Morgunblaðið - 28.02.1985, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1985
Hljómsveitin Rikshaw mun sjá um undirleik fyrir keppendur í söngvakeppninni sem eru sex.
Söngvakeppni í Hollywood
VEITINGAHÚSIÐ Hollywood og
umboðsfyrirtækió Sólo sf. gangast
fyrir söngvakeppni í Hollywood í
kvöld, 28. febrúar, fimmtudaginn
7. mars og sunnudaginn 10. mars.
Fyrirkomulagi keppninnar er
þannig háttað að tvö fyrstu
kvöldin verða kynningarkvöld á
keppendum, koma þar fram þrír
þátttakendur hvert kvöld, en alls
eru keppendur sex.
Sunnudaginn 10. mars fer
fram úrslitakeppnin og mun
hljómsveitin Rikshaw sjá um
undirleik fyrir keppendur.
Hópur tónlistarmanna og
blaðamanna verður dómarar í
keppnjnni en auk þess verður
gestum gefinn kostur á að taka
þátt í kosningunni með því að
fylla út kjörseðil sem þeir fá við
innganginn í Hollywood.
Þeir sem koma fram auk
hljómsveitarinnar Rikshaw eru
Guðjón Guðmundsson, Jón
Magnússon, Gunnlaugur Fallk,
Jón Ben Einarsson, Sigurður
Dagbjartsson og Ósk Óskars-
dóttir.
Hanki-rallið í Finnlandi:
„Ekki er litið á rall-
akstur sem strákapör“
MorjfunblaðiS/TOPPFOTO
Sigurvegarar í llanki-railinu urðu Anterio Laine og Pekka Huolman á 350
hestafla Audi Quattro. I»eir notuðu 100 dekk í keppninni á meðan íslensku
ökumennirnir notuðu Ueplega 10 ...
— elsti
keppand-
inn 75 ára!
„Á SAMA tíma og við ókum í
Hanki-rallinu voru samtals
1500 manns að aka 750 bíl-
um í röllum víðsvegar um
Finnland. Þetta sýnir best
áhugann á þessari íþrótt
meðal Finna,“ sagði Stein-
grímur Ingason í samtali við
Morgunblaðið en hann
keppti í rallakstri í Finnlandi
ásamt þremur íslendingum
um sl. helgi eins og þegar
hefur verið greint frá í blað-
inu.
„í Finnlandi tekur fólk á öll-
um aldri þátt i rallakstri, ýmist
sem keppendur eða stjórnendur.
í rallinu sem við tókum þátt í
var t.d. sérflokkur fyrir öldunga.
Elsti keppandinn þar var 75 ára.
Voru þessir kappar í fremstu
röð á árum áður, en óku nú að-
eins hluta af rallinu til gamans.
Það er því sannarlega ekki litið
á rallakstur sem strákapör
þarna, eins og oft vill verða
hérlendis. Áhorfendur að
keppninni létu ekki 30 stiga
frost aftra sér frá því að fylgjast
með, héldu hita á sér með því að
kynda varðelda og grilla mat.
Viðgerðarmennirnir þurftu að
hita verkfærin sérstaklega fyrir
notkun, en unnu síðan berhentir
þrátt fyrir kuldann. Við áttum
erfiðara með að aðiaga okkur,
hefðum líklega frosið fastir ef
við hefðum staðið lengi í sömu
sporum ...
Finnarnir taka þessa íþrótt
mjög alvariega, enda eiga þeir
ökumenn hjá flestum verk-
smiðjuliðum. Toppökumennirnir
sem allir voru áhugamenn í
Hankirállinu létu sig ekki muna
um að skipta um dekkjaganga
eftir hverja sérleið, notuðu um
10 sérnegld vetrardekk, á meðan
við frá „litla íslandi" notuðum
10. Það er komið gott samband
núna milli íslenskra og finnskra
rallökumanna og má búast við
allmörgum Finnum í Ljómarall-
ið í sumar,“ sagði Steingrímur.
íslendingarnir Þorsteinn Ingason og Bragi Guðmundsson þeysa hér snjó-
lagða sérleið í 30 stiga frosti, sem aftraði þó ekki Finnum frá því að fylgjast
með keppninni/
Útivistar-
ferðir ’85
Ferðaáætlun Ferðafélagsins Úti-
vistar árið 1985 er komin út. Er
hún að þessu sinni stærri og fjöl-
breyttari en áður, enda tileinkuð 10
ára afmæli félagsins, en það var
stofnað þann 23. mars árið 1975.
Samtals eru 235 ferðir í ferða-
áætluninni, þar af eru 123 dags-
og kvöldferðir, 83 helgarferðir,
21 sumarleyfisferð og 8 hesta- og
veiðiferðir. Sérstakar afmælis-
ferðir eru 22 og verður sú fyrsta
sunnudaginn 24. mars. ÍJtivist-
ardagar fjöiskyldunnar eru þrír
og er sá fyrsti 12. maí. í afmælis-
ferðunum er lögð áhersla á
gönguleiðir á Keili, en þangað
var einmitt fyrsta Útivistarferð-
in farin.
í helgarferðum er oftast farið í
Þórsmörk, en þá er gist í skála
Útivistar í Básum. Nýjung í helg-
arferðum eru reglulegar ferðir á
Fjallabakssvæðið þar sem gist er
í góðum skála við Eldgjá. Er
fyrirhugað að bjóða upp á sil-
ungsveiði í þeim ferðum. í
sumarleyfisferðunum er fjöl-
margar nýjungar að finna. Má
þar nefna gönguferðir á Aust-
fjörðum og ferð í Fjörðu og Flat-
eyjardal. Af sumarleyfisferðum
eru að venju fjölmargar
Hornstrandaferðir. Ferðaáætl-
unin verður kynnt á mynda-
kvöldi Útivistar fimmtudags-
ÚTIVISTARFERDIR
0UTD00R UFi TOURS
1985
IITIVIST
LÆKJAftÖATA BA - RCYKJAVÍK
SíMl/SlMSVAHí
m
kvöldið 28. febr. í Fóstbræðra-
heimilinu og hefst það kl. 20.30.
Allir eru velkomnir meðan hús-
rými leyfir.
Þátttakendur í Útivistarferð-
um síðasta árs voru 4.514. Útivist
er almenningsfélag og eru ferðir
þess opnar öllum. Skrifstofan í
Lækjargötu 6a veitir allar nánari
upplýsingar um starfsemina.
(FrétUtilkynning)
Bridge
Arnór Ragnarsson
Vesturlandsmót í
sveitakeppni
Vesturlandsmót í sveitakeppni
var haldið í Hótel Stykkishólmi
helgina 23.-24. febrúar. 10
sveitir tóku þátt í mótinu og
voru spilaðir 16 spila leikir.
Sigurvegari varð sveit Alfreðs
Viktorssonar frá Akranesi með
190 stig. Auk Alfreðs spiluðu
þeir Karl Alfreðsson, Guðjón
Guðmundsson og ólafur Grétar
ólafsson í sveitinni. Þeir félagar
verða fulltrúar Vesturlands í
undankeppni Islandsmótsins.
Röð efstu sveita varð þessi:
Sv. Þorvaldar Pálmassonar,
Borgarfirði 160
Sv. Jóns Á. Guðmundssonar,
Borgarnesi 159
Hreyfill —
Bæjarleiðir
Tólf sveitir taka þátt í board-
a-match-keppni sem stendur yfir
■hjá bílstjórunum og er lokið
tveimur umferðum af fjórum.
Staöan:
Birgir Sigurðsson 155
Cyrus Hjartarson 143
Anton Guðjónsson 127
Skjöldur Eyfjörð 104
Kristján Jóhannesson 96
Gísli Sigurtryggvason 93
Næsta spilakvöld er á mánu-
daginn kl. 20 í Hreyfilshúsinu.
Bridgefélag
Siglufjarðar
Þegar 5 umferðum var lokið í
aðalsveitakeppninni var staða
efstu sveita þessi:
Sveit:
Boga Sigurbjörnssonar 105
Valtýs Jónassonar 102
Þorsteins Jóhannssonar 91
Níelsar Friðbjarnarsonar 85
Reynis Pálssonar, Fljótum 84
Georgs Ragnarssonar 78
Guðlaugar Márusd., Fljótum 68
Sv. Ellerts Kristinssonar, Stykk-
ishólmi 157
Sv. Guðna Hailgrímssonar,
Grundarfirði 140
Bridgesamband Vesturlands
þakkar Hótel Stykkishóimi fyrir
mjög lipra og þægilega þjónustu
í sambandi við mótið.
Vesturlandsmótið í tvímenn-
ingi verður haldið í Borgarnesi
og verður auglýst síðar.
Bridgedeild
Sjálfsbjargar
Aðalsveitakeppni deildarinnar
lauk sl. mánudag með sigri sveit-
ar Rutar Pálsdóttur. Með henni
spiluðu í sveitinni: Hlaðgerður
Snæbjörnsdóttir, Guðmundur
Þorbjörnsson og Þorbjörn Magn-
ússon.
Lokastaðan:
Rut Pálsdóttir 93
Pétur Þorsteinsson 92
Sigurrós Sigurjónsdóttir 85
Mánudaginn 4. mars hefst
tvímenningur. Ef nýir spilarar
vilja bætast í hópinn eru þeir
beðnir að hafa samband við
skrifstofu Sjálfsbjargar. Síminn
er 17868.
Spilað er í Sjálfsbjargarhús-
inu kl. 19.30.
Bridgefélag
Suðurnesja
Hin árlega keppni milli Sel-
fyssinga og Suðurnesjamanna
fór fram á Selfossi um sl. helgi.
Spiluðu 6 sveitir frá hvoru liði og
enduðu leikar með sigri Suður-
nesjamanna sem fengu 99 stig á
móti 86.
Tveimur umferðum er lokið í
Suðurnesjamótinu í sveita-
keppni og er staða efstu sveita
þessi:
Stefán Jónsson 47
Nesgarður 38
Haraldur Brynjólfsson 34
Sigríður Eyjólfsdóttir 30
Sigurhans Sigurhansson 29
Alls taka 12 sveitir þátt í þess-
ari maraþonkeppni. Spilað er í
Samkomuhúsinu í Sandgerði á
mánudögum ki. 20.
or aA oin |£| U^lllí í llAftlÍ"
„uuit ci du ciy ICm TliUm 1 IIUllU . . •