Morgunblaðið - 02.06.1985, Page 8
8 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 1985
uppfinningar
Uppfinningamönnum úr öllum heimshornum gefst tækifæri til
að sýna nýjustu uppfinningarnar sínar í Genf í Sviss á hverju
ári. Um 600 manns tóku þátt í sýningunni að þessu sinni og
1000 uppfinningar voru kynntar. Þær voru af ýmsu tagi og
misspennandi en lítið „apparat" sem auðveldar mjög burð á
skíðum vakti sérstaklega athygli fréttaritara Mbl. Það kom
í ljós að fulltrúi íslenska innflutningsfyrirtækisins Loga-
land hafði einnig komið auga á þessa uppfinningu og sýnt
mikinn áhuga. Annars var fróðlegt að sjá hvað fólki lætur
sér detta í hug að framleiða. ítali nookkur hefur framleitt
lítið tæki sem á að koma í stað rafmagnssnúru i framtíð-
inni. Tækið er fest undir borðplötu og slétt rafmagns-
plata er fest undir borðlampa og svo kviknar á perunni
án þess að lampanum sé stungið i samband þegar hann
er settur á vissan stað á borðinu. Eldhústæki verða
einnig snúrulaus í framtiðinni. í staðinn verður litið
gat einhvers staðar á eldhúsborðinu og þar tengjast
tækin rafmagninu. Rafmagnssnúrur hafa ávallt far-
ið einstaklega í taugarnar á þessum uppfinninga-
manni. Annar hefur látið framleiða síma með
tveimur tólum svo að vinir og vandamenn geti
hlustað á hvað manneskjan hinum megin á lín-
unni er að segja. Manni, sem finnst ógeðslegt að
sleikja frímerki datt i hug að framleiða kúlu-
penna með votum svampi i enda fyllingarinnar.
Þeir eru einkar hentugir á ferðalögum, þegar
fólk sendir mörg póstkort, lokið er tekið af
pennanum og frímerkin bleytt með svampin-
um. Sturtuhengi eru oft fyrir fólki og svissn-
simi og eskt fyrirtæki hefur framleitt stangir sem
fvrirtalre imbi falla saman og eru ekki fyrir neinum þegar
UiHa UeM enginn er i sturtu. Og nú er hægt að fá
til <}(} l>6r3 glær baðker sem standa á sóllömpum og
_ , lítið veggtæki sem býr til léttan straum
með SKÍðl og þægilegan öldugang i vatninu.
Stafastólar,
tveggjatóla
Hilty, uppfinningamaöur og
verkfræöingur, heidur á bráö-
sniöugri uppfinningu sem ísienskir
innflytjendur ráku meöal annars
augun í á uppfinningasyningunni i
Genf. Hann kallar hana Ski Porty
og fékk hugmyndina þegar hann
var í vandræöum meö aö bera
skiöin sín langar vegaiengdir i og úr
skíöalyftum í Zermatt. Ski Porty er
úr haröplasti og hefur aö geyma ól
sem er dregin út og fest á skíöin á
auöveidan hátt svo aö þaö er hægt
aö bera þau eins og hliöartösku
milli staöa, eins og sýningarbrúöan
sýnir á myndinni. Ólin skreppur aft-
ur inn i hulstriö og þaö fer sama og
ekkert fyrir því í vasa eöa bundiö
viö belti á meöan skiöin eru notuö.
Hilty var mjög ánægöur með viö-
tökurnar sem Ski Porty fékk á sýn-
ingunni og sagöi að margir heföu
viljað kaupa nokkur stykki strax á
staðnum. En þau veröa ekki til sölu
fyrr en í haust og munu væntanlega
kosta um 40 sv. franka i Sviss.
oltinn skoppar ott
út af vellinum í
blaki og þeir sem eru
leiöir á að hlaupa á eft-
ir honum gætu haft
áhuga á þessu tæki
sem „biæs “ boltum
aftur inn á völlinn.
B
Risablöörur eru farnar aö
sjást á götum stórborg-
anna og voru kynntar á sýn-
ingunni i Genf. Þær eru úr
nokkuö sterku efni og hoppa
hátt upp í loftið þegar þeim er
skellt í götuna. Vifta var not-
uð til aö blása þær upp innan
dyra en úti fyrir er hœgt aö
nota andrúmsloftiö að hluta
til aö fylla þær af lofti.
Stafasófarnir sem Navratii hefur hannaö vöktu
veröskuidaöa athygli. Ungu fólki fannst þeir sór-
staklega spennandi en eigendur fyrirtækja og
skemmtistaöa sýndu einnig áhuga. Navratil sagöist
meðal annars hafa fengiö pöntun frá fulltrúa „nudd-
stofu*«Berlin og eigandi diskóteks i Madagaskar
vildi fá sem flesta stafi. „Stafasófar gætu veriö snið-
ug augiýsing fyrir fyrirtæki. Það skiptir mig litlu máli
hvaöa orð stafirnir mynda, svo lengi sem sem flestir
stafir eru keyptir, “ sagöi Navratil og var hæstánægö-
ur meö viðtökumar á sýningunni.
Snagavandamái hafa nú
kannski veriö leyst í eitt skipti
fyrir öll. Svona slár meö sex snög-
um voru sýndar í Genf. Þær eru
hengdar innan á huröir og þurfa
hvorki nagla né lím til aö tolla á
sinum staö og koma í ýmsum lit-
um.