Morgunblaðið - 17.04.1985, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 1985
25
ur en til verkfalla kemur eins og
síðastliðið haust og nú nýverið við
kennara. Verkföll eru alltaf til
skaða fyrir alla og að láta slíka
kollsteypu ganga yfir þjóðfélagið
getur ekki gengið og má ekki
endurtaka sig. Hér verður að
grípa í taumana áður en skaðinn
er skeður. Ég veit að sumir eru
þeirrar skoðunar að afnema beri
verkfallsrétt opinberra starfs-
manna. Ég held að slíkt væri ekki
af hinu góða. Hinsvegar verður að
beita í tíma öllum tiltækum ráð-
um til að koma í veg fyrir að þessi
vandmeðfarni réttur sé notaður.
Það er skoðun mín að ráðamenn
þjóðarinnar eigi að fara á vinnu-
staði hins opinbera og ræða við
fólk. Útskýra á sinn hátt þau
vandamál sem verið er að glíma
við og þá úrlausn sem í sjónmáli
er hverju sinni. Slíkt gæfi örugg-
lega betri árangur en margan
grunar. Það er ekki nóg að ræða
eingöngu við forystu launþega-
samtakanna. Það á að gefa fólki
meira tækifæri en gert er til að
ræða beint við þá menn sem það
hefur kosið til að stjórna og ráða
málefnum þjóðarinnar. Vissulega
yrði þetta mikið verk en myndi
sennilega skila góðum og jákvæð-
um árangri, öllum til heilla.
Það er stundum haft á orði að
fjöldi opinberra starfsmanna sé
óeðlilega mikill. Vissulega er
nokkuð til í þvi. En að baki þess-
um mikla fjölda opinberra starfs-
manna liggur sú staðreynd að
opinber rekstur hér á landi hefur
aukist jafnt og þétt og það þrátt
fyrir þá staðreynd að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur haft sín tækifæri
til að sporna við slíkri óheilla-
þróun.
Sjálfstæðisflokkurinn byggir
efnahagsstefnu sína fyrst og
fremst á einkarekstri og frjálsri
samkeppni. Einkarekstur hefur
venjulega í för með sér aukna
framleiðslu og vaxandi velmegun
en of miklum ríkisafskiptum
fylgja jafnan stöðnun og versn-
andi lífskjör. Sumir þættir sam-
neyslunnar eru í eðli sínu þannig
að illmögulegt er að koma þeim
leika, auknum sveigjanleika og
bættri hagkvæmni bankakerfis-
ins.
Orkuverð til útflutnings og
samkeppnisiðnaðar verði lækkað.
Framkvæmdastofnun verði lögð
niður. í stað hennar komi byggða-
stofnun með þrengra starfssvið,
meira sjálfstæði og beinni aðild
sveitarfélaga.
Athugað verið að stofna eign-
arhaldsfélag ríkisins með það
verkefni að selja hlut ríkisins í at-
vinnufyrirtækjum eins og nú fær-
ist hvarvetna í vöxt í nágranna-
löndum okkar og hafið hefur verið
hér á landi.
fyrir nema á vegum hins opinbera.
Slík þróun er þjóðinni ekki til
heilla. Það er blátt áfram skylda
Sjálfstæðisflokksins að spyrna
hér við fótum og stíga það skref að
færa ýmsa þætti hins opinbera
rekstrar til einkarekstrar. Slíkar
aðgerðir væru skref í átt til auk-
innar velmegunar og yrðu flokkn-
um lyftistöng í framfarasókn.
Þeir sem valið hafa yfirskrift
þessa landsfundar, kjörorðið „All-
ir sem einn“, hafa sjálfsagt talið
að kjörorð eins og stétt með stétt
væri eitthvað sem búi væri að
nota svo lengi að tími væri kom-
inn að breyta til. Það er í sjálfu
sér ágætt að breyta til og of-
notkun á kjororðum eins og þess-
um er sjaldan til góðs. Ég er þó
þeirrar skoðunar að sjaldan eða
aldrei hafi verið meiri ástæða til
en einmitt nú að minna á mikil-
vægi þess að Sjálfstæðisflokkur-
inn er flokkur allra stétta og inn-
an hans vébanda er farvegur fyrir
öll þau málefni er varða velferð
þjóðarinnar. Stétt gegn stétt er
hinsvegar það sem margir úr hópi
vinstri aflanna vilja að sé ríkjandi
í sem mestum mæli og svífast
einskis til að etja saman mönnum
og málefnum og ala á tortryggni i
þeim eina tilgangi að nýta sér
stöðuna sem með því kemur upp,
sjálfum sér og sínum málum til
framdráttar.
Launþegasamtök eru hápólitlsk
og það er nauðsynlegt fyrir
sjálfstæðismenn að eiga þar sína
fulltrúa til að stuðla að pólitísku
jafnvægi þar innan dyra sem ann-
ars staðar.
Hættan á pólitískri misnotkun
launþegasamtaka er sífellt fyrir
hendi, og því nauðsynlegt að vera
þar vel á verði. Kjarabarátta er
fyrir allan almenning frumskógur
sem erfitt getur reynst að rata um
og því er nauðsynlegt að leiðsögu-
menn séu hæfir í sínu starfi.
Margir forystumenn stærstu laun-
þegasamtaka hér eru menn sem
tileinkað hafa sér sóstalísk viðhorf
í stjórnmálum. Það hefur leitt af
sér að málflutningur þeirra hefur
löngum skaðað flokk eins og Sjálf-
Ríkisstjórnin beiti sér fyrir
stofnun þróunarfélags í hlutafé-
lagsformi ásamt bönkum, fyrir-
tækjum og einstaklingum til þess
að örva nýsköpun í atvinnulífinu.
Ríkið eigi minnihluta I fyrirtæk-
inu. Það leggi fram áhættufjár-
magn til nýs atvinnurekstrar.
Jafnframt sé efld starfsemi iðn-
þróunrfélaga í landshlutunum.
Samstarf atvinnufyrirtækja og
rannsóknaraðila verði örvað með
áhættuframlögum og skattaíviln-
unum.
Hraðað verði endurskoðun lög-
gjafar um félög I atvinnurekstri
stæðisflokkinn og fjöldinn allur af
fólki bókstaflega trúir því að
stefna Sjálfstæðisflokksins sé
andsnúin velferð launafólks.
Þessu verður að snúa við. Sjálf-
stæðismenn eiga fullt erindi inn í
raðir launþegasamtakanna og eiga
ekki að hika við að taka þar á mál-
um. Það er staðreynd að vinstri
menn eru almennt duglegri við að
sækja fundi innan launþegahreyf-
ingarinnar heldur en hægri sinnar
og þeim hefur því tekist að hafa
þar nánast öll tögl og hagldir. Það
lætur jafnan hátt í þessu fólki og
því í sjálfu sér ekki undarlegt þó
einmitt þetta fólk veljist til trún-
aðarstarfa og í æðstu embætti þar
innan dyra. Þetta fólk hefur feng-
ið aö leika lausum hala við þá iðju
sína að sá fræi tortryggninnar í
huga hins almenna launþega og
tekist óhugnanlega vel. Hver sá
sem vitað er um að er fylgjandi
stefnu Sjálfstæðisflokksins er lit-
inn hornauga og talinn óhæfur til
að tala máli hins vinnandi manns.
Slík staða er óþolandi, því sem
betur fer eigum við fjöldann allan
af tryggum sjáifstæðismönnum í
hópi launþega, hvort heldur það
eru opinberir starfsmenn eða aðr-
ir. Þetta fólk á forysta flokksins
að styðja i baráttunni gegn sósíal-
ískum niðurrifsöflum. Sjálfstæð-
isflokkurinn þarf að efla til muna
starfsemi verkalýðsfélaga innan
flokksins og hvetja fólk til starfa í
stéttarfélögum, þar sem við getum
komið málum okkar á framfæri.
Ef við trúum því sjálf að styrkur
Sjálfstæðisflokksins og velferð
þjóðarinnar fari saman má enginn
hópur gleymast eða verða útund-
an.
Sem sjálfstæðismenn getum við
ekki unað því að Sjálfstæðisflokk-
urinn gleymi eða hafni neinni
stétt þjóðfélagsins og sem sjálf-
stæðismönnum ber okkur skylda
til að vinna að því að engin stétt
afneiti Sjálfstæðisflokknum. Við
eigum samleið hvar í stétt sem við
stöndum.
Þrátt fyrir nær stöðuga baráttu
við náttúruöfl og harðbýli býr á
þessu landi elds og ísa þjóð, sem
og lög sett gegn einokun og
hringamyndun.
Sömu kröfur verði gerðar til
gæða og merkinga innfluttrar
framleiðslu og íslenskrar. Neyt-
endasamtök verði efld og stuðlað
að því að þau geti tekið að sér
þjónustu, sem opinberir aðilar ella
myndu annast. Sérstakt eftirlit
verði með þjónustu opinberra
fyrirtækja, þar sem samkeppni er
ekki fyrir hendi.
Verkefni verði flutt frá opinber-
um aðilum til einkareksturs,
þ.á m. á sviði fjarskipta. Útboð
verði meginregla varðandi fram-
kvæmdir opinberra aðila.
samkvæmt nýlegri skoðanakönn-
un virðist vera hamingjusamasta
þjóð í heimi. Þegar fyrstu land-
nemarnir kvöddu Noreg á níundu
öldinni þá var það ekki vegna þess
að þeir ættu ekki frjósamt og gjöf-
ult land, heldur vegna þess að þeir
vildu ekki beygja sig undir harð-
stjórn og misrétti. Þeir leituðu því
frelsis og framfara í nýju landi.
Þannig er íslenska þjóðin fædd af
frelsisþrá og einstaklings sjálf-
stæðið er okkur í blóð borið, sem
arfleifð frá foreldrum okkar. Þessi
sjálfstæðiskennd er sterkasta
þjóðareinkenni okkar og hluti af
tilveru íslensku þjóðarinnar.
Meðal annars þess vegna á
stefna Sjálfstæðisflokksins, ein-
staklingsframtakið, trúin á mann-
inn sjálfan erindi við þjóð í fram-
farasókn.
Góðir fundarmenn.
Sjálfstæðisflokkurinn er flokk-
ur víðsýni, réttsýni og framfara.
Undir styrkri stjórn Sjálfstæðis-
flokksins geta öll málefni er varða
hag þjóðarinnar fengið farsæla
lausn, ef vilji flokksmanna er fyrir
hendi. Styrkur flokksins byggist á
því að áfram geti fólk úr öllum
stéttum þjóðfélagsins fundið sér
vettvang innan vébanda hans.
Þennan styrk ber að efla og virkja.
Baráttuþrek þjóðarinnar við
tímabundinn vanda hefur aldrei
brugðist, hvort heldur sá vandi
hefur stafað af ágangi annarra
þjóða eða ógnun náttúruhamfara.
Þetta baráttuþrek mun heldur
ekki bregðast okkur við tímabund-
inn efnahagsvanda. Með samtaka-
mætti og með þann skilning að
leiðarljósi að velferð einstaklings-
ins tryggi velferð þjóðarinnar, er
sá möguleiki fyrir hendi, að þessi
litla þjóð norður á hjara veraldar
hafi til þess öll skilyrði að vera í
raun hamingjusamasta þjóð í
heimi.
Höfundur er sjúkraliði og formað-
ur sjúkraliðafélags íslands og flutti
þetta erindi á landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins.
Bókmenntir
Jóhanna Kristjónsdóttir
Æviminningabók V.
Útg. Menningar og minningarsjóður
kvenna 1984.
Umsjón texta: Einar Kristjánsson.
Tekið er fram í örstuttum eftir-
mála að i þessum bókaflokki hafi
engin bók komið síðan árið 1973.
„Þótt liðið hafi þetta langur tími
var nægilegt efni ekki fyrir hendi
fyrr en á þessu ári.“ Þetta kemur
allfurðulega fyrir sjónir, þegar
farið er að rýna í bókina. Þar
kennir í fyrsta lagi margra grasa
og í öðru lagi hefur ritnefnd ekki
ritstýrt og samræmt efnið í bók-
inni nógu vel, að minu viti. Þar
fyrir utan má svo velta vöngum
yfir því hvers konar tilgangi bóka-
flokkur af þessu tagi þjónar og
hvaða skyldur skulu uppfylltar.
Hvernig er valið í þessa bók og er
þá bæði átt við, hverjir skrifa, um
hverja og hvernig? Engin svör eru
gefin við þessum spurningum. Það
kann að vera að vinnubrögðum sé
lýst í fyrri bindum, en það hrekk-
ur skammt hér. Eftir ellefu ára
hlé á útgáfu er sjálfsögð kurteisi
af ritnefnd, að gera nýjum og
gömlum lesendum grein fyrir
hvernig í þessa bók er valið. Vegna
þess það liggur ekki alveg i augum
uppi. Og sumar greinarnar eru svo
undralega stuttar og snubbóttar
að það er óhjákvæmilegt að mann
gruni að einhver tilviljanakennd
vinnubrögð hafi ráðið ferð.
Bók með greinum um ævi
kvenna — eins og ég geri ráð fyrir
að þessi eigi að vera — er þörf og
nauðsynlegt. Erfitt er að sæta sig
við skýringu um að efni hafi vant-
að. Gæti útgáfustjórnin þá ekki
sýnt meiri röggsemi. Og ritstýrt
næsta bindi. Því að þessari bók
eru inn á milli úrvalsgreinar sem
fengur er að.
STÝRILIÐAR
SEGULROFAR
YFIRALAGSVARNIR
STJORNUÞRI-
HYRNINGSROFAR
TIMALIÐAR
ROFAHUS
gæði
Hagstættverð
S HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRRW4TANIR-WÓNUSTA
Bjóðum nánast allar
stærðir rafmótora frá
EOF í Danmörku.
EOF rafmótorar eru í
háum gæðaflokki og á
hagkvæmu verði.
Ræðið við okkur um
rafmótora.
= HEÐINN =
SELJAVEGI 2, SIMI 24260
VZterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!
Jónas Haralz, formaður atvinnumálanefndar landsfundarins, gerir grein fyrir tillögum nefndarinnar.