Morgunblaðið - 17.04.1985, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. APRlL 1985
35
Askriftartónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar:
Karlos Trikoldis stjórnar —
einleikari Viktoria Mullova
NÆSTU áskriftartónleikar SÍ verða
í Háskólabíói á morgun, fimmtudag,
og hefjast að venju kl. 20.30.
Efnisskrá tónleikanna verður
sem hér segir:
Mendelssohn: Fingalshellir, for-
leikur.
Paganini: Fiðlukonsert nr. 1.
Beethoven: Sinfónía nr. 5.
Stjórnandi tónleikanna er
grísk-austurríski hljómsveitar-
stjórinn Karolos Trikolidis en
hann stjórnaði hér einum tónleik-
um fyrr í vetur. Hann stjórnar nú
í forföllum aðalhljómsveitarstjóra
hljómsveitarinnar, Jean-Pierre
Jacquillat. Karolos Trikolidis er
fæddur í Austurríki 1947. Hann
stundaði nám m.a. við Mozarteum
í Salzburg og við tónlistarháskól-
ann í Vín, lagði sig eftir fiðluleik
og tónsmíðum og lék auk þess á
ásláttarhlj óðfæri.
Meðal kennara hans í hljóm-
sveitarstjórn voru Hans Swar-
owsky og Bruno Maderna, en einn-
ig hefur hann starfað með Sir
Adrian Boult, Herbert von Karaj-
an og Leonard Bernstein. Hann er
nú fastur stjórnandi við ýmis
óperuhús í Þýskalandi og enn-
fremur við Ríkisóperuna í Aþenu
og við grísku útvarpshljómsveit-
ina.
Einleikari á tónleikunum er
rússneski fiðluleikarinn Viktoria
Mullova. Kennarar hennar voru V.
Bronin og í Konservatoríinu í
Moskvu, Leonid Kogan. Hún gat
sér fyrst alþjóðlegan orðstír árið
1975, þá 15 ára gömul, er hún vann
1. verðlaun í Wieniawski-sam-
keppninni í Varsjá. Árið 1981
vann hún Sibeliusar-keppnina í
Helsinki og árið eftir fékk hún 1.
verðlaun í Tchaikovsky-keppninni
í Moskvu. í júlí 1983, er hún var á
tónleikaferðalagi í Finnlandi,, bað
hún um pólitískt hæli í Svíþj«Sð, en
hefur síðan búið í New York.
Alls staðar hefur þessi ungi
fiðluleikari vakið mikla athygli og
er talin í fremstu röð fiðluleikara
af yngri kynslóðinni.
(Úr fréttatilkynningu)
Tónleikar í
Langholtskirkju
Kór Menntaskólans við Sund heldur tónleika í Langholtskirkju á morg-
un, fimmtudaginn 18. aprfl, kl. 20:30. Á efnisskrá eru ýmis innlend og
erlend lög. Stjórnandi kórsins er Þóra Fríða Sæmundsdóttir.
Hreyfing á
sáttaviðræð-
um vestra
SÁTTAFUNDI í kjaradeilu Sjómanna-
félags ísfirðinga og Útvegsmannafé-
lags Vestfjaröa var slitið um klukkan
22.00 í gærkvöldi. Annar fundur deilu-
aðila var boðaður klukkan 10.00 í dag.
f gær var einnig fundur fulltrúa
útvegsmanna og fuiltrúa Alþýðu-
sambands Vestfjarða, sem fer með
umboð sjómanna á öðrum stöðum á
Vestfjörðum og var annar fundur
með deiluaðilum boðaður í dag. Að
sögn deiluaðila mun einhver hreyf-
ing vera komin á viðræðurnar, en
menn vörðust þó allra frétta og
töldu sig ekki geta sagt neitt nánar
um gang mála á þessu stigi.
Verðlaun Jóns
Sigurðssonar:
Vóru ekki
veitt 1984
Ragnhildur Helgadóttir,
menntamálaráðherra, kvað
bókmenntaverðlaun Jóns Sig-
urðssonar ekki hafa komið til
úthlutunar 1984, enda hafi enn
ekki verið gengið frá úthlutun-
arreglum þar um, þ.e. um vinnu-
lag við val verðlaunaverks. Hún
kvað að því unnið í forsætisráðu-
neyti, hvern veg þessum málum
yrði fyrir komið, væntanlega í
tengslum við „Gjöf Jóns Sig-
urðssonar“, sem væri eldri sjóð-
ur sem veitti verðlaun fyrir vís-
inda- og heimildarit. Þegar regl-
ur um þetta efni væru formlega
frágengnar yrði fjármagn einnig
tiltækt til að veita verðlaunin.
Kristín Halldórsdóttir
(Kvl), sem beint hafði spurn-
ingum til ráðherrans um þetta
efni, var ekki sátt við þann
drátt, sem orðinn væri á af-
hendingu verðlaunanna, sem
forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, hafi kunn-
gjört um á Hrafnseyri 1983.
Leiðrétting
PRENTVILLA slæddist inn í
fréttatilkynningu frá Ferðafélagi
íslands, sem birt var í Morgun-
blaðinu þriðjudaginn 16. apríl sl.
þar sem orðið gleymska varð að
„gæsla“. Var þar rætt um að
ferðamenn virðast oft gleyma að
greiða gistigjöld I sæluhúsum fé-
lagsins þar sem ekki er gæsla. Slð-
an kemur setning sem er rétt
svona: „Þessi gleymska veldur því
að minna fjármagn verður til að
sinna viðhaldi og þar með bættri
gistiaðstöðu fyrir ferðamenn."
Eru hlutaðeigendur beðnir vel-
virðingar.
MEÐ
færðu SKODA fyrir kr.
110.800
Áríðandi orðsending!
•Eins og alltaf býður SKODA bestu kaupin, einnig fyrir þá sem hafa fengið tollaeftirgjöf.
Handhafar slíkra leyfa geta fengið harðsnúinn og sparneytinn SKODA á hreint frábæru verði:
SKODA 105 S
SKODA 120 L
SKODA 120 LS
SKODA 130 L
SKODA RAPID
kr. 110.800,-
kr. 121.600,-
kr. 135.400.-
kr. 146.800,-
kr. 161.200,-
Fyrsta flokks þjónusta
Allir vilja geta treyst bílnum sínum. Vilja að hann sé sterkur og vel smíðaður
og varahluta- og viðgeröarþjónustan sé í lagi ef eitthvað kemur fyrir. í könnun Verðlagsstofnunar
fyrir skömmu kom fram að SKODA gat boðið alla varahluti sem um var spurt
á mjög góðu verði. Þjónusta sem þú getur treyst.
LÉJ
LJ
JOFUR HF
NYBÝLAVEGI 2 KÓPAVOGI SIMI 42600