Morgunblaðið - 24.05.1985, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1986
— íbúð óskast —
— Leiga —
Ung kona meö 9 ára dóttur óskar eftir aö taka á leigu
snyrtilega og fallega 3ja-4ra herbergja íbúö.
Reglusemi og mjög góð umgengni. Meömæli ef óskaö
er.
Vinsamlegast hringiö í síma 39713, 671873 eöa 83593
og leggið fyrir skiiaboö.
KVIK
ÖKONOME
barnableyjur eru gæöavara á lágu veröi.
Fást í næstu búö.
\
Að fara f geitarhús að leita sér ullar:
íslenski geitastofninn
sá þelmesti í V-Evrópu
— þelið verðmæt afurð, nefnt Kasmírull
GEITUM í geitastofninum íslenska, sem kominn er af geitum land-
námsmanna Islands, hefur fækkað verulega síðustu aratugina. Nú eru í
landinu 250—260 geitur dreifðar um allt land en talið að í byrjun aldar-
innar hafi verið nokkur þúsund geitur í landinu. Vegna sauðfjárveikivarna
fer ekki fram nein blöndun á milli héraða og er stofninn nú taiinn í
verulegri útrýmingarhættu vegna mikillar skyldleikaræktunar.
Ástæðan fyrir fækkun í geita-
stofninum er auðvitað sú að menn
hafa ekki séð sér hag í því að ala
geiturnar. Það hefur aðallega ver-
ið bændafólk af eldri kynslóðinni
sem hefur viljað halda þessu við
en áhugi yngra fólksins hefur ver-
ið minni. Geiturnar eru fallegar
skepnur og hafa sjálfsagt lifað á
því en geitabændur hafa þó getað
haft ýmisleg not af geitunum, m.a.
býr bóndi einn á Hólsfjöllum til
geitaosta. Búnaðarfélag íslands
ber ábyrgð á viðhaldi stofnsins og
greiðir bændum framlag á hverja
vetrarfóðraða geit.
A5 fara í geitarhús
að leita sér ullar
Ekki hefur geitaullin þótt mikið
búsílag hér á árum áður eins og
orðtakið að „fara í geitarhús að
leita sér ullar", sem notað er í
niðrandi merkingu um leit ein-
hvers, þar sem víst er, að það
verður ekki fundið. í vetur upp-
götvaðist merkilegur hlutur sem
brýtur að nokkru í bága við orð-
takið gamla. Dr. Stefán Aðal-
steinsson deildarstjóri búfjár-
deildar Rannsóknastofnunar land-
búnaðarins hóf rannsóknir á ull
íslenskra geita og kom þá í ljós að
geiturnar eru þær þelmestu í
Vestur-Evrópu og þó víðar væri
leitað en þelið er eftirsótt afurð og
er nefnd Kasmírull.
RALA hefur að iáni um hálfan
annan tug geita sem Karl Friðrik
Kristjánsson forstjóri Jltímu í
Reykjavík á. Eru þær hafðar í
Þormóðsdal í Mosfellssveit.
Reyndar er þessi tilraunastarf-
semi í óvissu sem stendur því búið
í Þormóðsdal verður iagt niður í
sumar og ekki vitað hvað þá verð-
ur um geiturnar. í vetur tók Stef-
án hársýni af nokkrum geitum (
Þormóðsdal og lét reikna út fyrir
sig í Skotlandi hvað hver geit gæfi
af þeli á ári. Kom í ljós að hver
geit gefur að meðaltali 268 grömm
af þeli en það er meira en tvöfalt
það sem Skotar fá af sínum geit-
um.
Kasmírull verðmæt
afurð
Geitaþelið er kennt við héraðið
Kasmír norðarlega á Indlandi. í
bessu héraði voru framleidd afar
falleg sjöl úr geitaull, sem heims-
Stefán Aðaisteinsson <embir þel af
huðnu með tijálp lóns Tr. Stein-
grímssonar, aðstoðarsérfræðings á
RALA. Morgunbladið/Bjarni
íslensku geiturnar gefa mikið j»el,
en þelið er verðmæt tfurð. kallað
Kasmírull.
ALLTAF A LAUGARDÖGUM
* rcpiw
mMmá WWwHlh
Aö iífga uppá eyöimörk
steinsteypunnar
Samtal viö Gunnstein Gíslason mynd-
listarmann um múrristu.
Dauöinn í Jerúsaiem
Saga eftir William Trevor í þýöingu
Jóns Viöars Jónssonar.
Mikiö leiöast mér
þessar kvikmyndir
Grein um spænska kvikmyndaleikstjór-
ann Carlos Saura í tilefni kvikmynda-
hátíöar.
Borgaraleg hugmynda-
fræöi í Reykjavík
Um spíritisma á íslandi í Ijósi félags-
fræöinnar. Eftir Pótur Pótursson.
Síöari hluti.
Vönduð og menningarleg helgarlesning
Kór Langholtskirkju, Jón Stefánsson stjórnandi við orgelið.
l^angholtskórinn í söngferðaiag til þnggja landæ
Syngur Þorlákstíðir í Markúsarkirkjunni
ÞANN 15. júní nk. munu Þorlákstíð-
tr norðan tf íslandi óma <im hvelf-
ingar hinnar irægu kirkju heilags
Markúsar í Feneyjum par sem hver
tónn iifir í átta sekúndur. Það er kór
Langholtskirkju undir stjórn Jóns
Stefánssonar sem verður pess heið-
urs aðnjótandi að syngja við guðs-
pjónustu í Vfarkúsarkirkjunni og
daginn eftir í sjálfri dómkirkjunni í
Flórens.
Kór Langholtskirkju leggur af
stað í umfangsmikla tónleikaferð
til þriggja Evrópulanda 1. júní nk.
Tilgangur ferðarinnar er sá m.a.
að kynna íslenska kórtónlist,
gamla og nýja, og gefa sýnishorn
af öflugri kórmenningu íslend-
inga.
Fyrsti áfangastaður kórsins
verður Vínarborg en þar syngur
hann í Karlskirkjunni og austur-
ríska útvarpið tekur upp þátt með
söng kórsins. Kórinn tekur einnig
þátt í kórahátíð í Pernitz þar sem
hann verður heiðursgestur.
Gestgjafar kórsins í Austurríki
eru þeir Werner Schulze og Helm-
ut Neuman sem báðir eru tónskáld
og íslenskum tónlistarmönnum að
góðu kunnir. Kórinn frumflytur
verk eftir þann síðarnefnda. Frú
doktor Cornelia Schubrig, konsúll
íslands í Austurríki, hefur aðsetur
í Krems á bökkum Dónár. Þar
heldur kórinn tónleika í boði
hennar. Konsúllinn og iandstjór-
inn í Salzburg bjóða kórnum einn-
ig að haida tónleika þar í borg.
Frá Austurríki liggur leiðin til
Munchen í Vestur-Þýskalandi. Þar
syngur kórinn á sal tónlistarhá-
skóians fyrir atbeina dr. Franz
Mixa. Þriðja og síðasta landið sem
kór Langholtskirkju heimsækir að
þessu sinni er Ítalía. Menningar-
ráð Feneyja bauð kórnum fyrir
milligöngu sendiráðsins í Osló, að
taka þátt í alþjóðlegri kórahátíð i
kirkjunni Santa Stae, sem er
víðfræg fyrir afburða hljómburð.
í Markúsarkirkjunni í Feneyj-
um og Dómkirkjunni í Flórens
syngur kórinn fasta og breytilega
messuliði við hámessu, einu sinni í
hvorri kirkju. Kór Langholts-
kirkju mun vera fyrstur íslenskra
kóra, svo vitað sé, tii að aðstoða
við guðsþjónustu í þessum hákaþ-
ólsku kirkjum. Séra Sigurður
Haukur Guðjónsson telur þetta
merkisviðburð og hugsanlega lítið
skref í þá átt að brúa bilið milli
iveggja kirkjudeilda.
Arið 1984 staðfesti Jóhannes
Páll páfi 2. að Þorlákur helgi væri
tekinn í dýrlingatölu. í tilefni þess
syngur kórinn hluta úr Þorlákstíð-
um við ofangreindar messur.
Seinustu opinberu tónleikar
kórsins á Ítalíu verða í San Lor-
enzo-kirkjunni í Fiórenz.
í fjarveru sóknarprests og kórs
mun séra Pétur Maack messa í
Langholtskirkju í júní. Ljóðakór-
inn og Kristín Ögmundsdóttir
organisti sjá um flutning tónlist-
ar. En miðvikudagskvöldið 29. maí
verða lokatónleikar vetrarstarfs
kórs Langholtskirkju. Þar gefst
tónleikagestum kostur á að heyra
hluta af þeirri dagskrá sem flutt
verður erlendis. Tónleikarnir hefj-
ast kl. 21.00 í Langholtskirkju og
aðgöngumiðar fást við inngang-
inn.