Morgunblaðið - 14.05.1985, Síða 69
MORGUNBLADIÐ, ÞRÍÐJUDAGUR 14. MAÍ1986
Indríði Indríðason gróðrarstöðvarstjóri á Tumastöðum lýsir bér framieiðslu á móbandsplöntum.
MorgunblaðiA/Gils
Kjartan Ólafason garðyrkjuráðunautur Búnaðarsambands Suðurlands sýnir hér þátttakendum á skógnekardeginum
frágang á lóð.
Skógræktardagur að
Tumastöðum í Fljótsdal
GARÐYRKJUNEFND Sambands sunnlenskra kvenna stóð fyrir skógrækt-
ardegi ásamt Skógrækt ríkisins, Garðyrkjuskóla ríkisins, Sölufélagi garð-
yrkjumanna og Búnaðarsambandi Suðurlands sl. laugardag, 11. mai.
Skógræktardagurinn var hald-
inn á Tumastöðum í Fljótshlíð,
þar sem Skógrækt ríkisins hefur
rekið gróðrarstöð frá 1944. Alls
tóku tæplega 400 manns úr Árnes-
og Rangárvallasýslum þátt í
skógræktardeginum.
Kjartan ólafsson garðyrkju-
ráðunautur Búnaðarsambands
Suðurlands sagði I samtali við
Morgunblaðið að Samband sunn-
lenskra kvenna hafi átt frum-
kvæðið að því að þessi skógrækt-
ardagur yrði skipulagður. „Þarna
var kynnt gróðursetning og skipu-
lagning á görðum, umhirða á trjá-
plöntum og var það gert á sér-
stöku sýningarsvæði," sagði
Kjartan. „Á öðru svæði var sýnd
útplöntun á skógarplöntum með
mismunandi verkfærum og við
mismunandi aðstæður, flutningur
á stærri plöntum og kynntar voru
margar aðferðir við klippingar á
trjáplöntum.
Þá sýndi Skógrækt ríkisins
hvernig þeir framleiða plöntur al-
veg frá sáningu og sýndar voru
plöntur á mismunandi vaxtar-
stigi.“
Konur í Árnessýslu ætla að
koma saman að Snæfoksstöðum í
Grímsnesi þann 8. júní nk. og
gróðursetja þar mikið skjólbelti.
Kvenfélagasamband íslands ætlar
að standa fyrir því að konur um
allt land gróðursetji plöntur í til-
efni þess að nú er Kvennaáratug
Sameinuðu þjóðanna að ljúka og
70 ár eru liðin frá því að konur
fengu kosningarétt hér á landi.
Kjartan sagði að geysilegur
áhugi á trjárækt væri nú hjá fólki
í sveitum Árnessýslu.
Færeyska farþegaskipið Norröna:
íslendingar kaupa
meira af hlutabréfum
SALA hlutabréfa í Smyril-Line, út-
gerð færeyska skipsins Norrönu,
stendur nú yfir hér á landi og hafa
um 100 manns keypt bréf að verð-
mæti 560.000 til 750.000 krónur.
Áður hafði fengizt heimild hjá
gjaldeyrisstofnunum til kaupa
Islendinga á hlutabréfum að
verðmæti 500.000 færeyskar kr.,
1.865.000 íslenzkar kr. og voru þá
seld hlutabréf að upphæð tæp-
lega 1,5 milljón króna. Nú hefur
þessi heimild verið aukin og
stefnt er að sölu bréfa að verð-
mæti rúmlega 2,2 milljóna
króna. Hlutabréfin eru að upp-
hæð 1.000 til 10.000 færeyskar
krónur, 3.700 til 37.000 íslenzkar
kr.
Að sögn Jónasar Hallgríms-
sonar, umboðsmanns Norrönu á
Seyðisfirði, er mikil áhugi eystra
og víðar á hlutabréfakaupunum
og ferðum skipsins í sumar. Bók-
anir hafa aukizt talsvert frá síð-
asta ári og gera menn sér bjart-
ar vonir um mikinn ferðamanna-
straum með Norrönu í sumar.
Skipið kemur í fyrstu ferð sína í
sumar til Seyðisfjarðar í byrjun
júní.
69
sno
Máftturoq
virkrn
auglýsinga
námskeið
5smálum og
álmenningstengslum. Námskeiðið nefnist á frummáli:
„Kreativitet og effektivitet - kan det forenes i
reklamen?“ og verður það flutt á ensku.
Flestir kaupendur auglýsinga eru oft á báðum
áttum þegar tillögur um auglýsingar eru iagðar
fyrir þa.
- Eru tillögurnar nógu markvissar?
- Er sköpunargleðin nægileg?
- Er val Tjölmiðla rétt?
- Hefur rett stefna verið valin?
að kasta sér út
að gera það
fyrír augun. Það eru til vinnureglur, sem
draga úr óvissunni og fækka mistökum, séu þær rétt
notaðar.
Á þessu námskeiði verður m.a. fjallað um eftirfar-
andi:
- Skapandi vinna og mat á henni.
- Hópvinna þar sem raunveruleg verkefni úr
dönskum fyrirtækium eru yfirfarin.
- Af hverju verða aúglýsingar svona dýrar?
- Hvernig er best fyrir komið samstarfinu við
auglýsingastofurnar?
- Hvaða verkefni á að fela auglýsingastofum?
Markmið námskeiðsins er m.a. að koma markaðs-
og auglýsingafræðinni niður á jörðina oa gera
þatttakendur færa um að meta auglýsingafilloc
á sem bestan hátt.
>gur
Leiðbeinendur á námskeiðinu eru:
Morten Peetz-Schou, listfræðingur og dálkahöf-
undur. Hann er mjög þekktur á sínu sviði í Danmörku
og hefur 25 ára reynslu við auglýsingagerð og almenn-
............ hefur m.a. starfað sem „kreativ chef“
og Jersild en rekur nú eigið
ingstengsl. Hann
hja Thomas Bergsoe
raðgjafarfyrirtæki.
Asger Vilstrup
Hann hefur lam
auglýsingastjóri hjá m.a. Gutenberghus oa
Bergsoe og markaðsstjóri hjá Nordisk Textiltryk. Hann
stanar nú sem ráðgiafi með almenningstengsl og
fjölmiðlun sem sérsvío.
Tími og staður: 22.-23. maí 1985 kl. 9-17 báða
dagana í Kristalssal Hótels Loftleiða.
TIIKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU
í SÍMA 82930
ASTJÓRNUNARFÉLAG
ÍSLANDS HSVS'ío”