Morgunblaðið - 17.04.1985, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 17.04.1985, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 1985 19 Kammertónleikar Tónlist Jón Ásgeirsson Kammertónleikar íslensku hljómsveitarinnar, sem haldn- ir voru í Bústaðakirkju, voru fyrir margra hluta sakir fróð- legir og góð skemmtan. Fyrsta verkið á tónleikunum var kvartett fyrir fiðlu, lágfiðlu, selló og óbó, eftir Mozart. Þetta verk er ýmist sagt vera númer K.368 en er einnig merkt K.370. Hvað sem því líður, er verkið mjög fallegt og var í heild vel leikið, þó smá slysagleymska yrði til þess að óbóistinn og sellóleikarinn misstu úr nokkra takta. Við það var eins og flytjendur misstu áhugann, það sem eftir var af verkinu. Annað verkið á efnisskránni var frumflutningur á oktett eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Verkið er skrifað fyrir óbó, klarinett, fagott, horn, píanó og strengi og nefnir höfundur- inn verkið Attskeytlu. Verkið er skemmtilega skrifað, létt og oftlega leikandi í hryn og ekki ólíklegt að það eigi eftir að verða vinsælt viðfangsefni í framtíðinni, bæði af hálfu hljóðfæraleikara og hlustenda. Það er eins og merkja megi vissa breytingu á lagferli og samhljóman í seinni verkum Þorkels og gætir þar minna þrástefjaleiksins, sem stundum réð mestu í verkum hans fyrr- Þorkell Sigurbjörnsson um. Tónleikunum lauk með Es-dúr-píanókvintettinum eft- ir Beethoven. Þó margt væri fallega gert í verkinu vantaði nokkuð á þá skerpu sem þetta verk beinlínis kallar á, ef það á ekki að verða mezzoforte-mod- erato líðandi. I svona tónlist mega andstæður vera skarpar og hljóðfæraleikarar eiga að geta notið yfirburða tækni sinnar, næstum að því marki sem gerist í einleik. Að því leyti til er flutningur kamm- ertónlistar talinn mjög erfiður, auk þess sem huga þarf að margslunginni gerð slíkra verka, en í kemmertónlist er innihald verkanna oftlega byggt á öðru rökkerfi en á sér stað í tónlist er tengist skil- greinanlegum þáttum atferlis og túlkun tilfinninga. Ert þú umsjónarmaður sparibauksins á vinnustaðnum, fjárhaldsmaður, fjármálastjóri, sparifjáreigandi, eða þarft þú að varðveita fé á góðan og öruggan hátt? ¥16 aeram þér sérstakt tilbo* Reynist meðalinnstæða á Bónusreikningi, á árinu 1985, 500.000 kr. eða hærri verður 2% Vaxtabónus lagður við þann Bónusreikning. Vaxtabónus reiknast af samanlögðum áunnum verðbótum og vöxtum á árinu 1985 og verður lagður við þá Bónusreikninga, sem uppfylla ofangreind skilyrði, þann 20. jan. 1986. Tilboðið gildir fyrir alla þá sem eiga nú fé á Bónusreikningi eða stofna Bónusreikning fyrir 15. maí nk. Ársávöxtun á Bónusreikningi í mars sl. var = Meö Vaxtabónus hefði hún orðið = 51,71% 1.01% 51,71% Iðnaðariiankinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.