Morgunblaðið - 04.04.1985, Blaðsíða 24
24
MOR(?ÍW6LAOtP; >iP«fL)»8er
Frá útför Sir Michaels Redgrave
Lafði Redgrave (til hægri á myndinni), ekkja hins látna brezka leikara
Sir Michaels Redgrave, horfír á er dóttir þeirra hjóna, leikkonan
Vanessa Redgrave, virðir fyrir sér blómsveig við útför Sir Michaels í
síðustu viku. Yngri dóttirin, Lynne, fylgist einnig með. Sir Michael lést
sl. fímmtudag, 77 ára að aldri.
Búlgarar sakaðir um
að ofsækja þjóðarbrot
Ankara, 't.apríl. AP.
TYRKIR sökuðu Búlgara í dag um að fylgja „kynþátta- og þjóðrembings-
stefnu" gagnvart minnihluta tyrkneskumælandi manna í Búlgaríu.
Talsmaður tyrknesku stjórnar-
innar vitnaði í nýlegar yfirlýs-
ingar búlgarskra ráðamanna þess
efnis að tyrkneskumælandi
mönnum yrði ekki leyft að fara úr
landi og að vera mætti að þeir
yrðu fluttir til nýrra heimkynna í
Búlgariu. Ennfremur að bulgarsk-
ir ráðamenn bæru til baka að
Tyrkir væru neyddir til að skipta
um nöfn.
Tyrkneski talsmaðurinn sagði
að þessar og fleiri yfirlýsingar
búlgarskra ráðamanna jafngiltu
því að þeir neituðu því að til væri
tyrkneskur þjóðarminnihluti í
Búlgaríu og að reynt væri að láta
líta út fyrir að þeir væru Búlgar-
ar. Það væri þetta sem bæri vott
um að búlgörsk stjórnvöld fylgdu
„kynþátta- og þjóðrembings-
stefnu“.
Hann talaði einnig um hlægi-
legar fullyrðingar um að Tyrkir
„skiptu um nöfn af fúsum og
frjálsum vilja". Hann sagði það
von Búlgara að tyrkneski þjóðar-
minnihlutinn gleymdi uppruna
sínum og menningu ef þeir skiptu
um nöfn og ef þeim yrði bannað að
flytjast úr landi.
Enn fremur sakaði tyrkneski
talsmaðurinn Búlgara um að neita
að ganga til viðræðna um hugsan-
legan „heimflutning“ tyrkneska
þjóðarbrotsins (Tyrkir réðu Búlg-
aríu í fimm aldir) og að ástæðan
væri sú að Tyrkir væru ódýrt
vinnuafl, sem auðvelt væri að arð-
ræna.
Um ein milljón Tyrkja mun búa
í Búlgaríu.
Bandaríska utanríkisráðuneytið
sagði í gærkvöldi að fyrir því væru
„órækar sannanir" að Búlgarar
væru staðráðnir í því að afmá
þjóðereinkenni Tyrkja í Búlgaríu.
í sumum tilfellum hefði herlið
stutt skriðdrekum umkringt heil
þorp og flutt íbúana nauðungar-
flutningum til sérstakra um-
dæma, þar sem fólkið væri neytt
til að taka sér ný nöfn.
Einnig hefðu borizt fréttir um
að nokkrir sem hefðu veitt viðnám
hefðu verið skotnir án dóms og
laga.
Skv. sumum fréttum hafa 40—
100 Tyrkir verið skotnir.
Nicaragua:
Stóraukin
vopnakaup
galu. 3
rjÓRi
SANDINISTASTJORNIN í Nicaragua fékk 18.200 tonn af af alls kyns
vopnabúnaði frá Sovétríkjunum og bandalagsríkjum þeirra á síðasta ári. Er
það 45% aukning frá árinu áður að sögn bandaríska varnarmálaráðuneytis-
ins. 17 hermenn frá Nicaragua voru handteknir í Hondúras í gær.
Meðal vopnanna, sem sandinist-
ar fengu frá kommúnistaríkjun-
um, var skriðdrekar, loftvarna-
byssur, brynvarðir bílar og 10—13
herþyrlur. Segir frá þessu í nýrri
skýrslu bandaríska varnarmála-
ráðuneytisins um hernaðarupp-
byggingu Sovétmanna. Að hluta
eru þessar upplýsingar ekki nýjar
Víetnamar hefja heimflutn-
ing herliðs frá Kambódíu
Stung Treng, Kambódíu, 3. aprfl. AP.
í DAG hófu Víetnamar að flytja
nokkur þúsund hermenn frá Stung
Treng í Kambódíu til Pleiku í Víet-
nam.
Öflugur her, þar á meðal fót-
göngulið, stórskotalið og tækni-
sveitir, fóru frá Stung Treng eftir
að sérstök athöfn hafði farið fram
Sífellt fleiri
hlusta á BBC
London, 3. aprfl. AP.
EITT hundrað og tuttugu milljónir
manna, stærsti hlustendahópur í
Pólverjar
á næstu
Ól-leika?
Varsjá, I. aprfl AP.
MARIAN Renke, formaður pólsku
ólympíunefndarinnar lét hafa eftir
sér í dag, að það væri glapræði af
Pólverjum að taka þátt í fjölda-
hunsun annarra ólympíuleika eins
og gert var í fyrra er leikarnir voni
haldnir í Los Angeles og Sovétríkin
og fylgifískar þeirra mættu ekki til.
Renke sagði að búast mætti við
þvi að leikarnir sem haldnir
verða í Seoul árið 1988 verði
„vonandi þeir sterkustu síðan
1976, því allar sterkustu íþrótta-
þjóðir heims ættu að vera í hópi
keppenda", eins og hann komst
að orði. Hann sagði að Pólverjar
mættu alls ekki missa af tveimur
leikum í röð, ólympíuleikar væru
einhver besti friðarmiðill sem til
væri og upplagðir til að stuðla að
góðvild og trausti þjóða í milli.
Það var PAP, pólska ríkisfrétta-
stofan, sem lét viðtalið við Renke
frá sér fara og eru sérfræðingar
að velta fyrir sér hvað þessi orð
hans boði.
heimi, fylgist reglulega með út-
sendingum BBC, breska ríkisút-
varpsins á erlendum málum. Var
skýrt frá þessu í dag og er þetta
nýtt met í sögu stofnunarinnar.
BBC lét kanna hlustenda-
fjöldann mjög gaumgæfilega á
sl. hausti og kom þá í ljós, að
hann hafði aukist um 20 millj-
ónir manna frá árinu 1981. Segir
Austen Kark, framkvæmda-
stjóri deildarinnar, sem sér um
að útvarpa á erlendum málum,
að mest hafi hlustendum fjölgað
í Indlandi, Vestur-Afríku og
Miðausturlöndum. BBC útvarp-
ar á 36 erlendum tungumálum.
BBC er aðeins sjötta í röðinni
hvað varðar útsendingartíma
því að Sovétmenn og önnur
Austur-Evrópuríki, Bandaríkja-
menn, Kínverjar og Vestur-
Þjóðverjar útvarpa lengur, en á
enga aðra stöð er hlustað jafn
mikið. BBC skilgreinir hlust-
anda sem fullorðinn mann, sem
hlustar amk. einu sinni í viku á
stöðina.
í miðborginni.
Þúsundir Kambódíumanna
fylgdust með og veifuðu kambód-
ískum og víetnömskum fánum, er
fullhlaðnir flutningabílar, gamlir
bandarískir skriðdrekar og troð-
fullar rútur af hermönnum siluð-
ust af stað eftir rykugum götunum.
Hermennirnir sem fóru í dag
hafa gegnt herþjónustu í fjórum
héruðum í Norðaustur-Kambódíu,
Stung Treng, Natarakiri, Mondok-
iri og Pret Vihia, frá árinu 1979.
Einnig er hafinn brottflutning-
ur víetnamsks herliðs frá Suð-
austur-Kambódfu. Hafa hersveitir
verið fluttar frá héruðunum Svay
Rieng, Kandal og Prey Veng til Ho
Chi Minh-borgar í Víetnam.
Talsmaður Hanoi-stjórnarinnar
kvað 15.000 víetnamska hermenn
verða flutta á brott frá Kambódíu
í aprílmánuði.
af nálinni en nú er í fyrsta sinn
greint nákvæmlega frá hvers kon-
ar vopn sandinistum bárust.
í skýrslunni segir, að nú séu í
Nicaragua 3000 kúbanskir hernað-
arráðgjafar og 3000 Kúbumenn
aðrir en Sovétmenn, Austur-
Þjóðverjar, Líbýumenn, Norður-
Kóreumenn og PLO, frelsisfylking
Palestínumanna, hafa þar 40—50
hernaðarráðgjafa hverjir.
í tilkynningu hersins í Hondúr-
as i gær sagði að 17 hermenn frá
Nicaragua á sjö herbílum hefðu
farið inn í Hondúras og verið
handteknir þar. Fréttir um þenn-
an atburð stangast raunar nokkuð
á því að það er haft eftir heimild-
um í Managua, höfuðborg Nicar-
agua, að hermennirnir hafi flúið
inn í Hondúras.
Risavaxin
vindmylla
Æ meira rafmagn er nú fengið úr
vindorku í heiminum. Á skozku
eynni Orkney er nú unnið að því
að reisa eina stærstu vindmyllu (
heimi, og á hún að geta séð
18.000 manns fyrir rafmagni.
Vindmyllan verður tekin í notk-
un á næsta ári og á hún að geta
framleitt 3000 kflóvött á dag.
Mynd þessi sýnir útlitsteikningu
af vindmyllunni. Lengdin á milli
spaðsoddanna verður 60 metrar.
Flugrán
í Líbanon
Jidda, Saudi Arablu, 2. aprfl. AP.
MAÐUR, sem var einn síns
rændi Boeing 707-þotu líbanska
flugfélagsins Middle East Airlines í
gærkvöldi skömmu eftir flugtak í
Beirút og neyddi flugstjórann til að
lenda í Saudi Arabíu.
Ræninginn krafðist 100 millj-
óna dollara af saudi-aröbum til
styrktar baráttu félaga sinna í
suðurhluta Líbanon. sem átt hafa
í útistöðum við ísraela. Gafst
flugræninginn upp skömmu eftir
lendingu í Jidda. Farþeganna 66
og 10 manna áhöfn sakaði ekki.
Var hann starfsmaður MEA-flug-
félagsins.
Ræninginn var með skamm-
byssu í fórum sínum og hand-
sprengju.
Tékkneskir forstjórar
sakaðir um hugleysi
ERLENT
Praj, 2. aprfl. AP.
MÁLGAGN Kommúnistaflokks
Tékkóslóvakíu gagnrýnir forstöðu-
menn fyrirtækja harðlega í dag fyrir
að verðlauna ekki verkamenn sem
skara fram úr. Segir blaðið forstjór-
ana skorta hugrekki til hvetjandi
ráðstafana.
Stjórn Tékkóslóvakíu ákvað
1983 að greiða mætti bónus hönn-
uðum og „fyrirtaks verkamönn-
um“ sem ættu heiður af aukinni
framleiðni og tæknivæðingu.
Mætti greiða þeim jafnvirði allt
að 625 dollara á mánuði.
Gripið var til þessarar ráðstöf-
unar í því markmiði að örva
tæknivæðingu og framfarir 1 iðn-
aði. Forstjórar hafa hingað til
ekki haft nein áhrif á kaup og
kjör, sem ákveðin hafa verið sam-
kvæmt forskrift stjórnvalda.
Rude Pravo segir að forstjórar
hafi hins vegar ekki notfært sér
þetta. Annað hvort sé um að ræða
kæruleysi eða hugleysi, að for-
stjórana skorti hugrekki til að
draga einstaka verkamenn í dilk
eftir frammistöðu.
Veggspjald á 3,1 m.kr.
London, 2. aprfl. AP.
Veggspjald um listsýningu í Vín-
arborg síðan árið 1902 var selt á
uppboði Christie’s í London fyrir
62 þúsund sterlingspund í gær-
kvöldi, eða fyrir jafnvirði 3,1 millj-
ónar íslenzkra króna.
Nöfnum seljanda og kaupanda
var haldið leyndum af uppboðs-
haldarahum.
______1______________________