Morgunblaðið - 14.05.1985, Side 25

Morgunblaðið - 14.05.1985, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ1985 25 stöðugt og jörðin nálgaðist. Ég reyndi að finna öruggan stað til að lenda frír frá rafmagnsvírum. Það hvein í vindinum sem fór um drek- ann. Er ég leit út á vænginn sá ég seglið þanið og strekkt. Fullkomin ró og festa var í Lazor-drekanum mínum. í mínum kæru vængjum sem svo oft höfðu borið mig um loftin blá og lyft andanum upp úr innantómum hversdagsleikanum. Nú ætlaði ég að selja þennan dreka til að greiða skuldir. Er nokkur skuld þess virði? Ég lenti skammt frá ánni, rétt við kjarr. Tók hjálminn ofan og heyrði lækjarnið. Kvöldsóiin skein í andlit mitt. Ég spennti af mér drekann og öskraði til að dásama veröldina. Grasstráin svignuðu í golunni og vindurinn fitlaði við eyru mín. Ég skammaðist út af sárum bakverk, fór upphátt með ljóð fyrir sjálfan mig, át krækiber og söng bítlalög. Þarna hafði ég verið uppi í rign- ingunni hærra en mávarnir. Ég varð berjablár og rjóður. Fyrir höndum var langur burður sem gæfi sætar harðsperrur. En ég var ekki sáttur við að verða fullorðinn. Til hvers? Ég snéri mér á móti vindinum og hvíslaði: „Þú göfugi vindur sem flýgur alla daga og nætur um öll lönd og höf. Veistu, ég ætla aldrei að verða fullorðinn. Ég ætla að vera eins og þú. í litlu leynihólfi í líkamanum ætla ég að geyma ungdóminn." Svo kinkaði ég til hans kolli. Og hann hreyfði blíðlega hártoppinn á enni mínu. Reykjavík beið mín óþolinmóð. Ég var engill sem búið var að slíta vængina af. En ég var engill samt sem áður. MAZDA 525 DeLuxe er rúmgóður, fjölhæfur fjölskyldubíll með nægu rými fyrir fjölskylduna og farangurinn. \Jerð: 5 dyra HB Kr. 345.000. Til öryrkja ca. Kr.237.000. 5 dyra MB Kr. 355.000. Til öryrkja ca. Kr. 249.000. BILABORG HF. . Smiöshöfða 23 sími 812 99 É|>- á 6 mánaóa ftesti SPARISKÍRI FIM RÍMSSJÓÐS ERU EKKI ÖLL EINS Ein gerðin, verðtryggð spariskírteini með vaxtamiðum, er langþráð lausn fyrir þá sem vilja varðveita sparifé sitt örugglega og með hárri ávöxtun, sem greidd er út á hálfs árs fresti og er þannig traustar og öruggar tekjur. Samt stendur höfuðstóllinn fullkomlega verðtryggður og óskertur eftir. Sá sem keypti spariskírteini m/vaxtamiðum fyrir 2 milljónir 10. jan. sl., fær í nafnvexti 10. júlí nk.__________ kr. 66.000.- + áætlaðar verðbætur á vexti_________kr. 10.200.- Tekjur til ráðstöfunar eftir 6 mánuði kr. 76.200.- Eftir stendur höfuðstóll sem 10. júlí er þá orðinn kr. 2.310.000.- Sölustaðir eru: Scðlabanki íslands, viðskiptabankarnir, sparisjóðir, nokkrir verðbréfasalar og pósthús um land allt RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.