Morgunblaðið - 17.04.1985, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 1985
fclk í
fréttum
John er
pirraður
út í
Joan
Collins
Joan Collins, tilvonandi frú
Holm, hefur aldrei farið í felur
með að henni þyki John James, einn
af meðleikurum sínum í Dynasty,
vera afar fallegur karlmaður. John,
sem leikur Jeff Colby, er ekkert sér-
staklega ánægður þegar hann fréttir
að Joan hafi verið að tjá Pétri og
Páli að sér þyki hann glæsilegur og
áhugaverður, langfallegasti leikar-
inn í Dynasty-hópnum.
„Ég er ákaflega lítt spenntur fyrir
því að vera álitinn kyntákn. Ef Joan
heldur þessu áfram, þá er ég hrædd-
ur um að ég verði það hvort sem mér
líkar betur eða verr. Ég hef beðið
hana að hætta þessu, en það segir
enginn þeirri konu fyrir verkum,
hún brosir bara sinu blíðasta og
kallar mig krútt," segir John.
John er annars 29 ára gamall
Minnesotabúi. Hann var áður plötu-
snúður hjá frjálsri útvarpsstöð.
Hann dreymdi alltaf um að reyna
fyrir sér í kvikmyndabransanum og
fór í eina þrjá leiklistarskóla áður en
hann hélt til Hollywood í leit að
gæfu og frama. Það var svo þegar
verið var að undirbúa Dynasty, að
John ræddi við framleiðendurna.
Það var verið að velja mann í hlut-
verk hins kynvillta Stephen Carr-
ington og John var ekkert sérstak-
lega hress að slá kannski í gegn í
hlutverki kynvillings. Én þannig
fóru leikar, að framleiðendunum
leist svo vel á John, að þeir skrifuðu
nýja persónu inn í handritið, Jeff
Coiby. Þá vitum við það...
Allt gengur
í haginn hjá
Jerry Hall
Jerry Hall, ljósmyndafyrirsæta
og sambýliskona Micks Jagg-
er, brosir sínu blíðasta, enda löng
og ströng meðganga á enda fyrir
nokkru og svo sér fyrir endann á
vinnslu handritsins að sjálfsævi-
sögu hennar sem hefur hlotið
nafnið „Tall Tales“, sem gæti út-
lagst „ótrúlegar sögur“. Bókin
fjallar um uppvöxt Jerry við sára
fátækt og svo auðvitað hvernig
rættist úr fyrir henni er hún varð
ein eftirsóttasta tískusýningar-
dama hins vestræna heims. Her-
ma fregnir að víða sé komið við og
safaríkar frásagnir af frægu fólki
séu á hverju strái og ekki sé vist
að umrætt frægt fólk verði hrifið
af öllu sem fram kemur. En Jerry
varðar lítið um þaö og vonast til
að bókin renni út eins og heitar
lummur. Flestar bækur af þessu
tagi gera það reyndar, þ.e.a.s. ef
viðkomandi höfundar eru nægi-
lega frægir, eða ef sögurnar um
náungann eru nógu krassandi.
Hvort tveggja ku vera fyrir hendi
í þessu tilviki og því þarf Jerry
vart að hafa áhyggjur af því að
„Ótrúlegar sögur“ seljist ekki.
Myndin sem hér fylgir var tekin
er Jerry ræddi við blaðamenn á
Algonquin-hótelinu um væntan-
lega útkomu bókarinnar. Var
þetta hugguleg dagstund og Jerry
bauð kampavín. Það stafaði af
henni slíkum bjarma, að eftir að
hafa masað um bókina um hríð
gátu blaðamenn ekki stillt sig um
að spyrja hana eitt og annað um
einkalífið sem hætti um leið að
vera það, þ.e.a.s. einkalíf, því
Jerry svaraði öllu saman. Jú, hún
væri dálítið heima hjá barninu,
nei, hún ætlaði ekki að binda sig
inni hjá því allan tímann, jú, hún
væri farin að vinna sem tískuráð-
gjafi hjá bandarískri sjón-
varpsstöð. Hvort meðgangan hefði
farið illa með frægan grannan lík-
ama hennar? „Ekki aldeilis, hún
bætti um betur, línur eru skýrari
svo eru brjóstin stærri, ekki veitti
af.“ Um sambúðina við Mick?
„Gengur prýðilega," og svarið kom
ekki á óvart, því Mick sendi frá sér
sólóplötu fyrir skömmu og bar
hún nafnið „She’s the boss“ og má
reikna með að nafnið hafi fallið
Jerry vel í geð ...
Victoria að máta?
Leikkonan Victoria Principal sýndi nýlega brúðarkjóla á tísku-
sýningu hjá hönnuðinum Elviru Gramano i Rómarborg. Þótti
Victoria taka sig hið besta út svo sem sjá má og hvitt fer henni
greinilega vel. Sagt var að lýtalæknirinn Harry Glassman sem þarna
var meðal áhorfenda hafi fengið fiðring í kroppinn, því hann og
Victoria munu senn ganga í heilagt hjónaband eftir mikið japl, jaml
og fuður ...
DVALARHEIMILI ALDRAÐRA í STYKKISHÓLMI
Fjórir bræður við sama borð
Það mun þykja nokkuð sérsUkt að fjórir bræður sitji við sama borð á dvalarheimili fyrir aldraða og sá elsti sé orðinn níreður.
I*essir bræður á meðfylgjandi mynd eru þó allir hættir störfum og dvelja á dvalarbeimili fyrir aldraða í Stykkishólmi.
l»eir ganga undir nafninu Kóngsbakkabræður þar vestra, en heita annars Ulið frá hægri: Jón, 74 ára, Lárus, 81 árs, Björn, 83 ára,
og loks Pétur, níræður. Þeir eru Jónssynir.
Myndina tók Árni frétUriUri okkar í Stykkishólmi.