Morgunblaðið - 02.06.1985, Blaðsíða 1
' " — ■■■--------------
PRENTSMIDJA MORG UNBLAÐSINS SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ1985 BLAÐ -M-J
MorgunblaÖid/Árni Johnsen
Hundrað fjömtíu og níu sentimetrar er þorskurinn á myndinni, 17 ára gömul hrygna, sem veiddist 14 mflur út af Skor. Jón M. GuÖmundsson í Reykjavík setti fiskinn upp.
„Þorskurinn er ekki vit-
lausari en mannskepnanu
— segir Kiddi Sala trillukarl á Bolungarvík
Eg er búinn að
standa í þessu
basli í trilluút-
gerðinni í um
það bil hálfa
öld, síðan ég
var 18 ára.
Þetta er 15.
báturinn með Steinunnarnafn-
inu, það er móðurnafnið mitt. Ég
átti 3 Tíma áður, vegna þess að
meðeigandi minn hét Tímóteus
Dósotheusson. Dósi sonur Tím-
óteusar var á þvi einu sinni í
Reykjavik. Logreglan trúði hon-
um ekki þegar hann sagði til
nafns og setti hann inn fyrir
bragðið. Svona er nú það,“ sagði
Kristján Sigurðsson trillukarl á
Bolungarvik, eigandi Steinunnar
ÍS 88 eða Kiddi Sali eins og hann
er daglega kallaður í plássinu,
kenndur við afa sinn, Salomon
Rosinkranzson, en amma Kidda
var Karlotta Jónsdóttir. Þeir
bræður eru allir kenndir við
Sala.
„Salomon var mikill fjörkarl,
þrígiftur," sagði Kiddi.
„Já, þeir eru margir búnir að
vera með mér til sjós,“ hélt
Kiddi Sali áfram, „skipstjórar í
Víkinni og víðar. Við Bjarni
bróðir byrjuðum reyndar að róa
snemma með karli föður okkar.
Við rérum fyrst á móti karlinum
7 og 8 ára gamlir á sumrin. Ég er
fæddur 25.10.1919. Núna er Guð-
björn sonur minn formaður á
bátnum, ég er bara með honum,
orðinn slappur í þessu. Báturinn
núna er 3,3 tonn, en ég sé alltaf
eftir Tíma, það var góður bátur.
Við erum rétt að byrja núna,
fengum kringum 300 kg á
fimmtudaginn. Það versta er að
menn eru fyrir löngu búnir með
þennan kvóta. Við eigum enga
samleið með netatrillunum. Þeir
á Snæfellsnesinu og víðar eru
búnir með þrefaldan kvóta og
þegar við byrjum, þá er allt upp
urið, þetta gengur ekki.
Ég hef nú verið af og til á
sjónum. Ég hef líka unnið lengi á
vetrum hjá Einari Guðfinnssyni,
það er gott að vinna hjá þeim,
þeir eru hjálpsamir og alltaf
borgað út á fimmtudögum. Að
mestu hef ég þó verið á sjónum.
Síðan 1926, bæði á sumrin og
vorin og fram á haust og margir
þessir strákar sem hafa spjarað
sig vel hafa byrjað með mér, Jón
Eggert á Heiðrúnu, Jón Hálfdán
á Særúnu og Guðjón Kristinsson
á Hugrúnu. Þetta eru allt sóma-
og dugnaðarmenn, en nú er ég
bara einn í kotinu. Við skildum
eftir 28 ár. Það er nú komið á 13.
ár sem ég hef verið einn í kotinu,
en þetta var ágætt. Við áttum 7
börn, dreifð um allt land, dugn-
aðar- og ágætisbörn. Ætli það
ekki.
Já, já, það hefur verið ágætis
tog í þessu á öllum vígstöðvum.
Öll börnin voru alin upp á trillu-
trosinu og það hefur skilað sér
vel. Þá var alltaf mokafli, alveg
frá 1934 og fram til strfðsloka.
En það er nú eins og það sé að
glæðast núna aftur. Það hefur
verið upp í lt4 tonn á dag hjá
þeim sem byrjuðu í apríl. Verst-
ur þessi leiðindagarri nú og hel-
vítis lægðirnar byrjaðar að elta