Morgunblaðið - 29.05.1985, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1985
Gengið á söfn
í Glasgow
- eftir Valtý
Pétursson
Seinni hluti
Argyle, Sauchiehall Street og
Kelvingrove Park eru allt nöfn,
sem festust mér í minni strax við
fyrstu kynni af Glasgow. Einna
montnastur var ég lengi vel af
kynnum mínum við Kelvingrove
Park. Því að þar er eitt ágætt
listasafn til húsa. Við skulum að-
eins doka við og athuga það lítil-
lega.
I Kelvingrove-safninu sá ég í
fyrsta sinn málverk eftir Rem-
brandt. Það var maður í herklæð-
um; sjálfsmynd, sem fræg er um
allan heim. Enn er hún á sínum
stað, og enn má þar líta eitt af
merkilegustu verkum Giorgione.
Þarna eru einnig nokkur verk eftir
frönsku impressionistana. í fáum
orðum sagt eru þarna úrvals verk
og aðallega eftir eldri meistara.
Þá má sjá þama frábærar högg-
„Væri ég spurður, hvað
væri merkilegast af því,
sem fyrir augun bar í
þessari Glasgow-reisu,
væri ég ekki í neinum
vafa um að það væri
Burrel-safnið.“
myndir, og öllu er þessu komið
fyrir á allnútímalega vísu í tæp-
lega aldargamalli byggingu, sem
tekin var í notkun 1901. Þar eru
einnig til húsa fleiri söfn, svo sem
náttúrugripasafn o.fl., enda heitir
stofnunin Art Gallery and Museum.
Þetta er í sjálfu sér ekki sérlega
fögur bygging — margir turnar og
mónúmental inngangur, en í eina
tíð var þetta nútímabygging. Það
er þó nokkuð langt síðan, enda
veitti ekki af að skola af þessari
höll eins og gert var hér á árunum,
þegar De Gaulle lét þvo Parísar-
borg, en þá kom ýmislegt í ljós,
sem enginn hafði veitt athygli áð-
ur.
Ekki man ég gerla, hvernig
Kelvingrove-safninu var komið
fyrir, þegar ég sá það í fyrsta sinn
fyrir tæpum fimmtíu árum, en ég
held, að fullyrða megi, að margt
hafi verið gert til að færa safnið
og umhverfi þess í núverandi
mynd, þótt fullyrða megi, að hús-
næði af þessu tagi verði aldrei
breytt þannig, að það svari ströng-
ustu kröfum nútímans. En þarna
er merkilegt safn og vandað og vel
þess virði að eytt sé þar dagstund.
Eins og áður segir eru flest þeirra
málverka, sem þarna eru, frá fyrri
öldum, en skúlptúr er þarna frá
þessari öld, t.d. eftir Epstein,
Moore og Paolozzi. En nú skal ekki
me>ra upp talið.
Umhverfi safnsins er dásam-
legt, garðurinn stór og gróðursæll,
og áin Kelvin liðast í bugðum með-
fram skógivöxnum bökkum. Þarna
er friðsælt og gott að vera, og þeg-
ar maðurinn er orðinn úrvinda af
þreytu eftir að hafa þrammað um
söfnin, er tilvalið að setjast stund-
arkorn inn á Museum Bar beint á
móti safnahöllinni og taka mark á
þeim fleygu orðum, að „Guinness
is good for you“.
Sé gengið nokkurn spöl með-
fram Kelvingrove Park og upp á
hæð, sem stendur í hæfilegri fjar-
lægð, verður fyrir manni Glasg-
ow-háskóli; gamalt menntasetur í
virðulegri gotneskri byggingu,
sem andar frá sér sama blæ og
skyldar byggingar í Oxford og
Cambridge. A háskólalóðinni er að
finna enn eitt listasafnið í þessari
ágætu borg. Það ber nafnið Hunt-
erian Collection og er í nýbyggingu,
sem reist var yfir það sérstaklega.
Þarna er að finna meira af nú-
tímalist en í hinum söfnunum, en
samt er stofn safnsins nokkuð
gamall, og ágætt yfirlit um skozka
og enska list fyrri alda er þarna að
finna. Kjarni safnsins er þó
merkilegt sýnishorn af verkum
hins fræga orðháks og listmálara
James McNeill Whistler. Ekki veit
ég, hvað sá ágæti listamaður er
þekktur hérlendis, en hann á sér
bæði skemmtilega og undarlega
lífssögu, sem ekki verður rakin
hér, en væri gott efni í eina grein-
ina enn úr þessari reisu.
Whistler lét mikið af verkum
eftir sig, þegar hann lézt í hárri
elli, og sagt er, að hann hafi lagt
svo fyrir erfingja sinn (mágkonu
sína), að hún sæi til þess, að ekk-
ert af verkum sínum færi til
enskra safna, því að Englendingar
hefðu aldrei kunnað að meta þau
að verðleikum.
Whistler var gerður heiðurs-
doktor við Glasgow-háskóla rétt
fyrir andlátið, og þann virðingar-
vott kunni hann vel að meta. Því
varð það úr, að mágkona hans gaf
háskólanum allt það, sem hún
eignaðist eftir hans dag. Það eru
margar af frægustu myndum
meistarans og gríðarmikið safn af
postulíni frá austurlöndum. Nú er
þetta kjarni Hunterian-safnsins,
eins og áður getur.
f Hunterian er gott safn mál-
verka fyrri aida frá Bretlandseyj-
um og meginlandi Evróu, en þar er
einnig nokkuð af nútímaverkum,
og má þar nefna listaverk úr járni
eftir Caro og dyr úr málmi, sem
hinn frægi myndhöggvari Paolozzi
hefur gert sérstaklega fyrir bygg-
inguna, en Paolozzi er búsettur I
Edinborg og einn frægasti popp-
íslandsmót Grunnskólasveita:
Hvassaleitisskóli í fyrsta sæti
Skák
Karl Þorsteins
Það er allrar athygli vert hve
skáksveitir grunnskóla í nágrenni
Taflfélags Reykjavíkur á Grensás-
veginum hafa á undanförnum ár-
um verið betur í stakk búnar en
kollegar þeirra í öðrum hlutum
borgarinnar. Sveitir Álftamýrar-
skólans, Æfingadeildar KHÍ og nú
síðast Hvassaleitisskóla hafa hver
á sínum gullaldartíma skarað
langt fram úr sveitum annara
skóla. Svo ekki sé minnst á skóla I
nálægð hinna fornu höfuðbóla
knattspyrnudýrkenda í Vestur-
bænum, þar sem jafnvel reynist
erfiðleikum bundið að öngla sam-
an í sveit. Auðvitað má finna und-
antekningar, en nálægðin við
“Stóra bróður" á Grensásveginum
er augljós.
Hvað um það, þá hefur Reykja-
víkurmót grunnskólasveita verið
árviss viðburður í fjölda ára og
sigursveitinni boðist þátttaka á
Norðurlandamóti grunnskóla-
sveita. Það er auðvitað gott og gilt
ef ekki kæmi til að sveitir utan
þéttbýliskjarnans hafa ekki haft
tækifæri að etja kappi við “bæjar-
ins bestu“ skáksveitir hvað þá
hina norrænu jafnaldra. Ferða- og
uppihaldskostnaður sveita utan af
landi hefur auðvitað vaxið í aug-
um manna, en nú var ákveðið að
láta reyna á áhuga og velvild skóla
og taflfélaga á landsbyggðinni og
keppnisdagar ákveðnir hvíta-
sunnuhelgin nýliðna. Fyrirvarinn
var skammur en samt mættu 19
sveitir til leiks og tefldu 9. um-
ferðir eftir Mondrad-kerfi með 40.
mín. umhugsunartíma fyrir skák.
Keppnin var jöfn og skemmtileg,
en að lokum varð sveit Hvassaleit-
isskóla hlutskörpust og hlaut 28 V4
vinning af 36 mögulegum. Eftir
þrjár umferðir var a-sveit Fella-
skóla til alls líkleg og með forystu,
en sveitir Seljaskóla og Gagn-
fræðaskóla Akureyrar voru ekki
langt að baki. Mörg óvænt úrslit
höfðu séð dagsins ljós og m.a. var
sveit Hvassaleitisskóla neðar á
blaði eftir tap í fyrstu umferð. Þá
tóku sveita meðlimirnir hins veg-
ar á sig rögg og andstæðingar
þeirra í öllum umferðunum, sem
eftir voru, máttu lýsa sig sigraða,
oftast með stórum mun. Fellaskóli
varð m.a. gera sig ánægðan með ‘k
vinning gegn ákveðinni sveit
Hvassaleitisskóla og þegar ekkert
stórslys kom til í slðustu umferð-
unum komu þeir fyrstir í mark
eins og áður sagði. Þrátt fyrir
ungan aldur eru drengirnir flestir
þrautreyndir á skáksviðinu. Sveit-
ina skipuðu þeir: Þröstur Þór-
hallsson sem hlaut 8v. Tómas
Björnsson 9v. Héðinn Stein-
grímsson með 5v. og Magnús
Kristinsson 6'k v. Varamennirnir
þeir Hörður Agnarsson, Ármann
Halldórsson og Ingimundur J.
Bergsson fengu ekkert tækifæri til
að spreyta sig. Sveitin hlýtur nú
rétt til þátttöku á Norðurlanda-
móti grunnskólasveita á hausti
komanda. Þar hlýtur hún að vera
til alls líkleg, enda skipuðu þrír
meðlimir hennar sigursæla sveit
skólans í fyrra. A-sveit Fellaskóla
hlaut annað sætið og sveit Selja-
skóla þriðja. Báðar eiga þessar
sveitir gnótt efnilegra skákmanna
sem eiga örugglega mörg óskrifuð
afrek I framtíðinni. Grunnskóli
Bolungarvíkur átti tvær sveitir í
fjórða sæti ásamt sveitum öldu-
selsskóla og Gagnfræðiskóla Ak-
ureyrar. Röð efstu sveita varð
annars þessi:
1. Hvassaleitisskóli, R 28‘k v. af
36 mögulegum. 2. Fellaskóli a-
sveit, R 26'/2 v. 3. Seljaskóli, R
23‘k v. 4.-7. Grunnskóli Bolung-
arv. a-sveit 20 v. 4.-7. Grunnskóli
Bolungarv. b-sveit 20 v. 4.-7.
Ölduselsskóli, R 20 v. 4.-7. Gagn-
fræðaskóli Akureyrar 20 v. 8. Val-
húsaskóli, Seltjarnarn. 19Vfe v. 9.
Grunnskóli Keflavíkur 19v. 10.
Garðaskóli 18V4 v. 11.—12. Breiða-
gerðisskóli, R 18 v. 11.—12.
Grunnskóli Raufarhafnar 18 v.
Aðrar sveitir urðu neðar.
Það er mál manna að keppnin
hafi í flesta staði tekist vel, og
hafi alla burði til að verða ein
vinsælasta og fjölmennasta
sveitakeppni innanlands í fram-
tíðinni. Skákstjóri var ólafur H.
ólafsson og vann hann mikið
þrekvirki til að keppnin yrði hald-
in og á mestu þðkk skilið fyrir vik-
ið.
Sá leiði misskilningur læddist I
grein um skólaskákmót íslands
um daginn, að Tómasi Björnssyni
var eignaður fyrstum sá heiður að
hljóta sigur í báðum flokkum ein-
staklingskeppninnar. Hið rétta er
að Halldór G. Einarsson frá Bol-
ungarvík var forveri hans. Hann
sigraði í yngri flokki 1979 og eldri
flokki 1981 og eru viðkomandi
beðnir afsökunar. Þröstur Þór-
hallsson, fyrsta borðs maður
Hvassaleitisskóla-sveitarinnar,
slær að lokum botn í þáttinn með
skemmtilegri sóknarskák úr sið-
ustu umferð grunnskólamótsins.
Hvítt: Þröstur Þórhallsson,
Hvassaleitisskóla.
Svart: Sigurður F. Jónatansson,
Álftamýrarskóla.
Sikileyjarvörn.
1. e4 — c5, 2. Rf3 — d6, 3. d4 —