Morgunblaðið - 04.04.1985, Síða 26
^6
JHQEfiUNBlAQIP, FIM^THDAQUR 4.4PRlk 1»5
Okkar hlutverk er að veita þér
þjónustu. Hér að neðan kynnistu
hvernig við förum að því.
Þjónusta.
Meðalstór fólksbíll er samansett-
ur úr allt að 10.000 hlutum. Það
gefur augaleið, að þessir hlutir
þurfa mismikið viðhald, t.d. er
oftar skipt um kerti en aftursæti.
Til þess að fylgjast með eftir-
spurn á einstökum varahlutum,
notum við tölvu, sem skráir sam-
stundis allar breytingar á birgðum,
svo sem sölu og innkaup.
Tölvan gerir vikulegar pantana-
tillögur, sem við förum yfir og
samræmum breytilegum þörfum
eftir árstíma. Á þennan hátt kapp-
kostum við að hafa ávallt fyrir-
liggjandi nægilegt magn þeirra
varahluta, sem löng reynsla hefur
kennt okkur að þörf er fyrir.
Ef við eigum ekki varahlutinn,
sem þig vantar, pöntum við hann
án nokkurs aukakostnaðar fyrir
Þ«g-
Verð.
Við kappkostum að halda vöru-
verði í lágmarki án þess að slaka á
kröfum um gæði.
Til að lækka vöruverð, pöntum
við varahluti í miklu magni í einu
og flytjum til landsins á sem hag-
kvæmastan hátt. Síðan setjum við
vörurnar í tollvörugeymslu og af-
greiðum þær þaðan með stuttum
fyrirvara eftir þörfum hverju sinni.
Þannig lækkum við flutnings-
kostnað og innkaupsverð vörunnar.
Vörugæði.
Til að tryggja gæðin, verslum við
eingöngu með viðurkenndar vörur
með ársábyrgð gagnvart göllum.
Afgreiðsla.
í varahlutaverslun okkar eru sér-
hæfðir afgreiðslumenn ávallt reiðu-
búnir til aðstoðar, hvort sem þig
vantar varahluti eða upplýsingar
viðkomandi viðhaldi bílsins.
Landsbyggðin.
Ef þú býrð úti á landi, getur þú
snúið þér til umboðsmanns okkar
í þínu byggðarlagi eða hringt í
okkur í síma (91)13450, (91)21240
eða (91)26349 og við sendum vara-
hlutina samdægurs.
Okkar markmið er:
VÖRUGÆDI, ÁBYRGÐ
og GÓD ÞJÓNUSTA.
Sættir þú þig við minna?
Ný lög í Kína:
Heimilt að erfa
„framleiðslutæki“
Peking, 3. aprfl. AP.
KÍNVERJUM leyfíst innan tíðar að erfa einka „framleiðslutæki“ eftir »tt-
ingja, sem átt hafa fyrirtæki, að því
dag.
Aðalritari þingsins, Wang Han-
bin, sagði frá því á þingfundi, að í
næstu viku yrðu afgreidd lög, sem
breyttu reglugerðum, er heimiluðu
ríkinu að yfirtaka framleiðslutæki
við lát eigenda þeirra.
„Eins og er geta kínverskir
borgarar erft eignir, en aðeins
þær er teljast til „nauðþurfta“,“
sagði Wang.
Hann sagði nauðsynlegt hefði
reynst að breyta þessu í framhaldi
greint var frá á kínverska þinginu í
af efnahagsumbótum, sem átt
hefðu sér stað í landinu eftir daga
Maos formanns; tekjur hefðu auk-
ist og einkaeignir þar af leiðandi.
„Margt fólk á nú „framleiðslu-
tæki“, og það er ekki ætlunin, að
ríkið yfirtaki þau að eigendunum
látnum," sagði Wang.
Lögin munu einnig heimila
kínverskum borgurum að taka arf
eftir aðila utan Kína eða eftir út-
lendinga í Kína.
Mikil aðstoð við
Afríku samþykkt
W axhin^ton, 3.apríl. AP.
BÁÐAR deildir Bandaríkjaþings samþykktu í nótt að 800 milljónum dala
yrði varið til aðstoðar vegna hungursneyðarinnar í Afríku.
Fulltrúadeildin samþykkti
frumvarp um aðstoðina með 400
atkvæðum gegn 19 og það var
samþykkt mótatkvæðalaust í öld-
ungadeildinni.
Svipað frumvarp var samþykkt
í fulltrúadeildinni 28. febrúar, en
öldungadeildin samþykkti tillögur
um breytingar á því. Frumvarp
Dýr fiðla
Lundúnum, 3. apríl. AP.
ÓNEFND bandarísk samtök buðu í
dag 348.920 dollara í stradivarius
fíðlu af vandaöri gerð á uppboði hjá
Sothby’s í Lundúnum.
Fiðluna keyptu hinir banda-
rísku handa landflótta sovéskum
fiðlusnillingi, Viktoriu Mullovu, 25
ára gamalli, sem flýði frá Sovét-
ríkjunum fyrir tveimur árum og
fékk pólitískt hæli í Bandaríkjun-
um. Fiðlan er um ræðir var hönn-
uð og smíðuð árið 1725 og náði
ekki áætluðu verði á uppboðinu
sem nam 366.000 dollurum.
Evrópskar
auglýsingar
í Kínaútvarp
Lúxemborg, 3. aprfl. AP.
Útvarpsstöðin RTL í Lúxemborg hef-
ur gert samkomulag við Kínverja um
sölu evrópskra auglýsinga í kín-
verskt útvarp og sjónvarp. Einnig
munu RTL og kínverska útvarpið
skiptast á tónlistarþáttum.
RTL er eign belgískra og
franskra aðila. Enn hefur ekki
verið ákveðið hvenær fyrstu evr-
ópsku auglýsingarnar birtast í
kínversku útvarpi og sjónvarpi, né
í hversu miklum mæli auglýsingar
verða birtar.
það, sem nú er orðið að lögum og
verður sent Ronald Reagan for-
seta til staðfestingar, var mála-
miðlunarlausn.*
Jafnframt undirritaði Reagan í
gær lög, sem heimila að 175 millj-
ónum dala verði varið til annarrar
aðstoðar en matvælaaðstoðar
vegna baráttunnar gegn neyðar-
ástandi því sem ríkir í Afríku
vegna hungursneyðarinnar.
Upphæðinni verður valið til
kaupa á fræi, áburði, skordýra-
eitri, landbúnaðartækjum, bólu-
efni, ábreiðum, fatnaði og skýlum.
Gengi
gjaldmiðla
Dollar lækkar
London, 3. apríl. AP.
Bandaríkjadalur lækkaði f
verði á gjaldeyrismörkuðum í
Evrópu. Viðskipti voru fremur
lítil vegna páskahelgarinnar.
Engin ein skýring er gefín á
verðlækkun dollars. Verð á gulli
hélzt nánast óbreytt.
Gengi brezka pundsins
hækkaði og kostaði það 1,2167
dollara miðað við 1,2102 í gær.
Gengi dollars var að öðru
leyti þannig, að fyrir einn doll-
ar fengust 3,1180 vestur-þýzk
mörk (3,1510), 2,6405 svinnesk-
ir frankar (2,6545), 9,5000
franskir frankar (9,5950),
3,5160 hollenzk gyllini
(3,5565), 1.990,50 ítalskar lírur
(2.007,(10) og 1,3710 kanadiskir
dollarar (1,3740).
í kvöld kostaði únsa gulls
319,00 dollara, eða sama og í
gær. I Zúrich hækkaði únsan
um tvo dollara, úr 318,50 í
320,50.
Tveir nota lista-
mannsnafnið Erro
GUÐMUNDUR Guðmundsson, sem notar listamannsnafnið Erro, er
ekki einn um það heiti því að í Bandaríkjunum ber Ijósmyndari sama
nafn. Heitir hann Gerald Erro Gutshall, fæddur árið 1949, og er orðinn
kunnur vestra undir Erro-nafninu.
Erro hinn bandaríski er aðal-
lega þekktur fyrir landslags- og
sjávarmyndir í súrrealískum
stíl, og hefur hann haldið fjöl-
margar sýningar, bæði einn og
með öðrum. Hann hefur t.d. sýnt
myndir sínar í húsakynnum
beggja deilda bandaríska þings-
ins og um þessar mundir er verið
að sýna þær í 100 sendiráðum
Bandaríkjanna víða um heim.
Guðmundur Guðmundsson
notaði í fyrstu listamannsnafnið
Ferro en varð að stytta það um
effið þegar í ljós kom, að annar
maður hét því nafni. Nú er hins
vegar ljóst, að þeir eru tveir um
Erro-nafnið listamennirnir og
mun líklega koma í ljós hvort
einhver rekistefna verður út af
því.