Morgunblaðið - 14.05.1985, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 14.05.1985, Blaðsíða 68
68 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MAl 1985 Einar Grétnr Hjahaaon verkstjóri og Þorvaldur GarAar Kristjánsson við afhendingn áskornnar starfsfólks Hrað- frystihúss Hnffsdals. Fiskvinnslufólk á Vestfjörðum skorar á Alþingi að lækka skatta ímfirAi, 10. nuu. I síðdegiskaffitímanuni í dag, föstudag, afhentu starfsmenn Hrað- frystibússins í Hnífsdal Þorvaldi Garðari Kristjánssyni, forseta sam- einaðs Alþingis, áskorun undirritaða af 158 starfsmönnum frystihússins og Hraðfrystihússins Norðurtanga á ísafirði. í áskoruninni segir: „Við undir- rituð sem störfum í fiskvinnslu skorum á háttvirt Alþingi að gera þær breytingar á skattalögum, að verkafólk í fiskvinnslu fái skatta- frádrátt á sama hátt og fiski- menn, sem héti þá fiskvinnslufrá- dráttur. Þar sem í mörgum tilfell- um vinnur verkafólk miklu lengri vinnutíma en það kærir sig um, til að bjarga verðmætum fyrir þjóð- arbúið. Einar Garðar Hjaltason verk- stjóri afhenti Þorvaldi Garðari undirskriftirnar og gat þess um leið að von væri á samskonar áskorunarlistum frá flestum fisk- vinnslu- og rækjuverksmiðjum á Vestfjörðum. Þá gat hann þess, að vegna slæmra launa í fiskvinnslu yrði sífellt erfiðara að fá fólk til að vinna vjð þessi veigamiklu framleiðslustörf. Þorvaldur Garðar Kristjánsson flutti stutt ávarp og sagðist ánægður að mega taka við þessum skjölum beint úr höndum fólksins. Hann sagðist á þessu stigi málsins ekki geta sagt um árangur, en það væri hans skoðun að kjör verka- fólks í sjávarútvegi yrðu að batna og sagðist mundu beita sér af al- efli fyrir framgangi þessa máls. Hann sagðist jafnframt því að bera þetta mál upp í sameinuðu þingi kalla þingmenn Vestfjarða til fundar til að ræða þessi mál. Nokkrar umræður urðu með forseta sameinaðs þings og starfsmanna Hraðfrystihússins og ÚTVEGSBANKI íslands ákvað fyrir síðustu helgi að lækka vexti af inn- og útlánuni. Hann hefur þá ákveðið vaxtalækkun tvisvar frá mánaðamótum apríl—maí. Vaxtalækkunin nemur í heild allt að 4 til 5% (miðað við ársávöxt- un). Útlánsvextir lækka mest á almennum lánum, víxlum og óverðtryggðum skuldabréfum, en innlánsvextir mest á hlaupa- reikningum, segir í frétt frá bankanum. Þar segir ennfremur: „Vextir af innlánsreikning- um með ábót haldast þó enn mjög háir. Ársávöxtun þeirra sagði fólk hreinskilnislega skoð- anir sínar og kom þar m.a. fram hjá einum starfsmannanna að varasamt væri að gera ráðstafanir sem kæmu fyrirtækjunum einum til góða því mikið af þeirra pen- ingum færi í vitlausar fjárfest- ingar en ekki til að greiða starfsmönnunum hærra kaup. - Úlfar. er nú yfir 33% að lágmarki og hækkar sjálfkrafa ef vextir ásamt vísitöluhækkun á verð- tryggðum reikningum eða 6 mánaða bundnum reikningum eru betri hvern mánuð fyrir sig. Þessir reikningar eru mjög sérstæðir að því leyti að réttur til ábótar getur unnist einungis á einum mánuði. Þeir henta því mjög vel þeim aðilum, sem vilja fá rétt til hárra vaxta á skömmum tíma og vilja halda þeim rétti, þótt þeir þurfi inn- an tiltölulega skamms tíma að taka hluta eða allt fé sitt út af reikningnum." Útvegsbankinn lækkar vexti LAWN-BOV Hún slær allt út og rakar líka Þú slærö betur meö LAWN BOY Rafeindakveikja tryggir örugga gangsetningu 3.5 HP sjálfsmurð tvígengisvél. Hún er hljóðlát. mmm Hún slær út fyrir kanta og upp að vegg. Auðveldar hæðarstillingar Fyrirferðalítil, létt og meðfærileg. Ráðherrafundur EFTA í Vínarborg: Saltfisktoll- ur í ósamræmi við stefnu EB — segir viðskiptaráðherra TOLLUR Efnahagsbandalagsins i saltfiski er í ósamræmi við yfirlýsta stefnu Efnahagsbandalagsins um að standa gegn nýjum viðskiptahindrun- um, að því er Matthías Á. Mathiesen viðskiptaráðherra sagði i ráðherrafundi EFTA í Vínarborg 10. maí. Þetta kemur fram í fréttatUkynningu frá við- skiptaráðuneytinu, sem Mbl. hefur borisL Tilkynningin er svohljóðandi: Undanfarna daga hafa staðið yf- ir fundir í Vínarborg á vegum Frí- verslunarsamtaka Evrópu, EFTA. Auk venjulegs fundar EFTA-ráð- herra voru haldnir fundir þing- mannanefndar EFTA og ráðgjafar- nefndar EFTA og ennfremur sam- eiginlegur fundur allra þessara að- ila. EFTA-ráðherrar héldu einnig fund með tveimur af framkvæmda- stjórum Efnahagsbandalagsins til að ræða um aukið samstarf á grundvelli yfirlýsingarinnar sem EFTA og Efnahagsbandalagið gáfu á sameiginlegum fundi í Luxem- borg í apríl 1984. Á ráðherrafundinum var m.a. rætt um inngöngu Spánar og Port- úgals í Efnahagsbandalagið frá næstu áramótum. Þá bætist Spánn við hóp þeirra 17 landa sem taka þátt í fríverslunarsamstarfi Evr- ópu sem ætti þegar fram líða stundir að geta aukið sölu iðnað- arvara til Spánar. Portúgal hefur eins og kunnugt er verið aðili að EFTA frá upphafi. Matthías Á. Mathiesen við- skiptaráðherra lét í ljósi áhyggjur af fyrirhuguðum tolli Efnahags- bandalagsins á saltfiski sem gæti torveldað sölu á íslenskum saltfiski til Portúgals en verulegur tollur er þegar fyrir hendi á Spáni. Taldi ráðherrann að slíkur tollur væri í ósamræmi við yfirlýsta stefnu Efnahagsbandalagsins um að standa gegn nýjum viðskiptahindr- unum. Fulltrúar Noregs, Svíþjóðar og Sviss tóku undir þessi sjónar- mið. Fulltrúar Portúgals gerðu f einkaviðræðum lítið úr væntanleg- um áhrifum tollsins. Enn hefur ekki verið tekin endanleg ákvörðun um hver tollurinn verður. Mun við- skiptaráðherra ræða þetta mál við framkvæmdastjóra Efnahags- bandalagsins á fundi sem ákveðinn er í Brussel 24. maí. Ráðherrafundurinn ákvað að fela sérstakri nefnd að athuga hvort hægt væri að láta friverslun ná til fleiri tegunda sjávarafurða en nú er. Á nefndin að skila áliti fyrir næstu áramót. EFTA-ráðherrarnir lýstu yfir fullum stuðningi við hugmyndina um að hefja nýjar alþjóðlegar viðskiptaviðræður á vegum GATT og ætti undirbúningur að þeim að byrja strax í sumar. A sérstökum hátiðarfundi i til- efni af 25 ára afmæli EFTA flutti forseti Austurríkis, dr. Rudolf Kirchschláger, ávarp en meðal annarra ræðumanna voru Jacques Delors formaður framkvæmda- stjórnar EB og Per Kleppe fram- kvæmdastjóri EFTA. Morgunblaðið/RAX Gísli Halldórsson, Kjartan Bjargmundsson og Margrét Ólafsdóttir í hlut- verkum sínum. Myndin var tekin á æfingu nýlega. Leikfélag Reykjavíkur: Ástin sigrar eftir Ólaf H. Símonarson Nýtt leikrit eftir Ólaf Hauk Símonarsson, „Ástin sigrar", verður frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur 15. maí nk. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson en hann leikstyrði þessu verki hja Leikf „Það er mjög sérstakt að fá tækifæri til að sviðsetja sama verkið tvisvar á svo skömmum tíma eins og nú verður raunin á, en verkið var frumsýnt á Húsavík 15. marz síðastliðinn," sagði Þór- hallur. „Samstarf við höfundinn hefur verið mikið og verkið tekið nokkrum breytingum í meðförum. Uppsetningin á Húsavík var stað- færð að nokkru leyti en því hefur verið breytt hér. Nýr lokaþáttur hefur verið saminn, bætt inn nýj- um samtölum og ýmsu öðru verið vikið við. Leikurinn gefur spaugsama mynd af íslensku þjóðlífi og tekið er léttilega á stöðu kynjanna í dag með smá broddi. Þetta er enginn skrípaleikur og við hlæjum vegna þess að við þekkjum persónurnar, þær eru lifandi fólk, sem við get- um hæglega fengið samúð með. Ungur tónlistamaður, kvæntur lögfræðingi, tekur saman við aðra i Husavíkur í vetur. konu, sem flytur inn á heimilið. Eiginkonunni er nóg boðið, flytur að heiman og nær sér í „vin“. Leik- urinn snýst síðan um baráttu eig- inmannsins við að fá eiginkonuna aftur heim.“ Þetta er í annað skipti sem Leikfélag Reykjavíkur sýnir verk eftir ólaf Hauk Símonarson, hann var einn þriggja höfunda söng- leiksins Grettis, sem sýndur var leikárið 1980-81. Með hlutverk ungu hjónanna fara Kjartan Bjargmundsson og Ása Svavarsdóttir. Aðrir leikend- ur eru Gísli Halldórsson, Valgerð- ur Dan, Bríet Héðinsdóttir, Jón Hjartarson, Margrét Ólafsdóttir, Steindór Hjörleifsson og Helgi Björnsson. Leikmynd er eftir Jón Þórisson og Daníel Williamsson sér um lýsingu. „Ástin sigrar" verður síðasta verkefni Leikfélags Reykjavíkur á þessu leikári, sem lýkur 20. júní.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.