Morgunblaðið - 29.05.1985, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1985
49
Verkamaður hjá borginni:
Framleiðir nýja tegund
„búkkau úti í bílskúr
„ÉG LÍT ekki á mig sem uppfinn-
ingamann, heldur uppfinningasam-
an,“ sagði Jón Karlsson, verkamað-
ur hjá véladeild Reykjavíkurborgar,
þegar hann kynnti blaðamanni nýj-
astu uppdnningu sína.
Jón hefur síðan um síðustu ára-
mót unnið út í bílskúr að smíði
nýrrar tegundar „búkka" sem ætl-
aðir eru til þess að girða utan um
hverskonar slysagildrur, s.s
skurði, holur, grunna o.s.frv.
Hann hefur þegar selt um 100 stk.
af búkkum, og lokið við smíði ann-
ars hundraðs. „Ég hef ekki und-
an,“ segir Jón. Kaupendurnir eru
Reykjavíkurborg, vatnsveita og
hitaveita í Reykjavík og ýmsir
verktakar."
Búkkarnir eru nýjung að því
leyti hversu léttir og meðfærilegir
þeir eru. Áður þurfti heilan vöru-
bíl til þess að flytja innan við 10
stk. af gömlu búkkunum sem eru
úr timbri. Búkka Jóns er hægt að
taka í sundur eftir notkun, en hver
búkki samanstendur af tveimur
járngrindum og þverbitum sem
settir eru á milli. Sem dæmi um
það hversu lítið fer fyrir þeim má
nefna að í bílskúrnum þar sem Jón
vinnur að smíðinni kemst allur
lagerinn, 100 stk., auðveldlega
fyrir. Bílskúrinn er innan við 20
fm að stærð.
„Við íslendingar hugsum allt of
lítið um öryggi. Ég var að rölta
heim til mín einn daginn og var
Búkkana má einnig tengja saman í grindverk til þess að girða stæiTi svæði.
Jón Karlsson sýnir hvernig raða má búkkunum utan um holur eða gryfjur. Hann heldur á einni grind í hendinni.
næstum dottinn ofan í skurð sem
ekkert var girt utan um. Þá fór ég
að hugsa hvort ekki væri hægt að
gera eitthvað í þessum málum,“
sagði Jón. Jón fær sínar hugmynd-
ir í bílskúrnum og þar vinnur
hann úr þeim. „Ég kann eiginlega
best við mig í skúrnum þar sem ég
get prufað mig áfram og hugsað.“
Jón er ekki nýgræðingur á þessu
sviði, hann hefur hannað og smið-
að margt í gegnum árin, og eru
kerrurnar hans aftan í bíla nafn-
kunnastar. Jón vinnur fullan
vinnudag og þarf því að nota kvöld
og nætur í smíðarnar. Hann setur
það ekki fyrir sig, en segist oft
hafa látið sig dreyma um að geta
helgað sig „uppfinningunum" ein-
um saman. „Þá held ég nú að kon-
an segði stopp,“ segir Jón. Ekki
hefur bankakerfið reynst lista-
smiðnum hliðhollt, þar var enga
fyrirgreiðslu að fá. Jón þurfti að
festa kaup á vél til þess að geta
smíðað búkkana og segir að það
hafi hann getað gert einungis
vegna vinsemdar og skilnings selj-
andans.
Jón segir að auðvitað sé hann
ekki sá eini sem eyði kvöldunum
útí skúr við'hönnun og smíðar.
Hann þekkir sjálfur allnokkra
sem eiga sama áhugamál. En það
er ekki tekið út með sitjandi sæld-
inni að vinna að uppfinningum.
„Ég hef stundum velt því fyrir
mér hvort borgin gæti ekki komið
upp húsi fyrir svona ævintýra-
menn eins og mig. Það þyrfti alls
ekki að vera stórt. Ég leigi nefni-
lega skúrinn og húsnæðið setur
manni oft skorður," segir Jón.
Blaðamaður skilur síðan við Jón
Karlsson við teikniblokkina þar
sem hann situr og rissar upp
hugmyndir. Næsta mál á dagskrá?
„Okkar á milli sagt, þá hef ég
áhuga á að fara að smíða vermi-
reiti. Mér sýnist svo að það sé eng-
inn í því hér á landi. Maður er
alltaf að — ég vona bara að ég
verði aldrei svo gamall að ég hætti
að fá hugmyndir.“
áömána
SPARISKIRTEINI RIKISSJOÐS
ERU EKKI ÖLL EINS
Ein gerðin, verðtryggð spariskírteini með vaxtamiðum,
er langþráð lausn fyrir þá sem vilja varðveita sparifé sitt
örugglega og með hárri ávöxtun, sem greidd er út á hálfs árs
fresti og er þannig traustar og öruggar tekjur. Samt stendur
höfuðstóllinn fullkomlega verðtryggður og óskertur eftir.
Sá sem keypti spariskírteini m/vaxtamiðum
fyrir 2 milljónir 10. jan. sl.,
fær í nafnvexti 10. jútí nk._____kr. 66.000.-
+ áætlaðar verðbætur á vexti_____ kr. 10.200.-
Tekjur til ráðstöfunar eftir 6 mánuði kr. 76.200.-
Eftir stendur höfiiðstóll
sem 10. júlí er þá orðinn________ kr. 2.310.000.-
Sölustaðir eru:
Seðlabanki íslands, viðskiptabankamir, sparisjóðir, nokkrir verðbréfasalar og pósthús um land allt.
RÍKISSJÓÐUR ÍSLANI