Morgunblaðið - 29.05.1985, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐID, MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1985
>
J
mot8un’
pé* (a&aVinu8anéUr)
áHótelSo«u^
Lbúna
OUi- 4 Vricsson
5 Ne«enfia®Wo^'*l'f
D Tengmgw „istonar
“0ííss»s*"“
1Ja4aí»»na- .
ss-. „ „
KvnnV^ et tta
ígSmmM
Hó'tna^íÍLÍ—--
spænis því mynd af kempulegum
manni, festulegum á svip, fyrrum
forsætisráðherra Hermanni Jón-
assyni, klippta úr dagblaði.
Einbúinn í Hagakoti hefur ekki
látið berast með vafasömum
straumum tímans mörgum hverj-
um heldur lifir sinu lífi án hæða
og lægða og hjá honum er hver
dagurinn öðrum líkur. Ég hygg að
aldrei hafi hvarflað að honum að
fara burt úr dalnum sínum sem
hann hefur löngu tekið ástfóstri
við og þar er það fólk búandi sem
hann hefur umgengist mest, ná-
grannar og vinir. Við öll árnum
þér heilla. Lifðu hress og hraustur
á komandi árum.
Sr. Baldur Vilhelmsson.
Afmæliskveðja:
Jón Elías Þórðar-
son Hagakoti áttræður
Þegar ekinn er vegurinn úr ögri
áleiðis í Vatnsfjörð blasir við í
mynni Laugardalsins jörðin
Hagakot með húsi sínu, báru-
járnsslegnu í þeim stíl er tíðkaðist
fyrir áratugum. Fer vel í umhverf-
inu, stendur á hóli í túni með
hamra að baki, býður af sér góðan
þokka, reykur liðast úr strompi út
í vornóttina eða haustið. Hlýlegt
ból til að sjá og mundu frændur
okkar við Eyrarsund kalla að vel
færi slíkt á málverki.
Norræna húsið:
Fyrirlestrar
um útvarpsmál
— fluttir af Ronald Ma-
son leiklistarstjóra BBC
RONALD Mason, leiklistarstjóri
breska ríkisútvarpsins, BBC flytur
tvo fyrirlestra t Norræna húsinu í
vikunni f boði íslenska Ríkisút-
varpsins. Verður sá fyrri á fimmtu-
daginn og fjallar um starfsemi leik-
listardeildar BBC og sá seinni verð-
ur á föstudaginn og fjallar um
bresk útvarpsmál, samkeppni BBC
og einkastöðva og stöðu BBC nú.
Fyrirlestrarnir hefjast klukkan
20.30 og er öllum heimill aðgangur.
Og einmitt nú á þessu góða vori
telur íbúi hússins út af stunda-
glasinu sitt áttugasta ár sinnar
hérvistar, þann 28. maí, annan dag
hvítasunnu. Vil ég með þessum
fáu orðum er hér fara, flytja hon-
um óskir okkar hér í Vatnsfirði
um alla hluti góða og árna honum
heilla í tilefni dagsins.
Jón Elías kom ungur í Hagakot
og hefur verið þar síðan. Fyrst hjá
Halldóri og Þorbjörgu er þar
bjuggu og síðan einn eftir að þau
höfðu safnast til feðra sinna. Að
honum standa kunnir ættastofnar
dugnaðarfólks, og er hann kominn
af Gísla ríka Sigurðssyni í Bæ á
Selströnd, en Gísli hét sonur hans
er átti Jón fyrir son föður Sólveig-
ar móður hans. Faðir hans var
Þórður Grunnvíkingur, er svo
kallaði sig, sonur Þórðar í Hatt-
ardal er þingmaður var ísfirðinga
uppúr 1880, Magnússonar prests á
Hrafnseyri Þórðarsonar. Fæddur
er Jón á Hlöðum, býli er var í
landi Munaðarness norður frá og
foreldrar hans byggðu upp.
Mörgum sinnum hef ég komið í
Hagakot að sitja smástund hjá
Jóni og rabba við hann. Allt er
snyrtilegt þar innra og húsbónd-
inn jafnan glaður og reifur. Stofa
hans er hlýleg og margt bóka þar
á veggjum og borði, en einna
merkilegast er að sjá hið gamla
símatæki á panelþiljunni og and-
Tuttugu og sex á stofn-
fundi félags um rekstur
Þörungavinnslunnar
UM HELGINA var haldinn stofnfundur félags með rekstur Þörungavinnslunn-
ar á Reykbólum í huga. Samkvæmt upplýsingum frá Kristjáni Þór Kristjáns-
syni forstjóra voru mættir 26 menn á fundinn og voru flestir starfsmenn
Þörungavinnslunnar. Ætlad er að safna 7,5 milljónum króna í hlutafé og
söfnuðust í gær 4,6 milljónir. Þar af voru 2 milljónir frá Reykhólahreppi.
Kristján sagði að hann hefði vonast eftir fleirum og betri þátttöku og til dæmis
hefði enginn verið frá þangsláttumönnum og landeigendum, en þeir ættu
verulegra hagsmuna að gæU. Hins vegarmá þess geU að á fundartíma var
komið hið versU veður og bændur í óða önn að bjarga lambfé í hús.
Kosin var þriggja manna bráða- Áframhaldandi söfnun hlutafjár-
birgðastjórn. I henni eru Kristján loforða. 3. Boða til framhalds-
Þór Kristjánsson, Ingi Garðar Sig- stofnfundar strax að loknum samn-
urðsson og Grímur Arnórsson. ingum um yfirtöku. 4. Leggja fram
Hlutaverk bráðabirgðastjórnar er drög að samþykktum fyrir félagið.
1. Að ganga frá samningi um yfir- 5. Leggja fram tillögur um
töku og rekstur Þörungavinnslunn- greiðslukjör hlutafjár.
ar hf. til samþykktar á aðalfundi. 2. Sveinn.
Ahugamenn
um hönnun
stofna félag
FIMMTUDAGINN 30. maí nk.
verður stofnfundur Félags áhuga-
manna um hönnun haldinn á Hall-
veigarstíg 1 í Reykjavík og hefst kl
20.00.
Félaginu er ætlað það hlutverk
að glæða skilning almennings og
iðnfyrirtækja á hönnun og mikil-
vægi þróunar og rannsókna á því
sviði. Einnig er félaginu ætlað að
efla tengsl milli þeirra, sem fást
við hönnun og atvinnurekenda, er
nýtt gætu sér hönnunina.
Aðild að félaginu geta átt ein-
staklingar, félög, stofnanir og
fyrirtæki, sem fást við hönnun,
eða hafa á henni áhuga, segir í
frétt frá undirbúningsnefnd.
Á fundinum verða kynnt drög
að lögum félagsins og stjórn þess
kosin. Einnig verða almennar um-
ræður.
Setningu skákmótsins
í Eyjum frestað í gær
Vestmannaeyjum, 28. maí.
SIGURÐUR Jónsson forseti bæjar-
stjórnar setur fimmta alþjóðlega
skákmótið í Safnahúsinu í Vest-
mannaeyjum á morgun, miðvikudag.
Keppendur á mótinu eru alls 14
og komu þeir flestir hingað til
Eyja með Herjólfi í dag. Fyrirhug-
að var að setja mótið í dag, en því
varð að fresta vegna seinkunar á
komu erlendra keppenda. Dregið
var um töfluröð keppenda á
bryggjunni við komu Herjólfs.
Umferðir verða 13 og lýkur mót-
inu 11. júní.
Skákáhugamenn hér í Eyjum
búast við skemmtilegu móti og
telja mót þetta vera sterkt. Meðal
keppenda eru fjórir stórmeistarar
og fimm alþjóðlegir meistarar.
Stigahæsti keppandi mótsins er
Englendingurinn Nigel Chort með
2535 stig. Hann er yngsti stór-
meistari heimsins. Ánnar Eng-
lendingur, Jim Plaskett, keppir á
mótinu og svo þrír bandarískir
skákmenn. Þeirra þekktastur er
William Lombardy, en auk hans
tefla hér á mótinu þeir Anatoly
Lein og Jonathan Tisdall.
Flestir af sterkustu skák-
mönnum okkar íslendinga keppa á
mótinu, Jóhann Hjartarson, Helgi
ólafsson, Jón L. Árnason, Guð-
mundur Sigurjónsson, Yngvar
Ásmundsson, Karl Þorsteins,
Bragi Kristjánsson og Ásgeir Þ.
Árnason. Hér taldir í röð eftir
skákstigum. Fjórtándi keppand-
inn kemur síðan úr röðum heima-
manna í Vestmannaeyjum, lækn-
irinn Björn í. Karlsson, sem hér
teflir á sínu sterkasta móti.
Skákstjóri verður Guðmundur
Arnlaugsson, en Jóhann Þórir
Jónsson ritstjóri tímaritsins
Skákar hefur átt allan veg og
vanda varðandi undirbúning og
framkvæmd mótsins með dyggri
aðstoð nokkurra skákáhugamanna
úr Eyjum.
- hkj.
-
Jfl*r£imlilttt>ít>
Áskriftarsiniinn er 83033