Morgunblaðið - 14.05.1985, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1985
Björgunarsveitin Gró á Egils-
stöðum fær lorantæki að gjöf
FORRÁÐAMENN Radíómiðunar
hf. i Grandagarði í Reykjavík færðu
björgunarsveitinni Gró i Egilsstöð-
um lorantæki að gjöf þann 9. maí sl.
Af þessu tilefni átti blaðamaður
Morgublaðsins samtal við Baldur
Pálsson formann björgunarsveit-
arinnar og Sigurjón Hannesson
varaformann, en sem kunnugt er
voru það einmitt félagar úr Gró
sem fóru á tveimur snjóbílum á
Vatnajökul í lok marsmánaðar til
aðstoðar þremur félögum úr
Flugbjörgunarsveitinni á Akur-
eyri. Sveinn Sigurbjarnason
björgunarsveitarmaður og jökla-
fari stjórnaði snjóbílnum Tanna,
en hann er búinn lórantæki. í
þessari leit kom vel í ljós hve
nauðsynleg slík tæki eru til leitar
á jökli, sérstaklega í vondu veðri.
Þeir félagar Baldur og Sigurjón
voru spurðir hvort þessi ferð hafi
orðið til þess að þeir fóru að kanna
möguleika á að fá lorantæki.
Baldur sagði að þeir hefðu byrj-
að að kanna kaup á lorantæki í
haust. „Þetta dróst síðan fram eft-
ir vetri, en ferðin á Vatnajökul
rak endahnútinn á að eitthvað
yrði gert í málinu.
Þegar leitin á Vatnajökli hófst
þurftum við að leita til Sveins Sig-
urbjarnasonar á Eskifirði og biðja
hann að aðstoða okkur. Þetta tafði
að sjálfsögðu fyrir, því flytja
þurfti snjóbflinn langa leið á
flutningabíl. En Sveinn hefur allt-
af verið boðinn og búinn þegar
Kristján Gíslason hjá Radíómióun hf. afhendir Baldrí Páissyni formanni björgunarsveitarínnar Gróar á Egilsstöðum
lorantæki að gjöf. F.v. Sigurjón Hannesson varaformaður Gróar, Baidur, Krístján og Haraidur Henrýsson forseti
Slvsavarnafélairs falanHa
Sigurjón Hannesson kemur niður af Vatnajökli á snjóbfl björgunarsveitar-
innar Gróar eftir að hafa tekið þátt f leit að þremur félögum úr Flugbjörgun-
arsveitinni á Akureyrí, sem lentu í hrakningum á jöklinum í lok mars.
leitað hefur verið til hans. Loran-
tækið mun veita okkur geysilegt
öryggi og verður það sett í snjóbíl-
inn okkar."
Sigurjón bætti því við að ekki
væri hægt að rata á fjöllum í
vondu veðri án þess að hafa lor-
antæki. Með því væri hægt að
miða út staði, stefnu og vegalengd
þó ekki sjáist út úr augum.
Baldur og Sigurjón sögðu að nú
væru um 150 félagar í björgun-
arsveitinni Gró á Egilsstöðum, um
70 eru frá Egilsstöðum en aðrir
félagar eru úr 10 hreppum á
Fljótsdalshéraði. Svæði björgun-
arsveitarinnar er mjög víðáttu-
mikið og erfitt yfirferðar. Oft þarf
að fara langar vegalengdir og eru
leitir því oft á tíðum umfangs-
miklar. Þeir sögðust eiga mjög
gott samstarf við Slysavarnafé-
lagið og hefur það m.a. aðstoðað
við uppbyggingu björgunarsveit-
arinnar. Björgunarsveitin og
slysavarnadeildin á Egilsstöðum
hafa nýlega byggt saman hús fyrir
starfsemina.
—En hvernig gengur að fá fólk
til starfa í björgunarsveitinni?
„Það gengur mjög misjafnlega,"
sagði Baldur. „En undanfarið hef-
ur verið óslitið starf og mikil
bjartsýni ríkt hjá sveitinni. Ungl-
NAKVÆMNISVOGIR
Vorum að fá sendingu af þessum
japönsku hágæða nákvæmnisvogum
AND gengur bæði fyrir 220 V og batteríum. Innbyggt hleðslutæki.
AND er mjög hraðvirk og einföld í notkun.
Sérstaklega hagstætt verð.
Verð frá kr. 14.700,-
Ath. Við rekum fullkomið rafeindaverkstæði og þjónustan gerist vart betri.
Holmegaard rýmingarsala
Vegna óviðunandi viðskiptahátta hjá Holmegaard
hættum við aö selja allar glervörur frá þeim. Öll
Holmegaard vara er seld meö 20% afslætti.
Silfurbúðin
Laugavegi 55.
The DuMiners
koma til Islands
Hinir frábæru
Dubliners eru nú aö koma til
íslands i þriöja sinn
vegna mikilla vinsælda.
Hljómleikarnir fara fram í
Háskólabíói 16. og 17. maí nk.
Forsala aögöngumiöa er í Háskólabíói
Tryggiö ykkur miöa tímanlega.