Morgunblaðið - 17.04.1985, Side 22

Morgunblaðið - 17.04.1985, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 1985 V alddrei f ing er nauðsynleg — eftir Sigurð Helgason Héraðsþingin — fylkisþingin Það er að mínum dómi rétt og nauðsynlegt að líta til Norðmanna þegar til stendur að gera breyt- ingar á sveitarstjórnalögum, en nýtt lagafrumvarp hefur verið iagt fram á Alþingi. Skal hér í grófum dráttum gerð grein fyrir þróun sveitarstjórnamála í Nor- egi. Þeir hafa markvisst unnið að því að efla sjálfstæði héraðanna, þ.e. fylkisþinganna, á kostnað minnkandi umsvifa ríkisvaldsins í höfuðborginni. Hér er aðallega um að ræða ákveðna málaflokka, sem færðir eru til heimabyggðanna, en þessi þróun heldur áfram. Þýðingar- mestu breytingarnar í þessum efnum urðu með lagabreytingum árið 1975, en þá voru innleiddar hlutfallskosningar til fylkis- þinganna og þau fengu aukið stjórnarfarslegt sjálfstæði gagn- vart ríkisvaldinu og verður hér gerð grein fyrir þremur mikilvæg- ustu breytingunum. 1. Fram til 1975 voru fulltrúar á fylkisþingum oftast oddvitar sveitarfélaganna eða fulltrúar úr stjórnum sveitarfélaganna, en nú með umræddri lagabreytingu voru fulltrúar kosnir með hlutfalls- kosningum. Var þetta talin mjög heppileg breyting. Fulltrúar á fylkisþingum, kosnir eftir 1975, þurfa ekki að vera úr sveitar- stjórnum. 2. Stjórn fylkisþinganna var í höndum embættismanns ríkisins, fylkisstjóra, en eftir lagabreyting- una valdi fylkisþingið sjálft for- mann á lýðræðislegan hátt, þ.e. fylkisráðsmann. Með þessari breytingu var fylkisþingið sjálf- stæðara og sterkara. 3. Þá var með umræddri laga- breytingu samþykkt að fylkisþing- ið fengi sjálfstæða skattálagn- ingu. A þann hátt hætti það að vera kostað af sveitarfélögunum, sem var eðlilega lítt vinsælt, eins og við þekkjum vel hér á landi, þar sem landshlutasamtök okkar eru kostuð af sveitarfélögunum. öll sveitarfélög í viðkomandi fylkjum eru þátttakendur í fylkisþingun- um. Ný verkefni og aukið valdsvið Hér skal gerð grein fyrir helstu málaflokkum, sem fylkisþing hafa með höndum stjórn á, en áður voru að verulegu leyti í höndum ríkisvaldsins. Skólamál Með lagabreytingunum 1975 hafa fylkisþingin yfirtekið stjórn og fjármál skólanna á héraðs- svæðinu þ.e. grunnskóla, iðnskóla, menntaskóla- og fjölbrautaskóla. Áður sá ríkisvaldið um rekstur skólanna að mestu leyti, en nú var nær öll ábyrgðin færð til hérað- anna. Heilbrigðismál Á sama hátt hafa fylkisþingin tekið við stjórn og fjármálum sjúkrahúsa, heilsugæslustöðva og dvalarheimila aldraðra á sínum héraðssvæðum. Vegamál öll stjórn vegamála á viðkom- andi svæðum var með lagabreyt- ingunum árið 1964 færð til fylk- isþinganna og hefur það mælst mjög vel fyrir þar í landi. Fjöl- mörg önnur verkefni láta fylkis- þingin til sín taka og gera tillögur til úrbóta svo sem í menningar- málum, atvinnumálum, náttúru- verndarmálum og umferðarmál- um. Eðlilega hafa fjárhagsáætlan- ir fylkisþinganna gjörbreyst við þessi auknu verkefni, en allt er gert til þess að halda kostnaði niðri og ítarlegs sparnaðar gætt í hvívetna. Verkaskipting og innri stjórn Hér skal reynt í nokkrum orð- um að gera grein fyrir uppbygg- ingu fylkisþinganna. Æðsta stjórnin er í höndum fylkis- þinganna, sem halda tvo fundi á ári eða fleiri, ef nauðsynlegt er talið. Aðalstjórnandi er formaður, fylkisráðsmaður, sem er lýðræð- islega kjörinn af fylkisþinginu i upphafi kjörtímabils, sem er 4 ár. Hann getur mætt hjá öllum nefndum og á ráðstefnur á vegum þingsins, enda fastur starfsmaður. Með auknum verkefnum er nauð- synlegt að reka skrifstofu fyrir fylkið og eru þar gerðar m.a. allar skipulagstillögur og áætlanir fyrir hin ýmsu byggðarlög í fylkinu. Til fylkisþingsins er kosið hlutbundinni kosningu um leið og sveitarstjórnakosningar fara fram og jafnlangt kjörtímabil eru kosn- ir aðai og varamenn. Fylkisþingið kýs nefndir og ráð og skulu helstu þeirra rakin hér stuttlega. Hér- aðsráð, en sú nefnd leggur fram fjárhagsáætlanir svo og leggur hún fram öll mál, sem lögð verða fyrir fylkisþingið. Fjármálanefnd, en hún annast ráðgjöf á fjármála- sviðinu og annast allar áætlanir til lengri tíma. Stjórnunarnefnd, en henni er falin yfirstjórn starfsliðs og gerð langtíma samninga. Skóla- nefnd, en hún hefur yfirstjórn á öllum skólum í fylkinu og sér um að skólarnir séu reknir í samræmi við lög. Félags- og heilbrigðisnefnd, en hún hefur umsjón með sjúkra- húsum, heilsugæslustöðvum og fé- lagsmiðstöðvum á svæðinu, svo og annast allan undirbúning að bygg- ingu nýrra mannvirkja á þessum sviðum. Menningarnefnd, en hún Sigurður Helgason „Nú hefur verið lagt fyrir Alþingi frumvarp til sveitarstjórnalaga sem er að mestu sniðið eftir danskri fyrirmynd og er að mínu mati meingallað og stuðlar ekki að auknu sjálf- stæði héraðanna, eins og þó er leiðarljós endurskoðunarnefndar- innar.“ hefur yfirumsjón með tómstunda- starfi hverskonar á svæðinu og annast unglingamál, fþróttamál og útivistarmál. Samgöngunefnd, en hún fjallar um umferðarmál fylkisins. Tekið skal fram til að forðast misskilning að sjálfstæði sveitar- félaganna hefur ekkert skerst, heldur yfirtekur fylkisþingið sam- eiginlegt verkefni, sem voru á veg- um ríkisins, en eru með þessu færð til héraðanna. Fjölmörg önnur sameiginleg verkefni fyrir héruðin eru nú í höndum fylkisþinganna, svo sem stjórn rafveitna, gefið er út blað og rekin sameiginleg útvarpsstöð fyrir fylkin og svona mætti lengi telja, sem hér verður ekki nánar rakið. Stjórnarráðin færð til héraðanna Hér hefur verið skýrt frá því, að fylkisstjórar, sem voru embætt- ismenn ríkisins, höfðu sem aðal- verkefni fram til 1975 að stjórna fylkisþingunum. En þá var sam- þykkt, að fylkisþingin kysu sér formann úr sínum röðum, sem hefði með höndum daglega stjórn fylkisþinganna. Var það skoðun margra, að nú væri eðlilegast að leggja störf þeirra niður, þar sem aðalstarfssvið þeirra væri þar með fellt niður. Sú varð raunin alls ekki, því að nú var starfssvið fylk- isstjórans gjörbreytt og varð hann umboðsmaður stjórnarráðanna í viðkomandi fylkjum með réttar- stöðu svipaða og ráðuneytisstjórar hafa. Starfa þeir í nánu samstarfi við dómsmálaráðuneytið þar í landi, en flest öll ráðuneyti hafa framselt verkefni til þeirra og eru allir mjög ánægðir með þessa þróun. Nýlega samþykkti norska þingið einróma og með samþykki allra stjórnmálaflokka að kjósa nefnd, sem gerði tillögur um stór- aukin verkefni fylkisstjóra og til- nefndu öll ráðuneytin fulltrúa til þess að gera tillögur um aukna þjónustu á þessum sviðum. Vísa ég til blaðagreinar minnar í Morg- unblaðinu, þar sem þessu efni eru gerð nokkuð ítarleg skil. Hver er þróunin hér? Hér hefur verið gerð grein fyrir hvernig byggðarmál hafa þróast í Noregi, þar sem margt er þar mjög athyglisvert að mínu mati og stefnir að auknu sjálfstæði hérað- anna. Nú hefur verið lagt fyrir Al- þingi frumvarp til sveitarstjórna- laga sem er að mestu leyti sniðið eftir danskri fyrirmynd og er að mínu mati meingallað og stuðlar ekki að auknu sjálfstæði hérað- anna, eins og þó er leiðarljós endurskoðunarnefndarinnar. Einnig stuðlar frumvarpið ekki að aukinni sjálfstjórn sveitarfélag- anna. Mun ég fljótlega gera nán- ari grein fyrir þessum sjónarmið- um. Sigurður Helgason er sýslumaður Norður-Múlasýslu og bæjaríógeti i Seyðisfírði. Fiskvinnsla og virðisaukaskattur — eftir Knút Óskarsson Þessa dagana eru hinir ýmsu hóp- ar og samtök atvinnulífsins að gera upp hug sinn gagnvart nýju skattformi er nefnist virðisauka- skattur, en frumvarp þess efnis liggur nú fyrir Alþingi. Megin ein- kenni þess er hlutleysi gagnvart hinum ýmsu aðstæðum, en skatt- urinn legst aðeins einu sinni á sama verðmætið, hversu oft sem það gengur á milli viðskiptastiga. Á þetta nýja skattkerfi að taka við af núgildandi söluskattskerfi. Samkvæmt frumvarpi til laga um virðisaukaskatt er gert ráð fyrir, að lögleiða sérstakar reglur um virðisaukaskatt á fiskvinnslu vegna sérstöðu hennar. Við kaup fiskvinnslustöðvar á sjávarafla á að leggja 10% skatt ofan á verð- mæti hans, sem útgerðin inn- heimti hjá vinnslunni. Sérstaða fiskvinnslu felst m.a. í því að hún fær allan skattinn endurgreiddan ásamt öðrum inn- skatti í lok hvers uppgjörstímabils sé ekki um að ræða neina sölu á innanlandsmarkaði. M.ö.o. þá greiðir fiskvinnslan útgerðinni 10% virðisaukaskatt ofan á verð- mæti afla en af öllum öðrum að- föngum 21% skatt. Samkvæmt frumvarpinu eiga fiskvinnslufyr- irtækin að fá meirihluta innskatts sins endurgreiddan úr ríkissjóði að loknu hverju reglulegu upp- gjörstímabili, sem er 2 mánuðir, enda þótt greiöslutímabil geti ver- ið rúmir 3 mánuðir. Samtök fiskvinnslunnar hafa ekki enn mótað endanlega afstöðu sína til þessa virðisaukaskatts- frumvarps er nú liggur fyrir Al- þingi, en hér er komið að tveimur aðalatriðunum, sem skipta afar miklu máli fyrir fiskvinnsluna. Virðisaukaskatturinn felur í sér eins og frumvarpið ber með sér, að öll félagsform verða jafn rétthá. Skatturinn er hlutlaus gagnvart framleiðslu, dreifingu og neyslu. Hann á því ekki að mismuna framleiðsluaðferðum, viðskipta- háttum eða atvinnugreinum, né hafa áhrif á neysluvenjur. Mis- munun í skattlagningu eftir fé- lagsformum eða atvinnugreinum er ekki fyrir hendi. Það lang mik- ilvægasta fyrir fiskvinnsluna, er að gert er ráð fyrir endurgreiðslu á öllum innskatti og eru þá öll uppsöfnunaráhrif úr sögunni. f dag greiðir fiskvinnslan söluskatt af hinum ýmsu aðföngum sínum og nægir þar að nefna ýmsa rekstrarvöru, fjárfestingarvöru og síðast en ekki síst raforku. Endur- greiðsla á innskatti aðfanga til fjárfestingar eða rekstrar er geysilega þýðingarmikið fyrir fiskiðnaðinn, því það hefur bein áhrif á samkeppnisstöðu íslenskra sjávarafurða á erlendum mörkuð- um. Því hefur það verið eitt helsta réttlætis- og baráttumál fisk- vinnslunnar í landinu á undan- förnum árum að fá uppsafnaðan söluskatt endurgreiddann þar sem um útflutnings- og samkeppnis- framleiðslu er að ræða. Á síðasta ári náðist mikilvægur áfangi í þeirri baráttu, en um síð- ustu áramót stoð til að endur- greiða fiskvinnslunni 400—500 milljónir af uppsöfnuðum sölu- skatti er hún hafði greitt í ríkis- sjóð og átti því fullan rétt á. Þar sem ekki voru til skýrt afmarkað- Knútur Óskarsson ar reglur um fyrirkomulag endur- greiðslunnar þótti stjórnvöldum við hæfi að taka aftur gefin loforð og láta þessa fjármuni renna í Aflatryggingasjóð til þess að greiða niður fiskverð. Var þetta gert með þeim rökum að að öðrum kosti þyrfti fiskvinnslan að greiða hærra fiskverð. Er ekki með nokkrum rökum séð að það sé tryggt að sömu aðilar og greiddu söluskattinn í ríkissjóð njóti endurgreiðslunnar I lægra fisk- verði. Virðisaukaskattur virðist því munu koma í veg fyrir óeðli- lega ráðstöfun stjórnvalda á eign- um annarra. Það eitt út af fyrir sig hlýtur að vera jákvætt. „Við ríkjandi aðstæður getur fískvinnslan ekki borið þá fjárbindingu, sem felst í því að inn- skattur er ekki endur- greiddur fyrr en eftir lok hvers uppgjörstíma- bils, sem getur verið lengst 3 mánuðir.Það mál verður að leysa með skuldarviðurkenningu eða öðrum viðunandi hætti. Ef það verður ekki gert má áætla að lánsfjárþörf fiskvinnsl- unnar aukist um 150 — 200 milljónir króna á uppgjörstímabili.“ Fyrir skemmstu bárust fregnir af því að einn liður í nýafstöðnum samningum við sjómenn hafi verið ráðstöfun á 80 millj. kr. í Lífeyr- issjóð sjómanna úr einhverjum sjóði uppsafnaðs söluskatts í Afla- tryggingasjóði. Hlutirnir eru grei- nilega farnir að heita ýmsum nöfnum. Hér að framan hafa verið raktir lítillega þeir kostir er virðast vera

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.