Morgunblaðið - 02.06.1985, Page 35

Morgunblaðið - 02.06.1985, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 1985 B 35 Ingólfur Þorleifsson að koma upp á bryggjuna úr trillunni sinni, Smára ÍS 144. Morgunblaðid/Rax „Mokfiskirí fyrir fram an eldhúsgluggann“ „TRILLAN mín er eitt tonn og sextíu kfló, minnsta trillan í flotan- um hér,“ sagði Ingólfur Þorleifs- son trillukarl í Bolungarvík,“ ég er búinn að eiga hana I 8 ár og hef alltaf verið á sjó á sumrin. Þetta hefur gengið þokkalega, en ég fer nú ekki langt á þessu, það var mik- ill fiskur hérna rétt fyrir framan eldhúsgluggann í fyrra, mokfiskirí, en það verður ekki núna, snurvoð- arbátarnir sjá fyrir því. Já, það var mikið í fyrra, ég fékk 9 tonn í október, aðeins 5 mínútna sigl- ingu, en það er ekki einn einasti flskur þar nú, það er dragnótin, maður. Já, ég varð 65 ára í september, en hef verið meira og minna á trillum allt mitt líf, fæddur og uppalinn hér og hér hef ég alltaf verið. Við áttum fjórir trillu sem Marselíus smíðaði, hún var 4,5 tonn, einn þingmaðurinn átti í henni, Karvel, en svo seldum við, þeir vildu selja, og ég keypti þetta horn. Að öðru leyti hef ég alltaf verið í saltfiskverkun hjá Einar Guðfinnssyni. Svo var ég á sjónum á stærri bátum, var með Einari Hálfdáns á Sólrúnu. Nei, ég er ekki hress með dragnótina uppi í landi, maður er rétt að byrja, búinn að fara þrjá túra og fá tonn og kvótinn er búinn. Þetta gengur ekki að hafa netatrillurnar inni í þessu, færin verða að vera sér. 8—9 tonna trilla tekur í net á einum degi það sem færin gefa á einum mánuði. Annars er gott hljóðið í mér, ég fæ alltaf eitthvað eins og hin- ir. Það er frjálsræðið sem er best við trillurnar, maður stjórnar sér sjálfur, byrjar og hættir að vild.“ — á.j. Haraldur Einarsson í brúnni á Marzinum. „Varð forríkur 13 ára á grásleppunni“ Haraldur Einarsson, 19 ára fjöl- brautaskólanemi í Garðabæ, er há- seti á Marz frá Drangsnesi. Har- aldur er á Náttúrufræðibraut og á eftir eitt ár í stúdentinn. „Ég hef verið á sjó á sumrin frá 13 ára aldri, en ég er Garðbæingur. Fyrstu sumrin var ég á grásleppu og síðan hef ég verið tvær vertíðir á djúp- rækju. Þess á milli skrepp ég á sjóinn þegar færi gefst, því ég hef haft ágætis uppgrip í sjó- mennskunni. Eg hafði til dæmis gott upp í fyrra og þegar ég var 13 ára á grásleppunni, í fyrsta sinn, varð ég forríkur, milljóna- mæringur, því þá eignaðist ég fyrstu og einu milljónina til þessa, að vísu í gömlum krónum. Ég er búinn að fara tvo túra núna eftir skólann og mér lfkar ágætlega á sjónum. Það er ef til i vill skemmtilegra í landi, en maður hefur gott upp úr þessu ef vel gengur. Ég efast þó um að ég haldi áfram á sjónum. Nei, ég man ekki eftir neinum félögum mínum öðrum á sjó, það er líklega ekki mjög algengt í Garðabænum. Jú, jú, ég er sjóveikur, maður er með smá sjóaraveiki fyrsta túrinn, en síðan er sama hvað gengur á, það er bara að láta sig hafa það, þetta kemst upp í vana.“ — áj. Límtré í plötum Fura — Beyki Eigum fyrirliggjandi úrval af límtrésplötum til innréttinga, fyrir idnað og húsgagna- smíði. Þykktir: 19-30-40 mm. Nýborg^# Ármúla 23, sími 686755. KVIK ÖKONOME barnableyjur eru gæöavara á lágu veröi. Fást í næstu búð. 3i OKONOMIBLE 7391 ovct81l|í. ■ *E Lítiö utlitsgölluð kæli- og frystitæki meö stór-afslætti 8®i;?ICognys«iskápar K*T.iskápar Msil' ýrrisar st*rð| Vörumarkaöurinn hf. Heimilistækjadeild, Ármúla 1a, s£86117

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.