Morgunblaðið - 14.05.1985, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MAl 1985
3
Fiskþjófnaður úr
skipum í Bremer-
haven rannsakaður.
„Mætti mik-
iö ganga á
ef ég færi
að kaupa
mér fisk“
„ÞAÐ mætti nú mikið ganga
á, ef ég, sem vinn í fiskihöfn-
inni, færi að kaupa mér fisk í
búð.“ f lok síðasta mánaðar
fór fram yfirheyrsla í borg-
ardómi Bremerhaven yfir 69
ára gömlum vaktmanni,
Wilhelm Wendelken (ís-
lands-Villa), en hann er
grunaður um aðild að fisk-
þjófnaði í fiskihöfninni, með-
al annars úr íslenzkum fiski-
skipum. Framangreind til-
vitnun var svar hans við
þeirri spurningu hvort hann
hefði aldrei tekið sér fisk við
vinnu sína.
Mál þetta kom fyrst upp í
nóvember 1983 eftir ítrekað-
ar kvartanir Landsambands
islenzkra útvegsmanna um
slaka vigt upp úr íslenzkum
skipum í fiskihöfninni í
Bremerhaven. Auk vakt-
mannsins hefur einn fisk-
kaupmaður verið ákærður
vegna gruns um fiskþjófnað
og lyftaraekill hefur þegar
verið dæmdur í fésektir
vegna málsins.
lslands-Villi er ásakaður
fyrir það, að hafa árið 1983
og á árunum þar á undan átt
þátt í því að koma 2 til 7 lest-
um af fiski úr hverju skipi
framhjá uppboði. Hann hefur
unnið síðastliðin 28 ár hjá
einkafyrirtæki í fiskihöfn-
inni og er talinn vera í vitorði
með fleiri mönnum. Hann
sagði við yfirheyrsluna, að
„framhjáhlaupið" hefði geng-
ið þannig fyrir sig, að
lyftaramaðurinn hefði flutt
fiskinn frá skipshlið í fisk-
vinnslufyrirtæki, svo ekki
þyrfti að geyma hann í upp-
boðshöllinni. Kunningi í því
fyrirtæki hefði svo flakað
fiskinn og fengið borgun
fyrir ómakið, hann sjálfur
hefði síðan sótt fiskflökin
þangað og dreift þeim. Höf-
uðpaurinn hefði alltaf látið
flaka í heila kröfu fyrir sig.
Íslands-Villi sagði, að ekki
væri hægt að bera upp á sig
þjófnað, þetta hefði alltaf
verið svona og hann bara
unnið samkvæmt fyrirmæl-
um. Ef þetta væri saknæmt
yrði að reka alla, sem ynnu í
fiskihöfninni. Það hyrfi allt-
af fiskur úr hverri löndun,
annars færu skipin ekki út.
Frekari dómsrannsókn
hefur verið frestað til loka
júnímánaðar.
HvaÖ er að
gerast um
helgina
ÞÁTTURINN „Hvað er að gerast
um helgina" birtist næst i blaðinu
á fimmtudaginn. Þeir sem þurfa
að koma efni í þáttinn eru beðnir
að skila því fyrir klukkan 18 i
kvöld, þriðjudag, til ritstjórnar
Morgunblaðsins.
Beosystem 3000
er einstakt hljómtæki;
það fellur haglega að
vegg og gleður bæði
augu og eyru
Beosystem 3000 er nýjasta skraut-
fjöður Bang & Olufsen. Þessu nýja hljóm-
tæki er ætlaður veglegur staður í fallegum
stofum. Það Kkist óneitanlega sérstöku
listaverki, en frábær hljómgæði koma upp
um það.
Beosystem 3000 hengir þú á vegg.
Pannig nýtur glæsileiki tækisins sln vel.
öruggar festingarnar sjást ekki, - aðeins
meistaralegur einfaldleiki Bang & Olufsen.
Beosystem 3000 samanstendur af öfl-
ugum magnara og útvarpi, sjálfvirku seg-
ulbandi og elektróniskum plötuspilara.
öllum stjórntökkum er haglega komið
fyrir. Möguleikar Beosystem 3000 eru
margir, og það er einfalt að nýta sér þá.
Kynntu þér Beosystem 3000 betur.
Starfsfólk Radíóbúðarinnar veitir þér allar
nánari upplýsingar.
Bang & Olufsen