Morgunblaðið - 29.05.1985, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1985
Hugsanleg sameining BÚR og ísbjarnarins:
Vel tekið í hugmyndir
borgarstjóra um viðræður
BUIST er við að næstu daga hefjist
viðræður á mílli Bæjarútgerðar
Reykjavíkur og ísbjarnarins til
könnunar á möguleikum á hag-
kvæmni sameiningar eða samruna
lyrirtækjanna sem Davíð Oddsson,
borgarstjóri, hefur haft frumkvæðið
að, og sagt var frá í Morgunblaöinu
sl. sunnudag. Forráðamenn fyrir-
tækjanna hafa tekið vel í hugmyndir
borgarstjóra.
„Við munum að sjálfsögðu
ganga til þessa leiks með jákvæðu
hugarfari, en ekkert er þó hægt að
fullyrða um hver niðurstaðan
verður," sagði Jón Ingvarsson,
framkvæmdastjóri hjá Isbirnin-
um hf. þegar álits hans var leitað.
Hann sagði að mikill samdráttur
hefði verið í sjávarútvegi í
Reykjavík á undanförnum árum.
Nú bærist til dæmis um helmingi
minna hráefni til vinnslu en 1982.
„Menn hafa af þessu áhyggjur og
telja skynsamlegast að bregðast
við með því að skoða hvað hægt sé
að gera til að stöðva þessa þróun
og helst að snúa henni við,“ sagði
Jón. Hann vildi hinsvegar ekki spá
neinu um til hvers fyrirhugaðar
könnunarviðræður munu leiða.
Davíð Oddsson borgarstjóri hef-
ur kynnt borgarfulltrúum hug-
myndir sínar að viðræðum þess-
ara tveggja stærstu sjávarút-
vegsfyrirtækja í Reykjavík. Málið
hefur þó ekki enn verið tekið fyrir
í útgerðarráði og borgarráði.
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri
Bæjarútgerðarinnar, sagði að ver-
ið væri að undirbúa viðræður
forráðamanna fyrirtækjanna og
bjóst við að þær hæfust næstu
daga. Hann bjóst við að gengið
yrði rösklega til verks þannig að
niðurstöður fáist sem fyrst, eins
og borgarstjóri hefur óskað eftir.
MorgunblaðiJ/ Ragnar Axelsson
Fegurðardrottnng íslands 1985, Halla Bryndís Jónsdóttir.
Skrítin tilfinning
að geta slappað af
— segir nýkjörin fegurðardrottning
íslands ’85, Halla Bryndis Jónsdóttir
Barðastrandarsýsla:
Rafmagnsstaurar brotn-
uðu vegna mikillar ísingar
SGINNI hluta dags í gær gekk hér í
norðaustan stórviðri með samfelldri
krapahríð eða snjókomu. fsing
myndaðist einkum í innsveit Reyk-
hólasveitar, Geiradal og í Gilsfirði.
Yfir tuttugu staurar brotnuðu og um
100 staurar skemmdust að auki og
þarfnast viðgerðar.
Samkvæmt upplýsingum mun
taka um fimm daga að koma raf-
magni á í Reykhóla- og Gufudals-
sveit. Vonandi kemst rafmagnið
fljótlega á í Króksfjarðarnesi.
Rafmagn er á Reykhólum og
næsta nágrenni og mun verða
reynt að tengja fleiri bæi við þá
rafstöð eins fljótt og hægt er.
Einnig lögðust girðingar á hlið-
ina og staurar brotnuðu. Margir
áttu í erfiðleikum með lambfé sitt
ítalinn í gæzlu:
*
Ottast að vera
með AIDS
ÍTALSKI maðurinn, sem situr í
gæzluvarðhaldi vegna tilraunar til að
smygla kókaíni til landsins, kveðst
óttast að vera með ónæmisvisnun
eða alnæmi (AIDS), samkvæmt upp-
lýsingum Fíkniefnadeildar lögregl-
unnar í Reykjavík. Blóðsýni hafa
verið tekin úr manninum, en niður-
stöður liggja ekki fyrir. Embætti
landlæknis vildi ekkert segja um
málið.
og voru menn framundir morgun
að ná því í hús. Ekki hefur frést af
fjárskaða í veðrmu.
Nú er aftur komin sól og sumar
og hitinn kominn i niu stig og ætti
því ekki að þurfa að brjóta ísing-,
una af raflínunni.
— Sveinn
„SATT AÐ segja fannst mér undarlegt að vakna í morgun og þurfa ekki
að fara á æfingu fyrir keppnina — það vantaði eiginlega, enda hefur
þetta verið nokkuð stíf törn undanfarna tvo mánuði. Það var skrítið að
geta bara slappað af,“ sagði Halla Bryndís Jónsdóttir, nýkjörin fegurð-
ardrottning Islands 1985, í stuttu spjalli við Morgunblaöið í gær. Hún
var kosin og krýnd á mikilli hátíð í veitingahúsinu Broadway á mánu-
dagskvöldið, valin úr hópi þrettán föngulegra meyja.
„Ég átti alls ekkert frekar von samt. Ég tek líklega þátt í tveim-
á því að sigra í keppninni," sagði
Halla Bryndís. „Mér fannst við
vera mjög jafnar og allar eiga
möguleika en auðvitað var ég
mjög ánægð með að verða sú
heppna. Þetta er mjög gaman —
ég svaf liklega ekki nema þrjá
tíma i nótt, var lengi að sofna og
fljót að vakna aftur því þetta var
svo mikill æsingur og spenning-
ur.“
Nýja fegurðardrottningin er
tvítug, fædd 12. september 1964,
næst yngst fimm barna þeirra
Jóns Bjarnasonar og Hildar
Maríu Einarsdóttur. „Systkini
mín og foreldrar eru mjög já-
kvæð og standa með mér í þessu
í einu og öllu,“ sagði Halla. „Það
veitir enda ekki af að fá góðan
stuðning, því ég ímynda mér að
næsta ár verði nokkuð anna-
ur alþjóðlegum fegurðarsam-
keppnum, Miss Universe og Miss
World. Hvenær það verður veit
ég ekki nákvæmlega en fyrri
keppnin verður haldin í nóvem-
ber.“
Hún sagði að krýningarkvöld-
ið yrði sér ógleymanlegt. „Þetta
var mjög skemmtilegt kvöld,“
sagði hún. „Eftirminnilegast er
augnablikið þegar úrslitin voru
tilkynnt — annars var þetta allt
alveg yndislegt. Ég hefði helst
viljað sjá Rod Stewart meira, við
misstum af að sjá hann syngja
raeð Björgvin Halldórssyni því
við vorum mest undir sviðinu á
milli þess sem við komum fram.
Ég rétt sá honum bregða fyrir
þegar hann kyssti mig á kinn-
ina.“
Vil semja við stjórnarand-
stöðuna á ákveðnum grunni
— segir Þorsteinn Pálsson um fjáröflun til Byggingarsjóðs
„RÍKISSTJÓRNIN hafði ekki ráðgert að Byggingarsjóður ríkisins hefði
fjármagn til nýrra útlána á þessu ári. Hún hafði ekki heldur gert ráð fyrir því
að fjár yrði afiað til greiðslujöfnunar aftur í tímann. Þetta kom í Ijós þegar
lánsfjárlög komu til meðferðar í fjárhags- og viðskiptanefnd neðrí deildar
Alþingis. Eg gat ekki sætt mig við þessa niðurstöðu, og gerði þess vegna
tillögu um það í þingflokki Sjálfstæðisflokksins að þessar ákvarðanir yrðu
teknar upp,“ sagði Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, er hann var spurður út í þær fjáröflunarleiðir
vegna húsnæðislánakerfisins, sem nú eru í undirbúningi og kynntar eru á
baksíðu blaðsins í dag.
fundi sem við áttum með full-
trúum stjórnarandstöðunnar í síð-
ustu viku, varð það að samkomu-
lagi að ræða ekki efnisatriði við-
ræðnanna fyrr en tillögur væru
komnar fram frá báðum aðilum.
Ég mun standa við það samkomu-
lag fyrir mitt leyti, en aðrir verða
að eiga það við sig, hversu vandir
þeir vilja vera að virðingu sinni.“
Þorsteinn sagði að þessi tillaga
hans hefði gert ráð fyrir að fjár
yrði aflað hér innanlands, sem
gerði Byggingarsjóðnum ný útlán
kleif á þessu ári. Þingflokkur
sjálfstæðismanna hefði fallist á
þessa tillögu hans. Þorsteinn sagði
að þegar stjórnarandstaðan hefði
lýst því yfir að hún væri reiðubúin
til viðræðna um tekjuöflun til
húsnæðismála, hefði sér þótt rétt
að gengið yrði til slíkra viðræðna,
sem hefði síðan orðið niðurstaða
stjórnarflokkanna að gera.
„í síðustu viku fékk ég umboð til
að semja við stjórnarandstöðu-
flokkana, á ákveðnum grundvelli,
sem ég gerði þingflokknum grein
fyrir," sagði Þorsteinn, „og fyrir
helgi gerðum við Framsóknar-
flokknum grein fyrir á hvaða
grundvelli við teldum að leysa
ætti þessi mál. Þeir höfðu síðan
þessar hugmyndir okkar til athug-
unar nú yfir helgina, og féllust
síðan á þær á þingflokksfundi sin-
um í dag.“
Þorsteinn sagði jafnframt: „Á
Skemmdi bíl
í afbrýðiskasti
í AFBRÝÐISKASTI stórskemmdi 24 Vissi enginn fyrr en skömmu síð-
ára ölvaður maður bifreið vinar fyrr-
verandi unnustu sinnar aðfaranótt
sunnudagsins. Bifreiðin stóð inn við
Sund. Maðurinn sparkaði í bifreið-
ina, dældaði og braut fiestar rúður
hennar. Þegar lögreglunni var til-
kynnt um atburðinn fiúði maðurinn
af vettvangi og fannst ekki þrátt fyrir
leit.
ar, að maðurinn kom fljúgandi inn
um stofuglugga í íbúð unnustu
sinnar fyrrverandi, sleit í sundur
afitaug í vinstri hendi og skarst
tðluvert. Lögreglan kom skömmu
síðar á vettvang og flutti manninn
í slysadeild þar sem gert var að
sárum hans og hann síðan vistaður
í fangageymslum lögreglunnar.