Morgunblaðið - 14.05.1985, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1985
Sovézka flutningaskipið:
Trygging sett
fyrir greiöslu
SKEYTI barst um það hingað til
Eands frá Sovétríkjunum í ger-
kvöldi, að útgerð skipsins Konstant-
ín Olsmanskiv hefði sett rúmlega
700.000 króna tryggingu fyrir fjár-
kröfum vegna aðstoðar, ef íslenzkir
dómsstólar komast að niðurstöðu
þess eðlis. Skipið var væntanlegt til
Isafjarðar klukkan 4 í nótt, en ferð
skipsins þangað tafðist vegna vél-
arbilunar.
Eins og Morgunblaðið hefur
skýrt frá í fréttum, strandaði sov-
ézka skipið í Siglufirði síðastliðinn
föstudag. Togskipið Skjöldur að-
stoðaði Sovétmenn við að losa
skipið og krafðist útgerð hans um
700.000 króna launa fyrir aðstoð-
ina. Samkomulag varð um það á
laugardag, að sovézka skipið héldi
áleiðis til ísafjarðar og yrði þar
gengið frá þessum málum, þar
sem ekki tókst að ná sambandi við
Sovétríkin áður en skipið hélt frá
Siglufirði. Sovétmenn lönduðu 200
lestum af rækju á Siglufirði og
munu landa sama magni á ísa-
firði. Síðan heldur skipið vestur
um haf til Kanada.
Spurt og svarað
um garðyrkjumál
MORGUNBLAÐIÐ býður lesendum
sínum í ár eins og undanfarin ár upp
á lesendaþjónustu um garðyrkjumál.
Geta lesendur komið spurningum
sínum á framfæri í síma 10100 á
morgnana milli klukkan 11—12 og
munu svörin síðan birtast í blaðinu
nokkrum dögum sfðar. Fyrirspurnir
þurfa að vera undir nafni og heimil-
isfangi.
Morgunblaðið hefur fengið Haf-
liða Jónsson, garðyrkjustjóra
Reykjavíkurborgar til að svara
þeim fyrirspurnum, sem kunna að
koma frá lesendum.
Steingrímiir Hermannsson:
„Framsóknarmenn í
efri deild óbundnir
af samkomulaginu"
» ^ ’ j n *
J'5'l
V | B ly
Fagnaðarfundur. Hjónin Þurfður og Valdemar Sörensen með Tfthi.
Morgunblsðið/ Júlfua
Starrinn Títla fór á flakk
HJÓNIN Þuríður og Valdemar
Sörensen í Seldal við Hlíðarveg f
Kópavogi vöknuðu upp við vondan
draum á laugardaginn. Um nóttina
hafði verið brotist inn í dúfnakofa
þeirra. Flestar dúfurnar voru þó
enn á sínum stað, en hún Títla var
horfin. Títla er taminn starri sem
hefur verið í eigu þeirra Þuríðar og
Valdemars í mörg ár.
Þau hjónin tilkynntu lögregl-
unni strax um innbrotið og á
sunnudaginn var hringt til
þeirra og þeim tilkynnt að Títla
væri komin í leitirnar.
„Það voru nú heldur en ekki
fagnaðarfundir þegar hún kom
heim aftur,“ sagði Þuríður í
samtali við Morgunblaðið í gær.
„Títia fannst í Fossvoginum.
Hún var eitthvað að sniglast í
kringum hús þarna og vildi ekk-
ert fara frá. Fólkið sá að starr-
inn var óvenju spakur svo það lét
lögregluna vita“.
— Hvernig eignuðust þið
Títlu?
„Dóttir okkar kom með hana
til okkar fyrir níu eða tíu árum.
Unginn hafði sennilega dottið út
úr hreiðri og var mjög ræfilsleg-
ur. Dóttir okkar tók hann að sér
og fór að mata ungann og hlúa
að honum. Hann hresstist fljótt
en fljótlega kom i ljós að það var
ekki hægt að hafa hann inni á
heimili, því hann vildi t.d. fara
ofan í potta. Dóttir okkar bað
okkur þá um að taka hann. Það
voru starrar hér í nágrenninu og
við ætluðum að sleppa honum f
hópinn hjá þeim. Við reyndum
oft að henda honum út, en hann
kom alltaf aftur og aftur og hér
er hann enn.“
— Er það rétt að Títla geti
talað?
„Já, það er rétt, hún hermir
eftir manni og getur sagt nafnið
sitt,“ sagði Þuríður Sörensen.
Hermannaveikin:
„ÞAÐ ER alveg Ijóst, að þegar samkomulag sem gert er á milli stjórnar-
flokkanna, er rofíð, þá hlýtur það að hafa áhrif á afgreiðslu þessa máls. Ég
hygg því að framsóknarmenn í efri deild líti sig óbundna af því samkomu-
lagi sem var gert, eftir að sjálfstæðismenn hafa rofíð samkomulagið,“
sagði Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra í samtali við blm. Mbl.
í gær um afgreiðslu neðri deildar alþingis á breytingartillögu við útvarps-
lagafrumvarpið, sem varðar auglýsingar, og var samþykkt með 20 atkvæð-
um gegn 19.
Forsætisráðherra sagði að þetta
hefði verið viðkvæmasta greinin
að mati framsóknarmanna og
margir þeirra sem fallist hefðu á,
með hangandi hendi, að fylgja
frumvarpinu, litu nú þannig á að
þeir væru óbundnir af fyrra sam-
komulagi við sjálfstæðismenn.
„Ég hef trú á því að frumvarpið
fari nú greiðlega í gegnum efri
deild, og byggi þá skoðun mína á
því að Framsóknarflokkurinn hef-
ur náð því fram að fresta gildis-
töku frumvarpsins til áramóta,"
sagði Friðrik Sóphusson alþingis-
maður í samtali við blm. Mbl. í
gær.
Friðrik sagðist jafnframt telja
að ekki kæmi til greina að fram-
sóknarmenn hlypu frá frumvarp-
inu. Ljóst væri að þeir hefðu beitt
áhrifum sínum til þess að fresta
gildistökunni og taldi Friðrik að
þeir myndu láta sér það nægja, og
styðja framgang málsins að öðru
leyti.
Sjá nanar fréttir á þingsíðu.
Ekki ástæða til að
óttast faraldur hér
— segir Sigurður B. Þorsteinsson læknir
„EF ÞAÐ er eitthvað sem greinir hermannaveikina frá öðrum tegundum
lungnabólgu, þá eru oft meiri almenn einkenni en gengur og gerist," sagði
Sigurður B. Þorsteinsson læknir í samtali við Morgunblaðið, er hann var
spurður hver væru helstu einkenni veikinnar.
„Einnig er höfuðverkur áber- tegundir lungnabólgu, henni fylgir
hár hiti, hósti, uppgangur og
brjóstverkir.“
Sigurður B. Þorsteinsson sagði
að lyfið „Erythromycin" hafi lang-
andi, jafnvel óráð og meltingar-
óþægindi. Niðurgangur er algeng-
ari en meö aðrar tegundir. En
annars er þessi veiki eins og aðrar
Selfoss:
Bæjarstjóri hættir vegna sam-
starfsörðugleika við veitustjóra
Tel samstarfið hafa verið mjög gott, segir yeitustjórinn
BÆJARSTJÓRINN á Selfossi, Stefán Ómar Jónsson, sem sagði starfí
sínu lausu nýlega, segist vera á förum fyrst og fremst vegna þess hve stirt
samstarf hann hafí átt við samstarfs- og undirmann sinn, rafveitu- og
hitaveitustjórann Jón Örn Arnarson. Þau samskipti hafí ekki verið eins
og ráð sé fyrir gert og hafi sér stundum verið næst að halda að „ég værí
aðstoðarmaður hans eða vikapiltur hjá honum en ekki yfírmaður og
samstarfsmaður," eins og Stefán Ómar sagði í samtali við blaðamann
Mbl. í gærkvöld. Jón Örn kvað samstarf þeirra aftur á móti hafa verið
gott og sagðist vera undrandi á þessum ummælum bæjarstjórans.
„Það hafa verið bornar brigð- viku, þegar upplýst var á bæjar-
ur á uppbyggingu stjórnkerfis
kaupstaðarins og ekki alltaf ver-
ið Ijóst hver hefur gegnt hvaða
starfi,“ sagði Stefán Ómar
Jónsson í gærkvöld. „Ég hef til
dæmis ekki fengið að fylgjast
með rekstri veitustofnananna og
því kom mjög á óvart í síðustu
stjórnarfundi, að bókhald fyrir-
tækisins fyrir allt síðasta ár er
enn óuppfært. Það var býsna
skringileg uppákoma og með
slíkan rekstur get ég ekki verið
ánægður.”
Hann sagði að um nokkurt
skeið hefði bókhald bæjarfélags-
ins verið fært eftir stððluðu
tölvuformi, sem keypt hefði ver-
ið af Sambandi íslenskra sveit-
arfélaga. „Það hefur staðið til að
veitufyrirtækin kæmu inn í
þetta en það hefur verið hunds-
að,“ sagði Stefán ómar. „Árang-
urinn af því er ef til vill að koma
í ljós núna.“
Jón Örn Arnarson sagði í
gærkvöld að samstarf hans og
bæjarstjórans hefði verið „mjög
gott. Það hefur allt gengið vel
okkar í milli og því skil ég ekki
alveg hvað hann á við. Eg er
undrandi á þessum ummælum.
Varðandi bókhaldið er ekki
annað að segja en að það er verið
að koma þvf f tölvutækt form,
sem er talsverð vinna, og þess
vegna er það nokkuð seinna á
ferðinni en ella. Það er hinsveg-
ar með fullri vitneskju allra að-
ila. Bæjarstjórinn hefur verið á
öllum fundum veitustofnananna
og hefur því getað fylgst með öll-
um málum.“
— Bæjarstjórinn segir að sér
hafi stundum virst þú líta svo á,
að hann væri aðstoðarmaður
þinn eða vikapiltur. Hvað viltu
segja um það?
„Það eru hans orð en ekki mín.
Ég hef enga ástæðu til að rengja
stöðu hans eða getu,“ sagði Jón
örn Arnarson.
mest verið notað við þessari veiki
og að það væri jafnframt virkast.
Hann sagði að rétt væri að taka
það fram að ekki væri ástæða til
að óttast faraldur hér á landi nú.
„Þessi sjúkdómur er ekki nýr af
nálinni, þó hann hafi ekki upp-
götvast fyrr en 1976. Tíðni hans er
líklega hin sama og verið hefur
síðustu áratugina og alveg eins
liklegt að lungnabólgufaraldrar
fyrir 1976 hafi einmitt verið her-
mannaveiki."
Guðmundur Sigurðsson aðstoð-
arlandlæknir sagði f samtali við
Mbl. að það hefði verið æskilegra
að þeir sem hafa fengist við rann-
sóknir á lungnabólgutilfellum
hefðu tilkynnt landlækni og borg-
arlækni þennan grun fyrr. „Hins
vegar ber þeim ekki ótvíræð
skylda til þess, því þessi sjúkdóm-
ur er t.d. ekki tilkynningaskyldur í
nágrannalöndunum,“ sagði Guð-
mundur.
„Borgarlæknir og ég fórum á
fund með þessum mönnum á
mánudag og skýrðu þeir okkur frá
rannsókninni, sem beinist að
lungnabólgutilfellum á spftölum
og hvaða sýklar valda þeim. Það
verður að viðurkenna að eftir að
mótefni hafa verið mæld f blóði
sjúklinganna leikur sterkur grun-
ur á að um sé að ræða hermanna-
veiki f nokkuð mörgum tilfellum.
En slíkt er ekki hægt að sanna
nema með bakterfuræktun.
Hér er alls ekki um faraldur að
ræða. Sterkur grunur leikur á her-
mannaveiki í nokkuð mörgum ein-
stökum tilfellum, en á milli þeirra
er ekkert samband," sagði Guð-
mundur Sigurðsson aðstoðarland-
læknir.