Morgunblaðið - 02.06.1985, Síða 5
-
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUÐAGUR2; JtJNl 1985
B 5
Lalli trilhiútvegsmaAur á Dalvfk.
„Mér líkar best að
vera á trillunni“
— bryggjuspjall við Lalla á Dalvík
Niðri á Dalvík hittum við Þor-
vald Baldvinsson trilluskipstjóra,
gamalreyndan trillukarl.
Það var sól og blíða, glampaði
á fjörðinn og vor í lofti. Frammi
á bryggjuhausnum var maður að
dudda í netum, Þorvaldur Bald-
vinsson, í daglegu tali á Dalvík
kallaður Lalli, horfði til hans
meðan hann spjallaði við mig og
sagði að þarna væri sá alharð-
asti í trilluútgerðinni. Alltaf
einn að baxa i hlutunum, alltaf
að og fiskaði manna mest yfir
árið. Stefán Stefánsson heitir
hann, sagði Lalli, kallaður
Stebbi Grenó eða Grenó, ættað-
ur frá Grenivík og hefur verið
geypilega harðsækinn í gengum
árin.
„Jú, það var gott fiskerí í vor
hjá öllum trillunum," sagði Lalli.
„Þetta hefur verið ágætis þorsk-
ur. Ég var með 20 tonn á þremur
vikum í net, 20 net, en ég er einn
af þeim sem er við þetta allan
ársins hring og veðrið spilar oft
inn í. Mér líkar best að vera á
trillunni, það er skemmtilegasti
veiðiskapurinn finnst mér, en ég
hef verið á öllum veiðiskap á ís-
landi. Það má segja að kjörin
sleppi svona sæmilega miðað við
verðlagið í landinu, en það geng-
ur heldur ekki upp nema vinnan
sé mikil og þetta er gífurlega
mikil vinna.“ áj.
NÝJAR SUMARVÖRUR
FRÁ FRAKKLANDI 0G ÍTALÍU
ENGIABÖRNÍN
LAUGA VCGI28, SÍM!22201.
LOFTRÆSTIVIFTUR
Á undanfömum tveimur áratugum höfum við byggt upp stcerztu og reyndustu sér-
verzlun landsins, með loftrcestiviftur í híbýli, skrifstofur, skóla, samkomuhús,
verksmiðjur,vörugeymslur, gripahús og aðra þá staði þar sem loftrcestingar er þörf.
Veitum tceknilega ráðgjöf við val á loftrcestiviftum
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670