Morgunblaðið - 20.03.1985, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1985
Mánudagur
r
Igamla daga voru um tíma svo-
kallaðar „mánudagsmyndir" í
Háskólabíói. Þessar myndir voru
venjulega dálítið úr alfaraleið,
enda mikið sóttar af pípureykj-
andi menntaskólastrákum og
vinstúlkum þeirra er ekki voru
komnar á pelsastigið, heldur reik-
uðu um í hléinu hriktandi magrar
innaní floskugrænum íslenskum
gæruúlpunum, ýmist tottandi
pípusterta eða súpandi appelsín,
til styrktar íslenskum iðnaði.
Það vakti stundum ugg í brjósti
fylgdarsveinanna — sem voru
kannski að bjóða stelpu í fyrsta
sinn á bíó — hversu fjarrænar
þessar tálguðu gyðjur voru á
stundum. En alltaf bjargaðist nú
málið á síðustu stundu, því vart
varð þverfótað í mánudagsanddyri
Háskólabíós fyrir menningarvit-
um með Ché Gúvarahatta og bylt-
ingarsöngva á vörum og þá var
hægt að kafa oni myndina útfrá
stéttarlegum og díalektískum for-
sendum, þannig að gyðjurnar gátu
áfram horft með fjarrænu brosi
yfir sviðið. Nú og ekki minnkaði
fjörið ef einstaka íhaldsmaður í
stressbuxum og í sæmilega
hreinni skyrtu og strokinn yfir
eyrun, álpaðist inní gáfumanna-
hópinn, þá fyrst komu „stétta-
andstæðurnar" í ljós og eldglær-
ingar flugu milli manna, en gyðj-
urnar stóðu óhaggaðar á sínum
stað og horfðu inní fyrirheitna
landið.
Gyðjurnar
á mánudögum
Nú eru gyðjurnar flestar hverj-
ar orðnar of digrar fyrir íslensku
gæruúlpurnar og geta ekki stillt
sig um að kíkja í glugga hjá Pels-
inum i sunnudagsbíltúrnum:
Skyldi vera hægt að fá þennan
með afborgunum? Ihaldsmennirn-
ir eru að vísu enn íhaldsmenn, en
fylgdarsveinar gyðjanna sitja nú
pípulausir í húsbyggjendabílunum
og velta fyrir sér hvort og hvenær
þeir eigi að kaupa sér stresstösku,
og svo finnst þeim bara verulega
hugguleg jakkafötin hjá P&Ó.
Og á mánudögum þjást sumir
þeirra af margfaldri mánudags-
veiki. Já það er af sem áður var
þegar maður gat bara vakað allan
sólarhringinn. „Og nú er ekki
lengur sötrað mánudagsmynda-
appelsin uppí Háskólabíói, heldur
safnað i lífbelti miöjunnar með
skafis og öllu því er freistar
bragðlaukanna i glimrandi sjón-
varpsauglýsingunum. „En maður
lifir nú samt enn menningarlifi
eða horfum við ekki alltaf á mánu-
dagsmyndina í sjónvarpinu? Þetta
minnir bara á gömlu góðu dagana
uppí Háskólabíói, manstu? Og
ístrusafnarinn lítur yfir emmess-
súkkulaðibitann á gyðjuna sína,
sem horfir til fyrirheitna landsins
í gegnum fasteignasiður Moggans.
Goðin
á mánudögum
Æ þetta er víst lífsins gangur,
hugsar eilífðarhippinn og hallar
sér enn dýpra oní sjónvarpsstól-
inn, fullur eftirsjár eftir þeim
tíma er hann átti varla fyrir pulsu
og kók. En brátt víkja draumarnir
fyrir raunveruleika brauðstrit-
sins. Leiðin til Accra upphefst, á
frummálinu nefnist hún: Kukur-
antumi. Ekta mánudagsmynd í
gamla góða stílnum hugsar eilífð-
arhippinn og fullur eldmóðs
hringir hann eftir myndina til
gamals skólabróður, sem á sínum
tíma var efni í stórskáld: „Æ ég
sofnaði nú yfir þessu.“ Eilífðar-
hippinn leggur á símtólið. Honum
er Ijóst að hann er staddur í
framtíðarlandinu — miðju.
ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / S JÓN VARP
Úr kvennabúrinu
■ Andrea Jóns-
00 dóttir verður
með þátt sinn
Úr kvennabúrinu á rás 2 í
dag kl. 17.
Sú mýbreytni verður á í
þættinum að Andrea fær
gesti í heimsókn til sín.
Þeir eru Björk Guð-
mundsdóttir, söngkona í
hljómsveitinni Kukl, og
Hanna Steina Hjálmtýs-
dóttir, söngkona í hljóm-
sveitinni Dá. Þær munu
báðar koma fram á
skemmtun sem haldin
verður í Safarí á morgun,
fimmtudag. Hanna Steina
með sinni hljómsveit og
Björk með trommuleikar-
anum úr Kukli.
Andrea mun spjalla við
söngkonurnar og leika
tónlist með Kukl því enn
hefur Dá ekki gefið út
neina plötu.
Auk þessa verður And-
rea með hefðbundna
kynningu á einhverri
hljómlist sem flutt er
og/eða samin af konum.
Ur ævi og starfi
íslenskra kvenna
■ Þáttur Bjargar
15 Einarsdóttur,
— Úr ævi og starfi
íslenskra kvenna, er að
venju á dagskrá útvarps í
dag kl. 11.15. Að þessu
sinni verður þátturinn
helgaður Margréti Th.
Bjarnardóttur Rasmus.
Margrét fæddist árið
1877 á Reykhólum í
A-Barðastrandarsýslu.
Hún nam málleysingja-
kennslu í Danmörku
skömmu fyrir síðustu
aldamót. Margrét kenndi
daufdumbum í 45 ár, þar
af var hún skólastjóri
Málleysingjaskólans í
Reykjavík í 36 ár, eða til
1944, þegar hún sagði því
starfi lausu. Skólinn var
heimavistarskóli og auk
hennar og málleysingja
dvöldust þar einnig oft
vangefin börn, því þá var
enginn sérskóli eða stofn-
un til ætluð þeim.
Margrét fór nokkrum
sinnum utan til Danmerk-
ur og Þýskalands til að
kynna sér nýjungar á sínu
sviði, m.a. varalestrar-
aðferð. Hún fylgdi nem-
endum sínum eftir út á
Margrét Th. Bjarnardóttir
Rasmus.
lífið, stuðlaði að því að
þeir kæmust í þau störf
sem hugur þeirra stóð til
og þeim hentaði. Margrét
tók mikinn þátt í félags-
störfum, hún var einn af
stofnendum Blindravina-
félags íslands og Heyrn-
arhjálpar og í forystusveit
þessara samtaka. Hún var
virk í Thorvaldsensfélag-
inu, átti sæti í stjórn
Barnauppeldissjóðs þess
félags og var stofnfélagi i
klúbbi Sanktakvenna og
fleiri félagasamtaka.
Margrét lést í Reykjavík
1958.
Baldur Jónsson, formaður íslenskrar málnefndar, við kennslustörf.
Málræktarþáttur
í umsjá Baldurs Jónssonar
■I Síðastliðinn
45 miðvikudag hóf
— göngu sína í út-
varpi nýr þáttur í umsjá
Baldurs Jónssonar, for-
manns íslenskrar mál-
nefndar. Nefnist þáttur
þessi Málræktarþáttur og
eins og nafnið gefur til
kynna fjallar hann um is-
lenska málrækt.
I þáttunum verður ís-
lensk málnefnd kynnt en
hún var stofnuð 1964 og
eiga nú fimm manns sæti
i henni. Baldur mun skýra
frá hlutverki nefndarinn-
ar, verkefnum hennar og
starfsemi sem tengist
henni á einhvern hátt, s.s.
starfsemi orðanefnda.
í næstu þáttum segir
Baldur frá fyrstu reglun-
um sem um málnefndina
voru settar og svo aftur
nýju lögunum sem sam-
þykkt voru á Alþingi sl.
vor og gengu í gildi nú um
áramótin.
Þegar kynningu á
nefndinni lýkur mun
Baldur víkja að einhverju
sem annaðhvort er verið
að fást við í nefndinni eða
er á dagskrá hjá henni.
Hugsanlega verður um-
ræða um einstök orð sem
sérstaklega eru á döfinni
og eitthvað af því sem til
umræðu hefur verið í
fréttabréfi nefndarinnar.
Þá hefur, að sögn Baldurs,
komið til tals að fá í þætt-
ina gesti t.d. úr orða-
nefndunum til að segja
frá því sem þar er að ger-
ast.
ÚTVARP
MIÐVIKUDAGUR
20. mars
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
A virkum degi. 7.25 Leikfimi.
7.55 Daglegt mál. Endurt.
páttur Siguröar G. Tómas-
sonar frá kvöldinu áöur.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15
Veðurfregnir.
Morgunorð: — Niels Arni
Lund talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„ Agnarögn" eftir Pál H.
Jónsson. Flytjendur: Páll H.
Jónsson, Heimir Pálsson og
Hildur Heimisdóttir (11).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
10.45 íslenskir einsöngvarar og
kórar syngja.
11.15 Úr ævi og starfi Islenskra
kvenna. Umsjón: Björg Ein-
arsdóttir.
11j45 Islenskt mál. Endurtekinn
þáttur Jóns Aðalsteins
Jónssonar frá laugardegi.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
14.00 Barnagaman. Umsjón
Sólveig Pálsdóttir.
13.30 Leikið af nýutkomnum
hljómplötum. Grover Wash-
ington, Arthur Blythe o.fl.
leika og syngja.
14.00 „Blessuö skepnan" eftir
James Herriot. Bryndls Vlg-
lundsdóttir lýkur lestri þýð-
ingar sinnar (30).
14J0 Miðdegistónleikar.
Konsert ( G-diir fyrir selló,
kontrabassa og hljómsveit
eftir Giovanni Bottesini; Jörg
Baumann og Klaus Stoll
leika með Sinfónluhljómsveit
Berlínarútvarpsins; Jesus
López-Cobos stjórnar.
14.45 Popphólfið — Bryndls
Jónsdóttir.
15J0 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veöurfregnir.
16.20 Islensk tónlist.
a. Prelúdla og tvöföld fúga
um nafnið BACH eftir Þórar-
in Jónsson. Guðný Guö-
19.25 Aftanstund.
Barriaþáttur með innlendu
og erlendu efni: Söguhornið
— önugi Pétur. Sðgumaður
Lovlsa Einarsdóttir. Myndir
gerði Hólmfrlöur Benedikts-
dóttir. Kanlnan með köflóttu
eyrun, Högni Hinriks og Mar-
It Ntla.
(Nordvision — Norska sjón-
varpið.)
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Lifandi heimur.
3. Norðlægir skógar.
mundsdóttir leikur á fiðlu.
b. Sðngvar úr Ljóöaljóðum
eftir Pál Isólfsson. Sieglinde
Kahmann syngur meö Sin-
fónluhljómsveit Islands. Paul
Zukofsky stjórnar.
c. Konsert fyrir hljómsveit
eftir Jón Nordal. Sinfónlu-
hljómsveit Islands leikur; Páll
P. Pálsson stjórnar.
17.10 Slðdegisútvarp
Tilkynningar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.45 Málræktarþáttur. Baldur
Jónsson formaður Islenskrar
málnefndar flytur.
19.50 Horft I strauminn með
MIÐVIKUDAGUR
20. mars
Breskur heimildamynda-
flokkur I tólf þáttur. Umsjón-
armaður David Attenbor-
ough. Barrskógar og lauf-
skógar á noröurhveli jarðar
eru efniviður þessa þáttar
ásamt þvl fjölskrúöuga dýra-
og fuglallfi sem dafnar I skjóli
trjánna.
Þýðandi og þulur Öskar Ingi-
marsson.
21.50 Herstjórinn.
Sjötti þáttur.
Bandarlskur framhalds-
myndaflokkur I tólf þáttur
gerður eftir metsölubókinni
Auði Guðjónsdóttur.
(RUVAK).
20.00 Utvarpssaga barnanna:
„Grant skipstjóri og börn
hans“ eftir Jules Verne.
Ragnheiöur Arnardóttir les
þýðingu Inga Sigurössonar
(11).
20.20 Hvað viltu verða?
Starfskynningarþáttur I um-
sjá Ernu Arnardóttur og Sig-
rúnar Halldórsdóttur.
21.00 Frá alþjóðlegu orgelvik-
unni I Núrnberg sl. sumar.
Eberhard Lauer, sem hlaut
1. verðlaun I „Pachelbel"-
keppninni, leikur Orgelsón-
ötu I c-moll eftir Julius
Reubke.
21.30 Að tafli. Guðmundur
„Shoguh" eftir James Cla-
vell.
Leikstjóri: Jerry London. Að-
alhlutverk: Richard Cham-
berlain, Toshiro Mifune og
Yoko Shimada.
Þýðandi Jón O. Edwald.
22.35 Ur safni Sjónvarpsins.
Kona er nefnd Marla Mark-
an.
Sjónvarpsþáttur frá árinu
1972.
Pétur Pétursson ræðir vlð
Mariu Markan, óperusöng-
konu.
23.25 Fréttir I dagskrárlok.
Arnlaugsson flytur skákþátt.
22.00 Lestur Passlusálma (39).
22.15 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Tfmamót.
Þáttur l tali og tónum. Um-
sjón: Arni Gunnarsson.
23.15 Nútlmatónlist. Þorkell
Sigurbjörnsson kynnir.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Kristján Sigur-
jónsson.
14.00—15.00 Eftirtvö
Létt dægurlðg.
Stjórnandi: Jón Axel Olafs-
son.
15.00—16.00 Nú er lag
Gömul og ný úrvalslög að
hætti hússins.
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
son.
16.00—17.00 Vetrarbrautin
Þáttur um tómstundir og úti-
vist.
Stjórnandi: Július Einarsson.
17.00—18.00 Ur kvennabúrinu
Hljómlist flutt og/eða samin
af konum.
Stjórnandi: Andrea Jóns-
dóttir.
SJÓNVARP