verið honum
að hafa mikil og góð sambönd við
erlenda sendiráðsstarfsmenn og
þá sérstaklega við Gennady Titov,
háttsettan starfsmann sovéska
sendiráðsins í Ósló, sem var tengi-
liður hans í Noregi.
Treholt lagði áherslu á, að
hafréttarráðuneytið hefði aðeins
átt að vinna að ákveðnu verkefni
og síðan hverfa úr sögunni og því
orðið að byggja á sérfræðiþekk-
ingu annarra ráðuneyta og eiga
trúnaðarsamskipti við hags-
munaaðila.
„Hvort sem okkur líkaði betur
eða verr hljótum við að viður-
kenna, að án sambands við ráða-
menn í Moskvu hefði okkur ekki
tekist að færa lögsöguna út með
árangursríkum hætti,“ sagði
Treholt og bætti því við, að hann
hefði viljað auka skilninginn og
bæta úr því samskiptaleysi, sem
verið hefði milli stjórna land-
Sagan um
barnið var
tilbúningur
Treholts
Fyrsta bónin aðeins
að senda 40 bækur
Ósló, 27. febrúar. AP.
ARNE Treholt lýsti því í dag þegar hann komst fyrst í samband við
sovéska sendiráðið í Ósló og hvernig það bar til, að þeir urðu vinir, hann
og sovéski sendiráðsstarfsmaðurinn Evgeny Beljajev. I>að er hann, sem
er upphafsmaðurinn að frekari tengslum Treholts við aðra KGB-menn.
Treholt kvaðst hafa hitt Belj-
ajev fyrst í hanastélsveislu árið
1968 og að síðan hefði hann átt
15 fundi með honum fram til
ársins 1971. Hefðu þar engin
leyndarmál verið til umræðu, að-
eins almennt tal um daginn og
veginn, utanríkismál og sam-
skipti stjórnar og stjómarand-
stöðu í Noregi.
Um áramótin 1970—71 kom
Beljajev í heimsókn til Treholts,
mjög afdrifaríka heimsókn að
sögn ákæruvaldsins, því að það
hefði verið þá, sem KGB fór
fyrst í alvöru að leggja snörurn-
ar fyrir Treholt.
„Beljajev var með lista með
nöfnum 40 manna og bað mig að
senda til þeirra bókina „Niður
með herforingjastjórnina í
Grikklandi". Mér fannst þetta
dálítið vafasamt og ekki síst
fyrir það, að Beljajev skildi 1000
kr. eftir í umslagi og mér datt í
hug að láta lögregluna vita. Ég
gerði það þó ekki,“ sagði Treholt.
Treholt kvaðst hafa haft sam-
band við félaga sina, aðra rót-
tæka vinstrimenn, sem börðust
gegn herforingjastjórninni í
Grikklandi og hefðu þeir einnig
verið sammála um að láta lög-
regluna ekki komast i málið. Var
ástæðan fyrir því sú, að sem
róttækum vinstrimönnum
fannst þeim sjálfgefið, að lög-
reglan hefði á þeim sérstakar
gætur og þess vegna gæti það
komið samtökunum, baráttunni
gegn herforingjastjórninni í
Grikklandi, illa að segja frá
sambandinu við sovéskan sendi-
ráðsmann.
Þegar Beljajev fór frá Ósló ár-
ið 1971 boðaði hann Treholt á
sinn fund í veitingahúsi í borg-
inni og kynnti hann þar fyrir
sovéska sendiráðsmanninum
Gennady Titov, sem Treholt átti
eftir að hafa mikið samband við.
()Oó, 27. febrúar. AP.
ÞAÐ KOM fram viö réttarhöldin
yfir Arne Treholt í gær, í varnar-
ræöu hans, að sagan um að hann
ætti barn í Tékkóslóvakíu væri
uppspuni frá rótum og aö hann
væri sjálfur upphafsmaöur aö
benni.
Fréttin um að Treholt ætti
barn í Tékkóslóvakíu vakti mikla
athygli á sínum tíma en þó tókst
aldrei að henda reiður á sann-
leiksgildi hennar. Kom hún fyrst
í norsku dagblaði og var þar höfð
eftir tveimur vina Treholts. I
varnarræðu sinni í gær vék Tre-
holt að þessu máli og sagði, að á
námsárum sínum hefði hann
farið víða um Austur-Evrópu-
lönd, m.a. Tékkóslóvakíu, og
hefði einu sinni látið að því
liggja við vinina fyrrnefndu, að
hann ætti barn með tékkneskri
konu. Hefði það þó bara verið
tilbúningur.
Þegar Treholt var inntur eftir
því hvers vegna hann hefði kom-
ið sögunni á kreik, svaraði hann
og sagði, að það hefði hann gert
til „að gera sig meira spennandi
i augum kunningjanna".
Kólombia:
Skæruliðar fá
vopn frá Nicaragua
BogoU, Kólombíu. 27. febrúar. AP.
Ilershöföingi í her Kólombíu
heldur því fram aö vinstri sinnaöir
skæruliöar í Kólombíu fái vopn frá
Nicaragua.
„Við höfum fengið óyggjandi
vitneskju um þessa vopnaflutn-
Grænland:
Aðstoðarbæjar-
stjóri viðriðinn
hasssölu
27. fehrútr. frá fréttariUra Mbi.
Aðstoðarbæjarstjórinn í God-
havn á Vestur-Grænlandi hefur
verið handtekinn grunaður um að
hafa verzlað með hass. Vara-
bæjarstjórinn, Andreas Mölgaard,
hefur viðurkennt að hafa staðið í
viðskiptum með hálft kíló af hassi.
Nú mun eftirlitsnefnd sveitar-
stjórna á Grænlandi meta hvort
hann geti haldið áfram stjórn-
málastarfi. Mölgaard er fulltrúi
vinstriflokksins Inuit Ataaatigiit.
inga. Vopnin eru flutt sjóleiðina
frá Nicaragua til Kólombíu," sagði
hershöfðinginn, Fernando Gomez.
Vopnin eru fengin skæruliðum í
suðvesturríki Kólombíu, Cauca,
þar sem allar fimm skæruliða-
hreyfingar landsins eru með menn
undir vopnum. Að mati hers Kól-
ombíu er áætlað að sveitir skæru-
liða telji milli 12 og 30 þúsund
menn undir vopnum.
Gomez sagði að verið væri að
afla sönnunargagna um vopna-
flutninga, sem afhent yrðu Belis-
ario Betancur forseta. Betancur
fékk leiðtoga fjögurra skæruliða-
hreyfinga af fimm í fyrra til að
undirrita vopnahléssamkomulag.
Her landsins hefur ekki farið dult
með andstöðu sína við samkomu-
lagið og varð það m.a. til þess að
Betancur vék varnarmálaráðherra
landsins, Fernando Landazabal
hershöfðingja, úr starfi.
Leyst hefur verið úr bráðum
olíuskorti í Nicaragua um stund-
arsakir þar sem kúbönsk olíuskip
losuðu hráolíu þar í landi um helg-
ina.
Andrei Gromyko, utanríkisráöherra Sovétríkjanna, og Jóhannes Páll páfi II
heilsast viö upphaf fundar síns í Páfagaröi í gær.
Páfinn á fundi með Gromyko
Páfagarði, 27. febrúar. AP.
JÓHANNES Páll páfi II og Andrei
Gromyko utanríkisráðherra Sovét-
ríkjanna ræddu saman í nær tvo
klukkutíma í dag. í viðræðum þeirra
bar hæst „hlutskipti kaþólskra
manna“ í Sovétríkjunum en einnig
ýmis helztu vandamál heimsmál-
anna nú. Þetta var fyrsti fundur páf-
ans og Gromykos í 6 ár.
Eftir fundinn sagði Gromyko,
að viðræðurnar hefðu verið gagn-
legar. Ekkert hefði hins vegar ver-
ið rætt um hugsanlega heimsókn
páfans til Sovétríkjanna.
í fyrra skýrði páfinn frá því, að
honum hefði verið neitað um leyfi
til þess að fara til Litháen, en þar
eru kaþólskir menn í Sovétríkjun-
um hvað fjölmennastir.
KUIM333]
AUGLÝSIR
$
STILL-LONGS
ULLARNÆRFOT
NÆLONSTYRKT
DÖKKBLÁ FYRIR
BÖRN OG FULLORÐNA
SOKKAR
MEÐ TVÖFÖLDUM BOTNI
KULDAÚLPUR
M/HETTU
LÓÐFÓDRADIR
SAMFESTINGAR
FYRIR DÖMUR OG HERRA
KAPPKLÆÐNAÐUR
MARGAR GERÐIR
MITTISÚLPUR
(ULLAREFNI)
ULLARPEYSUR
ÍSL. ULLARNÆRFÖT
•
SJÓFATNAÐUR
REGNFATNAÐUR
VINNUFATNAÐUR
VINNUHANSKAR
KLOSSAR
GÚMMÍSTÍGVÉL
GÚMMÍSKÓR
REIMAÐIR
ÖRYGGISSKÓR
•
BÓMULLARGARN
HVÍTT i RÚLLUM
MARGAR ÞYKKTIR
NÆLONGARN
HESSIAN-STRIGI
GISINN OG ÞÉTTUR
Æ&ujdin*
BOROLAMPAR
HENGILAMPAR
VEGGLAMPAR
OLÍULAMPAR
GASLUKTIR
MINKAGILDRUR
MÚSA OG
ROTTUGILDRUR
RYÐEYOIR — RYÐVÖRN
LOÐBYSSUR
LÓÐBOLTAR
LÓÐTIN
í rúllum og stöngum
LÓÐFEITI
LÓÐVATN
PLÖTUBLÝ
1,11/2, 2mm
•
BAUJULUKTIR
ENDURSKINSHÓLKAR
ENDURSKINSBORDAR
VELATVISTUR
í 25 KG BÖLLUM
HVÍTUR OG MISL.
GRISJUR í RÚLLUM
ANANAUSTUM
SÍMI 28855
Opiö laugardaga 9—12