Morgunblaðið - 14.05.1985, Síða 56
56 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1985
Óskabyrjun Jusupovs á
millisvæðamótinu í Túnis
Skák
Margeir Pétursson
Þótt sakirnar á milli þeirra
Karpovs og Kasparovs séu enn
óuppgeróar og nýtt heimsmeistara-
einvígi þeirra hefjist ekki fyrr en í
haust, er keppnin um áskorunar-
réttinn árió 1986 komin í fullan
gang. Fyrstu umferð keppninnar,
svæðamótunum, er lokið og uppi
standa 54 skákmenn, víðs vegar
að úr heiminum. Næsta lota, milli-
svæðamótin, sem verða þrjú tals-
ins, hófst í Túnis í lok apríl. Milli-
svæðamótið í Mende Taxco í Mex-
íkó hefst 9. júní og það þriðja
hefst í Biel í Sviss 30. júní.
Átján þátttakendur tefla á
hverju millisvæðamóti og kom-
ast fjórir áfram á hverju þeirra.
Vænta má þess að baráttan um
sætin verði gífurlega hörð, því
það að komast áfram af milli-
svæðamóti hefur löngum þótt
trygging fyrir því að viðkomandi
væri kominn í hóp beztu skák-
manna heims.
Millisvæðamótið í Túnis er
rúmlega hálfnað, en fréttir af því
hafa verið skammarlega lélegar.
Meðfylgjandi tafla sýnir úrslitin
í fyrstu sex umferðunum. Eftir
þær var góðkunningi okkar, hinn
ungi sovézki stórmeistari Artur
Jusupov, efstur með 5 v. á undan
landa sínum Beljavsky, sem
hafði 4 ’/fe v., og ungum lítt þekkt-
um landa sínum, alþjóðlega
meistaranum Alexander Chern-
in, og Rúmenanum Suba, sem
höfðu 4 v. Hálfum vinningi á eft-
ir þeim komu síðan tveir heims-
frægir stórmeistarar, þeir Port-
isch og Hort, ásamt bandaríska
alþjóðameistaranum Nick de-
Firmian.
Englendingurinn Tony Miles,
Júgóslavinn Predrag Nikolic og
Hollendingurinn Gena Sosonko
höfðu 50% vinninga og verða að
fara að taka sig rækilega á, ætli
þeir að ná einu af efstu sætunum
fjórum.
Jusupov var langt frá sínu
bezta þegar hann sótti okkur
heim á afmælismót Skáksam-
bandsins í febrúar. Þar varð
hann í 5.-6. sæti Þó hann væri
stigahæsti þátttakandinn. Náði
niðurlæging hans þar hámarki er
hann varð biskupsmát í endatafli
gegn Van der Wiel, eins og áhorf-
endum er vafalaust enn í fersku
minni.
Nú hefur Jusupov náð að sýna
sitt rétta andlit og í fyrstu sex
umferðunum lagði hann fjóra
stórmeistara að velli, þá Gavri-
kov, Sosonko, Portisch og Erm-
enkov. Hann á eftir að mæta
Afríkubúunum þremur og ætti
því að vera hægðarleikur fyrir
hann að komast áfram. Alexand-
er Beljavsky er af mörgum álit-
inn þriðji sterkasti skákmaður
Artur Jusupov var ekki í essinu sínu
á afmælismóti Skáksambandsins, en
teflir þeim mun betur á millisvæða-
mótinu í Túnis.
heims um þessar mundir og mér
þykir líklegt að hann fylgi Jus-
upov í kandídatamótið. Um hin
sætin tvö gæti hins vegar orðið
grimmileg barátta sem margir
skákmenn gætu blandað sér í.
Þekktastir þeirra eru Portisch,
Hort og Miles, en ungu mennirn-
ir Chernin, deFirmian, Gavrikov,
Nikolic og nýbakaður stórmeist-
ari frá Kólombíu, Alonso Zapata,
gætu allir dottið í lukkupottinn.
Þá er rétt að bæta því við að
óstaðfestar fregnir herma að eft-
ir níu umferðir hafi staðan í
toppnum verið lítið breytt, Jus-
upov efstur, þá Beljavsky, Chern-
in þriðji og þeir Suba og Hort
jafnir í fjórða sæti.
Vinningsskákir Jusupovs í
tveimur fyrstu umferðunum eru
afar sannfærandi og reyndar
dæmigerðar fyrir vandaðan
stöðustíl hans, þó mát hafi blas-
að við báðum andstæðingum
hans eftir 30 leiki. Jusupov hefur
oft verið gagnrýndur fyrir að
tefla þunglamalega og ótaktískt,
einn stórmeistaranna á afmæl-
ismótinu kallaði hann pappírs-
tígrisdýr, en e.t.v. hefur hann
einmitt lært þarfa lexíu af mis-
tökum sínum á því móti.
1. umferð:
Hvítt: Gavrikov (Sovétr.)
Svart: Jusupov (Sovétr.)
Drottningarbragð
1. d4 — Rf6, 2. Rf3 — d5, 3. c4 —
e6, 4. Rc3 — Be7, 5. Bg5 — 0-0, 6.
e3 — h6, 7. Bh4 — b6.
Tartakover-afbrigðið, uppá-
hald Kasparovs og Karpovs og
eftir síðasta heimsmeistaraein-
vígi að dæma eina haldbæra vörn
svarts gegn 1. d4.
8. Bd3 — Bb7, 9. (H) — Rbd7, 10.
De2 — c5, 11. Bg3 — Re4, 12.
Hfdl — cxd4, 13. exd4 — Rxg3,
14. hxg3 — Rf6, 15. Re5 — Hc8.
Annar möguleiki er 15. — a6,
16. cxd5 - Rxd5, 17. De4!? - f5,
18. De2 — Bf6 með jöfnu tafli,
Agdestein — Margeir, 1. einvíg-
isskákin um daginn.
16. Hacl — dxc4, 17. Bxc4 — Rd5.
Svartur hefur nú biskupaparið
og getur teflt gegn staka peðinu
á d4. Markmiðið með næsta leik
hvíts virðist vera að ná sókn eftir
skálínunni bl — h7, en það er
borin von og 18. Ba6 því betra.
18. Bb3 — Rxc3, 19. bxc3 — Hc7l,
20. Dd3 — Bf6, 21. Rg4 — h5l, 22.
Re3 — Hd7, 23. g4?!
Hvítur losar sig við tvípeðið en
opnun h-línunnar reynist svört-
um í hag.
23. — hxg4,24. Rxg4 — g6, 25. hel
— Kg7, 26. Hcdl?
Svo virðist sem hvítur hafi
ekki skynjað hættuna sem vofir
yfir honum á kóngsvæng. Jus-
upov hefur verið að undirbúa
stórsókn eftir h-línunni. Hvítur
hefði átt að tefla til jafnteflis
með 26. Dg3 eða 26. Re5.
26. — Hh8, 27. Dg3 — Hh5!
Það er orðið of seint fyrir hvít
að bjarga sér því svartur hefur
bætt mikilvægu valdi á e5-reit-
inn.
TIT. STI6 1 2 3 H S 6 7 t 9 10 ti 13 IV 13 it f? it VlMH.
j HELTfimý (Souít) £ 2Í 35 4 1 Zi 1 Á Zz Ú/l
2 30UAÍI2 (Túnis) A 2395- 0 0 O O Zz 0 Zz
3 DE FIRMM COtrJ) ft 25*10 0 1 //// 1 1 Zz 0 yk
V HORTCrtltiísl.) s 2S(,0 '4 \ ö //// m 4 Zz Zz y/z
5 HMADI CTUhís) A 2Z2S 0 i YM O O o Zz 1/z
C GAVRIkoVCSovíi) s 2SSO 'Iz H 0 Zz 4 Zz Zt 3
7 SOSONkO(ÁollaJL) s 2535 yy/ 'Á 0 Zz 4 Zz /z 3
i ■DLUGY (13a*d*r) ft 2 YS5 //A/ % íz Zz Ö 4 Zz 3
PORTlSCHCUnqvl) s ZL3S Á 'fz Zz o 1 4 3/t
w 2ftPfiTfíCKÓ JUi) 5 2535 Zz y// yY/Y Zz 1 Zz 0 Zz 3
U EmENKOVCCáls) s 25f5 Á Zz 'Zz y/z YjVV /z o o Z
12 rVULESCEnjla**;] s 2S70 'k Á /z 0 Zz 4 3
n TUSUPOVCSovíir.' s 2S°iO 4 4 Á 4 'Zz 4 Y/Z/
(V CHERNlN (Sovíir) ft 2 WS 4 'Á Zz i 0 4 y/A /Vy/ z
/r ftFIFI CBsypUI.) 2310 0 1 0 O O O //// zZú. 4
u, NIK0Uc(T<;M) 5 2575 0 ‘/r 4 'Á 'Á Zt y/A /Zr 3
fl niorovic CCLiU) A 2HS0 /z 'A Zi 'Á /t 'Á r/y Y/Y/ 3
fí SUOft ClSu/mtniu) 5 VU>S 'Á 1 4 4 0 '/// z
Norræni
Fjárfestingabankinn
Norræni Fjárfestingabankinn er
i eigu fimm Noröuriandaþjóöa
og veitir lán til aö fjármagna
samvinnu Noröurlandaþjóö-
anna og sérstök verkefni m.a. í
þróunarlöndum. Lánsfé bank-
ans nemur nú u.þ.b. 12.000
milljónum sænskra króna. Á
skrifstofu bankans í Helsingfors
starfa nú 60 manns og þar er
jöfnum höndum töluö sænska,
norska og danska.
Lögfræðingur
Norræni Fjárfestingabankinn óskar eftir aö ráöa lögfræöing en nú starfa
þrír lögfræðingar á vegum bankans.
Verkefni lögfræöingsins veröa:
Umsjón meö samningum varöandi útlán og fjármögnun bankans.
Umsjón meö samningum varöandi lánakjör og gerö skjala þar aö lútandi.
Eftirlit meö lánaskuldbindingum.
Mótun lánskjarastefnu bankans.
Viökomandi þarf aö hafa a.m.k. eins árs starfsreynslu. Reynsla af alþjóö-
legum bankaviðskiptum eöa samningagerö kæmi sér vel. Auk þess er
krafist ritfærni og góörar enskukunnáttu.
Góö laun og starfsaöstaöa eru í boöi. Þeir sem flytja til Finnlands njóta
skattfríðinda samkvæmt sérstakri reglugerö. Bankinn aöstoöar viö aö
útvega húsnæöi. Ráöning: eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veita: Siv Hellen, lögfræöingur og Christer Boije, skrifstofustjóri, i Helsingfors. Simi: +358-0 18001. Í
Svíþjóö: Sven Bergh, Copmass Rekrytering och Utvekling AB. Sími: Stokkhólmur +46-8 249160.
Umsóknir veröa aö hafa borist fyrir 22. mai. Þær skal merkja „Jurist“ og senda Compass Rekrytering och Utvekling AB,
Sturegatan 6, S-11435 Stockholm.
Compass Rekryterlng och Utvekiing AB er sjálfstætt ráöningar- og ráðgjafarfyrirtæki.
rOMRQSS
FOCFrVTBR«MG OOt L/TVBCKLfSIG AB
ÁS-TENGI
Allar geröir.
Tengiö aldrei stál-í-stál.
Sflyirflænyigjyir
Vesturgötu 16, sími 13280
/\uglýsinga-
síminn er 2 24 80