Morgunblaðið - 28.02.1985, Side 41

Morgunblaðið - 28.02.1985, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1985 41 ÞANKABROT UR HEILSUGÆSLUNNI V/óiafur Mixa Æ' A að leggja niður heilsu gæsluna í Reykiavík? Nú eru ellefu ár síðan gildi tóku þau heilbrigðisþjónustulög, er efla skyldu alhliða heilsugæslu eins og rakið hefur verið. Er nú svo komið á Stór-Reykjavíkursvæðinu, að al- gjör glundroði ríkir í heilsugæslu- málum. Tuttugu þúsund Reyk- víkingar hafa engan heimilis- lækni, og fer sú tala ört vaxandi vegna landflótta úr stéttinni og þeirra lækna, sem heltast úr lest- inni fyrir aldurs sakir. Áður hefur komið fram í skrif- um þessum, að fyrrum hafi sér- fræðingar sinnt heimilislækning- um. Fyrir um tuttugu árum var svo læknum gert að velja milli þessara tveggja aðalstarfa. Þeir heimilislæknar, sem uppi stóðu eftir það („g.g.h.") voru alltof fáir til þess að geta sinnt almennum lækningum til hlítar, auk þess sem þeir urðu sjálfir að standa straum af öllum stofurekstrinum. Innihélt greiðslan til þeirra, „númeragjöld- in“, þann kostnaðarlið. Fór þessi greiðsla stöðugt lækkandi. Urðu þeir sífellt að stækka sjúklinga- hóp sinn til að viðhalda kjörum, sem að einhverju leyti stæðust samanburð við önnur starfssystk- in. Lög og reglur siðaðra manna um vinnuvernd eins og lágmarks- hvíldartíma voru þá eins og nú brotin á þeim sem og öðrum lækn- um í heilsugæslunni. Nýliðun i stéttinni var nánast engin. Leiddi þessi vítahringur vitaskuld til þess, að heilsugæslunni var eftir sem áður sinnt að hluta til af sér- fræðingum í öðrum greinum með tilheyrandi tvíverknaði og tví- borgunum auk annars óhagræðis. Þáttur borgarinnar Með tilkomu nýju heilbrigðis- laganna 1974 kviknaði nokkur áhugi um endurbætur. Reykjavík- urborg lagði fram fjárstuðning fyrir bætta aðstöðu fyrir 3—4 lækna í Domus Medica, þar sem síðan hefur verið heilsdagsað- gangur að almennri læknisþjón- ustu og hjúkrunarráðgjöf fyrir um níu þúsund manns eða nær tvöfalt fleiri en talið er hæfilegt fyrir hvern lækni að sinna í nútíma heilsugæslu. Auk þess hefur borg- in látið af hendi rakna örlítinn stuðning. til annars læknahóps (í Þórsgötu 26). Hefur hingað til ver- ið litið á þessa ráðstöfun sem bráðabirgðalausn uns eiginlegar heilsugæslustöðvar tækju smám saman við. Fimm stöðvum var smám saman komið á fót í Reykjavík og Kópavogi, ekki þó kostuðum að 85% af ríkissjóði eins og lög gera ráð fyrir, heldur að töluverðum hluta af borgar- sjóði sem einnig greiðir rekstur- inn. Kom nú mikið babb í bátinn, þegar upp komst, hvaða störf ættu eiginlega að eiga sér stað í heilsu- gæslustöð. Nefnilega heilsugæsla. Ekki eins og menn virtust áður hafa álitið, að g.g.h. flytti úr gömlu kytrunum sínum með lyf- seðlablokkina, tilvísanaeyðublöðin og hlustunarpípuna yfir í nýjar kytrur á heilsugæslustöðvum. Ekki heldur að þeir störfuðu eftir sem áður í eilífðarkapphlaupi við klukkuna, tækju 40—50 tíma- hraksákvarðanir um hin marg- breytilegustu og sérhæfðustu vandamál, sem vörðuðu heilsu og líf borgaranna; síðan skýrsluhald, vottorðaskrif og viðhaldsmenntun á kvöldin og um helgar. Nú skyldi nútímaheilsugæslu vera komið upp og aukheldur hjúkrunarþjón- ustu og heimahjúkrun, víðtækri ráðgjöf, forvarnarstarfi. Þetta var ómark. Líklega væri betra að hafa þetta bara eins og hingað til; heilsuvernd á einum stað, heima- hjúkrun á öðrum, heimilishjálp á hinum þriðja, félagsaðstoð á hin- um fjórða og g.g.h. á þeim fimmta, allt uppá gamla mátann. Hinn „nýi kostnaður", sem af heilsu- gæslu hlýst, er einmitt nær ein- göngu fólginn í því að færa þessa þjónustuþætti, sem þegar eru fyrir hendi, saman á nokkrar hverfisstöðvar til bættrar sam- ræmingar þjónustunnar. Er þessi kostnaður fyrst og fremst tilkom- inn fyrir þá ákvörðun að veita yf- irleitt þjónustuna eða bæta hana, en ekki vegna fyrirbærisins heilsugæslustöð. Væntanlega má þó einnig færa rekstur þeirra til betri vegar að fenginni upphafs- reynslu undanfarin ár. Er nú svo komið, að sveitar- stjórnir í Reykjavík og nágrenni hafa fengið frestað lokagildistöku heilbrigðisþjónustulaganna, sem átti að eiga sér stað um síðustu áramót, og komið á endurskoðun þeirra að þvi er varðar Stór- Reykjavíkursvæðið. Er það þá væntanlega gert í þeirri trú, að Reykvíkingar hljóti að vera ein- hvern veginn öðruvísi í laginu en aðrir landsmenn. Hitt er stað- reynd að á þeim ellefu árum, sem liðin eru frá setningu laganna hef- ur borgarsjóður fyrir utan það sem að ofan hefur verið tínt til og hefðbundna heilsuvernd á Heilsu- verndarstöðinni ekki kostað einu eða neinu til heilsugæslu fyrir þá 65.000 borgarbúa sem ekki hafa not- ið þjónustu heilsugæslustöðvanna. Og nú virðist borgin enga ósk eiga heitari til sparnaðar en láta einn- ig af þeim stuðningi og leggja niður starfið í Domus Medica. Þáttur ríkisins Þetta hentuga aðgerðarleysi til sparnaðar hefur borgin stundað í skjóli þess, að ríkið hefur látið Reykjavík og nágrenni sitja á hak- anum með lögboðinn stofnkostnað heilsugæslustöðva og stöður heilsugæslulækna. Við afnám númerakerfisins sl. vor, varð eina opinbera framlagið til heilsugæslu utan stöðvanna fastagreiðsla Tryggingastofnunarinnar til hvers læknis til að kosta rekstur eins herbergis og sjötta hlutans úr símsvara (mennskum þó). Þannig vísar hver á annan. Er raunar svo komið nú, að heimilislæknum er sjálfum ætlað að reka obbann af heilsugæslu fyrir Reykvíkinga með launaflokki 115 BHM og 75 kr. framlagi frá hverjum sjúkl- ingi, sem á stofu þeirra rekur. Og við þessar aðstæður eiga þeir að „keppa" við aðra sérfræðinga, en sú var aðalröksemdin fyrir því, að á sl. ári var ákveðið að yfirsýn, ráðgjöf og stýring í heilsugæsl- unni um það, hvernig best og hag- kvæmast megi verða við heilbrigð- isþörfum hvers íbúa, væri óþörf og tilvísanir til annarra sérfræðinga því lagöar niður. Sú spurning er nú nærtækust, hvort leggja skuli niður heimilis- lækningar í Reykjavík. Það er fjárhagslega ómögulegt fyrir nýj- an heimilislækni að hefja störf, enda hefur enginn komið til sög- unnar sl. ár. Sá sem síðast kom fékk heldur óblíðar viðtökur af hálfu vinnuveitandans, og lét nærri, að hann hrökklaðist aftur úr starfi. Annar heimilislæknir hefur þegar ákveðið að flytjast úr landi. Einn heilsugæslulæknir hefur ákveðið að hætta að sinna heimilislækningum fyrir fullt og allt og aðrir eru komnir á fremsta hlunn með slíkt. Er það algjörlega utan við hugsanlegar uppsagnir heimilis- og heilsugæslulækna til varnar eigin útrýmingu og kjara- rýrnun. Ljóst er að langt verður að bíða þess að heilsugæslustöðv- ar annist heilsugæslu þorra Reykvíkinga. Ætli ekkert annað millibilsástand sé til en það að bíða með lygnum augum eftir því að næsta stjörnuhrap yfir íslandi lendi ofaní tebolla einhvers deild- arstjórans? Starfsbróðir sá úr röðum augn- lækna sem áður hefur verið nefnd- ur til sögu á blöðum þessum, Ingi- mundur Gíslason, kallaði sitt framlag til umræðunnar „draum- sýn heilsugæslulæknis". Nú er undirritaður þeirrar skoðunar að engum manni sé gefið að gægjast uppundir augnlok sofandi fólks á öðrum bæjum og lesa þar drauma, jafnvel þótt hann sé augnlæknir. En það get ég sagt honum, að ofangreint ástand er I augum g.g.h. líkara martröð en draum- sýn. Er þá bara að vonast til þess að vakna sem fyrst til að sjá, að það er komin stjarna í bollann. „Jslenska kartaflan leynirá sér“ íslenska kartaflan er meira en meðlæti. Hún er eitthvert besta hráefni sem völ er á og fullgild uppistaða í vandaðri máltíð, ódýr, holl og ljúffeng. Matreiðsla úr íslenskum kartöflum kostar þig litla fyrirhöfn en árangurinn kemur skemmti- lega á óvart, hvort sem stefnan er sett á einfaldan hversdagsmat, þríréttaða veislu eðafrísklega skyndirétti. Hver kartöflumáltíð er full af mikilvægum næringarefnum og er auk þess fyrsta flokks megrunarfæða. Kynntu þér nýju kartöfíuleiðina Grœnmetisverslun ' landbúnaðarins f Síðumúla 34 — Sími 81600 Kartöflugratin m/karríbeikoni fyrir 4-5____________________________________ • 500 g kartöflur • 150 g spergilkál • 1 stk. laukur • 150 g beikon • % tsk. salt • örl. pipar • Yi tsk. karrí • 2 egg__________________________________ Skerið kartöflurnar og rífið á rifjárni. Sjóðið spergilkálið í saltvatni f 3-5 mfn., skerið það niður, saxið laukinn. Skerið beikonið og steikið það á pönnu ásamt karríi. Smyrjið eldfast mót, blandið saman grænmeti og beikoni, allt sett í mótið. Þeytið saman egg, salt og pipar. Hellið eggjunum yfir grænmetið. Bakað neðst í ofni við 200°C f 30 mín. Borið fram sem sjálfstæður réttur með grófu brauði. Islenskar kartöflur eru auðugar af C-vítamíni, einkum ef þeirra er neytt með hýðinu. Þær innihalda einnig B, og B2 vftamfn, nfasfn, kalk, jám, eggjahvítuefni og trefjaefni. í 100 grömmum af fslenskum kartöflum eru aðeins 78 hitaeiningar. Ttl viðmiðunar má nefna að í 100 g af soðinni ýsu eru 105 he, kotasælu 110, soðnum eggjum 163, kjúklirtgum 170, nauta- hakki 268 og f hrðkkbrauði 307.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.