Morgunblaðið - 14.05.1985, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1985
39
„Best staðsetta Ioð-
dýrabú á Iandinu“
— segir Óskar Einarsson, sem hyggst stofna loðdýrabú austan Hafnarfjarðar
í SUMAR verður byggt loðdýrahús
undir Stórhöfða austan Hafnarfjarð-
ar. Óskar Einarsson hyggst stofna
þar minkabú í haust með 1.000
minkalæðum og hann ætlar einnig
að beita sér fyrir stofnun fóðurstöðv-
ar í Hafnarfirði fyrir loðdýrabú í
Gullbringu- og Kjósarsýslu.
Óskar fékk leyfi fyrir búinu
þremur árum en ekki hefur orðið af
framkvæmdum fyrr því hann hefur
dvalið langdvölum í Kurgan í Sov-
étríkjunum með syni sínum Helga,
sem þar hefur verið til lækninga.
Óskar kvaðst verða að byrja með
1.000 minka bú, það væri lágmarkið
vegna fjármagnskostnaðar og
mannafla. Hann hefur ráðið sér
vanan bústjóra. „Ég held að þetta
hljóti að verða best staðsetta loð-
dýrabú landsins gagnvart mikil-
vægasta atriðinu, það er fóðuröfl-
uninni, því hér fellur til stór hluti
hráefnisins í fóðrið," sagði Óskar í
samtali við Morgunblaðið.
Óskar mun byggja 2.600 fer-
metra loðdýrahús fyrir minkana
eitt þúsund, en hefur síðan hug á
að stækka búið eftir því sem að-
stæður leyfa, þannig að það nái
sem hagkvæmastri stærð. Verð-
mæti ársframleiðslu af skinnum
áætlar Óskar að verði hátt í 5
milljónir kr. Hann sagði að miklir
möguleikar væru fyrir hendi á
þessu svæði til loðdýraræktar
vegna fóðursins, hér væri hægt að
framleiða a.m.k. 1,5 milljónir
minkaskinna með því fóðri sem til
fellur á ári.
„Þessi atvinnugrein hlýtur að
eiga mikinn rétt á sér. Nú er mikið
talað um að bæta hag fólksins í
landinu, en það verður ekki gert
nema með útflutningi, hvað sem
— eftir Arna Björnsson
ÉG VIL þakka Staksteinum fyrir
að útbreiða að nokkru viðhorf mín
í þjóðfrelsismálum í gær 9. maí.
Mér finnst ekki að upphaflegur
ræðustúfur minn hafi verið rifinn
og tættur meira en eðlilegt má
teljast, þegar texti er styttur um
þrjá fjórðu. Og ekkert get ég við
því sagt, þótt einhverjir heyri „ís-
kaldan tón“ í einstökum setning-
um.
Með „hnefahöggi á nasir"
þeirra, sem segja sig úr Alþýðu-
bandalaginu, hlýt ég hinsvegar að
slá sjálfan mig upp á munninn
eins og Jón Hreggviðsson. Ég
sagði mig nefnilega sjálfur skrif-
lega úr Alþýðubandalaginu fyrir
13 árum og hef ekki gengið í það
aftur. Og ég er reyndar alltaf svo-
lítið sár við Morgunblaðið fyrir að
hafa ekki talið mig þess verðan að
segja frá svo merkum pólitískum
atburði.
1 sannleikans nafni hef ég ann-
hver segir. Hér á landi getum við
framleitt 3—4 milljónir minka-
skinna og fengið fyrir í beinhörðum
gjaldeyri 5 milljarða kr. Höfum við
efni á að henda fóðrinu svona frá
okkur og skapa ekki gjaldeyri úr
því?“ sagði Óskar Einarsson.
ars þá einu athugasemd við Stak-
steina í gær, að þar er ég kallaður
„talsmaður afdráttarlauss marx-
isma“.
Nú kynni þetta svo sem að vera
rétt. Ég veit það einfaldlega ekki.
Ég hef því miður aldrei látið verða
af því að kynna mér rit Marx að
neinu ráði og veit þvi enn minna
um þau en t.d. kenningar Darwins.
Ég veit þó, að Marx var sífellt að
endurskoða kenningar sínar eins
og öllum vísindamönnum er sæm-
andi. Og væri hann enn á lífi, þá
má svo sem vera, að hann væri
farinn að hugsa líkt og ég. En um
þetta verða mér djúpsærri menn
að dæma.
Sjálfum finnst mér ég miklu
fremur geta staðið við að vera
„talsmaður afdráttarlauss nation-
alisma“, sem ég hika ekki við að
kalla þjóðernisstefnu.
Höfundur er þjódhíUafneöingur.
Þakkir og athugasemd
Hraðskreiðasti bátur á
íslandi til sölu
Báturinn er 21 fet norskur
sérsmíðaður keppnisbátur
Vél: 350 chevy
Borg Warner gírkassi
Stern Power keppnisdrif.
Með bátnum fylgir 2ja hásinga vagn meö
fjöörum, dempurum, bremsum og Ijósum
VerÖhugmynd 650.000.
Verulegur staögreiðsluafsláttur.
Báturinn er staðsettur á athafnasvæði Snarfara í
Elliðavogi.
Upplýsingar gefur Gunnar í vinnusíma 84473 alla
virka daga.
IBIZA
Allar fjölskyldur sem ætla í sumarfrí til útlanda eiga
erindi við Úrval, því barnaafsláttur okkar í leiguflugi
jafnt sem öðrum ferðum er óviðjafnanlegur. Þar að
auki eru svo sérstakar fjölskylduferðir þar sem 1 barn
í 4ra manna fjölskyldu eða stærri fær frítt.
MALLORCA
Fjölskylduferðir 29/5, 19/6, 10/7 (uppselt)
Verð frá kr. 18.830.-á mann, miðað við hjón með
3 börn, eitt yngra en 2ja ára og tvö 2ja til 12 ára.
Fjölskylduferðir 29/5, 11/9
Verð frá kr. 15.002.- á mann, miðað við hjón með
3 börn, eitt yngra en 2ja ára og tvö 2ja til 12 ára.
CAP d'AGDE
Fjölskylduferðir 14/6 (örfá sæti laus), 3/7,24/7,4/9
Verð frá kr. 17.045.- á mann, miðað við hjón með
3 börn, eitt yngra en 2ja ára og tvö 2ja til 12 ára.
DAUN EIFEL
Brottföralla sunnudaga í sumar, mjög fá hús eru eftir
í júlí og ágúst.
Verð frá kr. 11.455.- á mann í 1 viku,
frá kr. 14.870.- ítvær vikur, miðað við hjón
með 3 börn, eittyngra en 2ja ára og tvö 2ja til 12 ára.
Úrval er ferðaskrifstofa fjölskyldunnar.
FERÐASKRIFSTOFAN ÚRVAL
Ferðaskrifstofan ÚrvalviðAusturvöll, sími(91)-26900.