Morgunblaðið - 28.02.1985, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 28.02.1985, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1985 Tvennir tónleikar Háskólakórsins Á LAUGARDAG og sunnudag held- ur lláskólakórinn tvenna tónleika í Keykjavík, en í næstu viku er kórinn á förum til Hollands til tónleika- halds. HlaÖbær hf. með lægsta tilboð TILBOÐ í byggingu brúar yfir Kringlumýrarbraut voru opnuð hjá Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar á þriðjudaginn sl. og reyndist tilboð verktakafyrirtækisins Hlaðbæjar lægst, rúmar 32 milljónir króna. Fimm tilboð voru opnuð, sem höfðu verið valin áfram úr forvali. Samkvæmt kostnaðaráætlun var gert ráð fyrir að kostnaður við bygí?inKu brúar yfir Kringlumýr- arbraut næmi rúmum 39 milljón- um króna og er tilboð Hlaðbæjar því um 7 milljónum króna undir kostnaðaráætlun. Ákvörðunar um hvaða tilboði verður tekið er að vænta á næstu dögum að því er upplýst var hjá Innkaupastofnun Reykjavíkur í gær. Á efnisskrá kórsins er sem fyrr lögð megináhersla á íslenska sam- tímatónlist og að þessu sinni verða frumflutt tvö ný verk eftir ung tónskáld. Annað þeirra, „I Sing the Body Electric" fyrir þrí- skiptan kór og segulband eftir Lárus Halldór Grímsson, var sam- ið fyrir Háskólakórinn fyrir milli- göngu Musica Nova. Hitt er „Noct- urnes handa sólkerfinu" eftir Hilmar Þórðarson við ljóð eftir Sigurð Pálsson. Þá mun kórinn flytja verk Jóns Ásgeirssonar, „Á þessari rímlausu skeggöld", við ljóð Jóhannesar úr Kötlum. Auk þessara verka verða á efn- isskránni lög úr Sóleyjarkvæði, sem kórinn flutti fyrr í vetur við góðan orðstír. Tónleikarnir verða sem fyrr segir laugardag og sunnudag, 2. og 3. mars, í Félagsstofnun stúdenta við Hringbraut og hefjast klukkan 17.00 báða dagana. Stjórnandi Háskólakórsins er Árni Harðarson. (Fréttatilkynning) Bandalag áhugamanna um listir stofnað FIMMTUDAGINN 21. mars nk. kl. 20.30 verður haldinn í Tónabæ stofnfundur nýs félags sem ber heit- ið: „Bandalag áhugamanna um list- ir“. Er hér um að ræða nýtt félag, sem mun einbeita sér að hagsmun- um félagsmanna sinna, fræðslustarf- semi, sýningarstarfsemi, ýmissi þjónustu fyrir félaga s.s. útvegun bóka og blaða, efnis hvers konar o.fi. og margskonar þáttum er varða líf áhugamannsins á listabrautinni. Bandalagi áhugamanna um list- ir verður skipt niður í fimm deild- ir, sem eru: kvikmynda-, ljós- mynda-, leiklistar-, myndlistar- og tónlistardeild. Ættu allir að finna hér eitthvað við sitt hæfi. Margir jafnvel fleira en eitt. Allar deild- irnar fimm eiga síðan sinn hlut í útgáfustarfsemi félagsins, sem verður m.a. í formi blaðs. Blaðið verður fjölþætt og fallegt og gefið út með reglulegu millibili. Ef einhverjum finnst þetta höfða til sín þá vinsamlegast mæti hann á stofnfundinn, þar sem til- gangur, starfsemi, markmið og lög Bandalags áhugamanna um listir verða kynnt nánar. Þar mun ennfremur verða kosið í stjórn og félagsmenn skráðir niður. (FrétUtilkynning) Ráðstefna um mál- efni aldraðs fólks Öldrunarráð íslands boðar til ráðstefnu um málefni aldraðra borg- ara, sem búa á heimilum sínum. Ráðstefnan verður haldin á Hótel Esju, annarri hæð, fostudaginn I. marz, kl. 13:00, en gert er ráð fyrir að henni Ijúki kl. 18:00. Á ráðstefnunni verða flutt stutt framsöguerindi, Sigurveig Sigurð- ardóttir, félagsráðgjafi, talar um „Kosti og galla þess frá félags- og sálfræðilegum sjónarmiðum að búa heima". Guðrún Hafsteinsdóttir, talar um „Umhverfi", Sigríður Jó- hannsdóttir, sjúkraliði um „Fjöl- skyldu- og félagslíf", Jónína Pét- ursdóttir, deildarstjóri, um „Heim- ilishjálp, umfang, framkvæmd og nýting starfskrafta", Guðjón Brjánsson, um „Dagvistun" og Sveinn H. Ragnarsson, félagsmála- stjóri, um „Nýtingu fjármagns í samanburði við aðra þætti öldrun- arþjónustu". Þá verður gert kaffi- hlé, en síðan hefjast umræður, Ráðstefnustjóri verður formaður Öldrunarráðs íslands, Sr. Sigurður Helgi Guðmundsson. Ráðstefnan er öllum opin. (flr rrélUlilkynninKU) Háskólakórinn söng við athöfnina. Kandídatar útskrif- ast frá Háskólanum í IIPPHAFI haustmisseris hafa eft- irtaldir 52 stúdentar lokið prófum við Háskóla íslands. Kmbættispróf í guðfræði (1) Guðmundur Guðmundsson Embættispróf í lögfræði (4) Bergsteinn Georgsson Georg Kr. Lárusson Gunnar Jónsson Una Þóra Magnúsdóttir Kandídatspróf í viðsk.fræðum (15) Baldur Pétursson Benóní T. Eggertsson Eyþór Tómas Heiðberg Hallgrímur Tómas Ragnarsson Hjalti H. Hjaltason Jón Grímsson Jón Þorkelsson Margrét Guðjónsdóttir Ólafur Ólafsson Óskar Þórðarson Ottó Leifsson Pétur Vilhjálmsson Sigurður Ingi Margeirsson Skúli Bergmann Garðarsson Þóra Þorvarðardóttir Kandídatspróf í sagnfræði (1) Valdimar Unnar Valdimarsson Kandídatspróf í ensku (I) Neil McMahon B.A.-próf í heimspekideild (7) Anna Soffía Svavarsdóttir Edda Möller Friðný Guðrún Pétursdóttir Ólína Þorvarðardóttir Sigríður G. Björnsdóttir Sigríður Birna Guðjónsdóttir Veturliði Óskarsson Verkfræði- og raunvísindadeild (14) Lokapróf í rafmagnsverkfræði (3) Óskar B. Hauksson Valur Knútsson Vignir Bjarnason B.S.-próf í tölvunarfræði (3) Björgvin L. Gunnlaugsson Gunnar Halldórsson Trausti Leifsson B.S.-próf í eðlisfræði (1) Birgir Jóhannesson BJS.-próf í jarðeðlisfræði (1) Sigurður Erlingsson BJS.-próf í matvælafræði (1) Elín Guðmundsdóttir B-S.-próf í líffræði (1) Steingrímur P. Stefánsson B.S.-próf í jarðfræði (2) Guðmundur H. Guðfinnsson Viðar Karlsson B.S.-próf í landafræði (2) Elín Erlingsdóttir Kristján M. Baldursson Kandídatspróf í tannlækningum (1) Ingimundur Kr. Guðjónsson Guðmundur Magnússon, rektor há- skólans, ávarpaði gesti við braut- skráningu kandídata þann 23. febrú- ar sl. B.A.-próf í félagsvísindadeild (8) B.A.-próf í bókasafnsfræði (2) Auðbjörg Guðjónsdóttir Ragna Hafdís Stefánsdóttir B.A.-próf í sálarfræði (2) Reynir Harðarson Valgerður Magnúsdóttir B.A.-próf í uppeldisfræði (1) Hrafnhildur Skúladóttir B.A.-próf í félagsfræði (2) Auðbjörg Nanna Ingvarsdóttir Sveinbjörg J. Svavarsdóttir B.A.-próf í stjórnriíálafræði (1) Friðrik Þór Guðmundsson Húsnæðisstofnun talin hafa ofreiknað verðtryggingu: „Aðeins fáein hundr- uö króna á hvert lán“ Norræna húsið: Minnist hátíðarárs Kalevala-kvæðabálksins — Sigurður E. Guðmundsson, framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar „VIÐ HÖFUM ritað Seðlahankanum bréf og ég hef talað við einn hankastjóra Seðlabankans um að þegar í stað verði hafnar viðræður um það hvernig hægt sé að standa að fram- kvæmd þessara fyrirmæla, og ég vona að þær viðræður geti hafist nú, hvern daginn sem er,“ sagði Sigurður E. Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar ríkisins, er blm. Mbl. spuröi hann hvernig Húshæðisstofnun hygðist snúa sér í því að hún er talin hafa ofreiknað verðtryggingu af húsnæðislánum frá í september 1983 um þrjú prósentustig, þar sem ríkisstjórnin tók þá ákvörðun á þeim tíma að verð- trygging af lánunum skyldu aðeins vera 5,1 %, ekki 8,1 %. Kalevala-dagurinn, 28. febrúar, er opinber fánadagur í Finnlandi og haldinn hátíðlegur sem dagur finnskrar menningar. f ár eru liðin 150 ár frá útkomu Kalevala-kvæðabálksins finnska, en finnski læknirinn Elias Lönnrot ferðaðist um Finnland, einkum austurhéruðin og safnaði gömlum þjóðkvæðum. Hann bjó þau til út- gáfu og gaf þau út í fyrsta sinn 1835. Kalevala eru hetjukvæði frá mið- öldum, en þau endurspegla mörg eldri menningarskeið. Þessi þjóð- kvæði áttu mikinn þátt í finnskri þjóðarvakningu og hafa einnig inn- blásið finnskar bókmenntir, finnska myndlist og tónlist. í tilefni þessa hátíðaárs Kalev- alakvæðabálksins efnir Norræna húsið til sýninga, tónleikahalds og annarra kynninga, sem dreifast einkum á marz og apríl. í bókasafni og hluta anddyris verður bókasýn- ing og í samkomusal verður lit- skyggnusýning í gangi. f marz verður væntanlega opnuð sýning með Kalevala-Koru-skarti, og í apríl efnir Háskóli fslands í sam- vinnu við Norræna húsið til mál- þings um kvæðin. Sett verður upp skermasýning, sem sýnir tilurð kvæðanna, og er ætlunin, að sú sýning verði send í skóla og söfn víða um land. Veggspjöld hafa verið gerð í til- efni ársins og munu þau skreyta veggi Norræna hússins við og við á árinu. (f r rrcltatilkynmnjlu) Sigurður sagði að Húsnæðis- stofnun hefði þann 7. september 1983 ritað félágsmálaráðuneytinu bréf, þar sem farið var fram á að ráðuneytið skýrði hvernig þessi ákvörðun ríkisstjórnarinnar skyldi framkvæmd, þar sem í septembermánuði var hvorki gjalddagi á lánum hjá Bygginga- sjóði ríkisins, eða Byggingasjóði verkamanna. Því hefði verið vand- séð til hvaða tilvika þessi ákvörðun hefði átt að ná'. Sigurður sagði að svar við þessu bréfi hefði enn ekki borist, en hann hefði nú nýverið fengið upp- lýsingar um að félagsmálaráðu- neytið hefði staðið í þeirri mein- ingu að Húsnæðisstofnun og Seðlabanki hefðu hafið samvinnu um að kanna með hvaða hætti unnt væri að standa að þessari framkvæmd. Hér hefði því verið um gagnkvæman misskilning að ræða, en nú væri sem sagt verið að kanna þessi mál ofan í kjölinn og með hvaða hætti hægt væri að gera tillögur um frámkvæmd, til félagsmálaráðuneytisins. Aðspurður um hvort hér væri um miklar upphæðir að ræða í hverju tilviki, fyrir þá lántakend- ur sem hefðu greitt þarna þremur prósentustigum of mikið í verð- tryggingu, sagói Sigurður: „Það hefur lítilsháttar athugun farið fram á þessu í Veðdeild Lands- bankans, og hún gefur ekki til kynna að svo sé. Þau dæmi sem skoðuð voru fyrir okkur, benda til þess að þarna sé um að ræða fáein hundruð króna á hvert lán.“ Stjórn Húsnæðisstofnunar hélt fund í gær og þar bar þetta mál á góma, en stjórnin var sammála um að það þyrfti nánari skoðunar við, ásamt meiri upplýsingum stjórnvalda, samkvæmt upplýs- ingum Björns Þórhallssonar, eins stjórnarmanna stofnunarinnar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.