Morgunblaðið - 17.04.1985, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 1985
27
Harður skóli að eign-
ast þak yfir höfuðið
— eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
Helsta umræðuefni manna á
meðal þessa dagana er hversu illa
gengur hjá fólki að eignast þak
yfir höfuðið. Er helsta ástæðan
háir vextir og verðtryggð lán.
Fyrir um ári síðan hóf ég leit að
íbúð. Ég yfirfór fasteignaauglýs-
ingarnar hér á síðum Morgun-
blaðsins, setti mig síðan í sam-
band við fjölda fasteignasala og
skoðaði fjölda ibúða. Eftir þó
nokkra leit og gerð tilboða var til-
boði mínu tekið i eign eina sem ég
gat vel hugsað mér. Kominn var á
bindandi kaupsamningur og nú
hófst lífið fyrir alvöru. Lífið hafði
verið hreinn barnaleikur fram að
þessum tíma, ef miðað er við íbúð-
arkaupin og allt sem þeim hefur
fylgt. Þetta hefur verið miskunn-
arlaus skóli.
Hlutur seljanda
Oft hefur maður heyrt talað um
að seljendur íbúða hafi þurft að
standa í lögfræðiströggli vegna
þess að kaupandi íbúðarinnar
stendur ekki í skilum. f þessu til-
felli var málinu háttað á annan
veg. Ekki nóg með að þurfa að
taka við eigninni óþrifinni og
þurfa að byrja á að henda ýmsu
drasli sem fyrri eigandi hafði ekki
áhuga á að hirða, heldur þurftum
við að standa í leiðindamáli vegna
þess að seljandi aflétti ekki áhvíl-
andi skuldum, sem fylgdu ekki
kaupunum. Það var tekið fram í
kaupsamningi að umrædd skuld
væri óviðkomandi kaupanda og
tiltekin var sá dagur er afléttingin
átti að fara fram. (Þ.e.a.s. loka-
dagur.) Seljandi kenndi fasteigna-
sala um rangar upplýsingar og
rengi ég hann ekki um það, þar
sem fasteignasalarnir virka að-
eins sem sölumenn sem hirða sina
prósentu með sem auðveldustum
hætti. Fasteignasalarnir veita
litla sem enga ráðgjöf, hvorki selj-
anda né kaupanda, að minnsta
kosti ekki eftir að kaupin hafa átt
sér stað. Húsnæðisstofnun ríkis-
ins veitir ekki ráðgjöf áður en
kaup fara fram, aðeins eftir að
kaupin hafa verið gerð og allt að
fara til kaldra kola. Þvi er hvergi
hægt að fá ráðgjöf um íbúðarkaup
á réttum tíma þ.e.a.s. áður en
kaupin fara fram eða rétt eftir að
kaupsamningur hefur verið gerð-
ur.
Varhugavert aö yfirtaka
handhafabréf
Þegar yfirteknar eru skuldir,
sem hvilt hafa á eigninni, er mik-
ilvægt að fá sem bestar upplýs-
ingar um skuldirnar. Ég lenti i því
að yfirtaka handahafabréf, sem ég
vissi lítið um. Þetta eru tiu bréf,
Sigurbjörn Þorkelsson
„Öfugþróun að þeir sem
kaupa sér íbúd í eldra
húsnæði fái helmingi
lægra lán frá Húsnæð-
isstofnun ríkisins en
þeir sem byggja.“
öll eins og hefðu þvi getað legið á
eins mörgum stöðum og bréfin
eru. Þegar kom að fyrsta gjald-
daga, sem er einu sinni á ári, vissi
ég ekki hvernig ég átti að snúa
mér. Ég fékk enga tilkynningu frá
eigendum bréfanna og þeir gerðu
ekki tilraun til að gefa sig fram á
annan hátt. Ef ég hefði ekki dep-
onerað fyrir skuldinni í banka,
veit ég ekki hvernig hefði farið.
Bréfin eru á hæstu lögleyfðu vöxt-
um. Segjum að eigendur bréfanna
hefðu sent vanskilin til lögfræð-
ings einum til tveimur mánuðum
eftir gjalddaga þá hefðu verið
komnir svo miklir vextir á upp-
hæðina að það hefði orðið minn
bani. Upphæðin hefði að sjálfs-
ögðu verið komin langt umfram
greiðslugetu. Ég er ekki að full-
yrða að eigendur bréfanna hafi
haft þetta í hyggju, en ef svo er, þá
er þetta afar vafasöm og óheiðarl-
eg aðferð, þ.e.a.s. að gefa sig ekki
fram fyrr en upphæðin á bréfun-
um er komin i þá tölu með drátt-
arvöxtum að eigendur telji sig
hafa not af upphæðinni. Það er
engin afsökun að hafa ekki vitað
um eigandaskipti af eigninni.
Eðlilegt fólk sendir út tilkynn-
ingar í gegn um banka eða með
einhverjum öðrum hætti. Og veðið
fylgir íbúðinni en ekki seljandan-
um sem lét veðsetja íbúðina.
Helsti vandi íbúðar-
kaupenda er:
1. Hvergi hægt að fá ráðgjöf um
kaupin.
2. Of hár hluti af íbúðarverðinu,
svokölluð útborgun greidd selj-
anda á fyrsta árinu eða um 80%.
Oft er restin svo yfirtekin áhvíl-
andi skuld á íbúðinni, sem þarf að
byrja að greiða af strax á fyrsta
árinu. Seljandinn þarf yfirleitt að
eignast annað þak yfir höfuð sitt.
Hann notar því greiðslurnar sem
hann fær af sinni fyrri íbúð til að
geta eignast þá næstu. Þannig er
þetta keðjuverkandi og breytti því
litlu þó greiðslurnar komi á lengri
tíma. Það helsta sem gæti breyst,
væri að vanskil sem oft eru keðju-
verkandi yrðu minni.
3. Verðtryggð lán og okurvexti
verður að afnema og það strax ef
fleiri eiga ekki að bíða stórtjón af
þessu fráleita fyrirbæri. Taka
verður upp RAUN-VEXTI.
4. Lækka verður skatta á meðan
aðalgreiðslubyrðin er.
5. Öfugþróun að þeir sem kaupa
sér íbúð í eldra húsnæði fái helm-
ingi lægra lán frá Húsnæðisstofn-
un ríkisins en þeir sem byggja.
(Það er ekki hægt að byggja enda-
laust tveggja og þriggja herbergja
íbúðir, því verður að láta þá sem
kaupa íbúðir i eldra húsnæði sitja
við sama borð og þá sem byggja.
Ekki síst vegna þess að sá sem
byggir t.d. í byggingarsamvinnu-
félagi getur oft ráðið hve stíft
hann greiðir, eftir því í hvaða
áfanga hann er. En íbúðarkaup-
andinn verður að greiða 80% af
íbúðarverðinu á fyrsta árinu plús
afborganir á yfirteknum skuldum.
6. Stærsta atriðið að mínu áliti er
það að Húsnæðisstofnun ríkisins
segi satt og rétt frá hvenær Hús-
næðisstjórnarlán komi til af-
greiðslu. Áður en sótt var um lán
til Húsnæðisstofnunar Rikisins
fékk maður þær upplýsingar að
lán væru afgreidd 6 — 7 mánuðum
eftir að sótt væri um. En hinsveg-
ar eftir að sótt hafði verið um lán-
ið og spurt hvenær það kæmi til
afgreiðslu var svar Húsnæðis-
stofnunar 10—12 mánuðir. Þar
með var öll greiðsluáætlun komin
úr skorðum. Slík sviksemi ríkis-
valdsins gengur ekki. Þegar lánið
loksins kemur til afgreiðslu
hrekkur það varla fyrir vöxtum af
skammtímalánum, ef fólk er þá
svo heppið að fá einhver skamm-
timalán. Ríkisvaldið getur ekki
búist við heiðarlegum þegnum ef
þeir sem fara með fjármál ríkisns
standa ekki i skilum og búa til
vanskilamenn vísvitandi.
Sigvrbjörn ÞOrkelsaon i sæti í
stjórn Heimdallar, félags ungra
Sjálfstæóismanna í Reykjarík og
starfar rið innflutning á jirni hji
heildrerslun Guðmundar Arasonar.
Skarphéðinn brýnir þingmenn
SelfoHHÍ, 15. aprfl.
Á 63. héraðsþingi Hér-
aössambandsins Skarph-
éöins í febr. sl. samþykktu
fundarmenn brýningu til
handa þingmönnum kjör-
dæmisins um brúargerö
og framkvæmdir viö
Markarfljót.
Leiðrétting
í frásögn í Morgunblaðinu í gær
af vígslu Biskupsstofu í nýjum
húsakynnum í Suðurgötu 22 var
þess getið að dr. Guðmundur
Finnbogason hefði látið reisa hús-
ið, en rétt er að fram komi að þau
létu byggja það saman hann og
Anna Ásmundsdóttir, kaupkona.
Áskorunin á þingmennina er
svohljóðandi:
„63. héraðsþing Skarphéðins
haldið að Heimalandi 23. og 24.
febr. 1985 skorar hér með á alla
þingmenn Suðurlandskjör-
dæmis að þeir sameini krafta
sína og beiti sér af alefli fyrir
því að framkvæmd verði var-
anleg styrking á varnargörðum
Markarfljóts. Héraðsþing
minnir á þá staðreynd að
vatnsveita Vestmannaeyja á
Landeyjasandi er í bráðri
hættu vegna ágangs fljótsins
vestur á sandinum.
Það er ljóst að framkvæmdir
við Markarfljót á Landeyja-
sandi fram til sjávar er verk-
efni sem ekki verður hjá kom-
ist. Héraðsþingið leggur til að
hið fyrsta verði hafist handi
við byggingu nýrrar brúar á
Markarfljóti ásamt fyrirhug-
aðri vegagerð vegna brýnnar
nauðsynjar." siq. jóps.
Hugleiðslu- og
jóganámskeið
„Hugleiðsla-vitundarbreyting"
nefnist þriggja kvölda námskeið í
hugleiðslu og jóga sem Samtök
Prátista standa fyrir. Námskeiðið
er ætlað byrjendum og er mark-
miðið að þátttakendur nái valdi á
einfaldri hugleiðslutækni og
kynnist grunnhugtökum Jóga-
heimspekinnar.
Námskeiðið er haldið í Aðal-
stræti 16 og hefst annað kvöld.
kKpping
fyrirþig
PAL SECAM
Klipptu og settu saman efni á VHS-kassettun-
um þínum aö eigin vild. Hreinsaöu stubba af
mörgum kassettum yfir á eina, settu saman eig-
in dagskrá úr efni sem þú hefur tekiö upp. Fjöl-
faldaðu efni sem þú vilt gefa kunningjunum.
Leigjum út fullkomnustu klippi- og yfirfærslu-
tæki sem til eru á markaönum fyrir VHS-kass-
ettur. Viö klippum fyrir þig eöa þú getur klippt
sjálfur, meö eöa án leiöbeinanda — ef þú óskar
þess frekar, klippum viö eftir þinni uppskrift án
þess þú þurfir aö vera viöstaddur.
Upplýsingar í síma: 28810 eöa 45387.
Viðskiptafræðingar — Hagfræðingar
Aðalfundur
Félags viðskiptafræðinga og hagfræöinga verður hald-
inn að Hótel Holti fimmtudaginn 18. apríl kl. 16.00. Aö
aðalfundarstörfum loknum verður fjallaö um útflutn-
ingsmál. Viðskiptaráðherra Matthías Á. Mathiesen flytur
erindi sem hann nefnir „Aðgeröir stjórnvalda til aö auka
útflutning“. Þá mun Steinar Berg Björnsson forstjóri
Lýsis og stjórnarformaður Útflutningsmiöstöövar iönaö-
arins flytja erindi sem hann nefnir „Efling útflutnings".
Fundarstjóri er Gylfi Þ. Gíslason prófessor.
Félag viöskíptafræöinga
og hagfræöinga.
SnitlPlHHVf i iÐfiii lJUP i-JVJ wLM
Wáá | Kartöfluskrúfur 3 tegundir: venjulegar með papriku með salti og pipar
LEN £ Salernispappír 8 rúllur í pk h
LEN £ Eldhúsrúllur 4 rúllur í pk
Róm R Búðingar 4 tegundir: með vanillu með karamellu með rommi með súkkulaði
j> Hrísgrjón 1 Ibs og 2 Ibs
jSitlgct iF\ Niðursoðin jarðarber 850 gr
...vöruverð í lágmarki