Morgunblaðið - 14.05.1985, Qupperneq 36
36
MORGUNBLADIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1985
JMfagtittliffifrife
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoóarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, simi 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift-
argjald 330 kr. á mánuói innanlands. f lausasölu 25 kr. eintakiö.
Höfuðmálið er
heilbrigði fólks
Margt var um manninn á tívolf-svæðinu.
Nýtt tívolí:
Eden-Borg, höll sumar-
landsins, opnuð í Hveragerði
Hver íslendingur, sem
fæðist á ári æskunnar,
fær í vöggugjöf lengri ævilíkur
en nokkur annar „árgangur" í
þjóðarsögunni. íslendingar
verða raunar allra kerlinga og
karla elztir. Aðeins ein þjóð,
Japanir, geta státað af lengri
meðalævi en við.
Fyrir nálægt hundrað og
tuttugu árum vóru meðalævi-
líkur nýfædds meybarns hér á
landi 38 ár og nýfædds svein-
barns 32 ár. Samsvarandi töl-
ur í dag eru 80 ár og 74 ár.
Þetta þýðir að meðalævilíkur
íslendings hafa rúmlega tvö-
faldast — að árum — á rúm-
lega einni öld. Þessu veldur
margt: almenn menntun og
þekking, gott húsnæði, hollara
viðurværi og betri klæðnaður,
stórbætt vinnuaðstaða, lík-
amsrækt — og síðast en ekki
sízt heilbrigðisþjónusta, sem
þolir um margt samanburð við
það bezta sem þekkizt í heim-
inum.
Þessi þróun er fagnaðarefni.
Fátt skiptir persónulega ham-
ingju og velferð einstakl-
inganna meiru en heilbrigði
þeirra, bæði til sálar og lík-
ama. En böggull fylgir
skammrifi. Velmegunin, sem
einstaklingar og þjóðir keppa
að, hefur ýmsa fylgikvilla.
Ekki einungis í margs konar
öldrunarsjúkdómum, sem
fylgja háum aldri. Nefna má
hjarta- og æðasjúkdóma fólks
á miðjum og jafnvel ungum
aldri, sem taldir eru fyigja
lifnaðarháttum eða lífsmáta
líðandi stundar, og krabba-
mein, sem nútíma læknavís-
indi standa í ströngu við að
gera tæmandi skil.
Auk framangreinds, skjóta
illvígir veiru- og bakteríusjúk-
dómar upp kolli, sem erfitt er
við að fást. Morgunblaðið
skýrir frá því sl. laugardag í
viðtali við lækni á Landspít-
ala, að „hermannaveiki" hafi
greinzt í tæplega 30 sjúkling-
um á Borgarspítala og Land-
spítala á tímabilinu október
1983 til jafnlengdar 1984. Tal-
ið er fimm menn hafi látizt af
völdum veikinnar á þessu
tímabili. Veikin greindizt í
sérstakri rannsókn á
lungnaveikisjúklingum, en
„hermannaveiki" er lungna-
bólguafbrigði. í rannsókninni
kom i ljós dæmu um sýkingu
innan sjúkrahúss. Það hefur
komið læknum á óvart að
„hermannaveiki" virðist önnur
eða þriðja algengasta tegund
lugnabólgu á Islandi.
Baktería sú, sem hér um
ræðir, mun talsvert útbreidd í
umhverfinu. Fólki, sem hefur
„veiklaðar varnir", er hættara
við sýkingu, svo sem fólk með
langvinna lugnasjúkdóma,
stórreykingafólk eða fólk sem
liggur inni á sjúkrahúsum með
lítinn viðnámskraft af völdum
annarra veikinda.
„Hermannaveiki" hefur á
stundum orðið að faraldri er-
lendis og þá vegna „einhverra
óvenjulegra aðstæðna á við-
komandi stöðum, hvort sem
það væri hótel í Philadelphíu
eða sjúkrahús í Englandi",
eins og segir í tilvitnuðu við-
tali, en sú hefur ekki orðið
raunin á hér.
Sigurður B. Þorsteinsson,
læknir á Landspítala, sagði í
viðtali við Morgunblaðið:
„í sumar verður hafin um-
fangsmikil leit að bakteríunni
í umhverfinu, en þess má geta
að bakterían lifir fyrst og
fremst í vatni og kannski sér-
staklega heitu vatni. Því gæti
verið að í hitaveitulandi eins
og íslandi væri meira af þess-
ari bakteríu en gengur og ger-
izt í öðrum löndum" Þá hefur
og komið fram að bakterían
kunni að halda sig í loftræsti-
kerfum húsa.
Það er ekki ástæða til að
gera því skóna að hér kunni
faraldur að vera í aðsigi.
Hinsvegar er það staðreynd að
30 tilfelli af „hermannaveiki"
hafa verið greind hér í tveim-
ur helztu sjúkrahúsum borg-
arinnar og 5 dauðsföll færð á
reikning hennar. Það er því
full ástæða til að vera á varð-
bergi og snúast til varnar með
viðeigandi hætti. Sú „um-
fangsmikla leit", sem Sigurður
B. Þorsteinsson læknir talar
um, er því tímbær. Þess verður
að vænta að fjármagn og að-
staða verði tryggð til verksins.
íslenzk heilbrigðisþjónusta
er dýr og kostnaður hennar fer
vaxandi. Sjálfsagt er að leita
ráða til að nýta fjármagn
skattborgara, sem yfirleitt
finnst meir en nóg af sér tekið,
með sem beztum hætti þar
sem annars staðar í ríkisbú-
skapnum. Sá sveigjanleiki
verður þó að vera í fjárstreymi
til heilbrigðisgeirans, að hann
geti á hverjum tíma brugðizt
við óvæntum aðstæðum. Hann
verður að geta náð vopnum
sínum hvenær sem heilsu-
farslegt öryggi þjóðarinnar
krefst.
Edes-Borg, ll.m*í.
„ÞAÐ ÞYKIR sjálfsagt ótrúlegt að
þessi staöur skuli risinn hér í Hvera-
gerði en við erum viss um að starf-
semin muni ganga vel,“ sagði Karl
Guðmundsson sveitarstjóri þegar
hann opnaði Eden-Borg, nýja tívolíið
eða höll sumarlandsins í Hvera-
gerði. Um leið og Karl klippti á
borða í hliðinu streymdi fólk inn á
svæðið undir leik lúðrasveitar og
skömmu seinna tóku leiktækin fjör-
kipp.
Innan við hliðið var gestum boð-
ið upp á veitingar úr útskornu vík-
ingaskipi og fljótlega rikti á svæð-
inu andrúmsloft eftirvæntingar og
gleði sem á við á slíkum stað.
Bragi Einarsson í Eden bauð
gesti velkomna til Eden-Borgar og
sagði að framkvæmdir hefðu
gengið ótrúlega vel við uppsetn-
ingu staðarins. Lóð undir starf-
semina fékkst 6. mars sl. og 11.
mars hófust framkvæmdir með
fyrstu skóflustungunni og að 60
dögum liðnum er staðurinn opnað-
ur.
Krakkarnir skemmtu sér veL
Það eru eigendur Kauplands í
Reykjavík, Sigurður Kárason og
Pálmar Magnússon, og Bragi Ein-
arsson í Eden sem eru samstarfs-
aðilar um staðinn. Þeir Sigurður
og Pálmar reka einnig Hótel Borg
og þaðan er síðari hluti nafns
Eden-Borgar kominn.
Eden-Borg verður opin um helg-
ar frá kl. 12.00 á daginn til kl.
Almenn þátttaka í hátíðarhöldum
á 30 ára afmæli Kópavogskaupstaðar
MorgunbUSið/RAX
Frá setningu afmælishátíðarinnar i Digranesi. Hér stjórnar Björn Guðjóns-
Kópavogskaupstaður varð 30 ára
sl. laugardag. I tilefni afmælisins
var efnt til fjölbreyttra hátíðarhalda
um helgina.
Dagskráin hófst kl. 10 á laug-
ardagsmorguninn með því að
stytta eftir Gerði Helgadóttur var
afhjúpuð við hjúkrunarheimilið
Sunnuhlíð. Síðan var hátíðin sett í
íþróttahúsinu Digranesi kl. 14.00
sama dag. Þar flutti ungt fólk í
Kópavogi tónlist og sýndi fim-
leika.
í Digranesi voru einnig sýn-
ingar á vegum lista- og menning-
arsjóðs Kópavogs, vörusýningar
fyrirtækja í Kópavogi, myndasýn-
ingar o.fl.
Á Kópavogsvelli fór fram
íþróttahátíð, við Vesturvör var
kynnt starfsemi siglingaklúbbsins
Kópaness, fyrirtæki og stofnanir
voru kynnt svo eitthvað sé nefnt.
Á sunnudaginn var hátíðar-
guðsþjónusta í Kópavogskirkju.
Þá var Kvenfélagasamband Kópa-
vogs með kaffisölu í Félagsheimil-
inu. Þar komu Friðbjöm G. Jóns-
son og Sigfús Halldórsson og
skemmtu auk nemenda úr Tónlist-
son Skolahljómsveit Kopavogs.
arskóla Kópavogs. Um kvöldið var
Ijóðakvöld í Felagsheimilinu, þar
sem kynnt voru ljóð eftir Jón úr
Vör og Þorstein Valdimarsson.
Kristján Guðmundsson bæjar-
stjóri Kópavogs sagði í samtali við
Morgunblaðið að hátíðarhöldin
hafi farið mjög vel fram og þátt-
taka hafi verið almenn í öllu því
sem boðið var upp á. „Líklega hafa
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 14. MAÍ 1985
37 -
Þessi hringekja rís upp á endann, en miðflóttaaflið heldur þáttUkendum á
sínum stað.
23.30 og virka daga kl.
14.00—23.30. Auk þess að bjóða
upp á leiktæki munu skemmti-
kraftar koma fram um helgar og á
kvöldin, í miðri viku. Enginn að-
gangseyrir er inn á svæðið en
gestir kaupa sér þar til gerða miða
sem þeir síðan afhenda við þau
tæki sem þeir kjósa sér.
Um ástæðuna fyrir því hvers
vegna Hveragerði hefði orðið fyrir
valinu sagði Sigurður Kárason, að
í Hveragerði nytu þeir góðs skiln-
ings bæjarbúa og sveitarstjórnar
og ekkert hefði verið því til fyrir-
stöðu að fá land undir starfsem-
ina. „Við höfum verið að sækja um
lóð undir þessa starfsemi í tvö ár
og gáfumst loks upp á að eltast við
kerfið,“ sagði Sigurður.
Hann sagði góða möguleika á
stækkun garðsins, aðeins Vs hluti
lóðarinnar væri notaður og ef vel
gengi væri hugmyndin að byggja
yfir hluta af svæðinu.
í Eden-Borg eru leiktæki fyrir
alla aldursflokka, allt frá dúfu-
kofa upp í þeytivindu. I sinn hvor-
um enda svæðisins eru kappakst-
ursbraut og bátalón. Inni á miðju
svæðinu eru bílasalur, þeytivinda
og kolkrabbi ásamt smærri tækj-
um. Spilasalur verður í sérstöku
húsi og pallur fyrir skemmti-
krafta er á svæðinu.
Hluti tækjanna var ókominn en
gestir kunnu vel að meta þann
búnað sem fyrir hendi var. Fólk
streymdi í tækin eða að borðum
lukkubúanna til að freista gæf-
unnar. Og lánið lék við suma sem
roguðust með stóra bangsa i fang-
inu en þeir voru ekki minna
ánægðir sem sátu á herðum föður
síns með blöðru í hendi og ljóm-
andi af ánægju.
Sig. Jóns.
Frá sýningu lista- og menningarsjóðs Kópavogs á þeim verkum sem gefln
hafa verið kaupstaðnum.
komið um 2.000 manns í Digranes
á laugardaginn," sagði Kristján
„og á sunnudaginn var einnig
stöðugur straumur fólks á sýn-
ingarnar þar. Hátíðarguðsþjón-
ustan á sunnudag var mjög fjöl-
menn og nánast örtröð var á
brúðuleikhúsinu í leikskólanum
Kópahvoli á laugardaginn, en þá
var haldið upp á 15 ára afmæli
hans.“
í tilefni afmælisins var opnuð
sýning á hvölum og skeldýrum í
Náttúrufræðistofunni í Kópavogi.
Sýningin verður opin í dag frá kl.
14 til 22, en eftir það á venjulegum
opnunartíma Náttúrufræðistof-
unnar.
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir TERENCE HUNT
Með Helmut Kohl kanslara
Vestur-Þýskalands í kirkjugarðin-
um í Bitburg.
agua til þess að refsa Ortega for-
seta fyrir að leita eftir efnahags-
aðstoð í Sovétríkjunum og einnig
virtist það einhvers konar mót-
leikur gegn þinginu sem sam-
þykkti ekki mikia aðstoð handa
skæruliðum sem berjast gegn
8tjórnvöldum í Nicaragua, en þá
skæruliða hefur Reagan mjög
borið fyrir brjósti og lýst þeim
sem „einu von alþýðunnar í Nic-
aragua“.
Reagan var jákvæður mjög í
kveðjuræðunni á Spáni, en
minntist heldur ekki á vaxandi
andstöðu á Spáni gegn aðild
landsins að NATO og þeirri stað-
reynd að Felipe Gonzales for-
sætisráðherra vildi ræða fækkun
bandarískra hermanna í her-
stöðvum i landinu.
í Strasbourg ávarpaði Reagan
Evrópuþingið og fékk varla að
tala fyrir frammíköllum vinstri
sinna, sem hlógu, bauluðu og
höfðu í frammi ýmsa háreysti
Getur Reagan af einhverju
státað eftir Evrópuförina?
EVRÓPUFERÐ Ronalds Reagan Bandaríkjaforseta er nú lokió og stjórn-
málasérfræóingar reyna að vega og meta útkomuna. Þeir benda á, aó það
sé söguleg staóreynd, að oft og iöulega þegar vandamál steója aó heima
fyrir bregöi forsetar fyrir sig betrí fætinum og haldi á yfirreið um mörg
lönd. Með því að „gera þaó gott“ í útlöndum hafa forsetarnir gjarnan
komiö heim vinsælli en þeir fóru utan og þannig hafa erflóleikarnir oft
reynst auóveldari viófangs. Aö þessu sinni fóru leikar ekki svo, Reagan
hafði heldur lýra uppskeru í Evrópuferóinni og fleirí spjót beinast nú aó
honum en fyrr, mörg þeirra flugbeitL
Við erum nú á heimleið og
tengsl okkar eru treyst og
sterkari en fyrr. Ætlunar-
verkinu er lokið,“ sagði Reagan
við brottförina frá Lissabon,
sem var síðasti viðkomustaður-
inn. Hann viðurkenndi þó á
fréttamannafundi að þrátt fyrir
nokkra „hápunkta“ i ferðinni
voru einnig nokkur „afleit
augnablik". Ef útkomu ferðar
forsetans er skipt í tvær deildir,
annars vegar skoðuð frá póli-
tísku sjónarmiði og hins vegar
skoðuð frá almenningsálitinu,
sést best, að Reagan hafði fátt
annað en armæðu af ferðinni.
Ef við litum á síðari liðinn á
undan fékk Reagan flesta ef ekki
alla gyðinga heiftarlega upp á
móti sér, auk óteljandi annarra,
er hann hélt fast við áætlun
skipuleggjanda ferðarinnar, að
heimsækja hermannagrafreit í
borginni Bitburg í Vestur-
Þýskalandi. Nokkrir SS-her-
menn liggja þar grafnir. Reiðin
sem för forsetans í kirkjugarð-
inn olli var meiri en hann óraði
fyrir og litlu breytti þó hann af-
réði í skyndingu að heimsækja
einnig útrýmingarbúðirnar í
Bergen-Belsen. Reagan staldraði
aðeins við í 8 mínútur í graf-
reitnum í Bitburg, en eigi að síð-
ur héngu þessar 8 mínútur eins
og mara yfir allri ferð forsetans
og ekki bara það, umrædd heim-
sókn hans til Bitburg er orðin að
umdeildasta atviki í forsetatið
Reagans. Margt hefur verið
skrafað og skrifað um Bitburg-
ferð Reagans og ekki öðru við
bætt hér, en að ferðin verður
ugglaust umtaisefni næstu árin
og ýmislegt sem forsetinn kann
að taka sér fyrir hendur verður
skoðað í smásjá í ljósi þess, að
fjölmargir telja að forsetinn hafi
gert mistök með þvi að fara til
Bitburg.
En ef við skoðum útkomuna
frá pólitísku hliðinni kemur i
ljós að þar hefur ekki síður verið
stormasamt. Þrátt fyrir að
Reagan sé óþreytandi bjartsýn-
ismaður neitar hann þvi ekki, að
margt gekk honum i óhag í Evr-
ópuferðinni. Það eina sem hann
hafði í raun upp úr ferðinni var
staðfesting á leiðtogafundi i
Bonn, að bandamenn Bandaríkj-
anna i Vestur-Evrópu bæru
traust til Bandaríkjanna i af-
vopnunarviðræðunum við Sov-
étríkin í Genf. Reagan tókst ekki
aðalætlunarverk sitt, að fá
hljómgrunn fyrir og ákveðna
dagsetningu á upphafi viðskipta-
þings. Þar deildu þeir hart Mitt-
errand Frakklandsforseti og
Reagan. Mitterrand hefur
áhyggjur af því hvaða afleið-
ingar slíkar viðræður myndu
hafa á landbúnað í Frakklandi.
Þá hélt Reagan mikla tölu um
geimvarnarkerfið, en fékk held-
ur litinn hljómgrunn, aftur
gagnrýndi Mitterrand, en
Vestur-Þjóðverjar virtust
áhugasamir um samvinnu á þvi
sviði. Þá tóku engir af banda-
mönnunum undir viðskipta-
bannið sem Reagan setti á Nic-
aragua og mönnum þótti undar-
legt að lýsa yfir slíku banni
sama kvöld og leiðtogafundurinn
hófst, því þar voru á ferðinni
leiðtogar land sem hafa það að
yfirlýstri stefnu að þau séu mót-
fallin viðskipta- og efnahags-
hömlum af hvers kyns tagi.
Þegar til Spánar kom var þar
allt í háalofti, Spánn er móður-
land rómönsku Ameriku og
hundruð þúsund tóku þátt i mót-
mælaaðgerðum gegn forsetan-
um, viðskiptabannið var alræmt
þar í landi og mikil andstaða
gegn því. Bæði Spánverjar svo og
aðrir gátu ekki betur séð, en að
því hefði verið skellt á Nicar-
aðra. Best var Reagan tekið i
Portúgal, þar sem hann ávarpaði
þingið. En jafnvel þar stóðu
vinstri sinnar úr sætum og
gengu út. Reagan smellti þá
brandara fram, sagði það afleitt
að stólar vinstri manna væru
óþægilegri en stólar annarra
þingmanna. Féll brandarinn i
góðan jarðveg meðal þeirra sem
eftir sátu i salnum.
Nú er Reagan kominn heim til
Bandaríkjanna og ekki hafa
vandamálin minnkað i sniðum,
við forsetanum blasir mikill
vandi. Hann mun reyna á næst-
unni að herja út úr þinginu að-
stoð í einhverri mynd til handa
contra-skæruliðum i Nicaragua.
Hann þarf að halda vel utan um
málamiðlaðar fjárlagatillögur
og skatta„pakka“ sem sérhags-
munaaðilar munu reyna að vega
að með öllum tiltækum vopnum,
svo eitthvað sé nefnt. Allt þetta
og fleira þarf hann að afgreiða í
skugga Bitburg, Bonn, Stras-
bourg og Madrid. En þó málin
hafi ekki gengið upp sem skyldi i
fyrrgreindum borgum lætur
Reagan engan bilbug á sér finna,
„alls staðar kom ég stefnu og
sannfæringu Bandaríkjanna til
skila. Þeir vita nú betur en fyrr,
að þeir geta ávallt reitt sig á
Bandaríkin til þess að standa
með þeim i blíðu og striðu, til að
lyfta undir lýðræðið, efnahags-
lifið og til þess að halda friðinn,“
sagði Reagan. Hann treystir því
að tíminn lækni þau sár sem
hann ýfði upp með Bitburg-
ferðinni, treystir þvi að málstað-
ur hans: „að það sé ekki hægt að
hírast í skotgröfunum til eilífð-
arnóns" og það beri að líta á síð-
ari heimsstyrjöldina sem hluta
af sögunni, verði ofan á þegar
fram liða stundir. Reagan er
sannfærður um að Bitburg-
ferðin muni þegar fram líða
stundir styrkja vináttubönd
Bandarikjanna og Vestur-
Þýskalands og það eitt finnst
honum ljós punktur við ferð sína
þó augljósari málefni hafi snúist
í höndum hans.
Höfuadur er fréttaskýrundi bjá
AP-fréttastofunni.
1
í