Morgunblaðið - 29.05.1985, Qupperneq 35
Egilsstaðir:
MORGUNBLAÐID, MIDVIKUDAGUR 29. MAÍ 1,985
35
Opnun Iðnsýningar
Austurlands ’85
EgilsHtödum, 25. maí.
IÐNSÝNING Austurlands ’85 var
opnuð í dag við hátíðlega athöfn í
íþróttahúsinu hér á Egilsstöðum.
Þar sýna og kynna um 70 fyrirtaeki í
þjónustu- og framleiðsluiðnaði á
Austurlandi starfsemi sína.
Sverrir Hermannsson, iðnaðar-
ráðherra, opnaði iðnsýninguna
með stuttu ávarpi. 1 ávarpi sínu
rakti ráðherra þróun atvinnumála
hér á landi og lagði áherslu á að
við héldum vöku okkar á örfleygri
öld tæknivæðingar og nýjunga
hvers konar. „Mig dreymir um það
að við finnum atvinnufæri, iðnað-
arfæri, á öðrum löndum — eins og
í Vesturálfu — á leið hráefnisins
til markaðarins í Evrópu — þar
sem við eigum tollabandalag; að
við finnum viðráðanleg fyrirtæki
fyrir landsbyggðina, 40—100
manna fyrirtæki — þar sem við
getum stundað nýtískuiðnað með
nýtískutækni — og komið þeim
fyrir hringinn í kringum landið —
af því sem margt af þessum iðnaði
kallar ekki á dýra flutninga,” —
sagði ráðherra m.a. „Það er tím-
anna tákn að austfirskir iðnað-
armenn taki höndum saman og
sýni mönnum mátt sinn og megin
eins og þeir gera á þessari fallegu
sýningu. — Ég óska fyrirsvars-
mönnum þessarar sýningar til
hamingju með þetta fallega verk.
Þessi verk lofa meistara sína,“
sagði iðnaðarráðherra um leið og
hann lýsti opnun Iðnsýningar
Austurlands ’85.
Fjöimenni var á iðnsýningunni í
dag þrátt fyrir leiðindaveður og
ófærð á fjallvegum vegna snjóa.
Kór frá Fáskrúðsfirði söng og
Lúðrasveit Tónskóla Fljótsdals-
héraðs lék.
Iðnsýning Austurlands '85 hefur
lengi verið í undirbúningi — en
Iðnþróunarfélag Austurlands
gekkst fyrir sýningunni og skipaði
sérstaka sýningarnefnd til skipu-
lags- og undirbúningsstarfa. í
henni eiga sæti: Orri Hrafnkels-
son, framkvæmdastjóri Trésmiðju
Fljótsdalshéraðs; Guðmundur
Benediktsson, frkamvæmdastjóri.
Prjónastofunnar Dyngju, og Björn
Kristleifsson, arkitekt. Starfs-
maður nefndarinnar hefur verið
Bergsteinn Gunnarsson, iðnráð-
gjafi Austurlands.
Framkvæmd Iðnsýningar Aust-
urlands ’85 virðist hafa tekist með
ágætum og raunar ótrúlega vel
þegar til heildarinnar er litið og
„lofar meistara sína“ — eins og
iðnaðarráðherra komst að orði við
opnunina í dag.
Bergsteinn Gunnarsson býður gesti
velkomna.
Sverrir Hermannsson, iðnaðarráð-
herra, opnar iðnsýninguna.
Orri Hrafnkelsson afhendir iðnaðarráðherra áletraðan tréskjöld til minn-
ingar um iðnsýninguna.
Sýningin ber með sér að fyrir-
tækjum í þjónustuiðnaði hvers
konar vex óðfluga ásmegin hér í
fjórðungi og framleiðslufyrirtæk-
in koma sjálfsagt mörgum sýn-
ingargestinum á óvart, t.d. mat-
vælaiðnaðurinn sem hér virðist
dafna og aukast ár frá ári. Þá vek-
ur fjölbreytni og nýjungar iðnað-
arframleiðslunnar ekki siður at-
hygli sýningargesta. Á sýningunni
gefur ekki einungis að lita hefð-
bundna iðnaðarframleiðslu heldur
einnig mjög sérhæfða auk listiðn-
aðar.
Sýningin verður opin fram á
mánudag og opnar síðan aftur
föstudaginn 31. maí og verður þá
opin til 2. júní. Ýmislegt er til
gamans gert sýningardagana, t.d.
verður sýningin opnuð á föstudag
með lúðraþyt Lúðrasveitar Nes-
kaupstaðar og síðar þann dag
flytja nemendur 9. bekkjar
Grunnskóla Reyðarfjarðar leik-
þátt. Á laugardaginn verður fund-
ur um iðnaðarmál fjórðungsins og
Björgunarsveitin Gró sýnir björg-
unarstörf. Síðasta opnunardag
iðnsýningarinnar kemur fram
leikhópur frá Egilsstöðum og har-
mónikkuunnendur af Héraði
munu þenja nikkur sínar.
Þá skal þess getið að Póstur og
Frá iðnsýningunni.
Frá iðnsýningunni.
Morgunblaðið/ólafur
Skólahljómsveit Tónskóla Fljótsdalshéraðs lék við opnunina.
sími er með sýningu sína „Sím-
tæki ’85“ á iðnsýningarsvæðinu.
Bergsteinn Gunnarsson gat þess
við opnunina í dag að sveitar-
stjórn Egilsstaðahrepps og rekstr-
arnefnd íþróttahússins hefðu
greitt götu sýningarinnar með
ýmsum hætti, t.d. hefði íþrótta-
húsið verið látið í té til sýningar-
innar endurgjaldslaust auk þess
sem sveitarstjórnin hefði styrkt
sýninguna á einn eða annan hátt,
beint og óbeint.
- Ólafur
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins:
Fiskverð hækkar
um 5 % frá 1. júní
Fulltrúi sjómanna á móti ákvörðuninni
YFIRNEFND Verðlagsráðs sjávarútvegsins ákvað á fundi sínum sl. laugar-
dag nýtt fiskverð er gilda skal frá 1. júní til 30. semptember. Ákvörðunin
felur í sér um 5% meðalhækkun frá núgildandi verði. V’erðið var ákveðið með
atkvæðum oddamanns, fulltrúa útgerðarmanna og annars fulltrúa fiskkaup-
enda, gegn atkvæði fulltrúa sjómanna en hinn fulltrúi fiskkaupenda sat hjá
við afgreiðsluna.
í frétt frá Verðlagsráðinu segir
að einstakar fisktegundir hækki i
verði sem hér segir. Verð á þorski
hækkar um 4%, verð á ýsu, ufsa,
karfa og grálúðu um 7% og verð á
öðrum fisktegundum um 5%,
nema steinbít sem breytist ekki.
Verðið var ákveðið með atkvæðum
Jóns Sigurðssonar, forstjóra Þjóð-
hagsstofnunar, sem var oddamað-
ur yfirnefndarinnar, Kristjáns
Ragnarssonar, fulltrúa útgerð-
irmanna, og Árna Benediktsson-
ar, annars fulltrúa fiskkaupenda.
Eyjólfur Isfeld Eyjólfsson, hinn
fulltrúi fiskkaupenda, greiddi ekki
atkvæði.
óskar Vigfússon, fulltrúi sjó-
manna, greiddi atkvæði gegn
ákvörðuninni. Lét hann bóka mót-
mæli sín gegn ákvörðuninni. Þar
greinir hann frá því að haldnir
hafi verið þrír fundir í yfirnefnd-
inni á einni viku og að hann hafi á
öðrum fundi nefndarinnar óskað
eftir því að verðlagningu yrði
frestað um eina viku til að
forystumönnum sjómanna gæfist
kostur á því að meta stöðuna með
tilliti til breyttra aðstæðna varð-
andi þróun launamála almennt í
þjóðfélaginu. En því hafi ekki ver-
ið sinnt af hálfu meirihluta yfir-
nefndarinnar. „Tel ég að þar með
hafi meirihlutinn sýnt af sér yfir-
gang, sem ég tel að samrýmist
ekki lögunum um Verðlagsráð
sjávarútvegsins, þar sem ráðinu er
gert skylt að taka tillit til al-
mennrar launaþróunar í landinu.
Sú verðhækkun, sem nú hefur ver-
ið ákveðin er í engu samræmi við
þær launahækkanir, sem fyrir-
sjáanlegar eru á næstu mánuð-
um,“ segir í bókun óskars Vig-
fússonar.