Morgunblaðið - 31.03.1985, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. MARZ 1985
B 45
Þakklæti fyrir velvildina
Þann 12. mars sl. skrifar Bryn-
hildur Bjarnadóttir í Velvakanda
þar sem hún beinir orðum sínum
til hans eða hennar sem tðk
ófrjálsri hendi peninga frá gam-
alli konu á Elliheimilinu Minni-
Grund.
Skrifin virðast hafa runnið
ýmsum til rifja því nokkrum dög-
um eftir að þau birtust í blaðinu
bárust tvær peningagjafir til
gömlu konunnar, önnur frá tveim-
ur ónafngreindum Reykvíkingum
og hin frá íslenskum manni bú-
settum erlendis.
Velvakandi vill hér með koma á
framfæri kæru þakklæti frá
gömlu konunni til þessara góðu
manna sem þannig létu fé af hendi
rakna til þess að bæta henni það
sem frá henni var tekið.
Hörður segir að enn sé óráðið hvar orgelið verði staðsett í Hallgríms-
kirkju.
Þessir hringdu . . .
Heimsmál
Snorra
ión Hnefill Aðalsteinsson
hringdi:
Það sem mig langar til að
koma á framfæri er örlítið
þakklæti til hans Árna Johnsen
vegna ummæla sem hann lét
falla í sjónvarpsþætti um daginn
þar sem hann sagði að íslenskan
væri heimsmál í bókmenntum og
vitnaði í Snorra Sturluson.
Vil ég þakka honum fyrir
þessa ábendingu og undirstrika
það að verk Snorra eru lesin við
alla háskóla í Vestur-Evrópu og
um alla Ameríku, og í Ástralíu
og Nýja-Sjálandi eru rannsóknir
á verkum Snorra á frummálinu
með miklum blóma um þessar
mundir.
Prýðisgóð
hugmynd
Kona hringdi:
Ég varð svo himinlifandi yfir
hugmyndinni sem kom fram í
dálkum Velvakanda um daginn
þess eðlis að Korpúifsstöðum
yrði breytt í dvalarheimili aldr-
aðra.
Þetta er kjörinn staður, fagurt
umhverfi og ekki of langt úr
bænum fyrir böm og barnabörn
að koma í heimsókn. Það held ég
að nóg sé til af skemmti- og veit-
ingastöðum og því tilvalið að
leyfa gamla fólkinu að njóta þess
að dvelja á Korpúlfsstöðum í ell-
inni.
Egg ekki
kælivara?
Húsmóðir í Kópavogi hringdi:
Ég bar fram fyrirspurn i Vel-
vakanda fyrir allnokkru síðan en
þar sem engin svör bárust vil ég
nú ítreka spurninguna:
Eru egg ekki kælivara? Ég hef
fengið svo léleg egg að undan-
förnu og tel ég ástæðuna vera þá
að þau eru ekki geymd í kæli í
versluninni.
Vonandi sér einhver sér fært
að svara þessu. Þá langar mig til
að beina því til forráðamanna
sjónvarpsins hvort ekki sé hægt
að sýna Steinaldarmennina sem
voru svo vinsælir hér á árum áð-
ur.
Óráðið hvar
orgelið verður
Hörður Áskelsson, organisti í
Hallgrímskirkju hringdi:
Fyrir skömmu birtist í Vel-
vakanda fyrirspurn frá I.A. um
það hvar orgelið ætti að vera
staðsett i Hallgrímskirkju.
Langar mig að það komi hér
fram að enn er það óráðið hvar
orgelið verður staðsett í kirkj-
unni en lengi hefur staðið yfir
söfnun á öllum mögulegum upp-
lýsingum um það hvar sé réttast
að staðsetja svo stórt kirkjuorg-
el.
Langar mig jafnframt til að
benda I.A. og öðrum sem áhuga
hafa á þessu máli, að grein birt-
ist í Mbl. nú um helgina þar sem
spjallað er við einn fremsta
orgelsmið í heiminum. Hann
kom sérstaklega hingað til
landsins fyrir stuttu til þess að
kanna málið og í viðtalinu fjall-
ar hann um kosti og galla mis-
munandi staðsetningar stórs
orgels.
Matreiðslubók
væntanleg
Margrét Þorvaldsdóttir, umxjon-
armaður þittarins „Réttur dags-
ins“ í Morgunblaðinu, hringdi:
Fyrir skömmu birtist fyrir-
spurn í Velvakanda um það
hvort ég hefði gefið út einhverja
matreiðslubók. Því er til að
svara að svo er ekki, en mat-
reiðslubók eftir mig er þó í und-
irbúningi og er væntanleg á
markaðinn á árinu.
Margir fara ekki á fætur
Útvarpshlustandi skrifar:
Ég lá um tíma í sjúkrahúsi. Beið
oft eftir að morgnaði, eftir morg-
unútvarpinu, klukkuslættinum
góða, sem boðar nýjan dag og vek-
ur nýjar vonir. Næturvaktin góða
hvarf til hvíldar. Aðrar og fleiri
líknandi hendur birtast. Svo kom
þulurinn: Útvarp Reykjavík, Út-
varp Reykjavík. Ríkisútvarpið
býður yður góðan dag, og verið
velkomin á fætur.
Er það virkilega í nafni alls
Ríkisútvarpsins, hvorki meira né
minna, að sumir þulirnir heilsa
öllum landslýð með þessum
ávarpsorðum? Vita viðkomandi
þulir ekki, að hvern einasta dag
fer mikill fjöldi manns alls ekki á
fætur, sumir hverjir aldri meir? Ég
sé þessa þuli fyrir sjónum mér
valhoppa inn i sjúkrastofnurnar
og segja eitthvað á þessa leið:
„Elskurnar, mikið eigið þið gott að
fá að fara á fætur, og verið nú
þakklát greyin mín.“
„Aðgát skal höfð í nærveru sál-
ar.“ Einar Ben. átti stórt og hlýtt
hjarta. Og áreiðanlega hafa þessi
gullvægu orð hans vakið margan
manninn til umhugsunar. En
Ríkisútvarpið virðist ekkert þurfa
á slíkri aðgát að halda. Þessi skrif
mín breyta áreiðanlega engu hér
um. Sumir vita alltaf allt best, og
eru þráir í ofanálag. Haldið bara
áfram að bjóða sjúka og særða
velkomna á fætur!
Condor
trommusett
sem nýtt til sölu
Uppl. í síma 44808 í
dag og á morgun
milli kl. 17 og 21.
HANDPRJÓNAFÓLK
ÓSKAST
Handprjónafólk óskast til ákveöinna verkefna
(hespulopi).
Vinsamlega hafiö samband viö peysumóttök-
una aö Vesturgötu 2, sem er opin alla virka
daga frá 9—12 og 13—15. Sími 22091.
á /llafoss hf.
Vorlaukarnir
eru komnir
í þúsundatali
10% afsláttur
í dag
VIÐ MIKIATORG
-BI.( )M £AY1 XIIH
Hafnartlrmti 3.