Morgunblaðið - 14.05.1985, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIPJUDAGUR 14. MAl 1985
47
Dalvík:
Fertugasti aðalfundur
Sambands eyfirskra kvenna
ingadeild hefur verið stofnuð og
þar starfa um 20 unglingar á aldr-
inum 12—18 ára.“
„Þeir eru alveg magnaðir í ungl-
ingadeildinni," sagði Sigurjón.
„Þeir eru mjög hugmyndaríkir og
duglegir. Við höfum mjög gaman
af þeim.“
—Hvernig fer þjálfun félaga í
björgunarsveitinni Gró fram?
„Þetta eru allt þrautþjálfaðir
menn og mjög áhugasamir," sagði
Baldur. „Við skipuleggjum starfið
3 mánuði fram í tímann. Reynt er
að fara í ferðir og haldnar eru æf-
ingar og myndakvöld."
Sigurjón sagði að myndakvöldin
væru mjög mikilvæg. „Þar miðlar
hver af þekkingu sinni. Um leið og
myndirnar eru sýndar er rifjað
upp hvað kom upp á í ferðinni og
þá er hægt að leiðbeina félögun-
um.“
—Hverju þakkið þið hve hægt
er að halda uppi svona öflugu
starfi?
Þeir Sigurjón og Baldur voru
sammála um að stuðningur fólks-
ins á Fljótsdalshéraði væri mik-
ilvægastur. „Þetta fólk hefur allt-
af stutt okkur, þegar leitað hefur
verið til þess með fjáröflun o.fl.
Einnig eru gamlir félagar alltaf
reiðubúnir til aðstoðar, sem er al-
veg ómetanlegt fyrir okkur, því
þeir búa yfir geysilegri reynslu.
Þegar leit stendur yfir eru fjórir
menn í stjórnstöð, yfirleitt gamlir
félagar, sem hættir eru fjallaferð-
um. Þar eru réttir menn á réttum
stað.“
—Fylgir ekki mikill kostnaður
rekstri björgunarsveitar?
„Jú, við notum mikinn og dýran
búnað," sagði Baldur, „og fjáröfl-
un er grundvöllur þessarar starf-
semi.“
„Það er mikill misskilningur
sem virðist ríkja hér, sn henn er
sá að fólk telur að björgunarsveit-
ir séu ríkisstyrktar," sagði Sigur-
jón. „Björgunarsveitirnar standa
undir öllum sínum rekstri sjálf-
ar.“
Baldur og Sigurjón sögðust vera
ákaflega þakklátir fyrir þessa gjöf
frá Radíómiðun hf. Þeir sögðu að
lorantækið hafi verið það tæki,
sem þeir hefðu haft mest gagn af
að fá.
Þess má geta að landsfundur
Slysavarnafélags íslands verður
haldinn dagana 7. til 9. júní nk. á
Egilsstöðum. Hann sækja full-
trúar frá öllum slysavarnadeild-
um og björgunarsveitum á land-
inu.
Ualrík, 9. maí.
ÞANN 27. aprfl var haldinn fertug-
asti aðalfundur Sambands eyflrskra
kvcnna. í upphafl fundar bauð
Kristrún Sigurðardóttir, formaður
kvenfélagsins Hvatar á Árskógs-
strönd, sambandskonur velkomnar,
en Hvöt á Árskógsströnd sá um allt
fundarhald. Að því loknu var helgi-
stund sem sr. Helgi Hróbjartsson,
sóknarprestur í Hrísey, annaðist.
Að helgistund lokinni setti
formaður sambandsins, Ragnheið-
ur Sigvaldadóttir, fund og gengið
var til dagskrár. Gestir fuodarins
voru Sólveig Alda Pétursdóttir,
ritari Kvenfélagasambands ís-
lands, Ingibjörg Auðunsdóttir,
kennari, Birgitta Níelsdóttir,
nemandi frá Dalvík, og Sigríður
Hafstað, húsfreyja að Tjörn í
Svarfaðardal. Sólveig Alda fjall-
aði um starfsemi Kvenfélagasam-
bandsins og ræddi jafnhliða um
orlof norrænna kvenna. Ingibjörg
Auðunsdóttir sagði frá fyrirhug-
aðri trjáplöntun hjá konum hér á
Eyjafjarðarsvæðinu í tilefni af
lokum kvennaáratugarins. Á fjöl-
miðlaráðstefnu Kf á síðastliðnu
hausti kom fram ákveðinn vilji að
minnast þess að 70 ár eru liðin frá
því að konur hér á landi öðluðust
kosningarétt og kjörgengi. Til þess
að minnast þess hefur verið afráð-
ið að gróðursetja tré jafnmörg ís-
lenskum konum 1984. Gróðursetn-
ing á að fara fram á tímabilinu
8.-24. júní, þó með sérstakri
áherslu á að gróðursett verði 19.
júní, kvenréttindadaginn. Sigríður
Hafstað, sem sótti fjölmiðlaráð-
stefnuna fyrir hönd SEK, gerði
einnig grein fyrir þessum málum
og öðru er fram kom á fjölmiðla-
ráðstefnunni. Birgitta Níelsdóttir
flutti ávarp í tilefni árs æskunnar.
Birgitta er 15 ára nemandi frá
Dalvík og gerði hún efninu góð
skil.
Samband eyfirskra kvenna var
stofnað i Glerárþorpi árið 1945
fyrir forgöngu Halldóru Bjarna-
dóttur. Innan vébanda þess eru 8
kvenfélög með 440 meðlimi. Félög
þessi eru: Von á Siglufirði, Vaka á
Dalvík, Tilraun í Svarfaðardal,
Hvöt á Árskógsströnd, Kvenfélag
Hríseyjar, Freyja í Arnarnes-
hreppi, Kvenfélag Hörgdæla og
Gleym-mér-ei í Glæsibæjar-
hreppi.
Kvenfélagið Tilraun er elst
þessara félaga og var stofnað 1915.
Ekki er að efa að hugsjónamaður-
inn Guðjón Baldvinsson frá
Böggvisstöðum átti mikinn þátt í
stofnun þess félags. Honum voru
jafnréttismál kvenna rik í huga á
þeim árum og barðist með oddi og
egg fyrir því að konur nytu fullra
réttinda til jafns við karlmenn.
Fyrstu stjórn SEK skipuðu þær
Þóra Stefánsdóttir, Hjalteyri,
formaður, Stefanía Jónsdóttir,
Dalvík, féhirðir, og Jónheiður
Eggerts, Glerárþorpi, ritari.
Á þessum 40 árum sem liðin eru
frá stofnun Sambands eyfirskra
kvenna hefur það lagt ýmsum góð-
um málum lið og safnað fé til líkn-
armála. Á aðalfundi sínum nú
samþykktu kvenfélagskonur
áskorun til heilbrigðismálaráð-
herra að hann beiti sér fyrir því að
tryggður verði rekstrargrundvöll-
ur að hópskoðun með röntgen-
myndatöku á brjóstum kvenna
vegna krabbameinsleitar. Sam-
kvæmt læknaskýrslum liggur
fyrir að árlega deyja 25 íslenskar
konur af völdum brjóstkrabba.
Núverandi stjórn sambandsins
er skipuð þannig: Formaður:
Ragnheiður Sigvaldadóttir, Dal-
vík, ritari: Ragnheiður Sigfúsdótt-
ir, Einarsstöðum, gjaldkeri: Edda
Jensen, Hauganesi.
Fréttaritarar.
T-fA J7A Jífwm 1 baðskáPar
M I / m M 1 ■ M rnl M vO f Nýkomnar margar nýjar
^ m Æ m m J gerðir og litir
VALD. POULSEN!
Suðurlandsbraut 10. Sími 686499.
Innréttingadeild 2. hæð.