Morgunblaðið - 17.04.1985, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 17.04.1985, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 1985 59 VELVAKANDI SVARAR f SÍMA 10100 KL. 14—15 FRÁ MÁNUDEGI mFÖOTUDAGS a&'u if Bréfritari á við landsmót barnakóra sem haldið var í Langholtskirkju í síðasta mánuði. mn '!uMHBSSrtV Áhugaleysi sjónvarpsins Albert Jensen hringdi: Ef stolið væri hlut úr Lang- holtskirkju yrði það, ef að líkum lætur, mikið fréttaefni fyrir sjón- varp, en þegar margir barnakórar, 6—700 börn, koma saman, þá þyk- ir varla taka að minnast á það. Trúlega fyndist flestum gott að vita ef sjónvarpið gæti sýnt frá svo stórkostlegri samkomu þar sem svo mörg börn spreyta sig. Það væri uppörvandi fyrir alla sem ættu þátt í því, fyrir utan hvað það hefði örvandi áhrif til góðs á önnur börn. Þetta tæki ekki svo mikinn tima t.d. frá íþróttum og væri ekki síðri menningar- og ánægjuauki en þær. J1 AÐALFUNDUR Hf. Eimskipafélags íslands uerður haldinn í Súlnasal Hótel Sögu, fimmtudaginn 18. apríl 1985, kl. 14:00. ------------- DAGSKRÁ ---------------- 1. Aðalfundarstörf samkvæmt 14. gr. samþykkta félagsins. 2. Lagðar fram til fullnaðarafgreiðslu tillögur til breytinga á 4. gr. samþykkta félagsins. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Aðgöngumiðar að fundinum uerða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjauík frá 12. apríl. EIMSKIP STJÓRNIN Jesús gefur öllum frið sem á hann trúa Jóhann Guðmundsson skrifar: f grein um dulræna hæfileika í Velvakanda 28.3. sl. merkt Þórði, má lesa á milli línanna óróleika sálar sem skortir bjarg til þess að standa á, frið, gleði og vonir, sem Jesús frelsari mannanna gefur öll- um þeim sem á hann trúa. Hann gefur fyrirheit um eilíft líf með sér. Hann er vegurinn. Ég hafði lesið eftirfarandi deg- inum áður en bréf Þórðar birtist, sem ég bið Velvakanda að koma til Þórðar og annarra þeirra sem svipað er ástatt fyrir. I 32. sálmi Davíðs segir: „Ég vil fræða þig og vísa þér veginn, er þú átt að ganga, ég vil kenna þér og hafa augun á þér.“ Þeir sem trúa á Jesúm eiga fullvissu um örugga, óbrigðula leiðsögn Guðs. Flestir gefa engan gaum að þessari leiðsögn, sem Guð gefur i orði sínu, heldur lafa eigin vilja ráða gerðum sínum. Áttir týnast í ólgusjó lífsins. Leiðin okkar bregst, nema því aðeins að Jesús sé vegurinn. Gamall trillukarl týndist á sjónum aftur og aftur. Til þess að ráða bót á þessu tóku vinir hans sig saman og gáfu hon- um áttavita, kenndu honum að nota hann og töldu að ekki kæmi til frekari vandræða með gamla manninn. Hann fór að ráðum vina sinna og tók áttavitann með sér í næsta róður. En eins og oft áður kom hann ekki að landi þótt besta veður væri. Leit hófst þegar hann skilaði sér ekki. Loks fannst hann átta- villtur og fylgdi leitarbátnum til Breyttur súnatúni ATHYGLI lesenda er vakin í breyttum símatíma Velvakanda. Frá og með deginum í dag verð- ur símatíminn frá kl. 14 til 15, mánudaga til fostudaga. Iands. Óþolinmóðir og argir spurðu vinir hans: „Af hverju not- aðir þú ekki áttavitann sem við gáfum þér?“ Gamli maðurinn svaraði: „Ég bara þorði það ekki — treysti honum ekki. Ég vildi halda í norður en hvernig sem ég reyndi að snúa nálinni í áttavitan- um til norðurs, þá hélt hún áfram að stefna í suðvestur." Gamli maðurinn var öruggur um það hvar norður væri og hvernig sem hann reyndi að sannfæra nálina um vissu sína, tókst það ekki. Þá fleygði hann líka áttavitanum i sjóinn sem einskisverðu hjálpartæki. Drottinn mun vísa veginn, þeir sem fylgja hans leiðbeiningum komast hjá því að líf þeirra verði að eyðimerkurgöngu og hugar- angri, vonleysi verður að von og myrkur að Ijósi, Jesús að lifandi frelsara. „Gjör þú mér kunnan þann veg sem ég á að ganga.“ Sálm 143.8. Megi íslensk þjóð bera gæfu til þess að nota Guðs orð sem áttavita sinn. Guð er kærleikur, hann elskar okkur og þráir að leiða okkur inn í himin sinn. Þegar þú biður um leiðsögn Guðs möglaðu ekki þótt hún fari ekki saman við óskir þínar. Hann veit best. Á að vera bænahús - helgidómur Guðs Yasmín B.N. Björnsdóttir, Bakkakoti 12, Reykjavík, skrifar: Svar mitt við lesendabréfi Stefáns Ásgrímssonar i dálki þínum þann 29. mars 1985: „Hús mitt á að vera bænahús fyrir all- ar þjóðir" stendur skrifað. Það á ekki að vera trúðahús með alls konar skrípaleikjum, eins og málverkasýningum, rokktónleik- um og dansi, bingó, félagsvist, kaffisölu, o.s.frv. Það á að vera bænahús, helgidómur Guðs, þar sem guðhrætt fólk getur gengið inn dag sem nótt til að biðjast fyrir þegar það hefur þörf fyrir það. Éins og allir vita gerði Jesús sér eitt sinn svipu úr köðlum, hratt um öllum veizluborðum í reiði sinni, rak út alla sem voru að notfæra sér helgidóminn til að verzla, og „Út með allt þetta. Gjörið ekki hús Föður míns að verzlunarbúð (skemmtistað)!“ Guð er kannski ekki ein- strengingslegur, Stefán, en hann er ósveigjanlegur í svona málum og ég veit að hann lítur ekki á kaffisölu og kökubasar, félgsvist (spil) eða skemmtiatriði í helgi- dómi sínum sem tilbeiðsluform. Það er eins og djöfullinn sjálfur leiki lausum hala í guðshúsum kristinna manna víða um heim. Eins og stendur t.d. skrifað í Es- ekíel 22,26 og Zefanía 3,1—5, gerir Guð greinarmun á óhreinu og hreinu helgihaldi, á þvi sem heilagt er og óheilagt. Og hann ásakar presta fyrir að vanhelga hið heilaga með þess háttar „trúariðkun" og misbjóða lög- málinu svo að Guð vanhelgist meðal þeirra. Ekkert hefur breyzt síðastliðin 2000 ár. Svona er lífið. Jeremía 10,21 og 12,10. RM B. MAGNUSSON ■flvl HÓLSHRAUNI 2 - SÍMI 52866 - P.H. 410 - HAFNARFIRÐI «r
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.