Morgunblaðið - 02.06.1985, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 02.06.1985, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. JUNI 1985 B 19 Sandgerði: Hvernig eiga menn sem eru að selja atvinnutæki að vera hressir? — spyr Sigurður Friðriksson á Guðfinni frá Sandgerði „Nei, það er nú síður en svo að það sé gott í manni hljóðið," segir Sigurður Fuðriksson skistjóri á Guðfínni frí Sandgerði, þar sem hann situr undir stýri i bryggjunni í Sandgerði á tali við háseta sinn, Jónas Snorrason, og Ragnar Ragn- arsson skipstjóra á Arnari. „Ég veit ekki hvernig menn sem eru að selja undan sér atvinnutæki ettu að geta verið hressir og það er ekki gaman að vera í þessum sporum og þurfa að segja mönnum sem eru búnir að vera með manni árum saman frá því að enginn grundvöll- ur sé fyrir því að gera bátinn út lengur. Þeir sem ráða eru búnir að sjá fyrir því. bað voru tekin 50 tonn af rækjukvótanum okkar og það munar einfaldlega því að dæmið gengur ekki upp. Skuldirn- ar hlaðast bara upp og maður hugs- ar til þess með óhug hve miklar þær gætu orðið á ári. Ég er búinn að eiga Guðfinn í fimm ár og þetta hefur alltaf verið toppbátur og svo er allt í einu bara enginn grund- völlur fyrir rekstrinum lengur. Það er með ólíkindum hvað bátanir hér á Faxaflóasvæðinu hafa farið illa út úr kvótaskiptingunni.“ „Ertu búinn að selja bátinn?“ „Nei, ég var að láta hann i sölu og er strax búinn að fá tilboð í hann. Það kom frá Vestmanna- eyjum. Þeir eru víst ekki í vand- ræðum þar.“ „Og hvað tekur þá við hjá þér?“ Ætli maður athugi ekki hvort hægt er að fá eitthvað að gera á Vellinum, nú eða þá að maður athugar með fiskverkun. Mér hafði reyndar dottið í hug að fara annað með bátinn, eitthvað út á land þar sem meiri mögu- leikar eru á því að fá viðunandi kvóta. En það er bara hægara sagt en gert að rifa sig upp með fjölskyldu og flytjast búferlum til að eltast við þetta.“ „Hvað eru margir rækjubátar gerðir út frá Sandgerði?" „Nú eru þeir 22 en voru 11. Þetta er framsóknarstefnan i hnotskurn. Bátunum er fjölgað um helming eins og ekkert sé sjálfsagðara og heildarkvótinn látinn halda sér með þvi að minnka hann hjá þeim bátum sem fyrir eru. Það er ekkert hér að hafa lengur. Vetrarvertíðin var nú ekki buröug i ár, 91 tonn af þorski, en fjórar undanfarnar vertíðir höfum við verið með 200 tonn. Og það er langt í frá að minn bátur sé sá eini sem svona er komiö fyrir. Þeir eru að fara þessir bátar, hver af öðrum." „Og ástæðan er kvótakerfið eða hvað?“ Ragnar Ragnarsson, Sigurður Friðrikamn og Jónas Snonanon. MorgunbU»ið/Júliui „Nei, það er ekkert á móti kvótakerfinu út af fyrir sig. Það er skiptingin og stjórnunin sem er vandamálið. I fyrra var út- hlutað 150 tonnum af rækjum en nú fást ekki nema 100 tonn til skiptanna á sama tima og bátun- um er fjölgað um helming. Áður var búið að skerða þorskinn og svo kemur þet*a með rækjuna. Þessir menn vita ekkert hvað þeir eru að gera. Skiptaverðið á rækju er 16,70 á kílóið og aflinn er um átta tonn á viku á fjögurra manna bát. Það sér hver maður að það gengur ekki upp. I vetur var okkur sagt að við yrðum að sætta okkur við skertan þorskkvóta af þvf að við fengjum síðan rækjukvóta í vor. Síðan skerða þeir rækjukvótann um 30%. Á sama tíma hefur allt hækkað, allur kostnaður við út- haldið hefur rokið upp.“ „Hvernig viltu láta skipta kvótanum, Sigurður?" „Það þarf að hugsa fyrir nýju kerfi og það þarf að grundvallast á aflaverðmæti en ekki klíku- skap og úreltum forsendum. Þeir í ráðuneytinu og hjá LÍÚ virðast steinsofandi fyrir því að það þarf að koma á réttlátara og skynsamlegra kerfi en nú er við lýði. Með þessu móti verður þetta áfram á niðurleið þangað til bátaútgerð leggst bara niður hér um slóðir. En það eru fleiri sem berjast í bökkum en þeir sem gera út báta. Fiskverkunin er mjög illa stödd líka. Eitt veit ég og það er það að sízt af öllu mundi ég ráðleggja ungum mönnum að fara í sjómanna- skóla í dag. Þetta er ekki atvinna sem ráðlegt er að leggja fyrir sig. Það er í rauninni alveg óskiljanlegt hvérnig Sjálfstæðis- fíokkurinn lætur framsóknar- mennina vaða uppi í sjávarút- vegi.“ Undir þetta tekur Ragnar Ragnarsson: „Það er ekki vafi á því að bátarnir hér hafa farið mjög illa út úr kvótaskipting- unni. Þær ráðstafanir sem sjáv- arútvegsráðuneytið stendur fyrir hér jafngilda eignaupp- töku. Fótunum er kippt undan fólki sem hefur haft afkomu sína af þessu á meðan maður veit dæmi þess að sumir fá svo mik- inn kvóta að þeir geta ekki nýtt hann. Ég veit dæmi þar sem skuld í vélsmiðju var borguð með kvóta.“ „Hvað segir þú um þetta, Jón- as?“ „Ég segi fátt. Ég er varla bú- inn að átta mig á því að ég er í þann veginn að missa plássið af því að það þarf að selja bátinn." Welkom, Gruetsi,Wilkommen. Arnarflug býður ykkur velkomin til þriggja borga í Evrópu Þessi Ijúfa heimsborg er í uppáhaldi hjá öllum sem hafa heimsótt hana. Það er sérstaklega gaman og gott að versla í Amsterdam, þar er meira úrval af frábærum matstöðum en í flestum öðrum borgum og skemmt- analífið er fjölbreytt og létt. Það verður flogið fimm sinn- um í viku milli Amsterdam og Keflavíkur í sumar. Arnar- flug býður hagstæðar pakka- ferðir til Amsterdam, útvegar hótel og bílaleigubíla og far- miða í tengiflug ef ferðinni er heitið lengra. Engin flug- höfn í heiminum býður upp á betri og auðveldari tengi- flugsmöguleika en Schiphol í Amsterdam. Auk þess að vera hliðið að I Ölpunum og hinum fögru fjallahéruðum Sviss er Zurich stærsta borgin þar í landi. Þar er að finna einkar vandaðar verslanir og menningar- og skemmtanalífið er í samræmi við það. Borgin stendur við stórt stöðuvatn og um það sigla falleg, gamaldags hjóla- skip, með ferðamenn. Zúrich er í fögru umhverfi og feg- urðin blasir hvarvetna við þér þegar þú ekur frá borginni, um frjósama dali og tignarleg fjöll til að gista í litlum Qalla- þorpum og skoða forna kast- ala. Arnarflug flýgur vikulega til Zúrich í sumar. Það er í Dússeldorf sem Rínarævintýrin heQast. Þaðan er lagt upp í ferðir um fögur héruð Rínardalsins og ferðin verður sérstaklega þægileg og skemmtileg ef þú tekur einn af húsbílunum sem Arn- arflug hefur á boðstólum. Bíl- arnir eru afýmsum stærðum, allt upp í að vera hreinar lúxusvillur, á hjólum. Dúss- eldorf sjálf er falleg borg og sérstaklega gaman að heim- sækja „gamla bæinn". Hann er innan við ferkílómetra að stærð, en þar eru yfir 200 gamaldags veitingahús og Qölmargar verslanir. Þar heQ- ast líka skemmtilegar báta- ferðir um Rín. Arnarflug flýgur vikulega til Dússeldorf. ARNARFLUG LAGMÚLA 7 SÍMI 29511

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.