Morgunblaðið - 17.04.1985, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 17.04.1985, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 1985 jr Astralía og Kína stefna að efna- hagssamstarfi ^ ('anberra, Ástralíu, 16. apríl. AP. í DAG komust Kína og Ástr- alía að samkomulagi um að kanna möguleika á víðtæku efnahagssamstarfi ríkjanna, sem gæti orðið fordæmi að frekara viðskipta- og menning- arsamstarfi Kína við vestræn ríki. í sameiginlegri tilkynningu Hu Yaobang, aðalritara kínverska kommúnistaflokksins, og Bob Hawke forsætisráðherra, sem gefin var út eftir viðræðurnar, sagði, að góðar horfur væru á, að efnahagssamvinna gæti tekist með ríkjunum, „einkum á sviði járn- og stálframleiðslu". Á fundi í blaðamannafélagi Ástralíu sagði Hu, að sú stefna Kína að opna dyr landsins væri varanleg, og ef einhver breyting yrði þar á, yrði hún í þá átt að opna dyrnar enn meir. Hu Yaobáng kom til Canberra á sunnudag, en þar var fyrsti við- komustaður flokksritarans á 21 dags ferðalagi hans um Ástralíu, Nýja-Sjáland, Papua Nýju- Guineu, Fidji-eyjar og Vestur- Samoa-eyjar. Enn fremur sagði, að stefnt yrði að sameiginlegri fjárfest- ingu á þessu sviði í Kína og kín- versk fyrirtæki hvött til að kaupa hrámálma og hálfunna málma frá Ástralíu. ERLENT, Á leið frá Líbanon ísraelskir hermenn aka stríðsvögnum sínum burt frá einni af herstöðvum sínum í Líbanon. Flutningar þcssir voru þáttur í brottflutningi fsraela frá sjö baejum shíta í suðurhluta landsins. Aðstoðarframkvæmdastjóri UNESCO: Hættir vegna ágreinings við framkvæmdastjórann París, 16. aprfl. AP. GENGI m^mmmmmmmmmmm^^mmmmm^mmmmmmmmm^^mmm GJALDMIÐLA liondon 16. apríl. AP. SÚ STAÐREYND að fram- leiðsluaukning varð minni í Bandarfkjunum í marsmánuði en búist var við olli því, að dollarinn féll í verði í dag gagnvart helstu gjaldmiðlum öðrum en breska pundínu. Samkvæmt töium sem birtar voru í Washington í dag jókst iðnaðarframleiðslan í mars um 0,3%. Flestir gjaldeyrissalar höfðu búist við 0,5% aukningu eða meira. Tölur þessar ýttu undir þá skoðun, að sögn gjaldeyrissala, að efnahagsbatinn í Bandaríkj- unum væri á fallandi fæti, en hann hefur verið meginfor- senda hins háa dollaragengis undanfarin ár. Staða dollars gagnvart öðr- um gjaldmiðlum var í dag sem hér segir: Vestur-þýsk mörk 3,0125 (0,0230); svissn. frankar 2,5055 (2,5425); franskir frank- ar 9,1950 (9,2400); hollensk gyllini 3,4075 (3,4200); ítalskar lírur 1,928,25 (1,936,50); kanad. dollarar 1,3597 (1,3615). GERARD Bolla, varafram- kvæmdastjóri UNESCO og op- inber talsmaður stofnunarinn- ar, lét af störfum í dag vegna ágreinings við Amadou Maht- ar M’Bow, aðalframkvæmda- stjóra, um ráðningarsamning sinn og starfshætti stofnunar- innar. Bolla, sem er 63 ára að aldri, hefur starfað fyrir UNESCO, Menningar- og vísindastofnun Sameinuðu þjóðanna, í þrjá ára- tugi og haft forystu um mörg þau verkefni stofnunarinnar, sem mestan árangur hafa borið. Hann hafði óskað eftir að ráðningar- samningur sinn yrði framlengdur til ársloka, en M’Bow synjaði þeirri beiðni. ónafngreindur heimildarmaður hjá UNESCO sagði að Bolla hefði ekki treyst sér til að þiggja ráðn- ingarsamning til tveggja mánaða, sem M’Bow bauð honum. Hann sagði að margir hæst settu starfsmenn stofnunarinnar væru aðeins ráðnir til nokkurra mánaða í senn og vildi M’Bow með því tryggja að þeir væru honum und- irgefnir. í næsta mánuði kemur fram- kvæmdastjórn UNESCO saman til mikilvægs fundar í höfuðstöðvun- um í París þar sem fjárhags- og starfsáætlun fyrir árið 1986—1987 er á dagskrá. Heimildarmaður AP sagði að Bolla vildi ekki taka þátt í undirbúningi þess fundar, nema að hann hefði tryggingu fyrir því að hann gæti tekið þátt í fundin- um og aðalþingi stofnunarinnar, sem haldið verður í Búlgaríu í haust. Eftir öðrum heimildum hjá UN- ESCO hefur AP að verulegur ágreiningur hafi verið til staðar milli Bolla og M’Bow um starfs- og fjárhagsáætlunina 1986—1987 og varaframkvæmdastjórinn kosið að láta af störfum til að verða ekki bendlaður við hana. M’Bow skipaði Bolla aðstoðar- framkvæmdastjóra UNESCO árið 1982 og fól honum að finna leiðir til að bæta starf og skipulag stofn- unarinnar áður en Bandaríkja- stjórn tæki endanlega ákvörðun um að hætta þátttöku í starfsem- inni. Hugheilar þakkir flyt ég öllum þeim sem sýndu mér vinsemd og viröingu í tilefni af 50 ára klausturafmæli mínu 17. mars sl. Systir Hildegard. Nýr leiðtogi og gamall. Kahman Swareddahab hershöfðingi (t.v.) og Gaafar Nimeiri (Lh.). Nimeiri var leiðtogi í Súdan þar til um páskana að herinn, með Swareddahab í broddi fylkingar, steypti honum af stóli. Myndin var tekin nú nýlega, eða aðeins nokkrum vikum fyrir valdatökuna. Suður-Súdan: AUGLYSING íbúö fræöimanns i húsi Jóns Sigurössonar i Kaup- mannahöfn er laus til afnota timabiliö 1. september 1985 til 21. ágúst 1986. Listamenn eöa visindamenn, sem byggjast stunda rannsóknir eöa vinna að verkefnum i Kaupmannahöfn, geta sótt um afnotarétt af íbúöinni. í íbúöinni eru fimm herbergi og fylgir þeim allur nauö- synlegasti heimilisbúnaöur. Hún er látin í té endurgjalds- laust. Dvalartimi i íbúöinni skal eigi vera skemmri en 3 mánuðir en lengstur 12 mánuöir, en venjulega hefur henni veriö ráöstafaö til þriggja mánaöa i senn. Umsóknir um íbúöina skulu hafa borist stjórn Húss Jóns Sigurössonar, Islands Ambassade, Dantes Plads3,1556 Köbenhavn V, eigi siöar en 20. mai nk. Umsækjendur skulu gera grein fyrir tilgangi meö dvöl sinni i Kaupmannahöfn, svo og menntun og fyrri störfum. Þá skal tekið fram hvenær og hve lengi óskaö er eftir íbúðinni, svo og fjölskyldustærð umsækjenda. Tekiö skal fram aö hússtjórn ætlast til aö dvalargestir nýti út- hlutaðan tíma sinn að fullu viö störf í Kaupmannahöfn. Sérstök umsóknareyöublöð er hægt að fá á skrifstofu Alþingis i Alþingishúsinu i Reykjavík og i sendiráöinu í Kaupmannahöfn. Stjórn Húss Jóns Sigurössonar. Þrýstimælar Allar stæröir og gerðir SflíyiíflaíyigjiOB3 Vesturgötu 16, sími 13281) Leiðtogar vilja öðl- ast sjálfsforræði Khartoum, 16. uprfl. AP. LEIÐTOCAR þriggja héraða í suðurhhita Súdan hafa krafízt þess af nýju vald- hofunum að héruðin verði á ný sameinuð í eitt svæði með sjálfsforrteði, sem verði i ríkjasambandi við norðurhéruðin. Árangur þessa er sá, að í nýrri stjórn Súdan verða þrír ráðherrar, sem sinna munu sérstaklega málefn- um suðurhlutans. f þeim hópi verður að öllum líkindum John Garang, fyrrum ofursti i her Súdan, sem er forsprakki hreyfingar, sem hóf ófrið gegn Nimeiri á miðju ári 1983, eftir að Nimeiri skipti suðurhluta Súdan upp í þrjú stjórnsvæði. Átökin hörðnuðu til muna er Nimeiri ákvað í september sl. að Sharia, lög Islams, skyldu ná til landsmanna allra. Samuel Aru Bol, leiðtogi stjórn- málasambands Suður-Súdan, sem stofnað var aðeins 6 stundum eftir byltinguna 6. apríl, sagði að suður- héruðin gætu sætt sig við að búa við lagabókstaf múhameðstrúarmanna, Sharia, þótt flestir íbúanna væru ekki múhameðstrúar. „En það er siö- leysi að höggva af mönnum útlimi og húðstrýkja. Við getum sætt okkur við að lúta Sharia, meðan það tak- markast við bænina,“ sagði Bol. Bol, sem er 56 ára, segir leiðtoga í suðurhlutanum áfram um að stöðva bardaga þar, stofna stjórnmála- flokka og koma þar á röð og reglu. Leiðtogar í suðurhlutanum hafa lengi haldið fram að leiðtogar í Khartoum hafi skilið suðurhlutann útundan. Árið 1972 var gert sam- komulag, sem undirritað var í Addis Ababa í Eþíópíu, þar sem suðurhlut- anum var m.a. lofað sjálfsforræði. Með samkomulaginu var endi bund- inn á 17 ára borgarastríð í Súdan, en ófriður hófst á ný á miðju ári 1983, eins og fyrr segir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.