Morgunblaðið - 17.04.1985, Side 54

Morgunblaðið - 17.04.1985, Side 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. APRlL 1985 •v > Ása sýnir í Hafnarborg ÁSA Óiafsdóttir opnaði sýningu á mjndvefnaði I Hafnarborg, menning- ar- og listastofnun Hafnarfjarðar, laugardaginn 13. aprfl sl. A sýningunni er meðal annars þrístæða fyrir Menntaskólann á Isafirði, sem unnin var fyrir styrk úr Listskreytingasjóði íslands. Ása hefur haldið fimm einkasýn- ingar hér á landi og erlendis auk þess sem hún hefur tekið þátt i fjölda hóp- og samsýninga. Verk eftir Ásu eru í eigu opin- berra stofnanna hérlendis og í Sví- þjóð. Sýningunni lýkur 28. apríl, en hún er opin frá kl. 14—19 alla daga vikunnar. (Úr fréttatilkynningu) Ein af myndum Ásu Olafsdóttur, Rafmagnað rökkur. fyrir A undan timanum i 100 ár. steinsteypu. Léttir meðfærilegir viðhaldslitlir. Ávallt fyrirliggjandi. Armúla 16 sími 38640 Bladburóarfólk óskast! Austurbær: Óöinsgata Meöalholt Sóleyjargata Varahlutir i russann Eigum fyrirliggjandi boddy-hluti á« GAZ-69 á sérstöku tilboðsverði, takmarkaðar birgðir. SWJHbcrt Veralun VerkttmH SðtudMld 38600 39230 ^3W&T 39760 31236 Bifreióar & Landbúnaðarvélar hf AÐGÆSLA — VÖRN GEGN VÁ UMSJÓN: LANDSSAMBAND HJÁLPARSVEITA 8KÁTA Við eldsvoða Landssamband hjálpar- velvildar Morgunblaðsins að sveita skáta hefur notið þeirrar mega birta ýmsar leiðbein- ingar og varnaðarorð til al- mennings undir fyrirsögninni: \ðgæsla, vörn gegn vá. Það er von LHS að þessir stuttu fræðslupistlar verði til að vekja lesendur til umhugsunar um að með aðgæslu og fyrirbyggj- andi aðgerðum megi fækka all- tof algengum slysum og óhöpp- um. Þrátt fyrir að hjálparsveit- ir séu ætíð reiðubúnar til að- stoðar í neyðartilvikum, finnst forsvarsmönnum þeirra ekki síður mikils um vert að byrgja brunninn fyrirfram, með því að brýna fyrir landsmönnum þau sannindi að aðgæsla er vörn gegn vá! Flestir brunar byrja sem lítill logi, sem breiðist síðan út, stund- um hægt, en oftast hratt. Það skiptir því máli að vita hvað hægt er að gera þangað til slökkvíliðíð nær á staðinn. Það mikilvægasta er að vera rólegur og að hafa ein- hverja vitneskju um hvað eigi að gera. Það vekur um leið öryggis- tilfinningu. ✓ " / I ' FYRSTU 10 MÍNÚTURNAR ERU MIKILV ÆGASTAR Reikna má með því að það líði um 5—10 mínútur þangað til slökkviliðið kemst á staðinn. Þetta getur um leið verið mikilvægasti tíminn í baráttunni við eldinn: Nær hann að breiðast út eða tekst að hefta för hans? Haldið því rónni og vinnið markvisst. 1. Bjargið fólki og dýrum. 2. Hringið eftir slökkviliði. 3. Slökkvið eldinn ef hægt er. Athugið að það er mikilvægt að hringja strax eftir slökkviliðinu áður en þið reynið að slökkva eldinn sjálf. Það skiptir ekki máli hversu lítill eldurinn er. Það þarf auðvitað ekki nema einn til að hringja, aðrir geta því farið í slökkvistarfið séu þeir fyrir hendi. Dveljið þó ekki það lengi við það að þið eigið engrar undankomu auðið. Hvar brennur? Hvað brennur? Hversu margir eru í hættu? Þegar hringt er eftir slökkviliði verður að veita eftirfarandi upplýsingar: 1. Hvar brennur. 2. Hvað brennur. 3. Hversu margir eru í hættu. Svarið spurningum slökkviliðsins í símann og segið í stuttu máli frá því sem gerst hefur. Athug- ið alltaf að gefa upp hver hringir og hvaðan. Á þéttbýlissvæðum er nauðsynlegt að gefa líka upp bæjarhverfi eða sveitarfélag,. því verið getur að fleiri en ein gata heiti sama nafni í umdæmi slökkviliðsins. Athugið einnig að útkall hjá slökkviliðinu hefst um leið og svarað er á slökkvi- stöðinni, ekki þegar símtalinu lýkur. Gefið ykkur því nógan tíma til að svara spurningum. Furðufrétt frá Steindóri — eftir Kristin Snœland í Morgunblaðinu 16. aprfl sl. birt- ist furðuleg frétt undir heitinu „Snjókoman í _ gærmorgun": með undirtitlinum „Óvenjumikið að gera hjá okkur“ segir starfsstúlka Stein- dórs“. „Fréttin," sem er reyndar engin frétt heldur óstaðfest sjálfshól starfsstúlku Steindórs (og Sendi- bíla hf.) og níð eða rógur um þjón- ustu annarra leigubifreiðastöðva, er jafnframt sönnun þess sem haldið hefur verið fram, að smá- sendibílar Sendibíla hf. séu notað- ir til ólöglegra mannflutninga. „Fréttin" ber einnig með sér þá furðulegu vanþekkingu blaða- manns Morgunblaðsins að hann veit greinilega ekki að Sendibílar hf. á Steindórsplaninu og Bif- reiðastöð Steindórs eru tvö óskyld fyrirtæki, þó bæði stundi akstur. Blaðamaðurinn virðist heldur ekki vitað að á Bifreiðastöð Steindórs er nú í akstri aðeins ein bifreið, gamall Galant fjögurra farþega, og reyndar ekki nóg með það, heldur mun eigandi hans vera í leyfi erlendis og bíllinn á verk- stæði um þessar mundir. „Fréttin" er þannig bæði röng og fölsk auk þess sem í henni eru ámælisverðar aðdróttanir um þjónustu annarra bifreiðastöðva í borginni. Þessi frétt er Morgunblaðinu til skammar og spyrja má ef þekking blaðsins á rekstri handan götunn- ar er ekki haldbetri en fram kem- ur af „fréttinni" hvernig eru þá aðrar fréttir blaðsins. Ég játa að ég lít á þessa „frétt" Morgunblaðs- ins sem undantekningu frá annars góðum og vönduðum fréttum. Viðkomandi blaðamann vil ég loks spyrja: Ef þér fannst ástæða til þess að birta róg, níð og sjálfshól starfsstúlku Sendibíla hf. sem frétt, var þá ekki ástæða til þess að leita fregna af hinum bifreiðastöðvum borgarinnar um sama mál? Kristinn Snæland er leigubifreiða- stjóri í Reykjavík. LYKILLINN AÐ VANDAÐRI LITPRENTUN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.