Morgunblaðið - 04.04.1985, Side 22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. APRlL 1985
Hjörtur Pálsson
stjórnar hússins
- Átti hinsvegar auðvelt með að vinna með færeyskum listamönnum
naut aldrei stuðnings
og varaforstjóra þess
MÁL Hjartar Pálssonar, sem nýlega sagði upp stöðu sinni sem forstjóri
Norðurlandahússins í Færeyjum, hefur vakið mikla athygli að undan-
förnu. Mörgum hefur fundist erfitt að átta sig á þessu máli, enda e.t.v.
lítið um skýringar.
Blaðamaður Morgunblaðsins
fór til Þórshafnar í Færeyjum til
þess að kynna sér orsakir þess að
Hjörtur Pálsson sagði upp stöðu
sinni eftir aðeins sex mánuði.
Ekki er hægt að neita því að þeg-
ar farið var að leita skýringa
virtist málið mun viðameira en í
upphafi var haldið. í raun er hér
ekki einungis um að ræða upp-
sögn Hjartar, heldur ýmis
vandamál, sem virðast hafa ver-
ið í Norðurlandahúsinu frá upp-
hafi.
Hjörtur Pálsson gerði grein
fyrir afstöðu sinni á fundi með
fréttamönnum 1. apríl sl. í
Þórshöfn og svaraði jafnframt
ýmsum ásökunum sem komið
höfðu fram í fréttatilkynningu
stjórnar Norðurlandahússins 27.
mars.
Samstarfsörðugleikar
Svo virðist sem helstu ástæður
uppsagnar Hjartar séu þær, að
hann átti erfitt með að vinna
með varaforstjóranum, Ásu
Jústinussen. Það kom m.a. fram
í því að hún tók ýmsar ákvarðan-
ir án samráðs við hann. Ákvarð-
anir sem Hjörtur taldi að hann
ætti að hafa eitthvað með að
gera sem forstjóri. En í rauninni
virðast þessir samstarfsörðug-
leikar tengjast samstarfsörðug-
leikum milli Hjartar og þeirra
þriggja manna í stjórn hússins,
sem taka allar ákvarðanir, Jan
Stiernstedt stjórnarformanns,
Dánjal P. Danielssen varafor-
manns og Steen Cold stjórnar-
manns og fyrrverandi forstjóra.
Þessir menn hafa ekki tekið
mark á tillögum Hjartar um ým-
islegt sem hann taldi betur mega
fara í húsinu.
Steen Cold
Steen Cold þessi var í bygg-
ingarnefnd hússins fyrir hönd
danska menntamálaráðuneytis-
ins, þar sem hann var fulltrúi.
Honum var falið að vera for-
stjóri hússins og koma starfsemi
þess af stað og var sú staða aldr-
ei auglýst.
Síðan var staðan auglýst og
Hjörtur Pálsson tók við í lok
september sl. Þá fór Steen Cold
aftur að vinna sem fulltrúi í
danska menntamálaráðuneyt-
inu, en var þá einnig settur í
stjórn hússins Hann hefur eftir
þetta sent bréf í nafni hússins,
án samráðs við Hjört, bæði til
starfsmanna þess og einnig fólks
sem óskað hefur eftir að sýna í
húsinu. Þetta hefur stjórnin
sætt sig við og ekki gert neinar
athugasemdir. Hirti finnst hins
vegar verið að taka fram fyrir
hendurnar á sér með þessu.
Geröi grein fyrir ástandinu
í nóvember
Hjörtur segist hafa orðið var
við þessa erfiðleika fljótlega eft-
ir að hann tók til starfa. Hann
fann að mikill losarabragur var
þarna á öllu og vildi koma reglu
á hlutina, t.d. skjalasafn o.fl.,
vegna þess að hann átti erfitt
með að fá fullnægjandi svör við
ýmsum spurningum sem hann
lagði fyrir starfsfólk og stjórn
hússins. Svör sem hann taldi að
forstjóri stofnunarinnar ætti að
eiga auðvelt með að fá. í nóv-
ember benti hann stjórninni á
þetta, en ekkert var gert í mál-
inu.
Stjórnin hefur skýrt
afstööu sína
Nú hlýtur það að teljast óeðli-
legt að maður sem hefur þegar
sagt upp starfi sínu sé beðinn að
fara strax, nema ef viðkomandi
hefur framið lögbrot. Blaðamað-
ur Mbl. náði tali af Dánjal P.
Danielssen varaformanni til
þess að athuga hvort hann gæti
e.t.v. skýrt málið nánar. Svörin
sem fengust voru á þá leið að
stjórnin hefði ekki meira að
segja við blöðin. Hún hefði gert
grein fyrir málum sínum í
fréttatilkynningunni 27.3.
Blm. fór þá í Norðurlandahús-
ið til þess að hitta Ásu Jústín-
ussen og spyrja hana hvort hún
vildi eitthvað um málið segja.
Hún sagðist ekkert vilja tjá sig
um málið, enda væri hún aðeins
starfsmaður þarna. Hún var þá
spurð hvort hún væri ekki for-
stjóri hússins, nú þegar Hjörtur
væri hættur. Hún svaraði því til
að það væri aðeins um stundar-
sakir.
Næsta morgun hringdi Ása í
blm. og sagði að hún hefði séð,
að sín hafi verið getið í Morgun-
blaðinu þann 29. mars. Þess
vegna vildi hún aðeins segja það,
að þeim I Norðurlandahúsinu
þætti mjög leiðinlegt hvernig
þetta hefði farið. Hún var spurð
hvort hún teldi að ef betra and-
rúmsloft hefði verið ( húsinu
hefði Hjörtur getað komið ein-
Hjörtur Pálsson og kona hans Steinunn Bjarman á heimili sínu í Þórs-
höfn í Færeyjum.
hverju góðu til leiðar. Þá svaraði
hún því til, að andrúmsloftið
hefði verið gott áður en hann
kom. Um þetta eru ekki allir
sammála.
Listamenn ánægðir
með Hjört
Samtök færeyskra lista-
manna, LISA, gaf út yfirlýsingu
þann 25. mars, tveimur dögum
áður en Hjörtur var beðinn að
fara. Þar kemur m.a. fram að
samtökin telja að ef Hjörtur
hefði fengið að starfa sem for-
stjóri hefði hann getað komið á
góðu samstarfi milli hússins og
færeyskra listamanna. LISA
harmar að samstarfserfiðleikar
hafi orðið til þess að Hjörtur
þurfti að segja upp, en segjast
jafnframt skilja að hann hafi
ekki getað sætt sig við þessar
kringumstæður.
LISA heitir á stjórnina að
kanna aðstæður svo forstjórinnn
geti fengið vinnufrið. Að lokum
heita samtökin á ráðherranefnd
Norðurlandaráðs og Landstjórn
Færeyja að krefjast þess af
stjórninni að hún bíði með að
auglýsa starfið þangað til feng-
ist hafa fullnægjandi skýringar
á ástæðum fyrir uppsögninni. Þá
biðja þau einnig um að málið
verði tekið upp á fundi norrænna
menntamálaráðherra og fær-
eyska landstjórnarmannsins í
menntamálum sem haldinn
verður í Kaupmannahöfn í apríl.
Tveir listamenn sem blm. tal-
aði við, þau Gulla öregaard,
formaður bandalangs leikfélaga,
og Bárður Jákupssen, formaður
myndlistarfélagsins, staðfestu
það í samtali að mjög gott sam-
starf hafi verið milli listafólks-
ins og Hjartar.
Gulla sagði m.a. að hann hefði
verið skilningsríkur á færeyska
list og að hann hefði stutt starf
listamanna.
„Ég get aðeins sagt allt gott
um Hjört," sagði hún, „og ég er
viss um að ef hann hefði fengið
að starfa áfram hefði hann gert
færeyskri menningu mikið
gagn“.
Bárður hafði svipað að segja
um samstarfið við Hjört og sagði
hann að þetta mál væri allt mjög
sorglegt og væri hann mjög leið-
ur vegna þess. Hann hélt að
flestir Færeyingar væru sama
sinnis.
Málið kemur upp
á lögþinginu
Erlendur Patursson og Jó-
hannes Dalsgaard lögþingsmenn
lögðu fram fyrirspurn til lands-
tjórnarmannsins í menntamál-
um, Lassa Klein, um að hann
svaraði því hverjir þeir sam-
starfserfiðleikar væru sem hefðu
verið orsökin fyrir því að Hjört-
ur sagði upp. Þingið felldi tillögu
um að þessari fyrirspurn yrði
svarað.
Jógvan Sundstein er einn
þeirra sem ekki vildi að fyrir-
spurninni yrði svarað. Hann var
spurður hvers vegna svo væri.
„Ég tel að þessi fyrirspurn eigi
ekki heima á lögþinginu og um
það eru fleiri sammála mér eins
og kom í ljós. Þessari spurningu
á ráðherranefnd Norðurlanda-
ráðs að svara,“ sagði hann.
Erlendur Patursson er mjög
harðorður vegna þessa máls.
Hann sagði m.a. í samtali við
blm. að hann liti þannig á að
þama hafi verið framið dóms-
morð.
„Hjörtur er alveg saklaus, en
þeir seku eru að dæma þann
saklausa. Þessir þrír stjórnar-
forstjóra. Þessir þrír menn sem
eru í stjórn hússins hafa stjórn-
að því á bak við forstjórann. Er-
lendur sagði að þegar kom í ljós
að Hjörtur vildi ekki beygja sig
fyrir þeim, heldur stóð á sínum
rétti, þá var hann neyddur til að
segja upp.
„Þetta eru ástæðurnar fyrir
því að ég ætla ekki að gefast upp
í þessu máli,“ sagði hann. „Ég sé
ekki aðra leið en að stokka spilin
upp á nýtt og fá alveg nýja átta
manna stjórn."
Jóhannes Dalsgaard lögþings-
maður sagði í samtali við blm. að
hann þekkti ekki Hjört persónu-
lega. Hann sagðist þó vita að
hann hefði ekki fengið tækifæri
til að vinna eins og hann vildi og
að stjórn hússins hefði komið 1
veg fyrir það. Jóhannes sagði að
færeyskir listamenn væru
ánægðir með Hjört og það væri
skömm að því að hann hefði ekki
geta unnið þarna áfram, sér-
staklega vegna þess að hann var
opinn og átti auðvelt með að
vinna með listafólkinu. Hann
hefði áhuga á norrænu sam-
starfi og færeyskri menningu, en
það væri ekki hægt að segja um
Steen Cold eða stjórnina.
Af þessum samtölum má ráða
að sitt sýnist hverjum. Þó virðist
sem Hjörtur hafi átt vinsældum
að fagna sem forstjóri Norður-
landahússins í Færeyjum hjá
flestum, nema e.t.v hjá þre-
menningunum í stjórn hússins
og varaforstjóra þess.
Mörgum spurn-
ingum ósvaraö
Enn á eftir að sjá hverju
framvindur í Norðurlandahús-
inu. Þar hefur margt gerst sem
vert væri að fá skýringar við t.d.
hvort uppgjör hafi verið gert í
sambandi við byggingu hússins.
Greiðslur til Ole Steen arkitekts
og byggingarmeistara hússins
voru t.d. stöðvaðar daginn eftir
opnun hússins og átti þá eftir að
ganga frá ýmsu í byggingunni.
Tuttugu og tveimur vikum eftir
að húsið var opnað átti að opna
grafískt verkstæði í húsinu og til
þess var fenginn maður að nafni
Ivan Edeling. Hann hefur oft
komið til Færeyja á kostnað
hússins til þess að setja upp
verkstæðið, en ekkert orðið
ágengt.
Fleiri spurningar koma upp í
hugann. Hvers vegna fékk Nor-
ræna félagið í Færeyjum ekki að
hafa aðstöðu í húsinu? Og svona
mætti lengi telja.
Texti: Ásdís Haraldsdóttir.
Norðurlandahúsið í Færeyjum er
sérkennileg og fögur bygging.
menn eru litlir karlar fullir af
metorðagirnd, sem vilja láta til
sín taka. Að mínu viti er Hjörtur
hámenntaður maður sem nýtur
virðingar á íslandi og menn hafa
ekkert út á hann að setja. Hjört-
ur hefur t.d. lært færeysku á
þessum stutta tíma og stendur
þar með ekki utan við þjóðfélag-
ið.“
Erlendur taldi að það væri til
fyrirmyndar hvernig hann hefði
rekið Norðurlandahúsið og væri
hann þess vegna orðinn virtur og
vinsæll meðal listamanna.
Erlendur sagðist ekki þola
hvernig farið hefði verið með
Hjört. Hann sagðist vera búinn
að lesa reglugerð hússins og að
þar kæmi fram að þessi stjórn
hefði enga heimild til að skipta
sér af daglegum rekstri hússins.
Sá rekstur á allur að vera í
höndum forstjórans. í reglugerð-
inni er ekki minnst einu orði á
að heimilt sé að ráða aðstoðar-
Morgunblaðið/Ásdís
Norðurlandahúsið f Færeyjum: