Morgunblaðið - 29.05.1985, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐID, MIDVIKUDAGUR 29. MAl 1985
55
Úr fundargerö bæjarstjórnar Sel-
foss haldin 14. marz 1984
Tillaga:
„Bæjarstjórn Selfoss samþykkir
að beiðni stjórnar veitustofnana
að fresta staðfestingu skipurits.
Þá samþykkir BS að fela bæjar-
stjóra og veitustjóra að semja til-
lögu að einni samræmdri reglu-
gerð fyrir veitustofnanir bæjar-
ins, sem tekin yrði til umfjöllunar
af hlutaðeigandi aðilum."
Tillagan borin upp og hún samþ.
samhljóða.
Ekki lá undirritaður á liði sínu
við tillögugerð að nýjum reglu-
gerðum og var tillaga hans lögð
fram og rædd á fundi með bæjar-
stjóra.
Síðan hefir ekkert gerst nema
að skipuritið var samþykkt í bæj-
arstjórn 14. nóvember 1984.
Bókhald veitnanna
f fyrrnefndri frétt í Mbl. frá 14.
maí sl. segir bæjarstjóri:
„Ég hefi til dæmis ekki fengið
að fylgjast með rekstri veitnanna
og því kom mjög á óvart í siðustu
viku, þegar upplýst var á bæjar-
stjórnarfundi, að bókhald fyrir-
tækisins fyrir allt síðastliðið ár er
enn óuppfært."
Undirritaður er mjög undrandi
á þessum ummælum bæjarstjóra
þar sem bæjarstjóri situr flestalla
fundi stjórnar veitustofnana og
tölvuvæðing sú sem er að fara
fram á fjárhagsbókhaldi veitn-
anna og hefur staðið nokkuð lengi
yfir er framkvæmd í fullu samráði
við bæjarstjóra, endurskoðanda
bæjarins og með skriflegu sam-
þykki bæjarstjórnar.
Til þess verks var fengin endur-
skoðunarskrifstofan Endurskoðun
hf. og stýrir Halldór Hróar Sig-
urðsson, löggiltur endurskoðandi,
verkinu.
Reikningslyklar eru unnir í
samræmi við staðlað kerfi Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga
hvað varðar tegundagreiningu
tekna og gjalda. Deildaskipting er
unnin með hliðsjón af drögum að
samræmdum reikningslykli fyrir
veitustofnanir sveitarfélaga sem
Halldór vinnur nú að.
Um önnur skrif í blöðum svo
sem í DV 14. og 15. maí mun und-
irritaður ekki reyna að svara á
þessum vettvangi. En bendi á að
öllum bæjarfulltrúum ber að fara
eftir settum siðareglum sem eru:
III. kafli Réttindi og skyldur bæj-
arfulltrúa.
20. gr. 4. málsgrein:
Bæjarfulltrúum er skylt að
koma prúðmannlega fram á bæj-
arstjórnarfundum og gæta þagn-
arskyldu um einkamál og hagi ein-
staklinga og félaga, sem þeir
kynnu að fá vitneskju um sem
bæjarfulltrúar. Þá er þeim og
skylt að gæta hagsmuna og vel-
ferðar bæjarins út á við, sem inn á
við eftir sinni bestu getu og vinna
og stuðla að friðsamlegri lausn
deilumála.
En láta ekki Gróu á Leiti stýra
bæjarmálefnum gegnum fjölmiðla
landsins.
Jón Örn Arnarson er veitustjóri i
Seifossi.
Trooper-
jeppinn
árgerð ’86
kominn
ÞRÁTT fyrir að enn sé maímánuöur
eru árgeröir 1986 af bílum komnar á
markaðinn.
Hingað til lands er komin
1986-árgerðin af Izusu Trooper.
Útlitið er það sama og á fyrri
gerðum en bíllinn er með kraft-
meiri vél, 5 gíra skiptingu í stað
fjögurra áður og ýmsar aðrar
endurbætur hafa verið gerðar á
bílnum. Bílvangur við Höfðabakka
hefur umboð fyrir bílinn.
Eskifjörður:
Lúsafaraldur leik-
ur barrtrén grátt
Eskifirói, 23. maí.
BARRTRÉ hér á Eskifirði hafa fariö illa út úr lúsafaraldri þeim sem herjaö
hefur hér á Austur- og Norðurlandi síöan í haust Þaö fór aö bera á því á
seinasta ári aö barrið á trjánum varö brúnt og innan nokkurra mánaöa féll
það aö mestu leyti af og standa trén flest ber eftir.
Lúsin þolir mikið frost og vann
sitt verk vel í góðviðrinu í vetur.
Sárnaði mörgum garðeigendum að
horfa á tré sín, sem mörg eru 15 til
20 metra há, sem sviðin eftir eld.
Menn veigra sér við því að höggva
trén, því fróðir trjáræktarmenn
segi að þau nái sér sennilega aftur
og vara menn við þvf að fella þau.
Sitkalús heitir bölvaldurinn víst
og vita menn ekki hvernig stendur
á því, að hún herjar svo á tré nú.
Væri gott ef fróðir menn létu í sér
heyra og gæfu mönnum góð ráð
um hvernig bjarga megi trjánum,
sem eru mörg hin mesta bæjar-
prýði þegar þau eru í eðlilegu
ástandi.
Ævar
Viljirðu vera áhyggjulaus um sparifé þitt í 18
mánuði eða lengur, þá er Sparireikningur
okkar. . .
>5>/)f
inj^i^Sparfi-eilimnlur er með
sem bankinn bvðun
hæstu
mai __
a^pxtun sem bankinn býðui
Sparifé á 18 mánaða Sparireikningum nýtur
llrar verðtryggingar og eru vaxtakjör borin
csaman við kjör 6 mánaða verðtryggðra reikn-
inga. Sé ávöxtun þeirra hærri,hækkar ávöxtun
18 mánaða reikninga sem nemur mismuninum.
Vextir eru færðir tvisvar á ári og eru lausir
til útborgunar eftir færslu.
Að lokinni 18 mánaða bindingu er innborgun
ávallt laus til útborgunar, en heldur engu að
síðurhæstu ávöxtun.
Vextir eru nú 35% (maí ’85) og ávöxtun
ársins’85 því 38,9% (vextir + vaxtavextir).
BUNAÐARBANKINN
TRAUSTUR BANKI