Morgunblaðið - 14.05.1985, Síða 53
MORGTJNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1985
53
skýrslu Ólafs Níelssonar stungið
undir stól, ef hún var þá nokkurn
tíma lesin vegna þess hvað nei-
kvæð hún var gagnvart rekstri
BÚH, enda gekk reksturinn án
stórútláta (aðeins nokkra tugi
milljóna úr bæjarsjóði). Með hjálp
stjórnenda fyrirtækisins, hafði á
einhvern undraverðan hátt tekist
að framkalla með aðstoð Útvegs-
bankans og Seðlabankans rekstr-
arfé og enginn var svo ósvífinn að
spyrja slíka snillinga hvernig
þetta væri hægt, þetta voru jú
menn sem margoft höfðu sýnt að
þeir væru traustsins verðir.
Þá vildi það svo til að annar
endurskoðandinn, Sigurður Stef-
ánsson, gleymdi að gera grein
fyrir niðurstöðum sínum, þar á
meðal stöðu afurðalána, enda mál-
ið óþægilegt, og gæti ef til vill haft
slæmar afleiðingar. Þessi vinnu-
brögð eru eflaust heimsmet, miðað
við aðstæður, ef Island er undan-
skilið.
Breytingar á kaffi-
stofu Norræna hússins
KAFFISTOFA Norræna hússins
hefur verið endurbætt, að nokkru
verið máluð og aðstaðan í eldhús-
inu bætt. Hún hefur verið leigð út
undanfarin ár, en nú tekur húsið
sjálft við rekstrinum undir stjórn
Kristínar Eggertsdóttur, sem ann-
aðist hann fyrstu tólf ári.
Kaffistofan verður áfram rek-
in með svipuðu sniði, en ýmsar
nýjungar eru þó á döginni. Ætl-
unin er að gefa sýnishorn af mat-
armenningu Norðurlanda með
því að bjóða smárétti þaðan og
til þess að auka fjölbreytnina
verða nýir réttir kynntir um það
bil hálfsmánaðarlega. Á sumrin
verða á boðstólum íslenskir rétt-
ir fyrir erlenda ferðamenn og
aðra.
Sérréttur hússin er „Dramm-
enpönnukökur". Þetta eru frem-
ur þykkar pönnukökur með ým-
iss konar fyllingu, kjöti, rækjum,
sveppum o.fl. ásamt hrásalati.
Auk þess verður að venju boðið
upp á súpu, salat og smurt brauð
í hádeginu og alla daga verður
hægt að fá heimabakaðar klein-
ur, volgar eplakökur og fleira
með kaffinu.
Frá vinstri Sigríður Gunnarsdóttir, Helga Sigurbjörnsdóttir og Kristín
Eggertsdóttir.
Þáttur IJtvegsbankans
Nú hefur sumum í bæjarstjórn-
inni bæst dyggur stuðningsmaður,
en þar á ég við Útvegsbanka ís-
lands. Dylgjur bankans um niður-
stöðutölur bæjarendurskoðandans
eru með ólíkindum þar sem bank-
inn tók sjálfur þátt i talningunni.
Hvernig væri að Útvegsbankinn
gæfi útgerðarráði upp í tölum
hvernig staða afurðalána var við
talningu í nóvember ’84. Þær tölur
hefði bankinn haft fullt leyfi til að
gefa fyrrverandi útgerðarráðs-
mönnum upp, en alls ekki hvernig
staðan var 21. mars. Það eitt út af
fyrir sig að bankanum skuli hafa
orðið það á, að gefa fyrrverandi
útgerðarráðsmönnum upp stöðuna
21. mars án leyfis stjórnar BÚH,
mundi í öllum réttarfarsríkjum
kalla á opinbera rannsókn. Hve-
nær breytist orðið birgðarýrnun
yfir í orðið veðsvik i augum Út-
vegsbankans? Er það við 10—20
milljóna eða 30 milljóna yfirveð-
setningu? Ég geri ráð fyrir að það
séu ekki ófáir útgerðarmenn og
fiskverkendur sem gjarnan vildu
fá að vita hvar bankinn drægi
mörkin. Það er talað um það i
bréfi Útvegsbankans eins og. það
sé daglegt brauð að millifært sé
milli Útvegsbankans og Seðla-
bankans tugir milljóna vegna
„birgðarýrnunar", sem hljóta að
vera áhugaverðar upplýsingar fyr-
ir sjávarútvegsmálaráðherrann og
bankamálaráðherrann að
ég tali nú ekki um réttarkerfið i
landinu.
Samkvæmt yfirlýsingu Útvegs-
bankans á BÚH nú jafnvel tug-
milljónir í afurðum sem eru í
vörslu fyrirtækisins, sem ber
vissulega að fagna ef rétt reynist.
En hver á að borga reikninginn ef
rangt reynist? Málið snýst ekki
um yfirlýsingar óábyrgra aðila i
rekstri BÚH eins og t.d. bankans
og fyrrverandi útgerðarráðs, þær
breyta engu um hina raunveru-
legu stöðu BÚH, og er ég t.d. viss
um að bankinn hefur allt sitt á
hreinu gagnvart útgerðinni og
kemur til með að tapa engu enda
bæjarábyrgð á skuldunum. Málið
snýst einfaldlega um hver eigi að
borga og hvað háar upphæðir þeg-
ar upp er staðið, og um það þarf
ekkert að vera að rífast.
Ef staðan er eins góð og þeir
kumpánar Sigurður, Magnús og
Hrafnkell halda fram, væri ekki
úr vegi að þeir leituðu hófanna hjá
bæjarstjórn um yfirtöku á eignum
og rekstri BÚH, því það ætti ekki
að valda þeim erfiðleikum, eins og
dæmin sýna, að útvega fyrirtæk-
inu bankaviðskipti og rekstrarlán,
samanber yfirlýsingu þeirra um
glæsilega eignastöðu BÚH, og ekki
spillir vinskapur og traust banka-
stjóranna.
Lokaorð
Tap Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar
er í dag 20 þúsund krónur á klukku-
stund, allan sólarhringinn, alla daga
vikunnar, allar vikur ársins og svo
hefur verið í mörg önnur ár.
Kristófer Maguússon er rekstrar-
tæknifræðingur og í sæti í stjórn
fulltrúarids sjálfstæóisfélaganna í
Hafnarfirði.
TERCEÚ*”
Toyota Tercel 4WD er framúrskarandi
stationvagn sem sannar að fjórhjóladrifnir
bílar geta verið þægilegir.
Hvort heldur á hann er litið eða í honum ekið er hann ekkf
eins og aðrir stationbílar - hann fer þar sem aðrir
sitja fastir. Tercel 4WD er sparneytinn og ör-
uggur svo sem við er að búastfrá Toyota.
Þægindi fólksbifreiðarinnar,
seigla og styrkur bíls með drifi á öllum hjólum
sameinast í Tercel station. Harðger
1,5 lítra bensínvél sinnirafsamaöryggi 2og4 hjóla drifunum.
Nýbýlavegi 8 200 Kópavogi S. 91-44144
6
6