Morgunblaðið - 14.05.1985, Qupperneq 66
66
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJÚDÁGUR 14. MAÍ 1985
„Hvcrnig seg)rmc*bur: Vi'S komum tii
Lands til c& leito. c*b ferfatöikunurn
OKXOr."
Ast er • • •
O
-2x1 IlL
\ * ■v-8
... aö fyrirgefa henni enn á ný.
TM Reg U.S. Pat. Off — all rights reserved ®1M5 Los Angeles Times Syndicate
Með
morgunkaffinu
Ég er óhræddari að mæta jap-
onunum eftir að hafa séð allar
karate-myndirnar, það verð ég
að segja.
HÖGNI HREKKVÍSI
,, LÁTTU BAKA se/m pÚSJÁie
HANJN EKKI."
CASSIOPEIA • ♦ * ♦ 4 rVILI.INGA
> + Polstjárnan ♦ • ♦ Castor ^ ♦ l'ollux
« « Lilla Björncn ♦ •
.* ♦ ♦ ♦ 4 4, Karlavagnen / ♦ ♦ ♦ • •+ Regulti
BJÖRNVAKTA R EN # • ♦ • ♦ « LEIONET •#
. ♦ *. % Arcturus
Myndin sýnir fáein af þeim stjörnumerkjum sem skýr- ast blasa við augum og mest heilla hugann á heiðríkum kvöldum.
CASSIOMt A
Kassíópia er fagurt og áberandi stjörnumerki hátt á
himni. í grískri goðsögn segir frá því að Kassfópia hafi
verðið drottning í Eþíópíu, kona Sefeusar, en Andro-
meda var móðir hennar. Þau nöfn eru einnig nöfn
tveggja áberandi stjörnumerkja hátt á himni.
Dásamlegur
stjörnuhiminninn
Ingvar Agnarsson, Hábraut 4,
Kópavogi, skrifar:
I Reykjavík og nágrenni er allt
baðað í ljósum á hverju kvöldi og á
hverri nóttu. Þessi sífellda birta
hefur sína miklu kosti og öll unum
við okkur vel í þessari blessuðu
birtu sem aldrei verður lát á.
Samt er einn galli á gjöf Njarðar:
Þessi birta veldur því, að okkur
dettur sjaldan i hug að líta til
himins og stjarna, þótt loft sé
heiðskírt. Það liggur við, að við
gleymum þeim. Og ef okkur verður
það á, svona rétt stöku sinnum, að
horfa á stjörnurnar, þá eru þær
svo daufar, að aðeins þær skær-
ustu eru vel sýnilegar. Hvað veld-
ur? Ljós borgarinnar fellur á agn-
ir loftsins yfir henni, svo stjörn-
urnar hyljast að nokkru eins og í
móðu, verða daufari til að sjá en
annars væri.
Mér dettur í hug merkur maður
og merk orð, sem honum eru eign-
uð.
Edvard Munch var frægur mál-
ari norskur (f. 1863, d. 1944). Eftir
honum er höfð setning, er hljóðar
eitthvað á þessa leið:
„Þið takið manninn, sem finnur
sambandið við stjörnurnar og lok-
ið hann inni á vitleysingahæli. —
En þið takið manninn sem finnur
upp ljósaperuna — sem gerir ekki
annað en draga athygli fólks frá
stjörnunum — og hefjið hann til
hæstu vegsemdar."
Þessir hringdu . .
»'W %
Fimleikafélagið
Björk ÍSÍ
og FSÍ
Níels Einarsson hringdi:
Er það satt, sem talað er um
hér í bæ að Fimleikasamband ís-
lands hafi brotið á rétti iðkenda
fimleika undanfarið og þó sér-
staklega fólki, sem er í fimleika-
félaginu Björk í Hafnarfirði?
Er það satt, að meira en fimm
fyrirspurnir, sem fram hafa ver-
Ekki vil ég nú gera lítið úr feg-
urð rafmagnsljósanna og þeim
þægindum, sem við menn njótum
þeirra vegna. En satt er það, að
ekki megum við gleyma stjörnun-
um og þeim lífgefandi straumum,
sem hingað berast frá lífheimum
algeimsins. Rafmagn kemur ekki í
stað þess lífmagns sem þaðan
berst.
Þetta var nú e.t.v. svolítil! út-
úrdúr, en ekki þó með öllu.
Um miðnætti, að loknum
fimmtudeginum 18. apríl 1985,
urðu þeir borgarbúar, sem unna
stjörnuskoðun, fyrir óvæntu og
óvenjulegu happi.
Kvöldið hafði verið bjart og fag-
urt, ekki skýhnoðri á lofti og
stjörnurnar skinu í öllum sínum
Ijóma, eins og best getur hér orðið,
miðað við þá truflun sem borgar-
ljósin valda, og nú hefur verið að
nokkru frá skýrt.
Ég á heima á hæðinni rétt aust-
an við Kópavogskirkjuna. Þarna
er fábýlt svæði, allstórt, og birta
stjarna nýtur sín því tiltölulega
vel. Ég var úti um lágnætti þetta
umrædda kvöld og naut þess að
horfa á stjörnum skrýddan himin.
Allt í einu slokknuðu öll ljós.
Allt varð myrkt á nær öllu Stór-
Reykjavíkursvæðinu. Aðeins vest-
urbærinn í Reykjavík var enn að
sjá ljósum prýddur. Þetta gerðist
klukkan 0.15.
Mér varð enn litið til lofts og
ið settar af FSÍ, að Fimleikafé-
lagið Björk hafi ekki fengið um-
fjöllun og svar verið hundsað?
Ér það satt að íþróttasamband
íslands geri ekkert til að leið-
rétta réttarstöðu iðkenda í Fim-
leikafélaginu Björk? Er það rétt
að skuldafen FSÍ skipti hundr-
uðum þúsunda ef ekki milljóna?
Mun ÍSÍ ábyggjast greiðslur
þegar í ljós kemur að FSÍ getur
ekki greitt skuldirnar? Hver ber
ábyrgð á þessu? Er það rétt að
Fimleikafélagið Björk hafi lýst
vantrausti á FSÍ og að fulltrúar
frá Fimleikafélaginu Björk hafi
sagt sig úr stjórn FSÍ vegna þess
sama? Er það satt að FSÍ hafi
stuðlað að ein af efnilegustu
fimleikastúlkum íslands hafi
verið hlunnfarin og ekki fengið
að taka þátt í keppni á norræna
„senior“-mótinu í apríl sl.?
Ef ofanritað er satt, hver er þá
tilgangurinn fyrir Fimleikafé-
lagið Björk að vera tengt FSÍ og
ÍSl?
hér gaf á að líta. öll himinhvelf-
ingin var eitt ljósahaf og sú fegurð
var óendanlega miklu áhrifameiri,
en borgarbirtan, sem við menn
getum framleitt með allri okkar
tækni.
Og nú voru stjörnurnar ekki
daufar eins og rétt áður, heldur
bjartar og skínandi. Það var næst-
um eins og hefði ég gleymt hinni
sönnu fegurð himinsins og sæi nú
dýrð hans í fyrsta sinn. Svo langt
er síðan ég hef séð hina sönnu
ásýnd hans, i öllu sínu veldi, og
svo fer öllum þeim er lengi hafa
búið við sífellda birtu borgarljósa,
sem dregur svo mjög úr fegurð
himinsins, þótt heiðskírt sé að
öðru leyti.
Heillaður horfði ég á þessa und-
ursamlegu fegurð himinsins, sem
hvelfdist yfir og allt um kring. Og
nú sýndust allar stjörnur stórar,
ekki aðeins þær björtustu heldur
einnig hinar, sem venjulega sýn-
ast daufar.
Hér blöstu við stjörnumerkin
hvert við annað, með ljómandi
stjörnum sínum, marglitum og
blikandi.
Hve fagurljómandi var ekki
Stórivagninn með sindurbjörtum
stjörnum sínum, og Pólstjarnan
efst á himni. Og svo þaðan út í frá
hið sérkennilega stjörnumerki
Kassíópia, Ökumaðurinn, með
hvítglóandi stórstirninu Kapellu,
og þar alllangt fyrir neðan rauða
risann Betelgeu.se, einu stjörnuna
sem enn sést af Óríon, fegursta
stjörnumerki himins, hinar eru
gengnar undir á þessum tíma árs.
Og fjölmargar voru þær stjörnur
og stjörnumerki önnur, sem nú
ljómuðu svo fagurlega, en ég mun
sleppa að telja hér.
Stjörnuhrapi brá fyrir leitur-
snöggt efst á himni. Oftast þarf
ekki lengi að horfa til að sjá
stjörnuhrap.
Engin leið er að lýsa þeim hug-
hrifum, sem albjört hvelfing him-
insins vekur á stundu sem þessari.
En þessarar dásemdarsýnar var
ekki unnt að njóta lengi, því að
stundarfjórðungi liðnum komu
borgarljósin á ný.
Himinljósin dofnuðu á samri
stundu og urðu ekki svipur hjá
sjón hjá því sem áður var. Sá sem
ekki sér og reynir getur vart trúað
þessum snöggu umskiptum, sem
hér urðu á útliti himinsins.
Reynum samt að njóta sem
oftast útsýnar til himins og
stjarna, þótt ekki sé hún eins skýr
og ómenguð og hér veittist kostur
á um stutta stund.