Morgunblaðið - 31.03.1985, Síða 13

Morgunblaðið - 31.03.1985, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNÚDAGUR ft. MARZ 1985 B 13 Skrafaö og akeggraatt á námskeiði Ijósmaaöra líka lítið til af þeim hjálpartækjum sem létta heimilisstörfin í dag. Að meðaltali tók ég á móti 8—14 börnum á ári, flest voru þau 14 eitt árið. Ég hef verið sérstaklega hepp- in og alltaf allt gengið vel hjá mér, þetta er skemmtilegt starf og veitir mikla ánægju. Eftirminnilegasta fæðingin er fyrsta barnið sem ég tók á móti. Konan var að fæða sitt fyrsta barn og læknir var viðstaddur, og í ljós kom aö þetta var sitjandi fæðing, þetta var nokkurs konar eldskírn fyrir mig. önnur fæðing er mér einnig minnisstæð, það var kona sem var komin að því að eiga barn efst uppi í hreppi, hún virtist ekki geta fætt og læknirinn vilda fara með hana á sjúkrahús. Það var fengin flugvél til að koma konunni á milli og þegar vélin var að setjast fæddi konan barnið. Og fyrir tveim árum var óvænt fæðing í næsta húsi við mig, það var kona sem var gestkomandi sem tók upp á þvf að fæða barn sitt þar. Það er margt minnisstætt úr þetta langri starfsævi." LIUA SKARPHÉÐINSDÓTTIR HÚSAVÍK „Finnst ég eiga eitthvað í börnunum" Lilja Skarphéðinsdóttir er Húsvíkingur og vinn- ur á sjúkrahúsinu þar. „Ég hef alltaf búið á Húsavík, nema þann tíma sem ég var í námi í Reykjavík, og lauk námi ’79. Við erum þrjár ljósmæður á spítalanum, skipt- um á milli okkar tveim stöðum." — Hvað fæðast að jafnaði mörg börn hjá ykkur á ári? „Það er svolítið misjafnt, svona 60 til 95. Starf okkar er um margt ólíkt því sem ljós- mæður í Reykjavík eiga að venj- ast. Við erum með mæðraskoð- un, hjúkrun og sængurlegu, hugsum um konurnar frá upp- hafi til enda. Við erum tiltölu- lega vel búin tækjum, okkur vantar frekar lækna, en við framkvæmum flestar aðgerðir á spítalanum svo sem keisara- skurði o.fl. Við erum í meiri tengslum við mæðurnar og börn- in á svona stað, fylgjumst með konunum allan meðgöngutim- ann, og fylgjumst með börnun- um er þau vaxa úr grasi. Og það er ekki laust við að okkur finnist við eiga talsvert í þeim börnum sem við höfum aðstoðað við að koma i heiminn! — Er þetta skemmtilegt starf? „Já, það er mjög skemmtilegt, ég væri ekki í þvi annars, en jafnframt mjög krefjandi." — Hefur ekki margt eftir- minnilegt komið fyrir þig í starfi? „Jú, sérstaklega er mér minn- isstæð fæðing fyrsta barnsins sem ég tók á móti eftir að námi lauk. Þetta var kona úr Mý- vatnsveitinni, hún hafði misst legvatnið og ég fór að sækja hana. Það munaði minnstu að hún fæddi á leiðinni, ég rétt komst með hana inn á spítala og í venjulegt sjúkrarúm og þar fæddi hún barnið örfáum minút- um eftir að við komum inn. Þetta hefur nokkrum sinnum komið fyrir síðar, ég hef séð á koll á leiðinni á sjúkrahúsið, en þó alltaf getað komið þeim inn á spítalann." — Hvað er stærsta og minnsta barnið sem þú hefur tekið á móti? „Stærsta barnið var tæpar 20 merkur og það minnsta um 9.“ — Taka væntanlegir feður á móti börnum sínum á Húsavík? Jlá já, við erum ekkert dreif- býlisleg hvað þetta snertir. Pabbarnir taka þátt í þessu og eru venjulega viðstaddir fæðing- una og standa sig yfirleitt mjög vel.“ Stórkostleg sýning á gallerímyndum og plakötum. Frá- bært úrval góöra fermingargjafa. Opiö laugardag kl. 10—17, sunnudaga kl. 13—17. Myndin °?lsh'aHu„nj13 s Simi 54171 Skólar í Englandi Skólavist á bestu ensku skólunum — áöur á vegum Mímis. Vandiö valiö. Sími 25149 kl. 12.00—14.00 daglega. Skólamiðlunin, Sólvallagötu 28. Lítiö í gluggann um helgina Valhúsgögn hf. Ármúla 4, sími 82275. KÍNAFERÐIR Á þessu ári eru í boöi tvær feröir til KÍNA. Hin fyrri veröur 19 dagar og hefst um mánaöamótin júní-júlí. Komiö veröur viö í Beijing, Tianin, Shenyang, Anshan, Dailen og Shanghai. i Kína veröur feröast með járn- brautalestum, farþegaskipi og flugvélum. Fararstjóri: Ragnar Baldursson, sem átti heima í Kína í fjögur ár. v.,87.000 b, Seinni ferðin er fyrsta ferö íslendinga til TÍBET. 19 daga ferö um miöjan október. í þeirri ferö veröur auk Lhasa og Xigaze í Tíbet fariö um Beijing (Peking), Xian og Chengdu. islendingar hafa aöeins leyfi fyrir 12 farþega til TÍBET i ár. 125.000 to. Innifalið í veröi: Allar feröir, skoöunarferöir, gisting í tveggjamanna her bergi og fullt fæöi. SKRIFSTOFA STÚDENTA Hringbraut, sími 16850 og Kínversk-íslenska menningarfélagiö. * Miöast viö gengi 25. mars 1985. Góóon daginn!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.