Morgunblaðið - 02.06.1985, Side 41

Morgunblaðið - 02.06.1985, Side 41
B 41 Ljóémynd/Júlíus Doujj Scott hefur lagt margt Qallið að ▼elli, var m.a. fyrstur til að klífa suðvest- urhlíð Mont Everest Tindurinn í augsýn ... vegginn. Ég fer yfirleitt alltaf ótroðnar slóðir sem ekkert er vit- að um. Ég geri ráð fyrir að það sé sama ástæðan sem rekur mig í þessa leiðangra og það sem rak menn áfram til að finna áður óþekkt lönd eins og t.d. Island." — Hvemig tilfinning er það að ná toppnum? „Það er ólýsanlegt. Mér er minnisstæðast þegar við komum upp á Everest. Þetta var um 6 leytið, seinnipart dags, útsýnið stórkostlegt og sólin hellti geislum sínum út um allt.“ Hann horfir hugsi fram í salinn og sér þetta greinilega fyrir sér. „Þetta er eins og vítamínsprauta, virkar í ákveð- inn tíma, en svo verð ég að fara aftur af stað.“ — Að kanna ókunnar slóðir, segirðu. Þú hefur ekki verið að hugsa um að slást í hóp geimfara? „Nei, ég vil hafa fast land undir fótum, og ráða ferðinni sjálfur. Gæti ekki hugsað mér að vera staddur í einhverri fjarstýrðri blikkdós úti í geimnum. Auk þess er ég í seinni tíð farinn að byggja mun meira á allskyns hugboðum, byggja á hinni kvenlegu innsæis- gáfu, hvaða leið sé heppilegri upp- göngu en önnur, og þeirri gáfu er ekki hægt að beita í stjórnlausri málmdós." — Innsæisgáfa segirðu. Hef- urðu einhvern tíma fengið hugboð um að þú værir í hættu staddur? „Nei, ekki ég sjálfur, en flestir félaga minna sem hafa látist hafa vitað það áður og fjölskyldur þeirra líka.“ — Ertu kannski örlagatrúar? „Ég held það séu ákveðnir hlutir sem við ráðum yfir í þessu lífi en yfir öðrum höfum við hugsanlega lítið að segja.“ — Hefur þú orðið fyrir ein- hverjum óhöppum í leiðöngrum þínum? „Já, árið 1977 var ég að klifra ásamt félaga mínum, Chris Bon- ington, á fjalli í Pakistan, datt og braut á mér báða ökklana. Ég var átta daga að skríða á hnjánum niður að búðunum, sem voru við fjallsræturnar, og þar beið ég í þrjá sólarhringa eftir þyrlu. Það tókst þó ekki betur til en svo að hún fórst við búðirnar, og ég komst ekki í læknishendur fyrr en löngu eftir brotið.“ En ertu jafngóður í fótunum? „Ég fékk meðferð færustu skurðlækna, það eru skrúfur í báð- um ökklunum, ég er alveg jafngóð- ur, en þetta hefur haft þau áhrif að ég er gætnari en ég var.“ Hann þegir smástund og bætir svo við: „Ég held að starf mitt sé síður en svo hættulegra en starf ykkar fréttamanna, sérstaklega þó þeirra sem eru í fréttaharkinu. Það vekur hinsvegar ekki jafn mikla athygli þegar einn frétta- maður dettur niður annað hvort á hlaupum eða í stól sínum eins og ar fjallgöngugarpur ferst.“ kjölfar þessarar athugasemd- ar hefjast umræður um mismun- andi fréttagildi slysa og óhappa. Tíminn líður, klukkan verður sex og Scott fær bragðprufu af ís- lenska bjórlíkinu. Hann segir bjórdrykkju góðan undirbúning fyrir háfjallaklifur, „Súrefnis- skorturinn hefur svipuð áhrif á heilann og að drekka nokkrar bjórkollur, og því hærra sem við klífum því fleiri kollur.“ Félagi í íslenska Alpaklúbbnum er kominn að sækja Scott, spjallið fer að snúast um íslenska fjall- göngugarpa og Scott segir að við ættum að geta myndað hér harð- soðið lið klettaklifrara. Loka- spurningunni er þó beint að Scott sjálfum; er hann lofthræddur? „It is okay with the rope on, — mér er sama meðan kaðallinn er mér til trausts og halds, en mér er ekkert gefið um háar byggingar. Ég get vanist litlu súrefni og kulda en lofthræðslan hverfur aldrei, — sem betur fer, því lík- lega heldur hún í mönnum lífinu.“ Viðtal: Valgerður Jónsdóttir Enginn efast um athafnaþrek og hugrekki þeirra manna er leggja hæsta fjall heims undir fót. V estmannaeyjar: 22 luku prófum frá Stýrimannaskólanum Vrxtmannaeyjum. SKÓLASLIT Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum voru hinn 18. mai sl. í Básum. Að þessu sinni stunduðu 12 nemendur nám í I. stigi og 10 nemendur í II. stigi. Prófum 1. stigs lauk 27. apríl sl. og náðu allir nem- endur prófi. Hæstir og jafnir urðu Agúst Ingi Sigurðsson, Vestmanna- eyjum, og Kúnar H. Jóhannsson frá Akureyri með meðaleinkunnina 8,84. Næstur þeim varð Magnús Guðmundsson frá Vestmannaeyjum með 8,31. Meðaleinkunn bekkjarins var 7,56. í II. stigi náðu allir prófi og þar varð hæstur Roland Buchholz frá Grindavík með meðaleinkunnina 9,26. Annar varð Ólafur Þ. Ólafs- son frá Vestmannaeyjum með 8,93 og þriðji Hallgrímur Guðmunds- son frá Hornafirði með 8,43. Með- aleinkunn bekkjarins var 7,74. Friðrik Ásmundsson skólastjóri afhenti nemendum prófskírteini sín og ávarpaði nemendur og gesti. Sigurður Einarsson útgerðarmað- ur gaf barómet fyrir hæstu meðal- einkunn í II. stigi og hlaut það Roland Buchholz en hann hlaut einnig sjónauka sem Útvegsbænd- afélag Vestmannaeyja gaf fyrir hæstu meðaleinkunn í siglinga- fræði. Rotaryklúbbur Vestmanna- eyja veitti bókaverðlaun fyrir hæstu einkunn í íslensku, hlutu þeir Roland Buchholz og Ólafur Þ. Ólafsson þau verðlaun. Jóhannes Steingrímsson frá Akureyri hlaut bókaverðlaun úr sjóði hjónanna Ástu og Friðfinns frá Oddgeirs- hólum fyrir ástundun og framfar- ir t námi á skólaárinu. Þá færði Sparisjóður Vestmannaeyja styrktarsjóði nemenda kr. 20 þús. að gjöf. Skólastjóri Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum er Friðrik Ásmundsson. — hkj. Fyrstu gestirnir komu áður en tjaldsvæðið var opnað SelfosHÍ. 29. m»i. EYRSTH gestir tjaldvæðisins á Sel- fossi birtust í gær 28. maí en form- leg opnun svæðisins er 1. júní. Tjaldsvæðið var áningarstaður fjölmargra útlendinga á sl. ári. Var einkum um fólk að ræða sem lagði leið sína að Gullfossi og Geysi. Sérleyfisbílar Selfoss halda uppi áætlunarferðum að Gullfossi og Geysi og bílar þeirra stansa á götunni við tjaldsvæðið sem er þægilegt fyrir ferðafólk. Á tjaldsvæðinu er hreinlætis- aðstaða og aðstaða fyrir fólk að elda sér máltíð og snæða innan- dyra. Þá er þar smáhýsi með svefnplássi fyrir fjóra og eldunar- aðstöðu. Fyrstu gestirnir, H. Dullet og S. Alex, sögðust koma beint frá Mex- íkó og fannst viðbrigðin býsna mikil. Þau létu vel af íslandi og hugðu á ferð austur að Kirkjubæj- arklaustri næsta dag. Sig. Jóns Ný brú yfir Syór. Ungholti, 30. maí. í SIJMAR verður byggð ný brú á Stóru-Laxá í Hreppum. Fram- kvæmdir eru hafnar fyrir nokkru og er áætlað að brúarsmíðinni verði lokið í október. Þessa nýju brú tciknaði Einar Hafliðason verkfræð- ingur hjá Vegagerðinni og sér Vega- gerð ríkisins um framkvæmdir. Brú- in verður 120 metra löng með einni akgrein, svokölluð eftirspent bitabrú með þremur höfum. Yfirsmiður er Jón Valmundsson frá Vík í Mýrdal. Gamla brúin yfir Stóru-Laxá er orðin ansi hrörleg, vægast sagt, Stóru-Laxá enda byggð árið 1929. I miklum jakaburði vetrarflóða hafa menn óttast að hún myndi bresta. Þá hefur hluti vatnsflaumsins iðulega runnið yfir veginn norðan hennar og rofið vegasambandið við Hrunamannahreppinn. Hefur það þó kannski bjargað því að brúin stendur enn. Mikil ánægja er hér í sveit með þessa nauðsynlegu framkvæmd sem tryggir öruggar samgöngur út úr hreppnum hvernig sem Stóra-Laxá lætur í vetrarhamförum sínum. Fréttaritari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.