Morgunblaðið - 29.05.1985, Page 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1985
nógu stórt hjarta
fyrir tvo.
TM Reo. U.S. Pat. Oft,—all rights reserved
«1985 Los Angeles Tlmes Syndicate
Sýnist vera hótunarbréf?
HÖGNI HREKKVÍSI
0 NÚTIMASAFN |
X °o a °Þ I ^ ||
'T' (a
—r rsVT
„ HR.ÍFAMDI ! . ..TAKTU AAVKIP/ "
Á ég að gefa yður á kjaftinn?
Gunnsteinn skrifar:
Fyrr á árum var það talin al-
menn kurteisi að þéra þá, sem
maður þekkti ekki eða hafði ekki
verið kynntur fyrir. Þá voru þér-
ingar notaðar í virðingarskyni
fremur en hið gagnstæða. Mér brá
þegar ég heyrði að blaðamaður þú-
aði forsetann í fyrsta sinn. Nú er
það viðtekin fjölmiðlavenja og
ekki til sóma. Látum það liggja á
milli hluta að þéringar hafi verið
aflagðar almennt á íslandi, það
tilheyrir víst fornri og glataðri
háttvísi í samskiptum fólks. En
eru þéringar ekki aflagðar á ís-
landi? Nei, ónei, ekki aldeilis. Fáir
þú hótanabréf frá opinberum
rukkurum, ertu þéraður upp í há-
stert. „Yður er hér með gert að
greiða“ o.s.frv. Hvurslags kurteisi
er þetta hjá opinberum rukkur-
um?
„Á ég að gefa yður á kjaftinn?"
sagði kurteis maður við þekktan
samborgara hér fyrr á árum.
„Kannski takk“ ansaði borgarinn
og fékk ærlega á hann. Ef til vill
er þetta þéringamál opinberra
rukkara angi af þessari kurteisi.
Menn eru yfirleitt ekki þéraðir
lengur á íslandi nema þegar þeim
er hótað.
„Til þess að forða yður frá frek-
ari innheimtuaðgerðum," heitir
það á máli rukkaranna. Ég skil
svona kurteisi á þennan veg: Ef
þér ekki borgið þá siga ég lögfræð-
ingum á yður, helvítið yðar. Sem
sagt, hinir hógværu þúa, hinir
harðsvíruðu rukkarar og hótarar
þéra.
Verið þér svo sælir.
Samúð í garð veggjakrotara
Veggjakrotari skrifar:
Við erum hér samankomnir
nokkrir veggjakrotarar, sem vilj-
um þakka Guðrúnu Guðlaugsdótt-
ur innilega fyrir samúð og skiln-
ing í okkar garð. Okkur vantar
nefnilega öryggisventil eins og
hún kemst svo vel að orði og okkar
öryggisventill er veggjakrot.
Við skrifum merkilega hluti og
teiknum fínar myndir og þegar
gamlar kerlingar fussa og sveia,
þá fyrst „fríkurn" við alveg út. Það
er æðislegt. Guðrún segir að
veggjakrotið geti verið mikill sál-
arspegill fyrir framtíðina til að
sjá menningarástand líðandi
stundar. Við skrifum góðan texta í
anda ástarinnar og málum fínar
myndir. Og þegar gamlar kerl-
ingar og fínar frúr fussa og sveia
og segja að þetta sé viðbjóður og
klám, þá er okkur skemmt og ör-
yggisventillinn fer í gang hjá
okkur.
Ekki veit ég hvað um okkur yrði
ef við hefðum ekki krotið. Við píp-
um á það þegar fólk er að rífast og
ætlar að reka okkur í burtu. Hug-
verk eru Iöghelg og þessar skjóður
hafa ekkert leyfi til að banna and-
lega list.
Kæra Guðrún, viltu nú ekki
vera svo væn að láta okkur vita
hvar húsið þitt er eða blokkin. Þar
gætum við fengið að vera í friði.
Kærar þakkir fyrir það. Við erum
reiðubúnir að taka strax til hend-
inni.
I
Látiö okkui
vcria
vaáninn
Rvóva
MASTER GLACE
LAKKVERND
Slípað ofan
f laKkift
og aldrei að
bóna meir.
Ryóvarnarskalinn
Sigtum 5 — Simi 194(