Morgunblaðið - 31.03.1985, Síða 21

Morgunblaðið - 31.03.1985, Síða 21
B 21 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. MARZ 1985 Háskólabíó: Frumsýning á Vígvöll- um (Killing fíelds) Ágóði af frumsýningu rennur til Rauða krossins HÁSKÓLABÍÓ frumsýnir á morgun kl. 21 kvikmyndina Vígvellir (The Killing Fields). Þessi mynd hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda. Hún var tilnefnd til sjö Oskarsverðlauna og fékk þrenn verðlaun — besta kvikmyndataka, besti leikari í auka- hlutverki og besta hljóðupptaka. Breska kvikmyndaakademían veitti myndinni fjölmörg verðlaun, þ. á m. titilinn besta kvikmynd ársins 1984. Kvikmyndin er sannsöguleg og byggir á atburðum sem áttu sér stað i Vietnam, Kambódíu og Thailandi um það leyti er syrta tók i álinn hjá herjum Suður- Víetnams og Bandaríkjanna, en uppgangur Rauðu khmeranna var að hefjast í Kambódíu. Rakin er saga Dith Prah sem vegna styrj- aldarinnar verður að afneita upp- runa sínum, yfirgefa heimili sitt og fara huldu höfði, en kemst að lokum í flóttamannabúðir í Thai- landi við landamæri Kambódíu. Rauði krossinn reisti flótta- mannabúðir við landamærin og þangað streymdu hundruð þús- unda flóttamanna. Rauði kross Is- lands tók virkan þátt í þessu starfi og hafa 16 íslendingar verið þar við störf frá upphafi. Hver miði á frumsýninguna kostar 200 krónur, sem er hærra verð en á almennum sýningum, — en allur ágóði af frumsýningunni rennur óskiptur til hjálparstarfs 1 Rauða krossins. Forsala aðgöngu- miða hefst kl. 14 í dag og kl. 16 á morgun. Fólk er eindregið hvatt til að mæta og styrkja gott málefni. (Ffttatilkjruiaf) mmm Drekkum mjólk á hverjum degi ★ Mjólk: nýmjólk, léttmjólk, undanrenna eða mysa ■ ★ Allt frá því að tennurnar byrja að vaxa þurfa þær daglegan kalkskammt, fyrst til uppbyggingar og síðan til viðhalds. Rannsóknir benda til að vissa tannsjúkdóma og tannmissi á efri árum megi að hluta til rekja til langvarandi kalkskorts. Með daglegri mjólkur- ntyslu. a.m.k. tveimur glös ,.ii é dctg, er líkamanum tryjgður lágmarks kalkskammtur og þannig unnið gegn hinum alvarlegu afleiðingum kalkskorts. Tennurnar fá þannig á hverjum degi þau byggingarefni sem þær þarfnast og verða sterkar og fallegar fram eftir öllum aldri. Gleymum bara ekki að bursta þær reglulega. Helstu henmldir Bækfngunm Kak og beínþynning eftrdr. Jón Óttar Ragnarsson og Nutribon and Physical Rtness, 11. úlg., eftir Briggs og Caloway, Holt Reinhardt and Winston, 1964. MJÓLKURDAGSNEFND Aldurshópur Ráðlagður dag- skammtur af kalki 1 mg Samsvarandi kalk- skammtur i mjólkur glösum (2,5 dl glösf Lágmarks- skammtur I mjólkurglösum (2,5 dl glös)* Börn 1-10ára 800 3 2 Unglingar11-18ára 1200 4 3 Ungt fólk og fullorðið 800 ★★★ 3 2 Ófrlskar konur og 1200 ★★★★ 4 3 * Hér er geri ráð fyrir að allur dagskammturinn af kalki komi úr mjólk. ★ * Að sjálfsögðu er mögulegt að fá alft kalk sem líkaminn þarf úr öðrum matvælum en mjólkurmat mjólk, en sllkt krefst nákvæmrar þekkingar á næringarfræði Hér er miðaö við nðysluvenjur eins og þær tíökast I dag hér á landi. ♦ ** Margir sérfræðingar telja nú að kalkþörf kvenna eftir tlðahvörf sé mun meiri eða 1200-1500 mg á dag **** Nýjustu staðlar fyrir RDS I Bandaríkjunum gera ráð fyrir 1200 til 1600 mg á dag fyrir þennan hóp. Mjólk inniheldur meira kalk en nær allar aðrar fæðutegundir og auk þess B-vítamín, A-vítamín, kalíum, magnlum, zink og fleiri efni. Um 99% af kalkinu notar Ifkaminn til vaxtar og viðhalds beina og tanna. Tæplega 1 % er uppleyst I líkamsvökvum, holdvefjum og frumuhimnum, og er það nauðsynlegt m.a. fyrir blóðstorknun, vöðvasamdrátt, hjartastarfsemi og taugaboð. Auk þess er kalkið hluti af ýmsum efnaskiptahvötum. Til þess að líkaminn geti nýtt kalkið þarf hann D-vítamín, sem hann fær m.a. með sólböðum og úr ýmsum fæðutegundum t.d. lýsi. Neysla annarra fæðutegunda en mjólkurmatar gefur sjaldnast meira en 300-400 mg á dag, en það er langt undir ráðlögðum dagskammti. Ur mjólkurmat fæst miklu meira kalk, t.d. 800 mg úr u.þ.b. þremur glösum af mjólk. (MICROMA) > ■ SWISS OuAOTZ-* | er framtíðarúrið þitt § | - því getur þú treyst. j | Þetta er aðeins hluti af úrvalinu. VISA EUROCARD I FRANCH MICHELSEN | URSMÍOAMEiSTARI LAUGAVEGl 39 SÍMI 28355

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.